Dagur - 23.06.1995, Síða 1
78. árg. Akureyri, föstudagur 23. juní 1995 //ff BWtölublað
Fálka-
varpí
Mývatns-
sveit
tókst vel
Allt bendir til að óvenju vel
hafi tekist til með varp hjá
fálkanum í Mývatnssveit að
þessu sinni. Að sögn Inga Yng-
vasonar, sem hefur eftirlit með
fálkunum, er fjöldi hreiðra nú
svipaður og mest hefur verið. Er
þetta afar kærkomið eftir mjög
slæma útkomu á síðasta ári. Ingi
sagðist telja alveg ljóst að góða
útkomu nú má þakka því að
fálkinn hafði rjúpu að éta allan
síðastliðinn vetur, en samband
rjúpna og fálkastofnsins er vel
þekkt.
Nokkuð er síðan ungar komu
úr eggjum og þeir elstu eru orðnir
talsvert stórir. Ingi sagðist nokkuð
hafa orðið var við mannaferðir við
hreiður, en bannað er að fara nær
fálkahreiðri en 100 metra. Hann
taldi að þar hafi forvitni ráðið
ferðinni, en menn hafi ekki verið í
þeim hugleiðingum að ná sér í egg
eða unga og tjón hafi ekki hlotist
af þessu íþetta sinn.
Hann sagði að það gæti verið
nokkuð breytilegt hversu lengi
ungar dveldu í hreiðrum. Þegar
varp væri seint á ferðinni gæti
dregist alveg frarh í ágúst að ung-
arnir færu. Að þessu sinni taldi
hann líklegt að fyrstu ungarnir
færu af stað um miðjan næsta
mánuð.
Ingi er einnig refa- og minka-
bani og sagist líta eftir minknum
allan veturinn, enda hefði sér
reynst sá tími bestur til þeirra
hluta. „Það var lítið af mink í vet-
ur en ég hef veitt hann stöðugt og
tekist að halda honum niðri. Hins
vegar var með meira móti af tófu
og ég náði fjórum í vetur,“ sagði
Ingi Yngvason. HA
Framkvæmdastjórahrókeringar:
Ingi í Slippinn og Guð-
mundur til Mecklenburger
Gengið hefur verið frá ráðn-
ingu Inga Björnssonar í
starf framkvæmdastjóra Slipp-
stöðvarinnar Odda hf. og mun
hann taka við því þann 1. júlí af
Guðmundi Tuliníus. Guð-
mundur mun flytja til Þýska-
lands, en þar er hann heimilis-
fastur, og taka við starfi fram-
kvæmdastjóra Mecklenburger
Hochseefischerei, sem Ingi
Björnsson lét af 31. maí sl.
Ingi Björnsson hefur síðasta
árið verið framkvæmdastjóri
Mecklenburger Hochseefischerei
í Þýskalandi, en af því starfi lét
hann 1. júní sl. Áður var hann
m.a. framkvæmdastjóri Iðnþróun-
arfélags Eyjafjarðar hf. um
tveggja ára skeið, fjármálastjóri
Álafoss hf. í tvö ár og fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri 1990-1994.
Guðmundur Tuliníus vildi
ekki staðfesta að hann væri að
fara tií Mecklenburger
Hochseefischerei en Dagur hefur
traustar upplýsingar um að hann
taki við starfinu að tillögu fulltrúa
Útgerðarfélags Akureyringa hf. í
stjórn Mecklenburger, en hins
vegar er ekki með formlegum
hætti búið að taka ákvörðun um
ráðningu Guðmundar í stjórn
Mecklenburger.
Guðmundur Tuliníus hefur
verið framkvæmdastjóri Slipp-
stöðvarinnar Odda hf. í tæp tvö
ár, en áður var hann starfsmaður
Slippstöðvarinnar á árunum
1976-1980. Hann segir að þessi
tími hafi verið lærdómsríkur, fyr-
irtækið hafi glímt við mikla
rekstrarerfiðleika og gengið í
gegnum umfangsmikla endur-
skipulagningu. „Fyrirtækið er á
vissan hátt komið á rétta braut en
mikið er eftir að gera. Flotkvíin
gefur nýja möguleika, en henni
verður að afla verkefna, það kem-
ur ekki af sjálfu sér,“ sagði Guð-
mundur. „Islenskur skipasmíða-
iðnaður þarf að taka sig verulega
á og það þarf að auka skilning á
samstarfi á milli fyrirtækja þann-
ig að menn geti tekist á við stærri
verkefni. Ef menn sýna það líka í
verki, þá er hér hægt að gera
ágæta hluti,“ sagði Guðmundur.
óþh
Sumarhúsin norðan Kjarnalundar:
Þrjú hús seld
- gatnaframkvæmdir hafnar
Búið er að selja þrjú hús af tíu
sem Úrbótamenn hf. eru að
láta byggja fyrir sig og á að setja
upp við Kjarnaskóg sem sumar-
hús. Húsin verða staðsett norð-
an við Kjarnalund og er vinna
við húsgrunna og gatnafram-
kvæmdir þegar hafin. Húsin
koma til með að standa við tvær
götur sem bera heitin „Gata
norðurljósanna“ og „Gata mán-
ans“.
Sveinn Heiðar Jónsson, einn
þriggja Úrbótamanna, segir að
sala húsanna hafi gengið framar
Rétt norðan viö Kjarnalund er farið
að vinna við gatnagerð og hús-
grunna undir nýju sumarhús-
in. Mynd: BG
vonum. Auk þeirra þriggja sem
búið er að selja eru allar líkur á að
minnsta kosti tvö hús í viðbót
verði seld mjög fljótlega en marg-
ir hafa sýnt húsunum áhuga. Sjö
þeirra eru smíðuð á Sauðarkróki
og þrjú á Akureyri og reiknar
Sveinn með að fljótlega í júlí
verði farið að setja fyrstu húsin
upp.
Það eru einkum starfsmannafé-
lög sem hafa sýnt húsunum áhuga
en kaupendur húsanna þriggja
sem búið er að selja eru starfs-
mannafélag Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna, Seðlabankans og
Garðabæjar. „Síðan er kominn nýr
markhópur sem við áttuðum okk-
ur ekki á áður, en það er hópur
brottfluttra Akureyringa,“ segir
Sveinn Heiðar. AI
Starfsemi Mjölverksmiðjunnar á Hvammstanga hafin:
Hef fulla trú á þessu
- segir Karl Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri
Starfsemi Mjölverksmiðjunnar
á Hvammstanga er hafin, en
vart er við því að búast að hjól
hennar snúist af fullum krafti
fyrr en með haustinu.
Mjölverksmiðjan bræðir rækju-
skel og er ætlunin að safna henni
að stærstum hluta frá þrem verk-
smiðjum, Meleyri á Hvamms-
tanga, Dögun á Sauðárkróki og
Særúnu á Blönduósi, en vonir
standa til að einnig verði safnað
hráefni frá Hólanesi á Skaga-
strönd.
„Það bendir ekkert til annars en
starfsemi þessarar verksmiðju eigi
að geta gengið vel. Rekstur rækju-
mjölsverksmiðjunnar sem hér var
gekk engan veginn, enda fékk hún
bara rækjuhrat héðan frá
Hvammstanga. Verksmiðjan var
þar að auki í ólagi. í þessu nýja
hlutafélagi, sem keypti verksmiðj-
una af sparisjóðnum, hefur hluta-
féð, 10 milljónir króna, verið nýtt
til að bæta aðstöðuna," sagði Karl
Sigurgeirsson, sem gegnir starfi
framkvæmdastjóra fyrirtækisins í
þriðjungsstöðu. Auk þess er gert
ráð fyrir tveim störfum í verk-
smiðju og einu starfi við flutning
á rækjuskelinni til Hvammstanga.
„Ég hef fulla ástæðu til að ætla
að starfsemin verði komin á fullt
með haustinu. Við prófum okkur
áfram með þetta í sumar, munum
m.a. finna út hvernig skynsamleg-
ast sé að standa að flutningi á hrá-
efninu. Ég hef fulla trú á þessu og
veit að þetta á að geta gengið,"
sagði Karl. „Þetta er orðið viður-
kennt efni í blöndun í fiskeldis-
fóður og það hefur verið sannað
að það er jákvætt að nota rækjus-
kelsmjöl í varpfóður."
Eins og áður segir er 10 millj-
óna króna hlutafé í fyrirtækinu.
Fóðurverksmiðjan Laxá á Akur-
eyri er stærsti eignaraðilinn með
2,5 milljónir króna, rækjuverk-
smiðjurnar Meleyri, Dögun og
Særún með 1,5 milljón hver og
Hvammstangahreppur, Sauðár-
króksbær og Blönduósbær með 1
milljón hver. óþh
Mývatnssveit:
Niðurstaöa fengin
^ > ■■
i skolamalinu
- en er ekki gefin upp
Afundi sveitarstjórnar
Skútustaðahrepps í gær
var tekin afstaða til framtíðar
skipunar skólamála í hreppn-
um, en þar hafa sem kunnugt
er staðið harðar deilur. Sveit-
arstjórn tók þá ákvörðun að
loknum fundi sínum að nið-
urstaðan verði ekki gerð opi-
ber fyrr en að afloknum fundi
með foreldrum og kennurum,
en hann verður haldinn í
Hótel Reynihlíð nk. sunnu-
dag.
Sigurður Rúnar Ragnarsson,
sveitarstjóri, sagist aðspurður
ekki treysta sér til að spá fyrir
um hvort sátt muni ríkja um þá
niðurstöðu sem sveitarstjóm
ákvað. Ein af tillögum starfs-
hóps sem skipaður var til að
benda á leiðir um skólaskipan
var á þá leið að gera tilraun til
fjögurra ára þar sem skólasel
verði rekið á Skútustöðum og
aðalskóli í Reykjahlíð fyrri tvö
árin, en allt skólahald undir
einu þaki í Reykjahlíð hin tvö
síðari. Líklegast þótti að niður-
staða sveitarstjórnar yrði á
þeim nótum.
HA