Dagur - 11.10.1995, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 11. október 1995
LEiÐAIU
Þríggja ára áætlun Akureyrarbæjar
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA31,
PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI,
SÍMI: 462 4222
ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1500 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
AÐRIR BLAÐAMENN:
AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR, GEIR A. GUÐSTEINSSON,
HALLDÓR ARINBJARNARSON,
SIGURÐUR BOGISÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON (íþróttir),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 464 1585, fax 464 2285).
LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI462 5165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 462 7639
í gær var til síðari umræðu í bæjarstjórn Akureyrar þriggja
ára áætlun um rekstur, fjármál og framkvæmdir Akureyrar-
bæjar næstu þrjú árin. Þriggja ára áætlun er á hverjum tíma
markandi plagg um framkvæmdir bæjarfélaga og í umræddri
þriggja ára áætlun Akureyrarbæjar kemur fram ramminn að
framkvæmdagetu bæjarfélagsins næstu ár.
Með þessu plaggi virðist vera hringt viðvörunarbjöllu.
Hlutur rekstrargjalda af skatttekjum verði samkvæmt áætl-
uninni að hámarki 75% á áætlunartímabilinu. Sú staðreynd
að þetta hlutfall hefur verið að hækka sýnir svart á hvítu
fram á að svigrúm bæjarfélagsins til nýframkvæmda verður
alltaf hlutfallslega þrengra. Hinn daglegi rekstur tekur til sín
æ fleiri krónur.
Það hefur verið á stefnuskrá bæjarstjómarmanna hvar i
flokki sem þeir standa að lækka skuldir bæjarfélagsins. Það
er skynsamlegt markmið. Sem betur fer hefur því verið forð-
að að hleypa fjármálum bæjarfélagsins svo úr böndum að
það þurfi á gjörgæslu félagsmálaráðuneytisins að halda, eins
og því miður hafa orðið örlög nokkurra annarra sveitarfélaga.
Þriggja ára áætlunin gerir ráð fyrir því að lækka langtíma-
skuldir bæjarsjóðs.
Auðvitað er það svo að framkvæmdaóskalistinn er miklu
viðameiri en unnt er að verða við á hverjum tíma. í hluta
áætlunarinnar um eignfærða fjárfestingu kemur fram að
stærsta einstaka framkvæmd bæjarfélagsins næstu ár verður
við Sundlaug Akureyrar. Þetta er í samræmi við það sem
bæjarstjórn samþykkti í fyrri þriggja ára áætlunum. Gert er
ráð fyrir að til Sundlaugarinnar verði varið um 137 milljónum
króna á næstu þrem árum og þar með verði Sundlaug Akur-
eyrar orðið glæsilegt mannvirki sem stenst allar nútímakröf-
ur. Það er skynsamleg stefnumótun að ljúka framkvæmdum
við Sundlaug Akureyrar áður en rokið er í næsta stórátak í
íþróttamálum.
Bitur staðreynd málsins blasir við í þessari þriggja ára
áætlun; þeir fjármunir sem til ráðstöfunar eru á hverjum tíma
eru afar takmarkaðir og þess vegna er tómt mál að tala um
að koma fram með kröfur um nýjar byggingar hér og nýjar
byggingar þar sem kosta fleiri hundruð milljónir króna. Þess-
ir peningar eru augljóslega ekki til að óbreyttu. Til þess að
einhver möguleiki sé til að snúa þessu dæmi við er að stór-
auka tekjur bæjarfélagsins og ekki verður séð í snarheitum
hvernig eigi að gera það. Hin leiðin er að selja eignir og eins
og áður hefur verið bent á á þessum vettvangi verða menn
að fara svara þeirri grundvallarspurningu hvort rétt sé að
Akureyrarbær hafi fleiri hundruð milljónir bundnar í hluta-
bréfum í Útgerðarfélagi Akureyringa hf.
Hópurinn í björgunarstöð Garðars að tygja sig til brottfarar.
Slysavarnakonur á Húsavík:
Konur úr Slysavamadeild kvenna á Húsavík hafa
unnið að fjáröflun síðustu vikumar, gengið í hús og
Víkurskarðið var bratt fyrir hjólin, en það var skipt oft
uni knapa á hjólunum og upp var komist á mettíma.
Komnar alla ieið tii Dalvíkur og þá var aðeins eftir að
þiggja myndarlegar góðgjörðir, aka heim og takast á við
strengina næstu daga.
fyrirtæki og beðið um áheit á hjólreiðaferð til Dalvík-
ur. Féð sem safnast á að nota við lokaáfanga endur-
bóta við Slysavamahúsið.
Söfnumm hefur yfirleitt verið mjög vel tekið og
þátttaka er almenn í þessu átaki og margar myndar-
legar gjafir hafa borist.
Hjólreiðaferðin var farin sl. laugardag er 11 hjól-
reiðakonur úr deildinni héldu af stað og hjóluðu þessa
134 km til skiptis, nema hvað öll sjö hjólin vom
mönnuð konum þegar farið var um Húsavík, Akur-
eyri og Dalvík, en þar var tekinn aukahringur til að
sýna Dalvíkingum þessar dugnaðarkonur. Með í för
voru tveir bflar og gjaldkeri Björgunarsveitarinnar
Garðars, sem ók björgunarsveitarbflnum.
Slysavamafólk var heimsótt í ferðinni. Að Stóra-
tjömum tóku félagar úr Björgunarsveitinni Þingey vel
á móti hópnum með veitingum og þurrum fötum, sem
komu sér vel í rigningunni. Á Akureyri tóku slysa-
vamakonur á móti hópnum, sýndu nýju björgunar-
stöðina við Strandgötu og buðu upp á kaffiveitingar.
Á Dalvík biðu dúkuð veisluborð og vel þeginn kvöld-
verður hjá slysavamakonum. Síðan var þakkað fyrir
og haldið heim til að takast á við strengina. IM
Slysavarnakonur á Dalvík tóku á móti hópnum af mikl-
um myndarskap og báru fram höfðinglegar veitingar.
Hjólað tíl Dalvíkur
Hrönn Káradóttir, formaður deildarinnar, fær tilsögn um notkun hjólhests-
ins frá Ægi Eiríkssyni björgunarsveitarmanni.
Hópurinn hjólaði sarnan að sláturhúsi KÞ og síðan iagði Hrönn Káradóttir
formaður upp í fyrsta áfanga ferðarinnar.
Björgunarsveitin Þingey tók vel á móti hópnum í björgunarstöð sinni við
Stórutjarnaskóia.
Við bensínstöðina á Leirunum var stoppað og hvert hjól nýtt til að hjóla í
hóp um Akureyrarbæ, en stoppað til að skoða nýju björgunarstöðina og
þiggja kaffiveitingar. Myndir: im