Dagur - 23.06.1995, Síða 2
«• <•
2 - DAGUR - Föstudagur 23. júní 1995
FRÉTTIR
Ummæli Sigurðar Oddssonar
um Fnjóskárbrúna
Ekki sáttur
- segir Kristján Jóhannesson
á Hróarsstöðum
„Á síðustu 11 árum hefur áin
tvisvar farið í þá hæð sem hún
var í þegar hún tók brúna, að-
faranótt mánudags. Hins vegar
fór hún enn hærra kvöldið eftir
að brúin hrundi, ég ætla ekki að
mótmæla því,“ segir Kristján
Jóhannesson, bóndi á Hróars-
stöðum í Fnjóskadal, vegna
þeirra ummæla Sigurðar Odds-
sonar hjá Vegagerð ríkisins, að
ástandið hafl verið einstakt er
brúin hrundi; að vatnsborðið
hafí verið einum metra hærra en
íflóði 1954.
Forsaga málsins er sú, eins og
Dagur hefur áður skýrt frá, að
bændur í Fnjóskadal höfðu spáð
því að brúin myndi ekki standa
lengi á þeim stað er hún var
byggð. Sumir höfðu spáð því að
brúin myndi fara í klakaruðningi,
en aðrir, að leysingar myndu grafa
undan stólpunum.
Kristján leggur áherslu á að
það eigi ekki að miða við toppinn
sem Fnjóská náði kvöldið eftir að
hún tók brúna. Að sögn hans hefur
áin átt vanda til að breiða úr sér
og vaxa mikið í leysingum við
brúarstæðið og hafi hann helst ótt-
ast að kynni að grafa undan henni
við þær aðstæður, eins og raun
varð á. shv
Duglegar hrepps-
nefndarkonur
í nýjasta tölublaði Sveitarstjórn-
armála er greint frá því að í
Hofshreppi í Skagafirði eigi
þrjár konur sæti í hreppsnefnd
og sé ein þeirra oddvitinn. Á
yflrstandandi kjörtímabili hafa
þær allar eignast börn, tvær
þeirra stúlkur og ein dreng.
Sveitarstjórnarmál segja að Jón
Guðmundsson, sveitarstjóri, bendi
hreppsbúum og fleirum á þetta
sem gott fordæmi varðandi efl-
ingu sveitarfélaga.
Niðurstöður úr samræmdum prófum:
Nemendur á Norður-
landi undir meðaltali
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
■ Á fundi bæjarráðs í gær var
Jakob Björnsson kosinn for-
maður þess og Guðmundur
Stefánsson varaformaður. Bæj-
arráðsmenn Sjálfstæðisflokks
og Alþýðubandalags sátu hjá
við kjör formanns og varafor-
manns bæjarráðs, en vísa til at-
hugasemda, sem þeir gerðu á
s.l. sumri við kjör varaformanns
bæjarráðs.
■ Með vísan til bókunar skóla-
nefndar Tónlistarskólans 14.
júní sl. var lögð fram skýrsla
Finns Birgissonar, arkitekts,
með úttekt á núverandi húsnæði
Tónlistarskólans og nokkrum
mismunandi úrræðum í hús-
næðismálum skólans. Á fund-
inn komu Jóhann Sigurjónsson,
formaður skólanefndar, Guð-
mundur Óli Gunnarsson, skóla-
stjóri, og Finnur Birgisson,
arkitekt, og kynntu skýrsluna
og ræddu hana við bæjarráð.
Ákveðið var að senda skýrsluna
til allra bæjarfulltrúa og boða
síðar til sameiginlegs fundar
bæjarstjómar og skólanefndar
um málið.
■ Lagðar voru fram á bæjar-
sáðsfundinum í gær tvær fund-
argerðir heilbrigðisnefndar
dags. 12. og 14. júní. í tilefni af
bókun nefndarinnar í fundar-
gerðinni frá 14. júní um meng-
unarvarnabúnað á malbikunar-
stöð bæjarins, um urðun sorps á
Glerárdal og salernismál við
Ráðhústorg, kom á fundinn
Guðmundur Guðlaugsson, yfir-
verkfræðingur, og skýrði og
ræddi málin við bæjarráð.
■ Fram kom að unnið er að því
að finna búnað til mengunar-
varna á malbikunarstöðina og
mun málið lagt fyrir bæjarráð
síðar. Bæjarráð samþykkti til-
lögu yfirverkfræðings um að
tilraun verði gerð með leigu á
klefum nteð salemisaðstöðu
fyrir almenning, sem settir
verði niður á Miðbæjarsvæðinu.
Tilraunin standi til n.k. ára-
móta. Áætlaður leigukostnaður
er kr. 104 þúsund á mánuði.
Fjárveitingu var vísað til end-
urskoðunar fjárhagsáætlunar.
Niðurstöður úr samræmdum
prófum 10. bekkinga í grunn-
skólum liggja nú fyrir hjá Rann-
sóknastofnun uppeldis- og
menntamála mánuði seinna en
venjulega vegna verkfalls kenn-
ara. Meðaltalseinkunnir á Norð-
urlandi vestra og eystra voru
undir meðaltali miðað við lands-
vísu í öllum greinum en Reykja-
vík sker sig úr eins og fyrri ár að
því leyti að þar er meðaltalsein-
kunn í öllum greinum nokkuð
hærri en í öðrum kjördæmum.
Það sem vekur mesta athygli er
slakur árangur í íslensku. Þar náðu
einungis tveir einkunninni 10 og
52,5 prósent voru með 5 eða lægra
í íslensku. Meðaleinkunn fyrir
landið allt var 5,3 en 5,0 á Norð-
urlandi vestra og 5,1 á Norður-
landi eystra. Bestur var árangurinn
í ensku þar sem meðaltal á lands-
vísu var 7,4 en 7,1 á Norðurlandi
vestra og 7,0 á Norðurlandi eystra.
Meðaltal stúlkna á landinu öllu
var nokkuð hærra en drengja í ís-
lensku og dönsku. í íslensku var
meðaleinkunn stúlkna 5,8 en 4,9
25 ára af-
mæli nytja-
skógræktar
á bújörðum
Næstkomandi sunnudag, 25.
júní, verða liðin 25 ár frá því
fyrstu plönturnar í skipu-
lagðri nytjaskógrækt bænda
voru gróðursettar á íslandi.
Sú gróðursetning fór fram í
landi Víðivalla í Fljótsdal á
Héraði og markaði upphaf
Fljótsdalsáætlunar sem gerði
ráð fyrir að á 25 árum yrðu
1500 ha lands lagðir undir
skógrækt.
í tilefni 25 ára afmælis
nytjaskógræktar á bújörðum á
Fljótsdalshéraði, og í raun á
landinu öUu, verður opinn dag-
ur í hinum nýja Víðivallaskógi
í Fljótsdal á sunnudag kl. 12-
16.30. Þar gefst fólki kostur á
að kynna sér flestar hliðar
nytjaskógræktar. Veitingar
verða á boðstólum, gos og
pylsur fyrir börnin. Á sunnu-
dagskvöld verður síðan efnt til
mikillar veislu í skóginum þar
sem landbúnaðarráðherra,
skógarbændur og aðrir boðs-
gestir munu gæða sér á heil-
grilluðum fjallalömbum frá
kjötvinnslunni Snæfelli.
hjá drengjunum og í dönsku var
meðaltalið hjá stúlkunum 6,7 mið-
að við 5,8 hjá drengjum. í stærð-
fræði og ensku var árangur kynj-
anna svipaður en drengirnir þó
ívið hærri í stærðfræði en stúlk-
urnar í ensku. AI
Samrœmd próf 1995
Meðaltal samræmdra einkunna á Norðurlandi. Niðurstöður í
Reykjavík og yfir landið allt eru hafðar með til samanburðar.
Stærðfræði íslenska Danska Enska
Norðurl. vestra 5,7 5,0 6,3 7,1
Norðurl. eystra 5,6 5,1 5,8 7,0
Reykjavík 6,2 5,7 6,8 7,9
Landið allt 5,8 5,3 6,3 7,4
»
V
« '
' •
« ’
15%
kynningarafsláttur framlengdur til 30. júní
Kynnið ykkur þessa vinsælu 2000 skó
Þú getur unnið helgarferð til Kaupmannahafnar.
Þú kaupir eitt par af eOOO skóm tii að komast í pottinn.
Skóverslun M.H. Lyngdal
Hafnarstræti 103 • Sími 462 3399
Vörn fyrir speglun
Vörn fyrir geislun
Tilboðsverð
tClvutæki
Furuvöllum 5 • Akureyri
Sími 462 6100
L_______________________Á
5KJR5ÍUR
Verndaðu
augun
Bryggjuhátíð
á Reyðarfirði
Um helgina, í dag og á morg-
un, verður efnt til svokallaðrar
„Bryggjuhátíðar á Reyðar-
firði“. í kvöld verður harm-
onikudansleikur á bryggjunni á
Reyðarfirði og í nágrenni
hennar. Á morgun, laugardag,
hefst dagskráin kl. 9 og stend-
ur fram á nótt. Hljómsveitin
Vinir vors og blóma leikur á
Skemmuballi. Auk harmoniku-
dansleiks og Skemmuballs má
nefna lax- og silungsveiði í
Andapollinum, karaokekeppni
15 ára og yngri, götukörfu-
boltamót, grillveislu, skvísu-
fótboltamót, karamelluregn,
dýragarð, kassabílarallý, tón-
listaruppákomur, breska grín-
istann og töframanninn „The
Mighty Gareth" og margt
fleira. Verð aðgöngumiða fyrir
fullorðna er kr. 500 en frítt fyr-
ir 12 ára og yngri.
Goðafoss
„í fóstur"
í lok júlí er áætlað að ljúka við
Goðafoss og Skógafoss verk-
efni sem kallað er „Fossar í
fóstur", en um er að ræða sam-
starfsverkefni Eimskips og
samgönguráðuneytisins. I
Fréttabréfí Eimskips kemur
fram að í verkefninu felist að
Eimskip kosti gerð upplýs-
ingaskilta og framkvæmda við
útsýnisstaði við fossana. Þann-
ig vilji Eimskip leggja sitt af
mörkum til þess að bæta að-
komu og upplýsingar um foss-
ana fyrir ferðamenn.
Yfirlitssýning
kynbótahrossa á
Melgerðismelum
Þessa dagana fer fram skoðun
kynbótahrossa á Norðurlandi
eystra. Laugardaginn 24. júní
n.k. verður síðan haldin yfir-
litssýning á Melgerðismelum
þar sem stigahæstu hrossin
mæta. Sýningin hefst kl. 14.
Dómarar á sýningunum eru
Kristinn Hugason, Guðrún
Lára Pálmadóttir og Guðni
Ágústsson.
Fjalar hf.
gjaldþrota
Með úrskurði Héraðsdóms
Norðurlands eystra 31. maí sl.
var bú Fjalars hf., trésmiðju, á
Húsavík, tekið til gjaldþrota-
skipta.
Fyrsti skiptafundur í þrota-
búinu verður 1. september.
Skiptastjóri er Jón Kr. Sólnes,
hæstaréttarlögmaður á Akur-
eyri.
Þjóövaki á ferð
um Norðurland
Þingflokkur Þjóðvaka mun á
næstu dögum bruna um landið,
heimsækja vinnustaði, halda
fundi og ræða við kjósendur.
Þjóðvakaþingmenn verða á
Norðurlandi miðvikudaginn í
næstu viku, 28. júní, og eru
viðkomustaðir Akureyri, Dal-
vík, Ólafsfjörður og Laugar í
Reykjadal. Á Laugum verður
þingflokkur þjóðvaka með op-
inn þingflokksfund að kvöldi
28. júníkl. 20.30.