Dagur - 13.07.1995, Side 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 13. júlí 1995
LEIÐARI
Skynsemin ræður
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 462 4222
ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1500 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
AÐRIR BLAÐAMENN:
GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 464 1585, fax 464 2285),
KRISTÍN LINDA JÓNSDÓTTIR, SÆVAR HREIÐARSSON (íþróttir).
UÓSMYNDARI: ROBYN REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI462 5165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 462 7639
Sjávarútvegurinn mun áfram búa við þrengingar.
Það var staðfest með ákvörðun sjávarútvegsráð-
herra í fyrradag um leyfilegan hámarksafla næsta
fiskveiðiár.
Sjávarúrtvegsráðherra fer eftir tilmælum Haf-
rannsóknastofnunar og leyfir 155 þúsund tonna
hámarksafla í þorski á næsta fiskveiðiári. Þetta er
skynsamleg afstaða - það eina rétta í stöðunni.
Hér er haldið áfram á þeini braut sem þegar hefur
verið mótuð að byggja þorskstofninn upp til fram-
tíðar. Mönnum er sem betur fer orðið það ljóst að
stundarhagsmunir mega ekki ráða ferðinni þegar
menn ákveða hversu nálægt helstu auðlind okkar
við leyfum okkur að ganga. Og það er ánægjulegt
til þess að vita að stjórnmálamenn eru farnir að
hlusta á aðvönmarorð fiskifræðinga og fara eftir
þeirra ráðleggingum. Um þetta er orðin pólitísk
samstaða í þjóðfélaginu, þótt vissulega séu h'ka til
efasemdamenn.
Við verðum að horfa til framtíðar þegar um
fiskistofna okkar er að ræða. Við verðum að bíta á
jaxlinn og reyna að lifa af niðursveifluna, því með
þeirri stefnu sem nú er fylgt munu okkar helstu
fiskistofnar við landið byggjast upp á nýjan leik.
Það verður auðvitað ekkert auðvelt, en þjóðfélagið
hefur með undraverðum hætti lagað sig að mínnk-
andi sjávarafla. Sjávarútvegsfyrirtækin hafa lyft
grettistaki. Þau hafa náð fram ótrúlega mikilli hag-
ræðingu í sínum rekstri, farið út í að auka vinnslu
aflans og ná meira verðmæti út úr hverri einingu.
Þetta hefur verið liður fiskvinnslunnar í því að laga
sig að breyttum aðstæðum.
Hins vegar er það verulegt áhyggjuefni að
gengisþróunin hefur verið landvinnslunni einkar
óhagstæð á undanförnum mánuðum, fiskvinnslu-
fyrirtækin, sem mörg hver eru burðarásar í at-
vinnulífinu úti á landi, eru að missa umtalsverðar
tekjur. Af þessu er ástæða til að hafa áhyggjur. Og
eins og venjulega velta menn vöngum yfir því
hvort gengisfelling sé eina leiðin út úr vandanum.
Svo kann auðvitað að fara að nauðsynlegt reynist
að laga gengi krónunnar að þessum breyttu að-
stæðum, en slíkt er við núverandi aðstæður algjör
neyðaraðgerð. Gengisfelling nú gæti gert til dæmis
mörgum iðnfyrirtækjum, sem hafa verið að rétta úr
kútnum, erfitt fyrir. Þá yrði gengisfelling ekki til
þess fallin að laga skuldastöðu sjávarútvegsfyrir-
tækjanna.
Útilífsnámskeið skáta vinsæl
Skátafélagið Klakkur hefur í
sumar boðið upp á útilífsnám-
skeið að Hömrum fyrir krakka
á aldrinum 8-11 ára. Námskeið-
in, sem standa yfir frá mánu-
degi til föstudags, hafa gengið
mjög vel og var ákveðið að bæta
við einu námskeiði sem hefst
mánudaginn 17. júlí.
Krökkunum er t.d. kennt að
tjalda, hnýta hnúta og aó vera úti í
náttúrunni og fara vel með hana.
Fyrstu þrjá dagana er farið yfir
hvernig á að búa til trönur, byggja
tjaldbúð og undirbúa sig undir
gönguferðir. Síðan á fimmtudag
og föstudag fá krakkarnir að
spreyta sig á ýmsu því sem þau
Kátir krakkar æfa sig í að hnýta hnúta.
hafa verið að læra en þá dvelja
þau yfir nótt á staónum.
Börnin mæta að Hömrum
klukkan níu að morgni og nám-
skeiðið stendur yfir til þrjú á dag-
inn en þeir sem vilja geta mætt
klukkan átta og verið til fjögur ef
það hentar betur. Námskeiðsgjald
er 5000 krónur og er hádegismatur
innifalinn í gjaldinu. AI
^ Ásgeir Hreiðarsson sýnir
^ nokkrum áhugasömum ung-
mennum hvernig bcst er að nota
áttavita.
Skeggjastaðakirkja í
Bakkaíirði 150 ára
- efnt til hátíðardagskrár 30. júlí nk.
Skeggjastaðakirkja í Bakkafirði
heldur upp á 150 ára afmæli sitt
þann 30. júlí nk. Af þessu tilefni
er reiknað með að 300-600
manns sæki kirkjuna heim á af-
mælisdaginn.
Árlegur fjölskyldu- og göngudag-
ur Kvenfélagasambands Norður-
Þingeyinga veróur nk. sunnudag,
16. júlí.
Lagt verður af staó kl. 14 á bíl-
um frá flugvellinum sunnan vió
Markmið afmælishátíðarinnar
er að hún (eins og hægt er) verói
eins og tíðkaðist með slíkar hátíðir
fyrir 150 árum. Boðið verður upp
á kaffi aó hætti þess tíma. Hópur
fólks í íslenskum búningum kem-
Höfóa við Raufarhöfn og keyrt
upp með Ormarsá. Síóan verður
gengið upp að eyóibýli vestan vió
ána. Boðið verður upp á hressingu
á leióinni. (Frétlatilkynning)
ur ríðandi til kirkju og aðrir
gangandi, enda var þetta tvennt
ferðamáti þess tíma. Sr. Sigmar
Torfason verður með erindi um
kirkjuna. Teymt verður undir
börnum og farið í leiki. Dansað
veróur á hlaðinu á Skeggjastöðum
með harmonikuundirleik eftir
kaffiö og fram eftir kvöldi.
Dagskrá afmælisdagsins er
annars sem hér segir:
Kl. 11 Morguntíðir.
Kl. 11-13.30 Hestamenn og
gangandi fólk kemur til kirkju.
Kl. 14 Hátíðarmessa.
Kl. 16 Afmæliskaffi.
Kl. 17 Erindi sr. Sigmars Torfa-
sonar.
Kl. 17.30 Leikir.
Kl. 17.30-22 Harmonikuball.
Kl. 22 Kvöldtíóir.
Kvenfélagasamband Norður-Þingeyinga:
Arlegur fíölskyldu-
og göngudagur
Mário Soares, forseti Portúgals, og Maria Barrosso, ciginkona hans, halda
hér á friðarkyndlinum ásamt forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur, en
þjóðhöfðingjar fjöimargra ríkja eru verndarar hiaupsins.
Alþjóðlegt friðar-
hlaup hefst á Akur-
eyri 22.
Laugardaginn 22. júlí nk. kl.
12.30 hefst á Akureyri alþjóð-
legt friðarhlaup, „Sri Chinmoy
Oneness Home Peace Run“, sem
nú fer fram í fimmta skipti.
Hlaupið er á tveggja ára fresti
og var fyrst hlaupið árið 1987.
Þetta friðarhlaup er án efa einn
af stærri íþróttavióburðum ársins
því reiknað er með að þegar
hlaupinu lýkur hafi um milljón
manns í yfir 80 þjóðlöndum
hlaupið með logandi kyndil. Upp-
hafsmaður alþjóðlega friðar-
hlaupsins er friðarsinninn Sri
Chinmoy, sem hefur helgað líf sitt
framgangi frióar í heiminum.
Friðarhlaupið nýtur stuðnings
leiðtoga um allan heim; forseta,
forsætisráóherra, trúarleiðtoga,
íþróttastjama og fjölda heims-
kunnra listamanna. Má þar nefna
Vigdísi Finnbogadóttur, verndara
friöarhlaupsins 1993, Lech Wa-
lesa, forseta Póllands, Paul Keat-
ing, forsætisráðherra Ástralíu, Jó-
hannes Pál páfa II, Desmund
Tutu, trúarleiðtoga í Suður-Afr-
íku, Carl Lewis, íþróttamann í
Bandaríkjunum, og Paul
McCartney, fyrrv. Bítil.
Islendingar hafa verió þátttak-
endur í friðarhlaupinu frá upphafi.
Árin 1987 og 1989 var t.d. hlaup-
ió hringinn í kringum landið.
I ár verður hlaupiö frá Akureyri
til Reykjavíkur, með viðkomu í
Olafsfirði, á Hofsósi, Sauöárkróki
og Blönduósi. Hlaupið verður út
Snæfellsnes og farið yfir Snæ-
fellsjökul.
Eins og áður segir verður ræst í
hlaupið á Akureyri laugardaginn
22. júlí nk. Hlaupinu lýkur 30. júlí
í Reykjavík. Leiðin er 760 kíló-
metrar og því áætlað aó hlaupa
um hundrað kílómetra á dag.
júlí nk.
Þessi mynd var tekin af Arnold
Schwarzenegger, leikaranum góð-
kunna, mcð friðarkyndilinn árið
1989.
Hlauparar úr svokölluðu Sri
Chinmoy maraþonliðinu fylgja
hlaupinu alla leið en sem fyrr er
áhersla lögð á þátttöku almenn-
ings.
Laugardaginn 22. júlí er áætlað
aö hlaupa 80 kílómetra, frá Akur-
eyri til Dalvíkur, þaðan yfir í 01-
afsfjörð og áfram að Lágheiði.
Sunnudaginn 23. júlí er áætlað
aó hlaupa frá Lágheiði um Fljót
að Ketilási, þaðan á Hofsós (kl.
13.35), síðan áfram til Sauðár-
króks (16.35) og áð í Varmahlíð
kl. 18.35.
Mánudaginn 24. júlí liggur
leiðin frá Varmahlíð um Vatns-
skarð að Húnaveri, síðan áfram
um Langadal til Blönduóss (kl.
13.15) og endað við Lækjamót í
Víðidal kl. 16.20.
Þriðjudaginn 25. júlí verður
hlaupið frá Lækamóti áfram sem
leið liggur og er áætlað að hlaupa-
fólk verði við Reykjaskóla í
Hrútafirði kl. 11.50. Hlaupinu lýk-
ur þennan dag vió vegamót aó
Heydal um kl. 18. óþh