Dagur - 23.06.1995, Page 7
Föstudagur 23. júní 1995 - DAGUR - 7
Listasumar á Akureyri hefst í dag
í dag hefst Listasumar '95 á Akur-
eyri. Þetta er í þriðja skipti sem
efnt er til slíkrar menningardag-
skrár á Akureyri og er óhætt að
segja að dagskráin hafi aldrei ver-
ið fjölbreyttari og ætti hún að
höfða til margra.
Ólöf Sigurðardóttir, fram-
kvæmdastjóri Listasumars ’95,
segir dagskrána byggða upp á ekki
ósvipaðan hátt og síðastliðið sum-
ar. Þó vildi hún nefna að í sumar
verði í fyrsta skipti starfrækt
skúlptúrverkstæði í Ketilhúsinu í
Grófargili. Listamenn verða þar
við vinnu og gefst fólki kostur á
að fylgjast með hvernig hún fer
fram. I Ketilhúsinu verður einnig
sett upp skúlptúrsýning sem og
víðsvegar um bæinn.
Ólöf nefndi einnig dagskrá á
Listasumri sem verður tileinkuð
tónlistar- og myndlistarmanninum
Hafliða Hallgrímssyni, sem eins
og kunnugt er er frá Akureyri en
búsettur í Skotlandi. Þann 29. júlí
verður opnuð sýning í Listasafn-
inu á Akureyri á grafíkverkum
Hafiiða, 2. ágúst verða tónleikar í
Listasafninu á Akureyri þar sem
Tríó Reykjavíkur leikur verk eftir
Hafliða og 13. ágúst verða ein-
leikstónleikar Helgu Bryndísar
Magnúsdóttur, píanóleikara, þar
sem hún leikur einnig verk eftir
Hafliða Hallgrímsson.
Á Listasumri ’95 verða nokkrir
fastir liðir. Þannig verða listamenn
með sýningar, viku í senn, í
Glugganum, verslunarglugga
KEA í Hafnarstræti. Klúbbur
Listasumars og Karolínu verður á
sínum stað, en þar verður á
fimmtudagskvöldum boðið upp á
djass. í Deiglunni verður á mánu-
dagskvöldum svokölluð Söng-
lokka (Serenade), þar sem Már
Magnússon syngur íslensk söng-
og þjóðlög. í Minjasafnskirkjunni
verður á þriðjudags- og fimmtu-
dagskvöldum Söngvaka þar sem
Þórarinn Hjartarson og Rósa
Kristín Baldursdóttir flytja íslensk
sönglög. Þá má nefna fjölmargar
myndlistarsýningar, tónleika í tón-
leikaröðinni Sumartónleikar á
Norðurlandi og árlegt gítarfesti-
val.
Rétt er að benda Akureyringum
á að kynna sér dagskrá Lista-
sumars ’95, en þessa dagana er
verið að bera dagskrá þess í hús.
Bæklingur Listasumars liggur auk
þess frammi á fjölförnum stöðum
ferðamanna og einnig er hægt afla
upplýsinga um einstaka dagskrár-
liði með því að hringja í síma
Listasumars 4612609.
Ólöf Sigurðardóttir segir að
framlag Akureyrarbæjar til Lista-
sumars ’95 sé 1,2 milljónir króna.
Einnig sé framlag bæjarins til
Tónleikar í Lista-
saíhinu á morgun
Á morgun, 24. júní, verða fyrstu
tónleikar Listasumars 95 í Lista-
safniu á Akureyri. Tónleikar þar
eru orðnir fastur liður í starfsemi
Listasumars og verða minnst
fimm í sumar.
Á tónleikunum á laugardag
leika þau Gerður Gunnarsdóttir,
fiðluleikari, Einar Kr. Einarsson,
gítarleikari og Geir Rafnsson,
slagverksleikari. Þau leika verk
eftir Lárus Grímsson, Karólínu
Eiríksdóttur, Áskel Másson, Báru
Grímsdóttur og Þorkel Sigur-
björnsson.
Gerður Gunnarsdóttir lauk ein- /
leikaraprófi í fiðluleik frá Tónlist-
arháskólanum í Köln 1991. Árið
1990 vann hún til fyrstu verðlauna
í Postbank-Sweelinck fiðlukeppn-
inni í Amsterdam. Gerður hefur
verið 3. konsertmeistari í Sinfón-
íu- og óperuhljómsveit Kölnar-
borgar en starfar nú tímabundið
sem 2. konsertmeistari í Sinfóníu-
hljómsveit íslands. Hún hefur
starfað með Caput hópnum og
Kammersveit Reykjavfkur m.a.
sem einleikari.
Einar Kristján Einarsson gítar-
leikari lauk einleikara- og kenn-
araprófi frá Guildhall School of
Music 1987 en hefur auk þess tek-
ið þátt í fjölda námskeiða og gítar-
hátíða víða um heim. Einar hefur
komið fram á tónleikum bæði hér
heima og erlendis, m.a. á Gítarhá-
tíð á Akureyri, Sumartónleikum í
Skálholti, Sumartónleikum á
Norðurlandi og Myrkum Músík-
dögum. Hann hefur leikið með
Caputjhópnum og Sinfóníuhljóm-
sveit íslands og komið fram sem
einleikari með Kammersveit Ak-
ureyrar og Kammersveit Reykja-
víkur.
Geir Rafnsson hóf nám við
Tónlistarskólann á Akureyri 1983
hjá Roar Kvam. Hann lauk burt-
fararprófi frá Tónlistarskóla FÍH
1994. Á námsferlinum lagði hann
áherslu á hljómborðs-slagverk og
þá sérstaklega marimbu. Geir hef-
ur á undanförnum árum leikið
reglulega með Sinfóníuhljómsveit
íslands.
Tónleikarnir verða eins og áður
segir á morgun í Listasafninu og
hefjast kl. 17.00.
Ólöf Siguröardóttir, framkvæmdastjóri Listasumars ‘95.
Mynd: BG
skúlptúrverkstæðisins í Ketilhús-
inu 300 þúsund krónur. Ólöf segir
hins vegar að ríkið sjái ekki
ástæðu til að styrkja starfsemi
Listasumars ’95 með einni einustu
krónu.
Ólöf segir það enga spurningu
að Listasumar hafi unnið sér fast-
an sess á Akureyri, aðsókn hafi
verið stigvaxandi, f fyrra hafi 12
þúsund manns sótt dagskrárliði
sem þá var boðið upp á. Hún segir
að Listasumar hafi fengið góða og
jákvæða umfjöllun fjölmiðla og
spurst vel út og það skili sér. Inn-
lendir jafnt sem erlendir ferða-
menn hafi sótt vel fjölmarga dag-
skrárliði og því sé engin spurning
að slík menningardagskrá sé orðin
mikilvægur hlekkur í ferðaþjón-
ustunni á Akureyri. óþh
Illugi sýnir í verslunar-
glugga Vðruhúss KEA
Síðasta sumar stóð Listasumar
fyrir myndlistasýningum í versl-
unarglugga Vöruhúss KEA í
göngugötunni, hver sýning stóð í
eina viku og var skipt um verk
vikulega, á föstudögum. í sumar
verður sami háttur hafður á og
verður fyrsta sýningin sett upp
föstudaginn 23. júní.
Fyrsta verkið í sumar er eftir
Illuga Eysteinsson - illur. Illugi
skapar verkið dag frá degi á þeirri
viku sem hann hefur til umráða.
Hann jfkir verkinu við leikrit þar
sem hann skrifar söguþráð verks-
ins en útfærsla og útlit eru algjör-
lega háð leikurunum eða í þessu
tilviki unglingum úr Gagnfræða-
skóla Akureyrar, gangandi vegfar-
endum og honum sjálfum.
Verkið nefnist „Minning“ og
samanstendur af 40 plötum 60x60
sm að stærð, þær þekja bakvegg
Gluggans alls 11 fermetra. Lista-
maðurinn vinnur inni í sýningar-
glugganum frá morgni til kl.15.00
þá eru plöturnar teknar niður og
Silíurskottumað-
urínn í Deiglunni
Á morgun, laugardag, verður opn-
uð í Deiglunni sýningin Silfur-
skottumaðurinn, en hann er hugar-
smíð Steingríms Eyfjörð mynd-
listarmanns.
Silfurskottumaðurinn varð til
sem myndasaga í vikublaðinu
Eintaki fyrir einu ári síðan. Sög-
urnar um Silfurskottumanninn
sýna andhetju í hetjulegum bún-
ingi. Megin einkenni Silfurskottu-
mannsins er sakleysið, það varð-
veitir hann sama íivað á gengur,
hann bjargar alltaf sakleysi sínu,
það er hans hetjuskapur.
Á sýningunni í Deiglunni eru
upprunalegar teikningar, málverk
úr sögunum, þrívíddarvideóverk,
skúlptúr og fatnaður í stíl silfur-
skottumannsins.
Rithöfundurinn Sjón átti þátt í
fæðingu Silfurskottumannsins og
Torfi Frans Ólafsson hefur gert
þrívíddarmyndband sem er á sýn-
ingunni.
Steingrímur Eyfjörð hefur
haldið einkasýningar og tekið þátt
í fjölda samsýninga. Sýningin í
Deiglunni er opin virka daga frá
kl. 11.00 til 18.00 og um helgar
14.00- 18.00, henni lýkur 6. júlf.
farið með þær út í göngugötuna
þar sem listamaðurinn vinnur með
vegfarendum og unglingum.
Næsta dag er plötunum síðan
komið aftur fyrir í glugganum en
þá eru þær hengdar upp í tilvilj-
anakenndri röð, þ.e. mynd dagsins
á undan er brotin upp og ný mynd
búin til. Þessi leikur með plöturn-
ar er líkastur því þegar spil eru
stokkuð og gerir hann það ómögu-
legt að sjá útkomuna fyrr en á síð-
asta degi.
Þegar þessu vikuferli lýkur
hyggst listamaðurinn bjóða verkið
upp, hver plata verður seld sem
stakt verk og gefst þá allt að 40
einstaklingum tækifæri til að eign-
ast hlut í verkinu. Ágóði af sölu
brotanna úr Minningu rennur í
ferðasjóð fatlaðra og hefur Svæð-
isskrifstofa Norðurlands
milligöngu þar um.
Illugi Eysteinsson lauk Master-
námi f arkitektúr í Bandaríkjun-
um, hann hefur að undanförnu
vakið athygli fyrir verk sín á sviði
myndlistar og má þar nefna verkið
Menning og þorskur, sem nú er á
samnorrænni sýningu í og við
Norrænahúsið í Reykjavík.
Verk Illuga verður unnið í og
við Gluggann til 29. júní.
„Loíthræddi örnmn
J J 00
hann Orvar“ í Deiglunni
Næstkomandi sunnudag verður í
Deiglunni gestaleikur fyrir börn
frá Þjóðleikhúsinu. Sýnt verður
leikritið Lofthræddi örninn hann
Örvar, sem byggt er á samnefndu
ævintýri eftir sænska rithöfund-
inn Lars Klinting. Lofthræddi
örninn hann Örvar var sýndur á
smíðaverkstæði Þjóðleikhússins í
vetur.
Hann örvar er örn sem er svo
skelfilega óheppinn að vera loft-
hræddur. Samt þráir hann heitt að
fljúga um loftin blá og með hjálp
vinar síns músarrindilsins Eð-
varðs, tekst honum að lokum að
yfírvinna ótta sinn og fljúga.
Þetta er lítil, falleg saga um hug-
rekki, að vera hræddur en þora
samt. Eða vera lítill og gera samt.
Hinir stóru og sterku geta verið
hræddir og hjálparþurfi eins og
þeir smáu og knáu geta komið
miklu til leiðar.
Leikari í sýningunni er Björn
Ingi Hilmarsson sem leikur öll
hlutverkin og segir söguna með
látbragði, söng, dansi og leik.
Leikstjóri er Peter Engkvist,
hann vann einnig leikgerðina
ásamt Stalle Ahrreman. Þýðandi
er Anton Helgi Jónsson.
Lofthræddi örninn hann Örvar
fékk verðlaun sem besta barna-
og unglingaleiksýning í Svíþjóð
leikárið 91-92.
Sýningamar á Listasumri
verða þrjár; sunnudag 25. júní
kl. 17 og laugardag l.júlíkl. 11
og 17.
Dröfn sýnir á
Café Karólínu
Dröfn Friðfinnsdóttir, grafíklista-
maður, opnar á morgun, laugar-
dag, sýningu á Café Karolínu í
Grófargili. Hún sýnir teikningar
og nefnist sýningin „Örsögur".
Dröfn stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskólann árið 1963
og síðan við Myndlistaskólann á
Akureyri árið 1982 til 1986. Eftir
það stundaði hún nám við Lista-
skólann í Lathi í Finnlandi vetur-
inn 1987 til 1988. Dröfn hefur
haldið einkasýningar og tekið þátt
í fjölda samsýninga bæði hér
heima og erlendis.