Dagur - 11.10.1995, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 11. október 1995
ENGIN HUS
ÁN HITA
ía
Snjóbræðslurör,
mótar og tengi
TILBOÐ
39 kr. pr. metri
Verstið
vib
fagmann.
DRAUPNISGÖTU 2 • AKUREYRI
SÍMI 462 2360
i Opíá ó laugardögum kl. 10-12.
IHHBBBBBHBSQHBHHBHBBHHBQUBBQBQQB
Já... en ég nota nú
yf irleitt beltið! Ly.-
||umferðar
FRÉTTIR
Fyrirtækiö Alla leiö hf.:
Reglulegar flutningaferðir milli
Skagastrandar og Akureyrar
Guðlaugur Örn við hinn glæsilega Renault-flutningabíl sinn fyrir framan
afgreiðslu TVG á Akureyri. Bíllinn er aðeins ársgamall og einn af glæsi-
flutningavögnum frá Renault sem nú sjást á íslensku vegunum. Mynd: JÓH
Guðlaugur Örn Hjaltason, flutn-
ingabflstjóri á Skagaströnd, hef-
ur tekið upp reglulega land-
flutninga milli Akureyrar og
Skagastrandar. Fyrsta ferðin var
farin á mánudag og næsta ferð
verður farin á morgun fimmtu-
dag en framvegis verður ekið
þessa tvo daga vikunnar og farið
frá Akureyri kl. 17 báða dagana.
Fyrirtæki Guðlaugs, alla leið
hf., hefur ekið milli Skagastrandar
og Reykjavfkur, með viðkomu á
Blönduósi og Hvammstanga.
Reykjavíkurleiðinni verður sinnt
sem fyrr en með tengingu við
Akureyri segir Guðlaugur mögu-
leika aukast fyrir Húnvetninga og
hann er bjartsýnn á að margir not-
færi sér þetta enda styttra fyrir
Húnvetninga að sækja þjónustu til
Akureyrar en Reykjavíkur og fyrir
Akureyringa verða fjölbreyttari
möguleikar á að koma vörum
vestur. Guðlaugur segir flutninga
fyrir sjávarútveginn töluverðan
þátt í þessari þjónustu auk allra
annarra flutninga.
Líkt og í Reykjavík verður af-
greiðsla fyrir alla leið hf. á af-
greiðslu Tollvörugeymslunnar.
JÓH
Aðalfundur
Sjálfstæðisfélag Akureyrar
verður haldinn í Kaupangi v/Mýrarveg, mánudag-
inn 16. okt. 1995 kl. 20.30.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning fulltrúa á landsfund Sjálfstæðisflokksins.
Önnur mál.
Stjórnin.
Aðalfundur
fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna
á Akureyri
verður haldinn í Kaupangi v/Mýrarveg, fimmtudag-
inn 19. okt. 1995 kl. 20.30.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning fulltrúa á landsfund Sjálfstæðisflokksins.
Erindi: Sigurður J. Sigurðsson.
Önnur mál.
Stjómin.
Umsókn um framlög
úr framkvæmasjóði
aldraðra 1996
Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir um-
sóknum um framlög úr sjóðnum árið 1996. Eldri um-
sóknir koma aðeins til greina séu þær endurnýjaðar.
Nota skal sérstök umsóknareyðublöð sem fylla ber
samviskusamlega út og liggja þau frammi í heilbrigðis-
°9 tryggingamálaráðuneytinu. Einnig er ætlast til að
umsækjendur lýsi bréflega einingum húsnæðisins,
byggingarkostnaði, verkstöðu, fjármögnun, rekstrar-
áætlun, þjónustu- og vistunarþörf ásamt mati þjónustu-
hóps aldraðra (matshóps) og þar með hvaða þjónustu-
þætti ætlunin er að efla. Umsókn skal fylgja ársreikn-
ingur 1994 endurskoðaður af löggiltum endurskoðanda
og kostnaðaryfirlit yfir fyrstu níu mánuði ársins 1995.
Sé ofangreindum skilyrðum ekki fullnægt áskilur sjóð-
stjórnin sér rétt til að vísa umsókn frá. Umsóknir skulu
hafa borist sjóðstjórninni fyrir 1. desember 1995, heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Laugavegi 116,
150 Reykjavík.
Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra.
Bæjarstjórn Akureyrar:
Þriggja ára
áætlun rædd
Á fundi bæjarstjórnar Akureyr-
ar í gær var síðari umræða um
þriggja ára áætlun bæjarsjóðs
um rekstur, fjármál og fram-
kvæmdir Akureyrarbæjar 1996-
1998. Bæjarstjóri fylgdi áætlun-
inni úr hlaði og rakti helstu
þætti hennar, en í Degi í gær var
í grófum dráttum farið yfir þá.
í máli Jakobs Bjömssonar bæj-
arstjóra kom fram að vegna af-
náms tvísköttunar á lífeyris-
greiðslur lækka útsvarstekjur Ak-
ureyrarbæjar um 100 milljónir á
áætlunartímabilinu. Rekstrargjöld-
um er í megin atriðum stillt upp
miðað við endurskoðaða fjárhags-
áætlun 1995. Athygli vekur veru-
lega lægra framlag til íþrótta- og
tómstundamála, um 29 milljónir,
sem helgast af því að samningar
bæjarins vegna greiðslu á bygg-
ingastyrkjum til íþróttafélaga eru
nú útrunnir og ekki er gert ráð fyr-
ir fleiri samningum.
Atvinnuleysisskrá
til skoðunar
Guðmundur Stefánsson upplýsti
á fundi bæjarstjórnar Akureyrar
í gær að Vinnumiðlunarskrif-
stofan væri nú að skoða at-
vinnuleysisskrána.
Þær tölur sem fram komi í
skránni segi lítið einar og sér um
atvinnuástand í bænum heldur
verði að kanna betur hvað liggi á
bakvið og samsetningu þeirra sem
eru á skránni. T.d. sé stór hluti
þeirra sem er á bótum jafnframt í
hlutastarfi. Greina verði vandann
betur og að því vinni Vinnumiðl-
unarskrifstofan. HA
Bæjarstjóri tók fram að á
stundum sem þessum væri gjaman
vitnað til þess sem flokkar hefðu
lagt til í sínum kosningastefnu-
skrám. I samningi núverandi
meirihlutaflokka hefði verið lofað
aðhaldi í rekstri og ábyrgri fjár-
málastjóm. í þessari þriggja ára
áætlun kæmi fram að gert væri ráð
fyrir lækkandi skuldum, að pen-
ingaleg staða myndi batna, aukinn
afgangur yrði til framkvæmda og
lægri greiðslubyrði lána.
Umræður um þriggja ára áætl-
un stóðu enn í gærkvöld þegar
blaðið fór í vinnslu. HA
Umdeild út-
hlutunlóða
Úthlutun lóða við Hörpu- og
Hindarlund á Akureyri varð til-
efni deilna í bæjarstjórn fyrr í
sumar, þ.e. þær úthlutunarregl-
ur sem farið var eftir, eða skort-
ur á slíkum reglum. Málið var
aftur til umræðu í bæjarstjórn í
gær.
Bjöm Jósef Arnviðarson vildi
fá svör við því hversu mikið væri
um að menn hefðu sagt sig frá
lóðum. Einnig hvort þeim lóðum
hefði aftur verið úthlutað og þá
með hvaða hætti hefði verið staðið
að þeim úthlutunum og auglýsin-
um í því sambandi. T.d. hvort
þeim sem hafnað var við fyrstu út-
hlutun hefði verið gefinn kostur á
að fá lóð sem fallið hafi verið frá.
Hann ítrekaði að skoða verði
vandlega hvemig staðið verði að
sambærilegum úthlutunum í fram-
tíðinni. Undir þetta tók Sigríður
Stefánsdóttir. HA
Melrakkaslétta:
Bílvelta í gær
Bflvelta varð á Sléttu rétt fyrir
kl. 10 í gærmorgun. Ökumaður
hlaut minni háttar meiðsl og fór
til aðhlynningar á Heilsugæslu-
stöðina á Kópaskeri.
Það var pallbfll sem valt í
beygju á veginum milli Blikalóns
og Sigurðarstaða. Miklar
skemmdir urðu á bflnum. Öku-
maður missti vald á bflnum, en
laust var í veginum og sandur á
honum. IM
Húsavík:
Bæjarmála-
punktar
Tilboð í Bláhvamm
Veitunefnd hefur samþykkt að
gert verði ákveðið tilboð í eign-
arhluta Borghildar Einarsdóttur í
Bláhvammi í Reykjahverfi. Fyr-
irspurn barst frá Borghildi hvort
áhugi væri á kaupunum en jarð-
hiti er hluti af hlunnindum jarð-
arinnar. Orkustofnun telur ekk-
ert því til fyrirstöðu að nýrri
vinnsluholu verði valinn staður í
landi Bláhvamms/Laugahlíðar.
Skíðamál
Æskulýðs- og íþróttanefnd hefur
óskað eftir fjárveitingu, um 200
þúsund kr. til að gera kostnaðar-
áætlun unt uppbyggingu skíða-
svæðisins.
Gloría
Menningarmálanefnd hefur
ákveðið að styrkja hljómsveitina
Gloríu um 50 þúsund kr. vegna
útgáfu á geisladiski.
Listaverkaskrá
Menningarmálanefnd hefur
ákveðið að ljúka gerð lista yfir
listaverk bæjarins sem fyrst.
Kvikmyndahátíð
Kvikmyndahátíð í umsjón kvik-
myndasjóðs íslands verður hald-
in á Húsavík 22. október. Sýnd-
ar verða ntyndimar „Stofnun
lýðveklis á Islandi" og „79 af
stöðinni." Einnig er í athugun
hvort hægt sé að sýna gamlar
myndir frá Húsavík.
Tónlistarkvöld
Menningarmálanefnd hefur
ákveðið að halda hátíð, tónlistar-
kvöld til heiðurs Ingvari Þórar-
inssyni, sem þakklætisvott fyrir
frábær störf hans að menningar-
málum.
Barnabókagjöf
Menningarnefnd hefur borist
gjöf frá Guðmundi Páli Ólafs-
syni, eintak af „Ströndinni“ og
bamabækur á nýja leikskólann.
Dráttarbraut
Úttekt hefur verið gerð á ástandi
dráttarbrautar hafnarsjóðs og
viðgerðarkostnaður áætlaður.
Talið er að bráðabirgðaviðgerð
kosti 1-2 milljónir og fullnaðar-
viðgerð 5-8 ntilljónir. Gerður
hefur verið samningur um að
leigja Vík hf. dráttarbrautina.
Hafnasamlag við
Tjörneshrepp
Hugmyndir frá samgönguráð-
herra hafa komið fram um
hafnasamlag við Tjömeshrepp
og hefur hafnarstjóra verið falin
nánari athugun.
Pakkhús fyrir ferðamenn
Amar Sigurðsson hefur áhuga á
að eignast gamla Guðjohnsen-
spakkhúsið sem FH á og flutti á
Kaldbaksmela. Amar er með
skemmtisiglingar fyrir ferða-
menn og hefur áhuga að nýta
húsið á hafnarsvæðinu fyrir
ferðamannaútgerð.
Atvinnumál fatlaðra
Atvinnumál fatlaðra voru rædd á
fundi Félagsmálaráðs og talið að
koma þyrfti á átaki í þeim mál-
um. Farið er frarn á fund nieð
bæjarráði vegna málsins.
Ættingjaaðstoð
Félagsmálaráð ræddi ættingjaað-
stoð innan heimilisþjónustunnar
og samþykkt var að ráða ekki
heimilismann, til heimaþjónustu
á sínu heimili.