Dagur - 10.10.1995, Blaðsíða 16
Akureyri, þriðjudagur 10. október 1995
Öldrunarlækningadeild á Kristnesi:
Starfsemin hafin
SLIDES
IFRAMKÖLLUN
INNRÖMMUN
^Pe d íomyn dir"
Skipagata 16 • 600 Akureyri • Sími 462 3520
Um síðustu mánaðamót hófst
starfsemi öldrunarlækn-
ingadeildar FSA á Kristnesi. Er
þetta fyrsta öldrunarlækninga-
deildin á Norðurlandi og er sam-
kvæmt samningi sem gerður var
þegar FSA yfirtók rekstur Krist-
nesspítala á sínum tíma.
Aðilar sem starfað hafa í öldr-
unarþjónustu á svæðinu hafa lengi
átt þann draum að öldrunarlækn-
ingadeild tæki til starfa. Reynslan
af slíkum deildum sýnir að með
tilkomu þeirra dregur verulega úr
þörf fyrir að vista fólk varanlega á
stofnunum, með tilheyrandi kostn-
aði, og eldra fólki er gert kleift að
búa lengur á eigin heimili, sem er
í samræmi við óskir flestra.
A bls. 6 í blaðinu í dag er
nánar fjallað um öldrunarlækn-
ingadeild FSA á Kristnesi. HA
Agæt veiði i Smugunni
eftir 3ja vikna ördeyðu
Eftir þriggja vikna ördeyðu í
Smugunni í Barentshafi hef-
ur verið nokkuð góð veiði síð-
ustu þrjá sólarhringa og þau fáu
skip sem þar eru eftir hafa feng-
ið 5-15 tonn í holi. Þrjú skip af
Norðurlandi eru ennþá að veið-
um í Smugunni; Akureyrin EA,
Málmey SK frá Sauðárkróki og
Stakfell ÞH frá Þórshöfn.
Stokksnes
EA dregið
vélarvana
til iands
- viögerö á aöalvél
tekur nokkra daga
Bilun varð í aðalvél rækju-
togarans Stokksness EA
sl. föstudag þar sem hann
var á veiðum fyrir Norður-
landi og tók Oddeyrin EA,
sem var á svipuðum slóðum,
hann í tog og fóru skipin til
Akureyrar. Þangað var kom-
ið um hádegið á laugardag.
Bæði skipin eru frá Samherja
hf.
Kristján Vilhelmsson út-
gerðarstjóri segir að það taki
einhverja daga að gera við vél-
ina en að því loknu heldur
skipið aftur á veiðar. Stokks-
nesið hefur verið selt til Meit-
ilsins hf. í Þorlákshöfn og
verður afhent í lok þessa mán-
aðar.
Margrét EA hefur verið á
karfaveiðum fyrir sunnan land
og landar í gáma í dag á Reyð-
arfirði. Aflinn er um 180 tonn.
Togarinn heldur síðan aftur á
karfaveiðar fyrir sunnan land.
GG
Árni Bjamason, skipstjóri á
Akureyrinni, sagði í samtali við
Dag í gær að ræst hafi úr veiðinni
í Smugunni síðustu sólarhringa.
„Þetta hefur verið þokkalegt að
undanfömu. Við erum búnir að fá
álíka mikið á þremur dögum og
þremur vikum þar á undan. Við
höfum verið að fá frá 5 og upp í
15 tonn í holi í botntroll. Þetta er
mjög góður fiskur. Hins vegar er
vitlaust veður hérna núna, leiðinda
sunnan bræla,“ sagði Árni.
Akureyrin EA hefur verið að
veiðum í um þrjár vikur en Árni
sagðist ekki geta sagt til um hve-
nær haldið yrði heim. „Við vomm
að því komnir að fara heim en þá
glæddist veiðin skyndilega."
Árni sagðist ekki kunna skýr-
ingu á því af hverju þorskurinn
gefi sig eftir þriggja vikna ör-
deyðu. „Ætli það sé ekki fyrst og
fremst illgimi í þorskinum að
halda okkur héma,“ sagði hann og
hló. óþh
■■■ •* ■ ■ > m»
Fjolmenm a Degi
iðnaðarins
Dagur iðnaðarins var haldinn í fyrsta skipti sl. sunnudag og þykir
mönnum sem vel hafi til tekist. Á Akureyri var opið hús í fimrn fyr-
irtækjum; Foldu hf„ Gúmmívinnslunni hf„ Víking hf, Glófa hf. og
Kaffibrennslu Akureyrar og var stríður straumur fólks í þessi fyrir-
tæki á opnunartíma, frá kl. 13 til 17. Forsvarsmenn fyrirtækjanna
eru mjög ánægðir með þennan dag og sama rná segja um þann
mikla tjölda fólks sem kynnti sér starfsemi fyrirtækjanna. >
Á efri myndinni er Eðvarð Jónsson í Glófa hf. að kynna gestum
starfsemi fyrirtækisins og á neðri myndinni er Ásgeir Magnússon,
framkvæmdastjóri Foldu hf, að ræða við gesti. Myndir og texti: ójih
Alþjoða-
dagur geð-
heilbrigðis
ídag
Dagurinn í dag, 10. október
1995, hefur verið útnefndur
alþjóðadagur geðheilbrigðis af
Alþjóðasambandi um geðheil-
brigði með stuðningi Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar. Ingi-
björg Pálmadóttir, heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra, hefur
undirritað yfirlýsingu Alþjóða-
sambandsins um að 10. október
verði alþjóðadagur geðheilbrigð-
is á íslandi og sömu sögu er að
segja frá íjölmörgum löndum í
flestum heimsálfum.
I stofnskjali Alþjóðasambands-
ins um geðheilbrigði frá árinu
1948 og í Mannréttindayfirlýs-
ingu Sameinuðu þjóðanna frá
sama ári kemur fram að einstak-
lingar sem þjást af geðkvillum
eða eiga við tilfinningalega erfið-
leika að stríða og njóta meðferðar
eða eru vistaðir á sjúkrahúsum af
þeim sökum séu jafnbornir til
þeirrar virðingar og réttinda sem
eigi verða af mönnum tekin og
eru undirstaða frelsis, réttlætis og
friðar í heiminum.
Markmiðið með alþjóðadegi
geðheilbrigis er að auka skilning
almennings á geð- og tilfinninga-
truflunum, skapa virðingu fyrir
réttindum þeirra sem greindir eru
með geð- og tilfinningatruflanir,
efla forvamarstarf og bæta gæði
og auka framboð geðheilbrigðis-
þjónustu um allan heim. í tilefni
alþjóðadagsins mun Dagur birta
síðar í vikunni viðtal við Sigmund
Sigfússon, geðlækni á Akureyri,
um málefni geðsjúkra. AI
Frumvarp til þriggja ára áætlunar Bæjarsjóðs Akureyrar:
137 milljónir til framkvæmda
við Sundlaug Akureyrar
VEÐRIÐ
Samkvæmt veðurspá Veður-
spá íslands má búast við
frekar hægu haustveðri
næstu daga. í dag er spáð
breytilegri átt og síðan hægri
norðlægri átt og hita rétt fyrir
ofan frostmark. Á morgun má
búast við norðanátt og lítils-
háttar éljagangi á Norður-
landi og síðari hluta vikunnar
eru horfur á frekar köldu,
þurru og aðgerðarlitlu veðri.
Afundi bæjarstjórnar Akur-
eyrar í dag verður síðari
umræða um þriggja ára áætlun
Bæjarsjóðs Akureyrar um rekst-
ur, ijármál og framkvæmdir Ak-
ureyrarbæjar árin 1996-1998.
I markmiðum í áætluninni
kemur m.a. fram að hlutfall rekstr-
argjalda af skatttekjum verði að
hámarki 75% á áætlunartímabil-
inu. Tekið er fram að farið verði
með skipulegum hætti yfir öll
rekstrarútgjöld, þörf fyrir einstaka
rekstrarþætti verði endurmetin,
nefndakerfið endurskoðað, öll
innkaup betur skipulögð og skoð-
uð sérstaklega hagkvæmni þess að
bjóða út einstaka rekstrarþætti
hvað varðar innkaup á rekstrar-
vörum, þjónustu og efni. Þá er
sérstaklega tekið fram að lokið
verði við einstök verkefni og
framkvæmdaáfanga áður en hafist
verði handa við nýjar fram-
kvæmdir. Einnig er tekið fram í
markmiðum með áætluninni að
langtímalán bæjarsjóðs lækki á
næstu þrem árum.
I kaflanum um eignfærða fjár-
festingu kemur fram að á næsta
ári er gert ráð fyrir að hún nemi
151.3 milljónum króna, árið 1997
327.3 milljónum og árið 1998
334,6 milljónum króna.
Til félagsmála er hugmyndin
að verja 23 milljónum króna á
næsta ári í eignfærða fjárfestingu,
sem skiptist þannig að í breytingar
á leikskólanum Flúðum fari 8
milljónir og 15 milljónir króna í
viðbyggingu við leikskólann
Lundarsel.
I kaflanum um heilbrigðismál
kemur fram að 6,5 milljónum
króna verði varið árlega til ný-
byggingar FSA á næsta ári, 1997
og 1998. Til Heilsugæslustöðvar-
innar verði varið 3 milljónum á
næsta ári, 2,5 milljónum árið 1997
og 2,8 milljónum 1998.
Oskiptar til grunnskóla eru 28
milljónir á næsta ári, 72 milljónir
1997 og 70 milljónir 1998. Áætl-
unin gerir ráð fyrir að til nýbygg-
ingar framhaldsskólanna, sam-
kvæmt gerðum samningum, verði
varið 28 milljónum króna á ári
næstu þrjú ár.
I menningarmálum er gert ráð
fyrir 10 milljónum króna óskipt í
eignfærða Ijárfestingu árið 1998
og til Kaupvangsstrætis 23 verði
varið 600 þúsund krónum á ári
næstu þrjú ár samkvæmt gerðum
samningum.
1 íþrótta- og tómstundamálum
verður Sundlaug Akureyrar eina
eignfærða fjárfestingin næstu þrjú
ár, samkvæmt fyrirliggjandi frum-
varpi að þriggja ára áætlun. Á
næsta ári verði varið 35,2 milljón-
um til sundlaugarinnar, 42,2 millj-
ónum árið 1997 og 59,2 milljón-
um árið 1998.
Efnisflokkurinn hreinlætismál
fær í sinn hlut 2 milljónir á næsta
ári og til fasteigna bæjarins, þ.e.
Geislagötu 9, verði varið 20 rnillj-
ónum á næsta ári og því þarnæsta.
Til vélasjóðs er áætlað að verja
í eignfærða fjárfestingu 5 milljón-
um á ári næstu þrjú ár. óþh
KAUPLAND
Kaupangi • Sími 462 3565