Dagur - 10.10.1995, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 10. október 1995
ÍÞRÓTTIR
FROSTI EIÐSSON
^ Knattspyrna - Lokahóf:
Olafur bestur
- Tryggvi Guðmundsson sá efnilegasti
Ólafur Þórðarson, miðvallar-
Ieikmaður ÍA, var valinn besti
leikmaður 1. deildar karla á
lokahófi knattspyrnumanna
sem fram fór um helgina og
Guðrún Jónssdóttir úr KR
hlaut sömu verðlaun í 1. deild
kvenna. Það voru leikmenn
deildarinnar ásamt þjálfurum
sem stóðu fyrir valinu. Tryggvi
Guðmundsson frá ÍBV og Ingi-
björg H. Ólafsdóttir úr ÍA voru
kosin efnilegust.
Þá völdu íþróttafréttamenn lið
ársins og var það skipað eftir-
töldum leikmönnum: Birkir
Kristinsson (Fram), Sigurður Öm
Jónsson (KR), Ólafur Adoifsson
(ÍA), Hermann Hreiðarsson
(ÍBV), Ólafur Þórðarson (ÍA),
Sigurður Jónsson (ÍA), Marko
Tanasic (Keflavík), Heimir Guð-
jónsson (KR), Einar Þór Daníels-
son (KR), Amar Gunnlaugsson
(ÍA) og Tryggvi Guðmundsson
(IBV). Eins og sjá má af upptaln-
ingunni voru níu leikmenn af ell-
efu valdir úr þremur efstu liðum
deildarinnar, IA, KR og ÍBV.
Ólafur Þórðarsson.
Karfa - Urvalsdeild:
Tap hjá Þór
gegn UMFG
Þórsarar máttu þola sitt annað
tap í röð þegar liðið lá fyrir
Grindavík 85:101 í leik liðanna í
fþróttahöllinni á Akureyri á
sunnudagskvöldið.
Þórsarar vom heldur frískari
aðilinn framan af leiknum, höfðu
yfirleitt nauma forystu á fyrstu
mínútunum en Grindvíkingarnir
náðu síðan undirtökunum um
miðbik fyrri hálfleiksins og höfðu
yfir 59:51 íleikhléi.
Knattspyrna - EM landsliða:
Góður sigur hjá
kvennalandsliðinu
íslenska kvennalandsliðið í
knattspyrnu sýndi sinn besta
leik í langan tíma þegar liðið
lagði Holland að velli, 2:0 á
Laugardalsvellinum en leikur
liðanna var liður í Evrópu-
keppni landsliða.
íslenska liðið var mun betri að-
ilinn í fyrri hálfleiknum og var
óheppið að skora ekki. Jónína
Víglundsdóttir fékk besta færi ís-
lands eftir stundarfjórðungs leik
þegar hún slapp í gegn um hol-
lensku vömina en missti boltann
of langt frá sér, ein á móti mark-
verði.
Fyrra mark íslands kom þegar
sex mínútur voru liðnar af síðari
hálfleiknum. Ragna Lóa Stefáns-
dóttir átti þá skot sem hollenski
markvörðurinn varði. Hún hélt þó
ekki knettinum sem barst út og
þar var Ásthildur Helgadóttir,
fljótust að átta sig og sendi hann í
netið. Hollensku stúlkurnar kom-
ust meira inn í leikinn eftir markið
en þó án þess að skapa sér hættu-
1. deild kvenna:
Stórt tap
hjáÍBA
ÍBA mátti þola stórt tap gegn
ÍBV þegar liðin mættust í KA-
heimilinu á föstudagskvöld.
Eyjastúlkur höfðu tögl og halgd-
ir allan leiktímann og lokatölur
urðu 28:14.
Andrea Atladóttir, stórskytta
IBV, reyndist Akureyrarstúlkum
erfið. Hún skoraði átta mörk í
leiknum og þær Katrín Harðar-
dóttir og Sara Guðjónsdóttir fjög-
ur mörk hvor.
Valdís Hallgrímsdóttir og Anna
Blöndal skoruðu báðar fjögur
mörk fyrir ÍBA, Sólveig Sigurðar-
dóttir 3 og þær Elín Torfadóttir,
Dóra Sif Sigtryggsdóttir og Ragn-
heiður Jónsdóttir eitt hver. Næsti
leikur ÍBA verður ekki fyrr en eft-
ir tæpan mánuð.
leg marktækifæri. Það var síðan
Margrét Ólafsdóttir sem innsiglaði
íslenskan sigur fimm mínútum
fyrir leikslok. Hún fékk þá send-
ingu frá Ásthildi og skallaði í net-
ið af stuttu færi.
Islenska liðið er nú hálfnað
með leiki sína í riðlinum og hefur
fengið 4 stig. Hin liðin þrjú, Rúss-
land, Frakkland og Holland hafa
aðeins leikið einn leik, gegn ís-
landi.
■ Reynir Sandgerði hefur dregið
lið sitt út úr 2. deild karla í
handknattleik og Bikarkeppni HSÍ.
Leikir liðsins í deildinni falla því
niður í mótaskrá.
■ Islenska unglingalandsliðið,
skipað leikmönnum 18 ára og
yngri, tryggði sér sæti í 16-liða úr-
slitum Evrópukeppninnar og mætir
Irum. Liðið gerði markalaust jafn-
tefli við Hvít-Rússa í fyrri leik sín-
um en sigraði N-íra 3:2 í síðari leik
sínum á föstudaginn. Mörk ís-
lenska liðsins gerðu þeir Þorbjörn
Atli Sveinsson, Valur Gíslason og
Ivar Ingimundarson, sem skoraði
sigurmarkið.
■ Hvorki fleiri né færri en sjö
stúlkur úr Breiðabliki voru í byrj-
unarliði íslenska kvennalandsliðs-
ins gegn Hollandi. Ein þeirra,
Vanda Sigurgeirsdóttir, setti nýtt
leikjamet þegar hún lék sinn 27.
landsleik. Ásta B. Gunnlaugsdóttir
átti fyrra metið, 26 leiki.
■ Bragi Bergmann dæmir í kvöld
leik í Galway á írlandi á milli íra
og Letta í Evrópukeppni landsliða,
skipuðum leikmönnum U21 árs.
Þetta er fjórða verkefnið sem Bragi
fær erlendis í haust. Með honum í
ferðinni eru þeir Kári Gunnlaugs-
son og Ólafur Ragnarsson, sem eru
línuverðir, og Guðmundur Stefán
Maríasson er varadómari.
Leikurinn róaðist f síðari hálf-
leiknum, Grindvíkingum tókst
alltaf að halda Þórsliðinu í hæfi-
legri fjarlægð frá sér því lengst af
munaði tíu stigum á liðunum.
Þórsliðið átti í vandræðum í
þessum leik undir körfunni og vörn
liðsins var ekki sannfærandi, sér-
staklega ekki í fyrri hálfleiknum.
Gangur lciksins: 5:2, 13:8, 20:20,
27:28, 37:45, 51:59, 64:77. 75:88,
85:101.
Stig Þórs: Kristinn Friðriksson 25, Fred
Williams 20, Kristján Guðlaugsson 12.
Björn Sveinsson 9, Konráð Óskarsson 8,
Einar Valbergsson 6, Ftafsteinn Lúðvíks-
son 5.
Stig: Grindavíkur: Guðinundur Braga-
son 28, Herman Mayer 24, Hjörtur Harð-
arson 21, Marel Guðlaugsson 17, Helgi
Jónas Guðfinnsson 7, Unndór Sigurðs-
son 4.
Staðan
Úrslit leikja í úrvaldsdeildinni á
sunnudagskvöldið:
Njarðvík-Haukar 69:68
Breiðablik-ÍR 64:77
KR-Valur 100:76
Skallagrímur-ÍA 98:80
Tindastóll-Keflavík 85:77
Þór-Grindavík 85:101
Fred Williams var einn besti leikmaður Þórs en það dugði skammt gegn
Grindvíkingum sem unnu öruggan sigur í viðureign liðanna á sunnudags-
kvöldið. Hér á hann í baráttu við Marel Guðlaugsson. Guðmundur
Bragason fylgist með framvindu mála. Mynd: BG
A-riðill:
Tindastóll
Keflavík
Haukar
Njarðvík
ÍR
Breiðablik
B-riðilI:
Skallagrímur
Grindavík
KR
Þór
ÍA
Valur
4 4 0 349:312 8
4 2 2 353:342 4
4 2 2 322:280 4
4 2 2 339:330 4
4 2 2 303:325 4
4 0 4 285:359 0
431321:303 6
4 31 372:332 6
4 31 386:344 6
4 2 2 383:328 4
413 335:372 2
4 0 4 257:375 0
Karfa - Urvalsdeild:
Keflavík fjórða liðið til að játa
sig sigrað gegn Tindastóli
Frammistaða Tindastóls í úr-
valsdeildinni í vetur er farin að
minna á ævintýrið um Ösku-
busku. Liðinu var spáð tíunda
sæti deildarinnar af þjálfurum
og forráðamönnum liðanna en
eftir fjóra leiki hefur liðið inn-
byrt jafnmarga sigra. Keflavík-
ingar, sem spáð er
íslandsmeistaratitli, urðu á
sunnudagskvöldið að játa sig
sigraða fyrir baráttuglöðu liði
Sauðkrækinga í spennandi leik
þar sem 600 áhorfendur í gryij-
unni á Sauðárkróki studdu
geysivel við bakið á Ieikmönnum
sínum. Lokatölur urðu 85:77 í
hörkuspennandi viðureign.
Pétur Guðmundsson skoraði
Páll Kolbeinsson, þjálfari:
Sætur sigur
„Þessi sigur var mjög sætur.
Keflavíkingum er spáð sigri í
deildinni og þeir eru með nógu
gott lið til að fara alla leið. Bar-
áttan var mjög góð, við gáfumst
ekki upp og það var öðru fremur
varnarleikurinn sem skóp sigur-
inn,“ sagði Páll Kolbeinsson,
þjálfari Tindastóls, eftir sigurinn
gegn Keflavíkingum.
„Það er greinilegt að undir-
búningur okkar fyrir tímabilið
hefur skilað sér vel í byrjunar-
leikjunum. Þó þessi stig séu mik-
ilvæg eru samt sem áður aðeins
fjórar umferðir búnar af 32 og lít-
ið hægt að spá um framhaldið.
Við erum með ungt lið og bar-
áttuglatt og erfiðan heimavöll
fyrir liðin sem koma hingað.“
Páll Kolbeinsson.
fyrstu stig leiksins fyrir Tindastól
en eftir það voru gestirnir meira
áberandi, leiddu lengst af hálf-
leiksins með þremur til sjö stigum
en munurinn var mestur níu stig
eftir að Sigurður Ingimundarson
hafði raðað niður tveimur þriggja
stiga körfum og komið Keflavík í
22:13. Tindastóll náði að minnka
muninn fyrir leikhlé en leikur lið-
anna var langt frá því að vera góð-
ur, hittni var fremur slök og leik-
menn beggja liða gerðu sig seka
um mörg mistök í sóknarleiknum.
Án efa hefur troðfullt hús og
mögnuð spenna í loftinu haft áhrif
á einbeitingu leikmanna.
Keflvíkingar eru þekktir fyrir
að koma sterkir til leiks eftir leik-
hlé en að þessu sinni mættu þeir
ákveðnu Tindastólsliði, sem náði
að snúa leiknum sér í hag og kom-
ast yfir þegar fjórar mínútur voru
liðnar af hálfleiknum. Heimamenn
léku sterka vöm, náðu að halda
Keflvíkingum frá körfunni, þann-
ig að þeir þurftu að reyna skot
lengra fyrir utan. Segja má að
Guðjón Skúlason hafi haldið þeim
á floti. Hann skoraði ekkert stig í
fyrri hálfleiknum en nítján í þeim
síðari þar af fimmtán úr þriggja
stiga skotum. Þegar sjö mínútur
voru til leiksloka var staðan 62:61
fyrir Tindastól, sem tókst að kom-
ast í 69:62 og liðið náði að tryggja
sér sigurinn með góðri hittni af
vítalínunni, eftir örþrifaráð Kefla-
víkurliðsins á lokamínútunum.
Pétur Guðmundsson var besti
leikmaður Sauðkrækinga. Eins og
alltaf sterkur í varnarleiknum en
er jafnframt farinn að skila fleiri
stigum í sóknarleiknum. Hinrik
Gunnarsson, John Torrey og Lár-
us Dagur Pálsson komu sterkir inn
í síðari hálfleiknum.
Guðjón Skúlason og Sigurður
Ingimundarson voru áberandi
bestir í Keflavíkurliðinu. Einar
Einarsson, liðsstjóri Keflvíkinga,
sagði eftir leikinn að Tindastóll
gæti að stórum hluta þakkað
áhorfendum sigurinn. „Þetta er
einhver erfiðasti völlur sem hægt
er að spila á og ég held að áhorf-
endur hafi lagt til þessi tíu stig
sem okkur vantaði í þessum leik.“
Gangur leiksins: 2:0, 3:7, 9:9, 9:15,
13:18, 15:23,24:27, 32:34
34:38, 38:42,45:45,51:49, 59:61,65:61,
69:62, 71:64, 73:69, 80:72, 85:77.
Stig Tindastóls: Pétur Guðmundsson
22, John Torrey 18, Hinrik Gunnarsson
18, Lárus Dagur Pálsson 17, Ómar
Sigmarsson 8, Atli Bjöm Þorbjömsson
2.
Stig Keflavíkur: Guðjón Skúlason 19,
David Grissom 17, Sigurður Ingimund-
arson 16, Lenar Bums 15, Falur Harðar-
son 5, Jón Kr. Gíslason 4, Gunnar
Eiríksson 1.
Dómarar: Bergur Steingrímsson og
Georg Þorsteinsson. Dæmdu vel. EB