Dagur - 09.09.1995, Blaðsíða 20
MðtJR
Akureyri, laugardagur 9. september 1995
Akureyrarbær:
Róttæk uppstokkun á tómstundamálum
Afundi íþrótta- og tóm-
stundaráðs Akureyrarbæjar
í vikunni voru Iagðar fram hug-
myndir að róttækri uppstokkun
í tómstundamálum bæjarins.
Verða þessar hugmyndir
væntanlega afgreiddar frá ráð-
inu á næsta fundi þess og miðað
við að breytingar verði á þessum
málum um næstu áramót.
Þórarinn E. Sveinsson, formað-
ur ÍTA, sagði þessar hugmyndir
fram komnar vegna þess að menn
vildu alltaf gera betur og eins hafa
orðið og eru fyrirsjánanlegar
miklar breytingar á skólamálum.
T.d. er verið að gera alla grunn-
skóla bæjarins einsetna, skóladag-
heimilið Brekkukot hefur verið
lagt niður en skólavistun tekin upp
og býður að hluta svipuð nám-
skeið og félagsmiðstöðvamar. Þá
er fyrirsjáanlegur flutningur á
rekstri grunnskóla alfarið yfir til
sveitarfélaga, að ógleymdum
auknum og breyttum verkefnum
Akureyrarbæjar samfara reynslu-
sveitarfélagsverkefninu. Allar
þessar breytingar á skólamálum
kalla líka á breytingar á tóm-
stundamálunum, að sögn Þórarins.
Þar sem ekki er búið að af-
greiða málið vildi Þórarinn ekki
Það var líf og fjör í Sundiaug Glerárskóla þegar I jósmyndari Dags leit þar við á dögunum. Þar voru ungir nemendur
úr Síðuskóla í sundkennslu, undir stjórn Lillýjar Viðarsdóttur, íþróttakennara, og eins og sést á myndinni var mikill
atgangur. Mynd: BG
Húsavík:
Dregiö hefur úr umsóknum
um félagslegar eignaríbúðir
a.ð hefur dregið úr um-
sóknaíjölda og það frekar á
stærri íbúðunum. Mér sýnist
stefna í að það verði rólegt á
þessum markaði í vetur en við
erum að fara af stað með hús-
næðiskönnun sem stendur til 20.
september. Könnunin verður
notuð til grundvallar fyrir það
hvort menn hyggja að því að
sækja um framkvæmdalán til
Húsnæðistofnunar eða ekki,“
sagði Ólafur Júlíusson, bygg-
ingafulltrúi á Húsavík, aðspurð-
ur um umsóknir um félagslegar
eignaríbúðir í bænum. Ekki hef-
Veðurstofan spáir þægilegu
haustveðri á Norðurlandi
um helgina. í dag verður
norðaustan og austan gola
eða kaldi, skýjað að mestu
en þurrt víðast hvar. Hiti
verður á bilinu 6-11 stig. Á
sunnudag og fram yfir helg-
ina er spáð hægri austlægri
átt. Þurrt verður að mestu,
skýjað með köflum en nokk-
uð hlýtt.
ur verið sótt um allar íbúðir sem
húsnæðisnefndin hefur auglýst
síðustu vikurnar.
„Eg hygg að við séum komnir
með nægilega margar íbúðir í bili.
Mikil hreyfing er með þær fbúðir
sem fyrir eru. Það eru meiri skipti
á fbúðum og svo hefur heldur
fækkað umsóknafjölda um hverja
íbúð. Tveggja og þriggja herbergja
íbúðimar hafa yfirleitt alltaf geng-
ið út. A dögunum komu ekki um-
sóknir um þrjár af sex íbúðum sem
auglýstar voru en síðan er ein
þeirra íbúða farin og umsóknir að
koma um hinar sem hafa verið
auglýstar aftur,“ sagði Ólafur.
Hann sagði að Húsnæðisnefnd-
in reyndi að stilla því þannig að
nýr eigandi tæki við íbúðinni sama
dag og fyrri eigandi skilaði, en sá
háttur væri ekki á hafður í öllum
sveitarfélögum. Hann sagði að
tvær íbúðir hefðu beðið nýrra eig-
enda í 3-4 mánuði, en það væri
óverulegt miðað við ástand í
mörgum öðrum sveitarfélögum.
„Við fengum fjögur fram-
kvæmdalán til að kaupa íbúðir sí.
vetur. Það var ákveðið að kaupa
þrjár íbúðir, eina þriggja herbergja
og tvær tveggja herbergja. Á
næstu vikum verður farið í endur-
bætur á þeim og þær síðan aug-
lýstar til sölu í lok október,“ sagði
Olafur.
Ólafur sagði frekar erfitt á
leigumarkaði þó frekar virtist vera
að liðkast um og ef til vill yrði
komið til móts við þann markað
tímabundið ef ekki næðist að selja
íbúðimar, sem hann vonaði þó að
ekki kæmi til. IM
Allt fyrir garðinn
í Perlunni við
aKAUPLAND
Kaupangi v/Myrarveg, simi 23565
fara í smáatriðum út í það í hverju
breytingarnar em fólgnar, en sagði
markmiðið að styrkja félagsmið-
stöðvar í hverjum skóla og tengja
þær betur skólunum. Allt félags-
starf bæjarins, hvort sem er fyrir
unga, ganrla eða atvinnulausa og
svo framvegis, verður sameinað í
tvær tómstundamiðstöðvar sem
annars vegar verða Dynheimar og
hins vegar Ketilhúsið í Grófargili.
„Hugmyndin er að þessir staðir
verði nokkurs konar tómstunda-
gagnabankar og starfsmenn mið-
stöðvanna koma til með að sinna
tómstundastörfum í samstarfi við
íbúa og félög út um allan bæ, t.d.
með öldruðum í húsnæði aldraðra
í Víðilundi, svo dæmi sé tekið,“
sagði Þórarinn. Miðað er við að
breytingar verði á þessum málum
um næstu áramót, en sem fyrr seg-
ir eru hugmyndirnar enn til um-
ræðu. HA
40 sm hár er þriggja
ára gamalt í endann
og að meðaltali
hefur það verið
þvegið 600 sinnum
og burstað 2100
sinnum.
Það reynir á!
Þegar hárið slitnar hverfur náttúrulega
bindiefnið (ceramide) sem límir hornþekjuna
við kjarnann. Hárið hrörnar og missir mýkt,
styrk og gljáa.
A rannsóknastofum L'OREAL hefur lengi verið
unnið að lausn vandamálsins og nú hefur tekist að
þróa nýtt bindiefni sem L'OREAL hefur feneið
einkarétt á - CERAMIDE R* - sem kemur í stað þess
sem glatast. CERAMIDE R* binst hárinu og gefur
því fyrri styrk - glataða æsku - á ný.
Nýja hársnyrtilínan frá L'ORÉAL, FORTIFIANCE, er
sú eina sem inniheldur CÉRAMIDE R*. Gagnstætt
öðrum hársnyrtivörum vinnur FORTIFIANCE ekki
utan á hárinu, heldur styrkir það innan frá og
vinnur þannig á móti hrörnun þess. Hárið verður
sterkt, mjúkt og gljáandi á ný.
LORÉAL
LORÉAL
SJAMPÓ OG NÆRINGAR
MEÐ CÉRAMIDE R*
SÝNILEGUR ÁRANGUR Á 3 VIKUM
SLITIÐ HÁR VERÐUR SEM NÝTT!