Dagur - 12.09.1995, Qupperneq 1
Giljaskóli á Akureyri:
Starfsleyfi veitt
;
.
• ÍS..V -v--< '
V ;,.v & <•: í:;>-¥•:.■ *::
1 '"IC'* 'm
Guðrún Þorsteinsdóttir, húsfreyja á Hálsi, afhjúpaði ininnisvarðann um séra Friðrik. Við hljóðnemann er sr. Jón
Helgi Þórarinsson. Mynd: óþh
Minnisvarði um sr. Friðrik
tilbráð
Fyrsti kennsludagur var í
Giljaskóla, nýjum grunn-
skóla á Akureyri, í gær. Enn er
ekki búið að ljúka framkvæmd-
um á skólalóðinni og skólinn því
starfræktur á bráðabirgðaleyfi
til að byrja með.
Að sögn Halldóru Haraldsdótt-
ur, skólastjóra Giljaskóla, var
stuttur dagur í gær og bömin því
Bundið slitlag
á allar götur
í Grímsey
- „efni í Heimsmetabók
Guinness“
*
Ikvöld eða á morgun er stefnt
að því að ljúka við að klæða
og ganga frá veginum í Náma-
skarði í Mývatnssveit. Strax og
verkinu lýkur heldur vinnu-
flokkur Vegagerðarinnar til
Grímseyjar, til leggja klæðningu
á hvern einasta fermeter af göt-
um í eynni, alls um 14-15.000
fermetra.
„Það verður farið af stað með
liefil og bfl á morgun (í dag) til af-
réttingar og undirbúnings og síðan
er stefnt að því að ljúka verkinu
tljótlega upp úr næstu helgi,“ sagði
Sigurður Oddsson, deildarstjóri
framkvæmdadeildar Vegagerðar-
innar, í samtali við Dag í gær.
Auk véla og tækja, þarf að
flytja alls um 60.000 lítra af tjöru
til Grímseyjar. „Það hlýtur að vera
efni í Heimsmetabók Guinness,
þegar lagt er bundið slitlag á
hvem einasta fermetra í einu
sveitarfélagi í einum rykk og það
á aðeins tæpri viku,“ sagði Sig-
urður ennfremur. KK
Bílvelta
í Miðfirði
Jeppi valt út af vegi rétt við
Laxahvamm í Miðfirði eftir
hádegi á laugardag.
Tveir voru í bílnum og meidd-
ust lítilsháttar en jeppinn er mikið
skemmdur. Talið er að slysið
megi rekja til þess að bifreiðin
hafi runnið til í lausamöl.
Einn ökumaður var tekinn fyrir
ölvun við akstur í umdæmi lög-
reglunnar á Blönduósi á sunnu-
dagskvöld. AI
Gott veður
ígær
Mjög gott veður var víða á
Norðurlandi í gær miðað
við árstíma, mikill hiti og logn.
Á Staðarhóli í Aðaldal komst
hitinn upp í 18°C og á Akureyri var
hitinn mestur 17 stig. 15°C mæld-
ust á Sauðanesvita við Siglufjörð.
Hlýtt loft var yfir landinu öllu en
einna hlýjast var þó á Norðaustur-
landi vegna þess að þar rofaði vel
til þegar leið á daginn. AI
ekki send út í frímínútur. Sama
verður upp á teningnum í dag en
vonast er til að á morgun verði
framkvæmdum á skólalóðinni lok-
ið svo hægt verði að senda börnin
út í frímínútur.
Enn vantar nokkuð upp á hús-
gögn í nýja skólanum en Halldóra
segir að nóg sé komið af húsgögn-
um til að hægt sé að halda uppi
kennslu. „Við erum líka með láns-
húsgögn frá Lundarskóla og ein
stofan er eingöngu búin húsgögn-
um þaðan,“ segir hún.
Það er heilbrigðisnefnd Akur-
eyrarbæjar sem veitir skólanum
starfsleyfi og mun hún endurmeta
stöðuna á föstudag og vonast
Halldóra til að nefndin geti þá
gefið grænt ljós á endanlegt starfs-
leyfi. Leikskólinn Kiðagil, sem
einnig verður til húsa í skólanum,
hefur ekki hafið starfsemi enda
strangari reglur um frágang á leik-
skólalóðum. „Það er t.d. skylda að
búið verði að afgirða lóðina fyrir
leikskólann en þess er ekki krafist
fyrir grunnskóla," segir Halldóra,
en stefnt er á að leikskólinn geti
tekið til starfa á mánudag. AI
Minnisvarði um sr. Friðrik
Friðriksson, stofnanda
KFUM og K, var afhjúpaður sl.
sunnudag við Háls í Svarfaðardal,
en þar fæddist hann 25. maí 1868.
Fjölmargjr voru viðstaddir af-
hjúpunina í góðu veðri. Að lokinni
athöfninni við minnisvarðann var
efnt til hátíðardagskrár í safnaðar-
heimili Dalvíkurkirkju, þar sem
m.a. dr. theol Sigurbjöm Einars-
son biskujj flutti erindi um sr.
Friðrik. Aætlað er að um 200
manns hafi verið í kaffihófinu. Við
minnisvarðann hefur Vegagerð
ríkisins útbúið smekklegan áning-
arstað fyrir ferðafólk og er óhætt
að segja að vel hafi til tekist. óþh
Sjá „Minnisvarði um
sr. Friðrik Friðriksson
afhjúpaður“ á bls. 11.
Kæra framkvæmdanefndar HM-95 á hendur Halldóri Jóhannssyni til Ríkissaksóknara:
Skrýtið aö kæra hafi ekki
verið send fyrir löngu
- ef í þessu eru einhver ákærumál, segir Hallór Jóhannesson
Rannsóknarlögregla ríksins
er að ljúka rannsókn vegna
kæru Framkvæmdanefndar
HM-95 á hendur Halldóri Jó-
hannssyni á Akureyri, sem hafði
einkarétt á sölu aðgöngumiða á
heimsmeistarakeppnina á fs-
landi sl. vor.
Kæruatriðið er brot á samningi
og að 20 milljónir króna, sem áttu
að vera á bankabók hjá Sparisjóði
Mývetninga vegna aðgöngumiða-
sölunnar og framkvæmdanefndin
taldi sig eiga aðgang að, var ekki
til staðar að hennar mati þegar á
reyndi. Halldór Jóhannsson hefur
sagt að peningamir séu til staðar
en ekki hafi verið staðið við
samninga við hann og meðan ekki
sé komist að samkomulagi um
lokauppgjör verði gögn sem hann
hafi í höndum ekki framseld.
Fyrsti fundurinn á Sólborg
Háskólanefnd Háskólans á Akureyri kom í gaer saman til fyrsta fundar í
húsnæöi skólans á Sólborg. Fyrstu starfsmennirnir hafa þegar komið sér
fyrir á Sólborg og þar meö iná sej>ja að sé kominn á fullan skriö flutningur
skólans í sitt framtíðarhúsnæði. A myndinni eru (f.h.) Jón Þórðarson, Guð-
mundur Heiðar Frímannsson, Þröstur Oskarsson, Þorsteinn Magnússon,
Olafur Búi Gunnlaugsson, Þorsteinn Gunnarsson, rektor, Edda Kristjáns-
dóttir, Elsa Friðfinnsdóttir og Bjarni Hjarðar Pálsson. Mynd: BG
RLR mun á næstu dögum
senda Ríkissaksóknara, Hallvarði
Einvarðssyni, málið til meðferðar
en hann tekur síðan ákvörðun um
hvort höfðað verði mál á hendur
Hallóri Jóhannssyni. Reglan er sú
að ef RLR finnur einhverja sök í
sinni rannsókn þá er málið sent
Ríkissaksóknara til ákvörðunar,
annars vísað frá. Búast má við að
ákvörðun Ríkissaksóknara liggi
fyrir innan mánaðar frá því að
málið kemst í hans hendur.
Halldór Jóhannsson segir að
það sé ekki RLR að taka afstöðu
til þess hvort ákæra verði birt í
málinu.
„Lögmaður minn hefur sagt að
það sé algengt í svona málum að
eftir rannsókn sé málið sent Ríkis-
saksóknara til ákvörðunar hver
svo sem niðurstaða rannsóknar-
innar sé. Þessi ákvörðun kemur
mér því ekkert á óvart. Það er hins
vegar skrýtið að ef í þessu eru ein-
hver borðleggjandi ákærumál, af
hverju málið hefur ekki verið sent
Ríkissaksóknara fyrir löngu síðan.
Málið hefur verið í vandræðalegri
biðstöðu og ekkert víst að niður-
staða Ríkissaksóknara verði kæra
á hendur mér,“ segir Halldór Jó-
hannsson. Hann segist fastlega
gera ráð fyrir því að RLR liggi
undir þrýstingi af hálfu fram-
kvæmdanefndar HM-95 um að
senda málið til Ríkissaksóknara.
GG
Höfuðstöðvar bændasamtakanna
til Akureyrar?
Viljum fylgjast með
- segir Jakob Björnsson
Ifrétt í Degi sl. fostudag var
haft eftir Ara Teitssyni, for-
manni Bændasamtaka íslands,
að verið væri að skoða þann
möguleika að flytja starfsemi
höfuðstöðvanna út á land. Væri
Akureyri einn kostur í því sam-
bandi.
Jakob Bjömsson, bæjarstjóri á
Akureyri, sagðist í framhaldi af
þessari frétt hafa sent Ara Teits-
syni bréf þar sem því er fagnað að
Ákureyri skuli koma sterklega til
greina. Óskað er eftir því að bæj-
aryfirvöld fái að fylgjast með
framvindu málsins og að þau séu
tilbúin til viðræðna fyrirvaralítið
með hvaða hætti hugsanlega væri
hægt að greiða fyrir þessu. Hins
vegar er ekki búist við verulegum
tíðindum fyrr en um næstu ára-
mót. HA