Dagur - 01.06.1995, Page 18
18
breyttri dagskrá. Erindi fluttu hvalavinur-
inn Magnús Skarphéðinsson og dr. Kristján
Kristjánsson heimspekingur. Megas tróð
upp með gítarinn, íþrótta- og söngvakeppni
skólans fór fram og endað var með árshátíð
þar sem sýnt var leikritið Stökktu eftir Odd
Bjarna Þorkelsson. Borgar Þórarinsson út-
setti og flutti tónlist við verkið.
I Borgarhólsskóla voru haldnir fjöl-
mennir tónleikar. Um 70 strengjanemendur
úr tónlistarskólum Egilsstaða og Akureyrar
og Tónskóla Sigursveins komu fram.
Farskóli Þingeyinga og verkalýðsfélög-
in stóðu fyrir margvíslegu námskeiðahaldi
sem varðar tómstundir, atvinnu. líkama,
heilsu o.fl.
Bridgefélag og Taflfélag Húsavíkur hafa
starfað af þrótti. Taflfélagið er 70 ára.
Margeir Pétursson stónneistari kom og
tefldi fjöltefli í október.
Safnahúsið
á Husavík
Fyrir utan hefðbundið safnstarf voru ýmis
atriði á dagskrá, ekki síst vegna afntælis-
dagskrár í tilefni 50 ára afmælis íslenska
lýðveldisins, sem Húsavíkurbær og Safna-
húsið stóðu sameiginlega að og hófst strax
í ársbyrjun 1994. Aðsókn var góð að flest-
um þeim atriðum sem hér á eftir verður
getið, en hér er miðað við tímabilið 1. júní
1994 til l.júní 1995.
16.-19. júní: Myndlistarsýning Tryggva
Ólafssonar.
5.-14. ágúst: Myndlistarsýningin ísland
- sækjum það heim; samsýning á úrvali
verka eftir 120 börn og unglinga víðs vegar
af landinu.
22. september: Ljóðadagskrá. Skáldin
Ingibjörg Haraldsdóttir, Steinunn Sigurðar-
dóttir og Einar Már Guðmundsson lásu úr
verkum sínum.
27.-30. október: Myndlistarsýning.
Ríkarður Þórhallsson.
5. nóvember: Fyrirlestur. Dr. Kristján
Kristjánsson flutti fyrirlestur undir yfir-
skriftinni Siðvit barna og unglinga.
26. nóvember: Tónleikar. Þorsteinn
Gauti Sigurðsson ptanóleikari.
1. -7. desember: Myndlistarsýning.
Gunnar Rafn Jónsson.
15.-22. desember: Myndlistarsýning.
Gunnar J. Straumland.
11. febrúar: Fyrirlestur. Ólafur K. Ni-
elsen líffræðingur flutti fyrirlestur undir
yfirskriftinni Um fálka og rjúpur.
25.-27. mars: Myndlistarsýning. Ingvar
Þorvaldsson.
29. mars: Tónleikar. Stigahæstu nem-
endur úr Tónlistarskóla Húsavíkur og Eist-
lendingurinn Valmar Valjaots fiðluleikari.
2. apríl: Fyrirlestur. Guðjón Friðriksson
Safnahúsið á Húsavík.
Veitingastaðirnir Hótel Húsavík, Bakk-
inn og Hlöðufell hafa staðið fyrir nokkrum
en ólíkum uppákomum á liðnu tímabili auk
sagnfræðingur fjallaði um Jónas Jónsson
frá Hriflu.
19.-23. apríl: Myndlistarsýning. Sam-
sýning húsvískra listamanna og barna, hluti
af dagskrá vegna Mærudaga 1995.
11.-14. maí: Myndlistarsýning. Viðar
Breiðfjörð.
Guðni Halldórsson.
Reykjahverfí
og Tjörnes
1 báðum þessum hreppum fóru fram hefð-
bundnar samkomur, fundir, dansleikir og
þorrablót, sent sum hver eru margrómuð,
s.s. á Tjömesi. íbúar sveitarfélaganna eru
margir hverjir þátttakendur í margvíslegu
félagsstarfi og eru félagar í kórum, leikfé-
lögum og klúbbum þar sem félagar eru
víða að úr sýslunni. Samstarf er þannig í
fullum gangi og er það vel.
Síðastliðið sumar var gamalt hús, hæð
og ris, tekið af grunni sínum á Húsavík og
flutt að Mánárbakka á Tjömesi. Húsið
eignuðust hjónin Elísabet Bjamadóttir og
Aðalgeir Egilsson á Mánárbakka. Mun það
hýsa fjölbreytt söfn þeirra hjóna og verður
vonandi til sýnis gestum og gangandi í
framtíðinni.
Kvenfélagasambandið
Kvenfélagasamband Suður-Þingeyinga var
stofnað 7. júní 1905 og er því 90 ára um
þessar ntundir. Aðalfundur sambandsins
var haldinn í Heiðarbæ föstudaginn 21.
apríl.
A fundinum var samþykkt að gefa hálfa
milljón króna í þyrlukaupasjóð. Laugar-
dagskvöldið 22. apríl fögnuðu svo sam-
bandskonur 90 ára afmælinu ásamt gestum
að Ydölum með glæsilegri kvöldvöku þar
sem fram komu ásamt fleirum Kvennakór-
inn Lissý undir stjóm Hólmfríðar Bene-
diktsdóttur, en kórinn stofnuðu kvenfélags-
dansleikja.
Hljómsveitirnar Gloría, Hljómsveit 111-
uga, Rafael og Loðhúfumar hafa spilað hér
heima, um Norðurland og víðar.
Mærudagar, lista- og menningardagar á
Húsavík, voru haldnir í annað sinn dagana
19.-23. apríl og var aðsókn góð líkt og í
fyrra. Dagskrá var fjölbreytt alla dagana.
1. maí hátíðahöldin fóru frarn með þátt-
töku Lúðrasveitar Húsavíkur, Söngsveitar-
innar NA-12, Tjarnarkvartettsins og KK-
bands. Boðið var upp á kaffi og tertu.
Þá eru óupptalin öll þau félög önnur og
klúbbar sem vinna að margvíslegu upp-
byggjandi starfi til að efla sál og líkama.
Þar ber hæst Iþróttafélagið Völsungur. Að
lokum þakka ég öllum þeim sem veittu mér
upplýsingar, þ.rn.t. Víkurblaðinu á Húsa-
vík, en það reyndist ómissandi sem fyrr.
Kári Sigurðsson.
konur innan sambandsins og hafa skipað
hann síðan. Núverandi forntaður Kvenfé-
lagasambandsins er Aðalbjörg Pálsdóttir,
Vallakoti í Reykjadal.
Fyrir jólin kont út bamabókin Fjósa-
músin á afmæli eftir Þingeyingana Atla
Vigfússon, Laxamýri og Hólmfríði
Bjartmarsdóttur, Sandi í Aðaladal.
Lissý
Kvennakórinn Lissý hélt tónleika á liðnu
hausti í Skjólbrekku í Mývatnssveit,
Laugaborg í Eyjafirði, Varmahlíð og á
Blönduósi. Stjórnandi var Hólmfríður
Benediktsdóttir og undirleikari Helga B.
Magnúsdóttir. Einsöngvarar á þessum tón-
leikum voru Hildur Tryggvadóttir, Elma
Atladóttir og Jóna F. Svavarsdóttir.
Bárðardalur
Fátt markvert hefur gerst í menningar-
málurn í Bárðardal á umræddu límabili,
eða frá júnímánuði á síöasta ári. Þó
kom einn kór í heimsókn, Þorrakórinn
úr Dalasýslu, sem hélt okkur skemmtun
í Hótel Kiðagili. Með f för var hin
ágætasta harmonikuhljómsveit og var
slegið upp balli að tónlcikunum loknum
og var þelta góð heimsókn.
Þegar ég var að rifja þetta upp fletti
ég að sjálfsögðu upp í Hlaupastelpunni,
sem er upplýsingarit Handverkskvenna
milli heiða og er Bárðdælingum,
Fnjóskdælingunt og Kinnunguni gjör-
samlega ómissandi. Það kemur út á
miðvikudögum í hverri viku og fer á
hvert heimili í þessum hreppum. í því
er allt auglýst sem fer fram í hreppun-
um og stundum eru smágreinar og jafn-
vel vísukorn. Ekki vitum við hvemig
við komumst af áður.
Svanhildur Herinunnsdóttir.