Dagur - 11.10.1995, Blaðsíða 15
IÞROTTIR
Miðvikudagur 11. október 1995 - DAGUR - 15
FROSTI EIÐSSON
Knattspyrna - U21:
Tap gegn Tyrkjum
Handknattleikur:
Úrslit í Evrópukeppni bikarhafa
Knattspyrna:
Þorleifur
marka-
kóngur
Þorleifur Árnason, leik-
maður 3. flokks KA, varð
markakóngur Akureyrar
1995 en þá nafnbót hlýtur
hann fyrir að skora flest
mörk að meðaltali í Akur-
eyrarmótinu í sumar. Jón
Aðalsteinsson, úr Knatt-
spyrnuráði Akureyrar,
veitti Þorleifi sigurlaunin
um síðustu helgi og var
myndin tekin við það
tækifæri.
Þorleifur skoraði þrjú
mörk að meðaltali í mótinu,
þau voru reyndar gerð í ein-
um og sama leiknum, í 4:1
sigri KA gegn Þór í 3.
flokki, Þorleifur missti síð-
an af síðari leiknum vegna
æfinga með drengjalands-
liðinu. Mynd: BG
Fjölmargir leikir voru háðir í 32-liða úrslitum í Evr-
ópukeppni bikarhafa í handknattleik. Hér að neðan
eru úrslit úr fyrri leikjum liðanna og hálfleikstölur
þeirra í sviga.
Kraftlyftingar:
Flosi sterkur
í Danmörku
Flosi Jónsson hafnaði í níunda sæti í 90 kg flokki á
Heimsmeistaramóti öldunga, sem fram fór í Kaup-
mannahöfn um síðustu helgi. Mótið var mjög fjöl-
mennt, um 200 kraftakögglar tóku þátt í mótinu og
aldursflokkunum 40-50 ára og 50 ára og eldri.
„Þetta mót gekk hratt fyrir sig og ég er þokkalega
ánægður með útkomuna, þó að með smá heppni hefði
ég getað orðið ofar. Tíminn féll á mig í einni lyftunni
og ég fór tvisvar upp með 245 kg í hnébeygjunni en
báðar lyftumar voru dæmdar ógildar. Ég mundi því
segja að ég eigi nokkuð inni en ljósi punkturinn er
metið í bekkpressunni," sagði Flosi. Hann lyfti 155 kg
af bekknum, sem er íslandsmet í öldungafloicki, 250 kg
í réttstöðulyftu og 230 í hnébeyjunni. Samtals lyfti
hann því 653 kg.
Flosi hefur létt sig um 14-15 kg frá því í febrúar og
segist alls óvanur því að keppa í svo léttum flokki. „Ég
hugsa að ég eigi eftir að þyngja mig aftur. Bæði verður
maður hálf aflvana svona léttur og svo er ég orðinn
frekar þreyttur á að borða pastamat,“ sagði Flosi.
Flosi Jónsson við keppni á aflraunamóti.
■ Gengið hefur verið frá ráðn-
ingu Lúkasar Kostic sem þjálf-
ara hjá 1. deildarliði KR í
knattspymu til næstu þriggja
ára. Lúkas þjálfaði lið Grinda-
víkur sl. sumar en hann hóf
þjálfaraferilinn hjá Þór eftir að
hafa áður leikið með liðinu.
■ Þess má geta að undir stjórn
Lúkasar urðu Þórsarar í níunda
sæti 1. deildarinnar árið 1990
og féllu niður í 2. deild. ÍA
hafnaði þá í tíunda sæti deild-
arinnar en Fram varð íslands-
meistari. Þessi lið höfðu sæta-
skipti í deildinni í ár sem
kunnugt er.
■ íslandsmótið í blaki hófst
um síðustu helgi. íslands- og
bikarmeistarar HK frá því í
fyrra hófu titilvörnina nteð
sigri á Stjörnunni 3:1 (15:9,
13:15, 15:5 og 15:7). Þá sigr-
aði Þróttur >Stúdenta 3:1
(15:11, 15:11, 8:15 og 15:12.
íslenska landsliðið var óheppið
að ná að minnsta kosti ekki
jöfnu gegn Tyrkjum í leik lið-
anna í undankeppni EM í gær.
Tyrkir sigruðu 3:2 í viðureign
liðanna á Varmárvellinum í Mos-
fellsbæ og var sigurmark þeirra
skorað 40 sekúndum fyrir leiks-
lok, eftir að íslenska liðið hafði
fengið 3-4 upplögð færi til að
skora á lokamínútunum.
Þórður Guðjónsson skoraði
fyrsta mark leiksins eftir 20. mín-
útna leik úr vítaspyrnu en Der-
eliogliu skoraði tvö næstu mörk
fyrir Tyrki með mínútu millibili.
Steingrímur Jóhannesson skor-
aði annað mark leiksins í síðari
hálfleiknum og jafnaði 2:2 með
skoti af stuttu færi eftir góða send-
ingu Guðmundar Benediktssonar.
íslenska liðið fékk síðan fjölmörg
tækifæri í lokin en Sagir tryggði
Tyrkjum sigur. IB
Boccia - íslandsmeistaramótið á Húsavík:
Geysispennandi úrslitakeppni
Julian Duranona gnæfir yfir norska landsliós-
inanninn Rune Erland í leik Viking og KA í fyrri
Evrópuleikliðanna. Mynd: BG
Gorenjc (Slóveníu) - Lemgo (Þýskal.) 14:17 (9:13)
Luzcrn (Sviss)-Drott (SvíþjóB) Leikið í kvöld
# Báðir Ieikimir fara fram í Sviss
Viking Stufangri (Noregi)-KA (íslandi)
Fraternclle (Luxemborg)-Teka (Spáni)
Ked Star (Júgóslavíu)-G.G. Eto (Ungverjalandi)
Pelister Bitola (Maked.)-Roar Hróarskeldu (Danm.)
RVR Riga (Lettlandi)-A. Vigo (Spáni)
K. Pivovara (Krótatíu)-O.M. Vitrolies (Frakklandi)
M. Bain Mere (Rúmeníu)-Ula Varcas (Litháen)
tlt Báðir leikirnir fara fram í Rúmeníu
Volgograd (Rússl.)-Sasja (Hvíta Rússlandi)
# Sasja dró lið sitt út úr keppninni
Porto (Portúgal)-Spark. stadtw. (Austurríki)
l.C. Kielce (Póllandi)-Kiev (Úkraníu)
Ankara (Tyrklandi)-Locomotive (Búlgaríu)
tfc Báðir leikimir fara fram í Tyrklandi
Pullamano Rubiera (Ítalíu)-Banik Karvina (Tékklandi) 15:15 (10:8)
AS Xini S. Aþcnu (Grikklandi)-Hapoel (ísrael) 19:15 (7:10)
Horn Sittardia (Hollandi)-TJ VSZ Kosice (Slóvakíu) 18:23 (10:12)
24:23(14:11)
17:35(14:181
34:25(17:12)
28:20(14:12)
23:29 (12:18)
20:25 ( 8:10)
Leikið í vikunni
Völgograd áfrant
25:25 (13:12)
28:22(12:11)
23:17(10: 8)
Flestir síðari leikirnir í 32-liða úrslitunum fara fram
urn næstu helgi.
■ Það verða dönsku dórnar-
arnir, Jensen og Smith, sem
munu blása í flautumar á síðari
leik KA og Viking í Evrópu-
keppni bikarhafa, sem fram fer
í KA-heimilinu á sunnudaginn.
Leikur liðanna hefst klukkan
16.
■ Handknattleiksdeild KA
hyggst gefa út leikskrá fyrir
leikinn gegn Viking. Tveir
leikmenn meistaraflokksins sjá
um að ritstýra skránni. Það eru
þeir Helgi Arason og Leó Öm
Þorleifsson.
■ Magnús Ver Magnússon
hreppti um síðustu helgi
sæmdarheitið: „Sterkasti mað-
ur heims,“ þegar hann sigraði í
samnefndri keppni á Bahama-
eyjum. Þetta er í þriðja skiptið
sem Magnús Ver sigrar í þess-
ari keppni sem haldin er ár-
lega. Sex stigum ntunaði á
honum og næsta rnanni. Akur-
eyringurinn Torfi Ólafsson var
einnig á meðal keppenda en
meiddist eftir fyrstu grein og
þuifti að hætta keppni.
íslandsmeistaramótið í boccia
var haldið í íþróttahöllinni á
Húsavík 5.-7. okt. sl. Rúmlega
200 keppendur tóku þátt í mót-
inu. Keppt var í níu flokkum og
leiknir 487 leikir.
„Þetta gekk mjög vel, engin
vandamál komu upp og allir vom
mjög ánægðir,“ sagði Amar Guð-
laugsson, mótsstjóri og yfirdóm-
ari. Gífurleg vinna fólst í skipu-
lagningu fyrir mótið, en allar
tímasetningar stóðust svo til upp á
mínútu. Það var íþróttafélagið
Völsungur, fþróttasamband fatl-
aðra og Kiwanisklúbburinn
Skjálfandi sem fyrir mótinu stóðu.
Skátafélagið Víkingur, fimleika-
stelpur úr Völsungi og nemendur
Framhaldsskólans á Húsavík að-
stoðuðu við mótshaldið, ásamt
fjölmennu liði aðstoðarfólks,
þjálfara og fararstjóra.
Egill Olgeirsson í mótsnefnd
sagði að úrslitaleikimir hefðu ver-
ið gífurlega spennandi og oft
mjótt á munum. Úrslit mótsins
voru sem hér segir:
1. deild:
1. Haukur Gunnarsson ÍFR 10
2. Elvar Thorarensen Akri 8
3. Sigunós Karlsdóttir Akri 6
2. deild:
1. Ámi Jónsson Þjóti 10
2. Jóna B. H. Jónsdóttir ÍFR 8
3. Margeir Karlsson Nesi 5
3. deild:
1. Jón Þór Ólafsson ÍFR 10
2. Einar Sveinsson Kveldúlfi 7
3. Elín Berg Stefánsdóttir Örvari 4
4. deild:
1. GuðrúnAnnaN úmadóttir Grósku 10
2. Rökkvi Sigurlaugsson Grósku 8
3. Ólafur Þormar Gunnarsson Gáska 6
5. deild:
1. Þorsteinn Sölvason ÍFR 8
2. Grímur Lúðvíksson ÍFR 7
3. Helgi Sveinsson Kveldúlfi 6
6. deild:
1. Sumanós Sigurðardóttir Akri 8
2. Asgrímur Sigurðarson Völsungi 6
3. Ámi Ragnarsson Nesi
4
U-flokkur/yngri:
1. Pétur Tavsen Steinsson Grósku 4
2. Sigurður Jón Björgvinsson Völsungi4
3. Pálmi Rögnvaldsson Völsungi 4
U-flokkur/eldri:
1. Þ. Margrét Kristinsdóttir Akri 7
2. Oddný Stefánsdóttir Akri 6
3. Karl Ingólfsson Völsungi 3
Rennuflokkur:
1. Kristinn Ásgeirsson Ösp 8
2. Hildur Haraldsdóttir ÍFR 6
3. Sveinbjöm Gestsson ÍFR 6
IM
Hamar
félagsheimili Þórs:
Líkamsrækt og tækjasalur
Ljósabekkir
Vatnsgufubað
Nuddpottur
Salir til leigu
Beinar útsendingar
Getraunaþjónusta
Hamar
sími 461 2080