Dagur - 09.09.1995, Blaðsíða 3

Dagur - 09.09.1995, Blaðsíða 3
FRETTIR Laugardagur 9. september 1995 - DAGUR - 3 Að undanförnu hefur verið unnið að uppgreftri á norðurhluta Miðgarðs, framan við Safnahúsið á Húsavík. Jarð- vegsskiptin verða frainkvænid í sumar en malbikun bíður þar til síðar. Mynd: im Fjalar hf. á Húsavík: Lýstar kröfur 57 milljónir króna - forgangskröfur 13 milljónir Kröfurlýsingarfresti í þrotabú byggingafyrirtækisins Fjalars hf. á Húsavík lauk nýverið og nam upphæð lýstra krafna liðlega 57 milljónum króna. Skiptastjórinn, Jón Sólnes hrl., segir ekki enn Ijóst hverjar eignir þrotabúsins séu en Iðnlánasjóði var sleginn fasteign og vélar þrotabúsins fyrir 13 milljónir króna, en af því ganga til ríkis- sjóðs sölulaun, fasteignagjöld og lögveðskröfur að upphæð 850 þúsund krónur. Þannig fær Iðn- lánasjóður röskar 12 milljónir króna af 15,4 milljón króna kröfu sjóðsins. Boöaö til fundar á Húsavík 30. september um framtíð héraðssjúkrahúsanna: Viljum fá heiðarlega umræðu - segir Friðfinnur Hermannsson, framkvæmdastjóri sjúkrahússins á Húsavík Forgangskröfur eru upp á lið- lega 13 milljónir króna, mest- megnis laun og launatengd gjöld auk greiðslna til lífeyrissjóða. Jón Sólnes segir að reynt verði að hraða lokum mála eins og nokkur kostur er. GG Sauðárkrókur: Fýrsti kvenlög- regluþjóninn Lögreglunni á Sauðárkróki hef- ur bæst við liðsauki, að vísu að- eins tímabundið, en þar starfar nú í fyrsta sinn kvenlögreglu- þjónn. Konan heitir Marta Óskarsdótt- ir og er lögregluþjónn í Reykjavík en verður í afleysingum á Sauðár- króki næsta mánuðinn en kona hefur aldrei starfað í lögreglunni á staðnum áður. Lögreglumennirnir á Sauðárkróki munu vera hæst- ánægðir með þessa ráðstöfun og heyrst hefur að sjaldan hafi þeir verið eins duglegir til vinnu eins og nú. AI „Við viljum fá heiðarlega um- ræðu um þessi mál, okkar hlið hefur ekki komið fram. Því hef- ur verið haldið fram að með því að leggja litlu sjúkrahúsin á landsbyggðinni niður sé hægt að ná fram svo og svo miklum sparnaði. Þessar fullyrðingar finnast mér órökstuddar og út í hött,“ sagði Friðfmnur Her- mannsson, framkvæmdastjóri sjúkrahússins á Húsavík, en sjúkrahús á landsbyggðinni hafa boðað til fundar á Húsavík um framtíð héraðssjúkrahúsa laug- ardaginn 30. september nk. „Eg held að það sé alröng stefna að leggja niður héraðs- sjúkrahúsin auk þess sem ég leyfi mér að halda því fram að hún sé þjóðfélaginu miklu dýrari. Hér á Húsavík eru framkvæmdar um 700 aðgerðir á ári. Með því að loka skurðstofunni myndu líklega sparast um 15 milljónir króna á ári, en síðan má spyrja hvort Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri geti tekið við öllum þessum að- gerðum fyrir lægri upphæð. Þá má ekki gleyma örygginu af því að hafa sjúkrastofnun á stað eins og Húsavík. Ég hef hvergi séð rök fyrir því að leggja niður héraðssjúkrahúsin. Við höfum gagnrýnt „gulu skýrsl- una“ svokölluðu en ekki fengið nein viðbrögð. Mín persónulega skoðun er sú að best reknu sjúkra- húsin séu einmitt litlu sjúkrahúsin úti á landi. Það er ekki af því að við séum svo klárir í rekstri, held- ur miklu fremur vegna þess að við erum með rekstrareiningar sem hægt er að stjóma. Á slóru sjúkra- húsunum tel ég að erfitt sé orðið að halda utan unt reksturinn," Svokallaður kúavírus sem herj- að hefur á norðlenska bændur í sumar er enn í gangi og heldur áfram að gera mönnum lífið leitt. Veikin lýsir sér í mikilli skitu hjá kúm, þær verða slapp- ar og nyt dettur niður, hjá flest- um tímabundið en einnig eru dæmi um að kýr nái sér ekki aftur. Fyrstu fréttir sem bárust um veikina voru úr Eyjafjarðarsveit en fljótlega barst hún einnig í Þingeyjarsýslur og norður fyrir Akureyri. Að sögn Guðmundar sagði Friðfinnur. Eins og áður segir boða sjúkra- hús á landsbyggðinni til fundar um framtíð þeirra laugardaginn 30. september á Hótel Húsavík. Fundurinn hefst kl. 9.30 og stend- ur til um það bil 16. Fundargjald er kr. 2000 og er innifalið í því há- degisverður, kaffi og fundargögn. Friðfinnur segir að til fundarins Steindórssonar hjá Búnaðarsam- bandi Eyjafjarðar hefur veikin verið að herja á bændur alveg fram undir þetta. „Ég hugsa að hún sé búin að koma víðast hvar, en yfirleitt fer þetta á flesta bæi. Það er auðvitað eitthvað misjafnt hversu alvarlegt þetta hefur verið, en það snarminnkar nytin þann tíma sem veikin gengur yfir, kannski í viku eða svo, en síðan ná flestar kýr sér að mestu aftur. Á einstaka bæjunt hefur þetta far- ið verr, sérstaklega ef veikin hittir á þann tíma sem kýr eru að bera séu boðaðir fulltrúar sjúkrahús- anna, jafnt stóru sjúkrahúsanna fyrir sunnan og litlu héraðssjúkra- húsanna, heilbrigðisráðherra og ráðuneytisfólk, landlæknir og að- stoðarlandlæknir, sveitarstjómar- menn og þingmenn. Þá er vert að undirstrika að fundurinn verður opinn öllu áhugafólki um þessi mál á meðan húsrúm leyfir. óþh eða eitthvað slfkt. En auðvitað hefur orðið töluvert tjón af þessu því nyt lækkar verulega meðan á veikinni stendur og sums staðar hefur orðið viðvarandi minnkun,“ sagði Guðmundur. Skagfirskar kýr fengu einnig þessa pest og hjá Búnaðarsam- bandi Austur-Húnvetninga á Blönduósi fengust þær upplýsing- ar að veikinnar hefði orðið vart á þó nokkrum bæjum á því svæði. Ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Vestur-Húnvetninga á Hvamms- tanga hafði hins vegar ekki spum- ir af því að veikin hefði borist í vestur-húnvetnskar kýr, a.m.k. ekki enn. HA Akureyri: Brotist inn í Samkomuhúsið - engu stolið Unglingspiltur var staðinn að verki laust eftir klukkan ellefu á fimmtudagskvöldið er hann braust inn í Samkomuhúsið á Akureyri. Pilturinn hafði komist inn með því að fjarlægja rúðu úr hurð. Lögregla leitaði á piltinum en fann ekkert fémætt og ekki er talið að neinu hafi verið stolið. Engar skemmdir munu heldur hafa verið unnar á húsnæðinu og piltinum var sleppt strax um kvöldið. AI Siglufjörður: TF-Líf í heimsókn Nýja þyrla Landhelgisgæslunnar, TÉ-Líf, kom til Siglufjarðar í gær- morgun og er það í fyrsta sinn sem nýja þyrlan kemur á staðinn. Ekki var um slys að ræða heldur var ástæðan að sýna lögreglu- mönnum og starfsfólki í heilsu- geiranum þyrluna enda líklegt að þyrlan verði notuð í framtíðinni í sambandi við sjúkraflutninga frá Siglufirði. AI Austur-Húnavatnssýsla: Kúavírusinn herjar enn á Norðurlandi Folki gefst kostur á hrossa- smölun og stóðréttum Daganan 23. og 24. september nk. gefst fólki kostur á að taka þátt í hrossasmölun og stóðrétt- um í Austur-Húnavatnssýslu með heimamönnum. í Skrapa- tungurétt, sem er neðst í Laxár- dal í Austur-Húnavatnssýslu, hefur verið smalað 800-1000 hrossum undanfarin haust og hafa hagsmunaaðilar í ferða- þjónustu og bændur gefið fólki kost á að taka þátt í smala- mennsku og réttarstörfum. Fyrirkomulag þessarar skemmti- legu nýjungar í ferðaþjónustu, sem hefur mælst vel fyrir á undan- fömum árum, er að smalað verður í Laxárdal og réttað í Skrapa- tungurétt. Föstudaginn 22. sept- ember er við það miðað að þátt- takendur komi á sína gististaði. Laugardaginn 23. september verð- ur síðan haldið í smölun í Laxár- dal. Farið verður kl. 8.30 að morgni laugardags og komið aftur í gististað kl. 19. Þá verður sam- eiginlegur kvöldverður þátttak- enda í Sveitasetrinu á Blönduósi og dansleikur á eftir. Réttarstörf hefjast síðan í Skrapatungurétt um kl. 10 að morgni sunnudagsins 24. septem- ber og verður þátttakendum gef- inn kostur á að taka þátt í þeim. Eins og undanfarin ár bjóða Sveitasetrið á Blönduósi, Ferða- þjónustan Geitaskarði og hesta- leigan Kúskerpi upp á „pakkaferð- ir“ sem innihalda t.d. gistingu, morgunverð, akstur til og frá rétt- arstað og reiðhest í göngumar. Þeim sem óska frekari upplýsinga um þessa uppákomu er bent að hafa samband við Sveitasetrið á Blönduósi í síma 4524126 eða Geitaskarð í síma 4524341. óþh Skattstjóri Staða skattstjóra í Vestfjarðaumdæmi er laus til umsóknar. Umsækjendur skulu hafa lokið prófi í lögfræði, hag- fræði, viðskiptafræði eða hlotið löggildingu í end- urskoðun. Æskilegt er að umsækjendur hafi jafnframt góða þekkingu í skattalögum og skattaframkvæmd. Staðan veitist frá 1. janúar 1996. Laun skattstjóra eru ákveðin af kjaranefnd samkvæmt lögum nr. 120/1992, um kjaradóm og kjaranefnd. Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist fjármálaráðuneytinu fyrir 10. október 1995. Fjármálaráðuneytið, 7. september 1995.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.