Dagur - 25.05.1995, Blaðsíða 21

Dagur - 25.05.1995, Blaðsíða 21
Togarinn Frosti ÞH 229 leggur upp hjá Útgerðarfélaginu. Mynd: Robyn. Frystihús Síðastliðið vorgekk Útgerðar- félagið til samstarfs við Greti- víkinga um endurreisn fisk- vinnslu þar, en Kaldbakur hf., sem hafði starfað þar um ára- bil, varð gjaldþrota. Útgerðarfélagið keypti frysti- húsið ásamt ýmsum búnaði af þrotabúinu og gerði um leið sam- komulag við Grýtubakkahrepp og á Grenivík nokkrar útgerðir á staðnum um öflun hráefnis og aðgang að fisk- veiðiheimildum. Eignirnar fengust á hagstæðu verði og með þessari ráðstöfun fékkst aukin kjölfesta í hráefnisöflunina á Akureyri og Grenivík. Togarinn Frosti landar t.a.m. öllum afla sínum hjá félag- inu. Vinnsla hófst á Grenivík í júní og var framleiðsluverðmæti á ár- inu rúmlega 100 milljónir króna. Fimmtudagur 25. maí 1995 - Afmælisblað ÚA DAGUR-B21 CNDNlHCt PÓSTHÓLF 50. 620 DALVÍK, SÍMI 96 - 61670, BRÉFSÍMI 96 - 61833 Á morgun, föstudaginn 26. maí, eru 50 ár liðin frá stofnun Útgerðarfélags Akureyringa hf. Það er næsta fátítt í íslenskri útgerðarsögu að sjávarútvegsfyrirtæki nái svo háum aldri, enda hafa sveiflurnar í þessari undirstöðu atvinnugrein þjóðarinnar verið bæði margar og stórar. Akureyringar hafa frá upphafi stutt dyggilega við bakið á félaginu sínu og sameinast um að fleyta því yfir erfiðustu hjallana. Árangurinn er sá að á 50 ára afmælinu er ÚA eitt stærsta og öflugasta útgerðarfélag landsins og hefur frá upphafi verið einn af hornsteinum atvinnulífs í Eyjafirði. Við viljum nota tækifærið og þakka Akureyringum og öðrum velunnurum félagsins ómetanlegan stuðning á liðnum árum. Stjórn og starfsfólh Útgerðarfélags Akureyringa hf

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.