Dagur - 11.10.1995, Blaðsíða 16
Skýr merki um upp-
sveiflu rjúpnastofnsins
Náttúrufræðistofnun íslands
telur að rjúpnastofninn sé
greinilega að styrkjast á ný eftir
mikla niðursveiflu undanfarin ár.
Þetta eru góðar fréttir fyrir
rjúpnaveiðimenn, sem geta byrjað
veiðar á sunnudaginn, en þó
mældist stofninn í vortalningu
þrisvar sinnum minni en í síðasta
hámarki, árið 1986.
Þekkt er að sveifla í rjúpnastofn-
inum er mikil og um tíu ár hafa ver-
ið á milli toppa. Munur á stofnstærð
Blönduós:
Endurbætur
fyrirhugaðar á
félagsheimilinu
✓
Afundi bæjarstjórnar
Blönduóss fyrir skömmu
var félagsheimilisnefnd falið
áframhaldandi starf við mótun
tillagna um framtíðamýtingu
félagsheimilisins og skipulag
innanhúss, ásamt gerð tillagna
um viðgerðir utanhúss og um-
sjón þeirra viðhaldsaðgerða
sem ráðist verður í. Er nefnd-
inni heimilt í þessu skyni að
taka allt að 2 milljón króna lán
fyrir hönd eigenda félagsheim-
ilisins, en það eru bæjarfélagið
sem á 92% og leikfélagið sem á
8%.
Gestur Þórarinsson er for-
maður félagsheimilisnefndar og
að hans sögn er orðið brýnt að
ráðast í viðgerðir á húsinu að ut-
an, en það hefur ekki fengið
nauðsynlegt viðhald á síðustu ár-
um. „Hugsunin er að fara í
sprunguviðgerðir og fleiri utan-
hússaðgerðir strax í haust, ef
veður leyfir, þannig að hægt
verði að fullmála húsið á næsta
ári. Númer eitt er síðan að passa
viðhaldið á húsinu,“ sagði Gest-
ur.
Hann segir húsið hafa verið
illa nýtt hin síðari ár og er í bí-
gerð að ráðast einnig í aðgerðir
innan dyra með aukna nýtingu í
huga. I því sambandi liggja ekki
enn fyrir mótaðar tillögur, en
stefnt er á að þegar einhverjar
tillögur liggja fyrir fari fram um
þær opin umræða. Gestur segir
salinn á húsinu vera góðan og
henti leikfélaginu vel. Ekki
standi til að breyta salnum sem
slíkum heldur fá betri nýtingu á
aðra hluta hússins og helst fá inn
í það einhvem daglegan rekstur.
HA
VEÐRIÐ
Veðrið er þessa dagana á
fremur rólegum nótum. í gær
var suðaustan átt á Akureyri
og 2ja stiga hiti. Veðurstofan
gerir ekki ráð fyrir stórvægi-
legum breytingum næstu
daga. Búast má við björtu og
góðu veðri í dag og hitinn
verður einhvers staðar á bil-
inu 1-7 stig. í vikulokin verður
líklega norðanátt en hún
fremur aðgerðarlítil.
milli hámarks- og lágmarksára hef-
ur verið þrefaldur hið minnsta en tí-
faldur hið mesta. Vortalningar hafa
sýnt að stofnbreytingar virðast vera
samstíga um nær allt land. Síðasta
hámark var árið 1986 en úr því
fækkaði verulega í rjúpnastofninum
og var hann í lágmarki vorið 1983.
Hlutfall ungra og gamalla fugla
á veiðitíma gefa vísbendingu um
ástand rjúpnastofnsins. Samkvæmt
upplýsingum Náttúmfræðistofnunar
Islands hafa rannsóknir sýnt að þeg-
ar þetta hlutfall er hátt, þ.e. meira
en 75% ungar er stofninn í aukn-
ingu. Hlutfall ungfugla á veiðitíma
1994 var 81,5%. Þetta er eitt hæsta
hlutfall ungfugla í hauststofni sem
mælst hefur og benti eindregið til
þess að stofninn væri í vexti, í
fyrsta skipti síðan 1985.
Rjúpnatalningar síðastliðið vor
staðfestu þetta og aukningin á
Norðausturlandi frá 1994 til 1995
var 65% og 22% í Hrísey. Hlutfall
ársgamalla fugla í varpstofninum
1995 var 78% og það er eitt hæsta
hlutfall sem mælst hefur. Reynslan
hefur sýnt að í aukningarárum hefur
hlutfall ársgamalla fugla að vori
verið yfir 60%.
Vortalningar og aldurssamsetn-
ing rjúpnastofnsins sýna greinilega
að aukning er hafin. Samkvæmt un-
gatalningum sem gerðar vom
síðsumars á Norður-, Norðaustur-
og Suðvesturlandi komst mikið upp
af ungum í ár og var meðalfjöldinn
um 8,3 ungar á hvem kvenfugl. Það
þarf að fara aftur til 1990 til að
finna álíka stóran hauststofn og er
nú 1995.
Náttúmfræðistofnun íslands
áætlar að stofninn við upphaf veiða
nú telji um eina milljón fugla og
telur að á þessu stigi séu engin
merki sjáanleg um að veiðin eins og
hún hefur verið síðustu áratugi
skipti sköpum í stofnbreytingum.
Benda megi á að nokkurn veginn
sömu breytingar sé að sjá í stofnin-
um á alfriðuðum svæðum, eins og
Öræfasveit, og á svæðum þar sem
allt að fjórðungur veiðinnar er á
haustin, þ.e. við Eyjafjörð.
Umhverfisráðuneytið setti reglu-
gerð haustið 1993 og stytti veiði-
tíma rjúpu um mánuð. Þessi
ákvörðun var mjög umdeild en
Náttúrfræðistofnun segir að mögu-
lega hafi þessar friðunaraðgerðir
dregið úr afföllum þeirra fugla sem
séu dýrmætastir fyrir stofninn.
I sumar hafa á fimmta hundrað
Innimálning
verði
Cljá
stig 10
Verð fra kr.
5€l lítri
KAUPLAND
Kaupangi • Simi 462 3565
rjúpur verið merktar á vegum Nátt-
úrufræðistofnunar og eiga merkin
að gefa mikilvægar upplýsingar um
ferðalög rjúpna og afföll vegna
veiða. Flestar merktu rjúpumar bera
fóthring en fáeinar eru vængmerkt-
ar. Þá em um 30 fuglar með radíó-
sendi um hálsinn. Hvatt er til þess
að veiðimenn hugi vel að fuglunum
sem þeir veiða og skili merkjunum
og radíósendunum til Náttúmfræði-
stofnunar ásamt upplýsingum þann-
ig að merkingamar skili tilætluðum
árangri í rannsóknum á rjúpnastofn-
inum. JÓH
Heimildamynd um Davíð
Síðustu daga hafa staðið yfir í
húsi Davíðs Stefánssonar, að
Bjarkarstíg 6 á Akureyri, upptök-
ur á mynd um skáldið, sem sýnd
verður í Sjónvarpinu um jólin.
Myndin er framleidd af Samveri
hf., leikstjóri er Egill Eðvarðsson en
bókmenntalegur ráðgjafi við fram-
leiðslu hennar er Gísli Jónsson,
fyrrverandi menntaskólakennari.
Egill segir myndina verða ferðalag í
gegnum ljóðabækur skáldsins, en
hún er gerð í tilefni af því að 100 ár
voru liðin frá fæðingu Davíðs í
byrjun þessa árs. Upptökur fara að
mestu fram í Reykjavík, en norðan-
lands á tveimur stöðum; í Möðru-
vallarkirkjugarði í Hörgárdal þar
sem Davíð er jarðsettur og í húsinu
sem hann bjó löngum í. Fyrir utan
það var þessi mynd tekin síðdegis í
gær og í efstu röð má sjá frá vinstri
talið: Helgu I. Stefánsdóttur, sem
annast búninga- og leikmyndahönn-
un, og við hlið hennar eru leikaram-
ir og systkinin Helga og Amar
Jónsþöm. I fremri röð er Egill Eð-
varðsson, leikstjóri, lengst til
vinstri, þá Gunnar Ámason, hljóð-
maður, og loks myndatökumennim-
ir Ólafur Birgisson og Þórarinn
Ágústsson, sem situr á veggnum.
-sbs./Mynd: BG.
Þú dælir og færö 1,20 kr. í afslátt
af hverjum litra i ÍVIX sjálfsölunum.
Skeljungur hf.