Dagur - 13.07.1995, Blaðsíða 10

Dagur - 13.07.1995, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Fimmtudagur 13. júlí 1995 í ÞRÓTTI R SÆVAR HREIÐARSSON Fram Framarar höfðu yfirhöndina allan Ieikinn gegn ungliðum Þórs í 8 liða úrslitum Mjólkurbikarkeppni KSÍ í gærkvöldi. Framarar fengu fjöldann allan af færum, meðal annars fjögur skot í ramman, en mark með skalla á 69. mínútu reyndist sigurmarkið þegar upp var staðið. Þórsliðið barðist vel en átti við ofurefli að etja. „Þetta var rosalega erfitt. Þeir eru með svo mikla leikreynslu en við svo litla. Mér fannst vió spila ágætlega og okkur tókst ágætlega aó verjast. Vió vorum kannski ekki aó spila mjög skemmtilegan bolta en það þýöir lítið að hugsa um þaó í svona leik. Málió var aó verjast af krafti og reyna svo aó nýta skyndisóknimar," sagói Birg- ir Þór Karlsson, annar tveggja eldri leikmanna Þórs í gærkvöldi. Birgir lék ekki meö Þór gegn KR í fyrra- kvöld vegna veikinda en lét sig hafa þaó í gær. Fram sýndi alls enga fyrstudeild- artakta í leiknum í gær. Þeir voru þó mun meira með boltann og á stundum geróu þeir haróa hríð að marki Þórs. Strax á 16. mínútu fékk Atli Einars- son dauðafæri þegar hann skallaði í stöng af markteig. Fimmtán mínútum síóar átti Agúst Olafsson tvo skalla í stöng Þórsmarksins í sömu sókninni. Átti liða úrslit Mjólkurbikarsins: sló ungliða Þórs út - fékk fjölda færa, nýtti aðeins eitt Undir lok hálfleiksins slökuóu Fram- arar á og hleyptu norðanstrákum að- eins inn í leikinn. Birgir Þór átti síðan ágætt skot utan af velli rétt fyrir lék- hlé en það fór framhjá. Þórsrar máttu þakka fyrir að halda jöfnu í hálfleikn- um. Síðari hálfleikurinn var í raun spegilmynd af þeim fyrri. Fram sótti og Þór varóist. Brynjar Davíðsson, markvöróur Þórs, varði glæsilega aukaspymu frá Josep Dulic á 52. mín- útu en stuttu síðar varói Birkir vel hinum megin þegar Kristján Ömólfs- son komst einn í gegn og skaut að- þrengdur á markió. Sigurmark leiksins kom á 69. mín- útu en þá sendi Hólmsteinn Jónasson háan bolta inn í teig og þar skallaði Þorbjöm Atli Sveinsson í markió af stuttu færi. Eftir það fengu Framarar nokkur ágæt færi og Þórsarar eitt al- veg kjörið. Meira var ekki skorað og sanngjam sigur Fram í höfn. Þórsarar geta í raun vel við unað og mega vera ánægðir með frammistöðuna. Lið Mrs: Brynjar Davíðsson, Brynjar Ótt- arsson, Birgir Þór Karlsson, Sigurður Hjartar- son, Guðmundur Hákonarson (Orri Stefáns- son á 20. mín.), Amar Bill Gunnarsson, Kristján Ömólfsson, Heiðmar Felixson, Ör- lygur Þór Helgason, Sigurður Pálsson (Jakob Gunnlaugsson á 87. mín.) og Elmar Eiríks- son. Kristján Örnólfsson og fclagar hans í Þór börðust hctjulcga gegn Frömur- um en urðu að lúta í gras og Þórsarar þar með úr leik í bikarkeppnini. Mynd: B.G. ■ Tottenham og Middlesbro- ugh berjast um að fá skoska tengiliðinn John Collins í sínar raðir en hann hefur verið lykil- maður í liði Celtic undanfarin ár og fastamaóur í skoska landsliðinu. Hann er metinn á 2,5 milljónir punda. ■ Ian Wright hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samn- ing við Arsenal. ■ Talið er að Everton gangi frá kaupum á miðverðinum Craig Short frá Derby um helgina. Derby vill ekki selja en Short er með ákvæði í samningi sín- um um að hann megi fara fyrir 2,65 milljónir punda og Ever- ton bauð einu pundi betur. ■ Sheffield Wednesday falast nú eftir Phil Gray, framherja Sunderland, og Mark Pem- bridge, tengilið Derby, auk þess sem talió er líklegt að Robbie líarle gangi til liðs vió félagió frá Wimbledon. ■ Líklega yfirgefur Mark Bright herbúðir Wednesday síöar í þessari viku eftir að fé- lagið tók 500.000 punda tilboói West Ham í framherjann. QPR hcfur einnig áhuga á að fá hann í sínar raóir. Ovíst hvort Þorvaldur Orlygsson fer til Birmingham: „Allt í lausu lofti“ Eins og sagt var frá í Degi í gær hefur Þorvaldur Örlygsson átt í viðræðum við Birmingham City undanfarna daga og var allt út- iit fyrir að hann skrifaði undir samning við fclagið. Nú virðist þó útlitið ekki alveg jafn bjart og óvíst hvort af sölu hans frá Stoke til Birmingham verði. sagði Þorvaldur í gærdag „Þetta hangir allt í iausu lofti. án þcss að nokkuð væri ákveðió í þessu máli. Þctta er því miður ekki í fyrsta sinn sem svona ger- ist í sumar,“ sagói Þorvaldur Ör- lygsson í samtali viö Dag í gær. Það eru komnir einhverjir hnútar í þetta og það gæti allt eins verið aó þetta dæmi sé úr sögunni. Það er búið aó vera allt á fullu héma þannig að ég á voðalega erfítt mcð að segja eitt einasta oró. Það sem sennilega hefur skemmt fyrir er að það lak mikið til fjölmióla Þorvaldur sagðist vonast til að þessi mál leystust sem fyrst og hann gæti byrjaó með nýju félagi. Knattspyrna: Eyjolfur Sverrisson æfir með Sunderiand Knattspyrna: KA og Skallagrím- ur mætast í kvöld - Völsungur og Dalvík á Húsavík Knattspyrnumaðurinn Eyjólfur Sverrisson frá Sauðárkróki æfir þessa dagana með enska 1. deildarfélaginu Sunderland. Eyjólfur hefur hug á að komast að hjá ensku félagi og Sunder- land er eitt þeirra sem sýnt hef- ur áhuga á að fá hann í sínar raðir. Ljóst er að Eyjólfur leikur ekki áfram meó Besiktas í Tyrklandi, Hamar félagsheimili Þórs: Líkamsrækt og tækjasalur Ljósabekkir Vatnsgufubað Nuddpottur Salir til leigu Beinar útsendingar Getraunaþjónusta Hamar sími 461 2080 þar sem hann lék síðasta vetur, né með Stuttgart, sem hefur sölurétt á kappanum. Eyjólfur sagði í sam- tali við Dag fyrir skömmu að hann hefði áhuga á að reyna sig í Eng- landi og hefur að undanförnu ver- ið í viðræðum við þarlend félög. Hann er nú að sýna forráðamönn- um Sunderland hvers hann er megnugur en þar er Peter Reid, fyrrum leikmaður Everton, við stjórnvölinn. Það verður mikið um að vera á knattspyrnuvöllum landsins í kvöld. Leikið verður í 2., 3. og 4. deild karla og 1. deild kvenna og verða lið af Norðurlandi í sviðs- Ijósinu. Á Akureyrarvelli mæt- ast KA og Skallagrímur í 2. deild og á Húsavík verður stór- leikur í 3. deildinni þegar Völs- ungur og Dalvík mætast í topps- lag. í 1. deild kvenna leikur IBA í Eyjum gegn ÍBV og í 4. deild karla mætast Hvöt og SM á Blönduósi. KA lék gegn HK um síðustu helgi og var heppið að sleppa með þrjú stig frá þeim leik eftir 2:1 sigur. Róóurinn gegn Skallagrím verður ekki síður crfíður fyrir lið- ið og margt sem þarf að bæta. „Eg ætla rétt að vona að við verðum skárri heldur en í síðasta leik. Við verðum að fara að Koma boltanum í netið reglulega,“ sagði Halldór Kristinsson, vamarmaöurinn sterki í liði KA, sem skoraði fyrra mark liðsins gegn HK. Dean Martin, enski kantmaóur- inn í liði KA, er í leikbanni í kvöld og það gæti reynst KA- mönnum erfítt að fylla hans skarð. „Við stefnum á að vinna þennan Icik eins og aðra en við veróum aó horfa á það að við erum búnir að missa okkar skæðasta mann í leik- bann. Martin hefur verið okkar helsti sóknarmaður þannig aö það verður eflaust á brattan aó sækja,“ sagði Halldór. Skallagrímur er með sterkt lið og er í toppbaráttu. Nokkrir leikmenn liðsins eru upp- aldir í yngri flokkum IA og kunna ýmislegt fyrir sér auk þess sem aftasti maður varnarinnar er snjall Brasilíumaður, Antonio Carlos Pazzitto Zolano Junior. Fleiri menn vantar í KA-liðið því Steingrímur Birgisson er meiddur og sömu sögu er að segja af Höskuldi Þórhallssyni, sem ekkert hefur getað æft aó undan- förnu. Á Húsavík má búast við bar- áttuleik þegar Völsungar fá Dal- víkinga í heimsókn. Völsungar eru á toppi deildarinnar en Dalvíking- ar eru enn taplausir og í þriðja sæti. Það veróur því væntanlega ekki gefíö þumlung eftir á Húsa- víkurvelli. Það mun mæða mikið á Þorvaldi „Travolta" Sigbjörnssyni í framlínu KA í kvöld. Akureyrarmótið í golfi hafiö I gær hófu allir hclstu kylfingar Akureyrar keppni í Meistaramóti Golf- klúbbs Akureyrar 1995. Mótið stendur fram á laugardag og má búast við skcmmtilegri keppni enda mikið úrval af góðum kylfingum í bænum. Rúm- lega 100 keppcndur eru skráðir til leiks og hófu þcir fyrstu að slá kúluna upp úr hádcgi í gær en mönnum var frjálst að velja sér leiktíma í gær og svo er einnig í dag. A morgun og á laugardag verður raðað eftir árangri og þá ættu línur að vera farnar að skýrast. Rjómablíða var fyrsta keppnisdaginn og vonandi að kylfíngar hafi veðurguðina hliðholla sér næstu daga. Mynd: B.G.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.