Dagur - 25.05.1995, Blaðsíða 27

Dagur - 25.05.1995, Blaðsíða 27
Afgömlu skipstjórunum hjá ÚA, þeim sem voru á fyrstu síðutogurum félagsins, hefur hvað minnstfarið fyrir Sverri Valdimarssyni enda nokkuð um liðið síðan liann kom t land. Þar eð oftlega hefur verið rætt við marga af þessum köppum þótti okkur upplagt að heimsækja Sverri í Leirunesti Esso, þar sem hann hefur unnið á bensínstöðinni síðustu ár, og biðja hann að líta um öxl. Sverrir Valdimarsson var búinn að stunda sjómennsku í nokkur ár þegar hann réðst til Útgerðarfélags Akureyringa árið 1950 og fór þá á fyrsta togara félagsins, óskabarniö Kaldbak. Síðan hefur hann stýrt mörgum togurum ÚA. „Eg byrjaði sem háseti á Kald- bak 1950 en þá var Gunnar Auö- unsson skipstjóri. Eg varð 2. stýri- maður 1953 þegar ég kom úr skól- anum og 1. stýrimaður 1955. Þá var Jónas Þorsteinsson skipstjóri. Ég var á Kaldbak i tíu ár eða til 1960 þegar ég tók við Hrímbak." Sverrir var fyrsti skipstjóri Hrímbaks EA 5 sem Útgerðarfé- lagið keypti árið 1960 en þá hét skipið Norðlendingur OF 4 og var margar og oft mikið líf í kringum þær en hins vegar var sjaldnast nema sólarhrings stopp í erlendum höfnum, rétt á meðan landað var úr skipinu. Túrarnir voru aldrei mjög langir, enda vorum við á ís- fiskveiðum og það setti sínar skorður með hliðsjón af ferskleika aflans. Við vorum samt farnir að sækja býsna langt. Þarna var búið að uppgötva Nýfundnalandsmiðin og fyrsti túrinn minn með Kaldbak var einmitt á Nýfundnaland. Við fórum líka á Grænlandsmið, bæði austur og vestur. Þetta gekk allt vel og Kaldbakur var mjög gott sjóskip." - Érystihús ÚA komst í gagnið 1957 og þá hefur lífið væntanlega Fimmtudagur 25. maí 1995 - Afmælisblað ÚA DAGUR - B 27 ◄ Sverrir í Leirustöð Olíuféiagsins. Hann kom í land 1977 og hefur unnið hjá Höldi frá 1985. Mynd: SS. reglan ekki komin, þ.e. að maður ætti rétt á eftirlaunum eftir sextugt. Þegar mér bauðst að koma inn í Skipaþjónustuna með Hirti þá sló ég til því ég óttaðist að það yröi erfitt að fá vinnu í landi þegar ég yrði eldri. I Skipaþjónustunni vor- um við með veiðarfæri fyrir báta og minni skuttogara." - Og nú ertu hér á bensínstöð Esso með útsýni yfir Pollinn. Togar sjórinn ekkert í þig? „Nei, ekki lengur. Ég er búinn að vinna hjá Höldi síðan 1985 en ég fór reyndar nokkra afleysingar- túra eftir að ég kom í land, þann síðasta 1986. Astæðan fyrir því að ég vildi fara í land var líka sú að ég var búinn að vera lengi á sjó og fjölskyldulífið mótast náttúrlega af því. Þetta er erfitt til lengdar." Anægjulegt að vinna með Vilhelm „ Vúdi fara í land áður en égyrði ofgamall“ segir Sverrir Valdimarsson skipstjóri í eigu Ólafsfirðinga, Sauðkrækinga og Húsvíkinga. Hann hafði áður verið gerður út frá Vestmannaeyj- um sem Bjarnarey og Vilborg Herj- ólfsdóttir. Togarinn var smíðaður í Skotlandi 1947, 660 brúttólestir að stærð. Hann endaði í brotajárni 1969 eftir að hafa legiö í fjörunni í Sandgerðisbót í þrjú ár. Mikið siglt fyrstu árin - Á þessum fyrstu árum var iðu- lega siglt með aflann, ekki satt? „Jú, það var mikið siglt en einnig landaö í ýmsum höfnum innanlands. í kringum 1952 var líka byrjað á gúanóveiðinni og þá fórum við aó leggja upp í Krossa- nesi. Siglingarnar voru auðvitað breyst mikið hjá sjómönnunum. „Já, þá fórum við að landa í heimahöfn. Þaó breytti auðvitað miklu þegar við komum heim með reglulegu millibili. Við fórum þó eitthvað á salt eftir að frystihúsið tók til starfa. Það var oft mikiö um- stang í kringum saltfiskinn. Við vorum allt upp í 42-44 um borð og varla þverfótað fyrir mannskap." Hætti með Hrímbak í verkfallinu - Þú tókst við Hrímbak eftir að hann kom til ÚA en varst ekki lengi skipstjóri á honum. „Nei, ég var á Hrímbak fram að verkfallinu 1962. Það var langt og strangt verkfall þetta sumar og ég fór fyrst að vinna í Slippnum en síðan á síld á Sigurði Bjarnasyni. Þegar síldarvertíðin var á enda var mér boðið að taka við Kaldbak. Ég var síðan skipstjóri á Kaldbak þar til Stellurnar komu 1973 en tók þá við Harðbak. Þarna var veriö að endurnýja flotann og skuttogarnir að leysa síðutogarana af hólmi og ég var því stutt með Harðbak því 1974 fór ég að ná í nýjan Kaldbak út til Spánar." - Var ekki stórt stökk að fara yf- ir á skuttogara? „Það var allt annað líf. Öll vinna um borð varð mun þægi- legri, betri vél og stjórntæki og skipin í heild stærri og fullkomn- ari. Þetta var bylting, eins og svart og hvítt." „Skemmtilegur andi“ - segir Elvar Thorarensen Maísólin skein glatt þegar Elv- ar Thorarensen gekk til vinnu á ný eftir hádegisverðarhlé. Blaðamaður greip hann glóð- volgan áður en hann slapp inn og bar upp nokkrar spumingar. - Hvað ert þú búinn að vinna lengi hjá Útgeröarfélaginu? „Þaö verða þrjú ár núna í sum- ar. Ég byrjaði hérna á skrifstofunni eftir stúdentspróf úr Verkmennta- skólanum á Ákureyri og hef verið hér síðan." „Þetta er fjölbreytt og áhugavert starf," Thorarensen. segir skrifstofumaðurinn Elvar Mynd: SS - Hvernig líkar þér? „Mjög vel. Þetta er búinn að vera góður tími, gott samstarfsfólk og skemmtilegur andi á skrifstof- unni. Það er líka gaman að vinna með reyndari mönnum og fá leiö- sögn hjá þeim." -1 hverju er starf þitt fólgið? „Ég hef verið í launaútreikning- um og líka í birgðahaldinu. Þetta er fjölbreytt og áhugavert starf." - Þú ert kunnur íþróttamaður hjá íþróttafélaginu Akri. Hafa æf- ingar og keppni ekki stundum skarast á við vinnuna? „Jú, en ég hef mætt mjög mikl- um skilningi hjá yfirmönnum mín- um. Hins vegar hef ég dregið úr þessu og æfi nánast ekkert núna. Þetta er erfiðara eftir að maður er kominn með fjölskyldu." Elvar sagðist stefna á áframhaldandi störf hjá ÚA enda ágætt að vera þar og frekara nám væri ekki inni í myndinni að svo stöddu. Hann var að sjálfsögðu spenntur fyrir afmælishaldinu, en ÚA heldur starfsfólki sínu stór- veislu í Iþróttahöllinni 9. júní. Sló til þegar mér bauðst starf Sverrir var skipstjóri á Kaldbak EA 301 fram til ársins 1977 og fór þá í land og starfrækti Skipaþjónust- una með Hirti Fjeldsted. - Hvers vegna hættirðu á sjó á besta aldri? „Ég vildi fara í Iand áður en ég yrði of gamall. Þarna var 60 ára Sverrir fór í land öðrum þræði til að „slaka á" og vera meö fjölskyld- unni og hefur ekkert farið á sjó síð- an í afleysingartúrnum 1986. Hann er meira að segja hættur stangveiði og vill frekar dútla heima í garði og hafa það náðugt. Sjálfsagt geta flestir ímyndað sér að það hljóti að vera strembið fyrir fjölskyldumenn að vera áratugum saman úti á sjó. - Að lokum, Sverrir. Hvað er þér eftirminnilegast frá árum þín- um hjá Útgerðarfélaginu? „Ætli það séu ekki breytingarn- ar sem urðu eftir að frystihúsið kom 1957 og við fórum að landa heima. Þetta var rnikið erfiðleika- tímabil hjá ÚA og það var gott hvernig Gísli Konráðsson tók á málunum eftir að hann varð fram- kvæmdastjóri. Það var líka mjög ánægjulegt að vinna með Vilhelm Þorsteinssyni. Hann sá um útgerð- ina og gjörþekkti þá hlið rekstrar- ins. Það var ákaflega þægilegt að eiga við hann," sagöi Sverrir Valdimarsson. Við óskum Útgerðarfélagi Akureyringa til hamingju með 50 ckaalmzlií og þökkum samstarfið á liðnum árum. w Togvírinn frá BRIDON Marblue - Dyform Allir togarar Útgerðarfélags Akureyringa nota togvír frá Bridon ísfell hf Fiskislóð 131a • 101 Reykjavík Sími 562 4544 • Fax 562 4644 BRIDOIM Fishing Itd.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.