Dagur - 25.05.1995, Qupperneq 18

Dagur - 25.05.1995, Qupperneq 18
18B-DAGUR Afmælisblað ÚA - Fimmtudagur 25. maí 1995 Sólbakur EA 307. Smfðaður í Muoran í Japan árið 1972. Keyptur til ÚA 1990. Stærð 560 brúttó- lestir. Hét áður Drangey SK 1 og Aðalvík KE 95. Fyrsti skipstjóri Kristinn Gestsson. Núver- andi skipstjóri Árni Ingólfsson, 1. stýrimaður Ásgeir I. Jónsson. (Myndasafn Dags). Kaldbakur EA 301. Keyptur nýr til ÚA árið 1974. Smíðaður í San Juan á Spáni og er 941 brúttó- lest. Fyrsti skipstjóri Sverrir Valdimarsson. Núverandi skipstjóri Sveinn Hjálmarsson, 1. stýri- maður Hermann Haraldsson. (Myndasafn Dags). Togarajloti Útgerðarfélagsms Útgeróarfélag Akureyringa gerir út 7 togara, ís- fisktogarana Kaldbak, Harðbak, Arbak og Hrím- bak og frystitogarana Sólbak, Sléttbak og Svalbak. A síðasta ári var Svalbak EA 302 lagt og nýi Sval- bakur EA 2 kom íhans stað. Hér birtast myndir af núverandi flota ÚA en eftirfarandi togarar hafa horfið úr flotanum: ■ 1. Kaldbakur EA 1. Kom nýr frá Bretlandi 1947. Stærð 654 brúttólestir. Fyrsti skipstjóri Sæmundur Auðunsson. Seldur í brotajárn 1974. ■ 2. Svalbakur EA 2. Keyptur nýr frá Skotlandi 1949, 656 brúttólestir. Fyrsti skipstjóri Þorsteinn Auðunsson. Seldur í brotajárn 1975. ■ 3. Haróbakur EA 3. Keyptur nýr frá Skotlandi 1950, 732 brúttólestir. Fyrsti skipstjóri Sæmundur Auöunsson. Seldur í brotajárn 1979. ■ 4. Sléttbakur EA 4. Smíóaður í Englandi 1947. ÚA eignaðist togarann 1953. Hét áður Helgafell, 654 lestir. Fyrsti skipstjóri Finnur Daníelsson. Seldur í brotajárn 1974. ■ 5. Hrímbakur EA 5. Smíðaður í Skotlandi 1947. Keyptur til ÚA 1960. Stærð 660 lestir. Fyrsti skip- stjóri Sverrir Valdimarsson. Seldur í brotajárn 1969. ■ 6. Sólbakur EA 5. Fyrsti skuttogari ÚA. Smíðaó- ur í Póllandi 1967. Keyptur til ÚA 1972. Fyrsti skipstjóri Áki Stefánsson. Seldur í brotajárn 1983. ■ 7. Sólbakur EA 305. Smíðaður í Englandi 1969. Stærð 743 lestir. ÚA eignaðist skipið 1987. Fyrsti skipstjóri Kjartan Eiösson. Seldur í brotajárn 1993. ■ 8. Svalbakur EA 302. Smíðaður í Noregi 1969. Keyptur til ÚA 1973. Hét áður Stella Karina og er 781 lest að stærð. Fyrsti skipstjóri Halldór Hall- grímsson. Var lagt á síðasta ári. ■M. Svalbakur EA 2. Smíðaður í Danmörku. Stærð 1.419 lestir. Keyptur til ÚA 1994 frá Kanada. Hét áður Cape Adair. Fyrsti og núverandi skipstjóri Kristján Halldórsson, 1. stýrimaður Sæmundur Friðriksson. (Myndasafn Dags). Hrímbakur EA 306. Smíðaður í Gdynia í Póllandi árið 1977. Keyptur til ÚA árið 1985. Stærð 488 brúttólestir. Hét áður Bjarni Herjólfsson. Fyrsti skipstjóri Stefán Aspar. Núverandi skip- stjóri Stefán Sigurðsson, 1. stýrimaður Víðir Benediktsson. (Myndasafn Dags). Árbakur EA 308. Smíðaður í Fredrikshavn í Danmörku árið 1980. Keyptur til ÚA 1991. Hét áð- ur Natzek og var grænlenskur rækjutogari. Stærð 430 brúttólestir. Fyrsti skipstjóri Árni Ing- ólfsson. Núverandi skipstjóri er Stefán Aspar, 1. stýrimaður Haukur Hauksson. Mynd: Golli. Sléttbakur EA 304. Smíðaður í Sjövikgrend í Noregi árið 1968. Keyptur til ÚA 1973. Hét áður Stella Kristina. Árið 1987 var togarinn lengdur og breytt í frystiskip og var eftir það 902 lestir. Fyrsti skipstjóri var Áki Stefánsson en núverandi skipstjóri er Gunnar Jóhannsson og 1. stýri- maður ívan Brynjarsson. Mynd: KK. Harðbakur EA 303. Keyptur nýr til ÚA árið 1975. Smíðaður í San Juan á Spáni og er 941 brúttó- lest. Fyrsti skipstjóri Sigurður Jóhannsson. Núverandi skipstjóri er Jón Jóhannesson, 1. stýri- maður Guðmundur Guðmundsson. (Myndasafn Dags).

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.