Dagur - 17.10.1995, Qupperneq 5
Þriðjudagur 17. október 1995 - DAGUR - 5
Skólamál
Um stundvísi
Það er í sjálfu sér rannsóknarefni
að jafnvel heiðarlegustu og bestu
menn geta verið gersneyddir þeirri
dyggð sem kallast stundvísi.
Tímaskynið virðist ekki vera inn-
byggt í suma einstaklinga homo
sapiens. Allir skólar hafa fundið
fyrir óstundvísi og þær eru margar
aðferðirnar við að bregðast við
henni. Á dögunum kom frétt í
einu dagblaðanna þess efnis að
skólayfirvöld í bæ einum á Bret-
landi hafi gripið til þess ráðs að
gefa öllum skólanemendum
vekjaraklukku vegna þess hve
nemendur mæta seint og illa á
morgnana. Afsökunin er gjaman
sú að nemendumir hafi einfald-
lega ekki vaknað
né neinn annar í
fjölskyldunni. Þó
eru Bretar þekktir
fyrir stundvísi og
nákvæmni. Við ís-
lendingar erum
þekktir slóðar í
þessum efnum og hafa menn þá
skýringu að það sé herskyldan og
jámbrautalestir sem ala upp í
mönnum stundvísi en eins og allir
vita erum við blessunarlega laus
við þessa þætti.
Á tímum samdráttar og at-
vinnuleysis þegar barist er um
vinnuna ættu stundvísi og sam-
viskusemi að vera þau gildi sem
eru í hávegum höfð.
Á öllum tímum hafa verið til
nemendur sem ekki virða tíma-
setningu, koma of seint í kennslu-
stundir eða jafnvel skrópa í tím-
um. Blessunarlega er þorri nem-
enda því marki brenndur að vilja
standa sig í öllum þáttum skóla-
starfsins en alltaf em það ein-
hverjir sem setja leiðinlegan svip
á annars góðan hóp. Stundvísi er
lítið vandamál í framhaldsskólun-
um því að menn segja sig einfald-
lega frá námi með því að láta sig
vanta í tíma. Nemendur safna fjar-
vistarpunktum og þegar ákveðnu
marki er náð hvort sem um er að
ræða vísvitandi fjarvistir eða veik-
indi er talið að nemandinn hafi
misst það mikið úr námi að hann
þurfi að taka áfangann aftur.
Aftur á móti geta grunnskólar
ekki gripið til slíkra ráðstafana þar
sem lög segja til um það að ekki
megi vísa nemanda úr skóla. Þess
vegna verður gmnnskólinn að
grípa til annarra ráða.
I Gagnfræðaskólanum hefur
það verið vandamál að nokkrir
nemendur mæta bæði seint og illa
og liafa átt það til að láta sig
hverfa jafnvel um miðjan dag.
Venjulegar brýningar og hefð-
bundnar aðferðir við að snúa nem-
endum til betri vegar hafa ekki
borið árangur. Þess vegna hefur
verið ákveðið að taka upp punkta-
og bónuskerfi sem lítur svona út:
Punktakerfí vegna mætinga
Nemendum ber að kappkosta
stundvísi í hvívetna. Ef nemandi
er veikur ber að tilkynna það til
skrifstofu skólans í síma 462
4241. Skólastjórar einir gefa leyfi.
Ef nemandi kemur of seint í
kennslustund eða skrópar gilda
eftirfarandi reglur:
* Að koma of seint í kennslustund
reiknast 2 punktar.
* Að skrópa úr kennslustund
reiknast 4 punktar.
* Meðan nemandi hefur ekki fleiri
en 10 punkta getur hann þurrk-
að þá út með algjörri stundvísi í
viku.
* Þegar fjarvistir og óstundvísi ná
20 punktum, varar umsjónar-
kennari hans hann við og hefur
samband við heimili. Ef nem-
andi lætur sér ekki segjast er
boðað til fundar með foreldrum,
umsjónarkennara og skólastjór-
um.
* Ef nemandi stendur sig algjör-
lega í tvær vikur þurrkast fyrri
syndir út.
* Ef nemandi lætur sér enn ekki
segjast og bætir við sig 20
punktum verður mál hans sent
fræðsluyfirvöldum. Ennfremur
fyrirgerir hann rétti sínum til
skólaferðalags.
* Þeir nemendur sem hafa færri
en 5 punkta á skólaárinu sitja
Könnun á
kynferðislegri
áreitni
Á sl. árum hefur umræða um kyn-
ferðislega áreitni á vinnustöðum
farið vaxandi. Vandamálið er vit-
anlega ekki nýtt af nálinni en
lengst af hefur lítil sem engin um-
ræða eða fræðsla farið fram hér á
landi um þetta athæfi og þolendur
hafa gjaman þurft að bera þessa
reynslu sína einir og ekki vitað
hvar unnt sé að leita upplýsinga
og stuðnings. Þá hafa vinnuveit-
endur ekki haft neinar leiðbein-
ingar til að fara eftir þegar slíkt
vandamál kemur upp á vinnustað
þeirra og á fæstum vinnustöðum
hafa verið gerðar nokkrar fyrir-
byggjandi ráðstafanir til að koma í
veg fyrir slíkt athæfi.
I undirbúningi er, skv. fram-
pizzuveislu að vori komanda að
launum fyrir frábæra skólasókn.
Vonandi ná þessar reglur tilætl-
uðum árangri en eitt er víst að
byrjunin lofar góðu. Kennarar
telja sig sjá batamerki hjá nokkr-
um fjarvistarsjúklingum og þegar
þetta er skrifað þann 9. okt. hefur
verið kallað til foreldrafunda
vegna tveggja nemenda.
Það er óskandi að íslendingar
almennt reyni að ná betri tökum á
þeirri sjálfsögðu gjörð að virða
tímasetningar því að óstundvísi
kemur ekki einungis niður á gjör-
andanum heldur öllum þeim er
málið varðar. Nemandi sem kem-
ur of seint í kennslustund truflar
vinnu allra í stof-
unni. Segjum sem
svo að truflunin vari
í 3 mínútur. Samtals
færu þá 75 mínútur
til spillis í 25 manna
deild.
Nemendur GA eru í vetur 408
og annað starfsfólk skólans 42,
samtals 450. Ef skólahald fellur
niður einn dag, t.d. vegna óveðurs,
fara til spillis 3600 vinnustundir
nemenda og kennara. Gefum okk-
ur það að tveir til þrír nemendur í
öllum bekkjardeildum komi of
seint í hvem einasta tíma í heilan
mánuð og hver kennslustund
skerðist um 5 mínútur vegna trufl-
unar sem af því leiðir kemur í ljós
að 253 klukkustundir fara til spill-
is. Ef að við breytum jtessum
klukkustundum í krónur sam-
kvæmt Einingartaxta með orlofs-
greiðslum í heilan mánuð verður
upphæðin 1.950.000 sem gerir á
ársgrundvelli eins og stjómmála-
menn segja kr. 17.500.000 rnillj-
ón. Auðvitað er þetta ekki raun-
hæft en þó umhugsunarvert. Þann-
ig má endalaust leika sér að töl-
um.
Með kærri kveðju,
Magnús Aðalbjörnsson.
kvæmdaáætlun ríkisstjómarinnar,
umfangsmikil könnun á kynferðis-
legri áreitni, umfangi hennar og
eðli og munu niðurstöður hennar
liggja fyrir í lok næsta árs. Til að
opna umræðu um kynferðislega
áreitni og til að koma til móts við
þörfina á fræðsluefni á þessum
vettvangi hefur Skrifstofa jafnrétt-
ismála geftð út bækling um kyn-
ferðislega áreitni á vinnustað. í
bæklingi þessum eru stuttar skil-
greiningar á kynferðislegri áreitni
og leiðbeiningar fyrir þolendur og
vinnuveitendur um hvemig bregð-
ast skuli við. Að gerð bæklingsins
ásamt Skrifstofu jafnréttismála
komu fulltrúar ASI, BSRB og
VSÍ.
Canon
5ex taeki
í einu
Það má segja ad þú fáir sex tæki
é verdi eins tækis þegar þú
kaupir Canon B360 vélina.
Smærri skrifstofur og einyrkjar
eflast ad mun fyrir vikid,
því faxtækid, síminn, tölvufaxid,
Ijósritunarvélin og prentarinn
eru komin i eina og sömu vélina.
Þetta er útsjónarsemi.
Enda er þetta Canon.
Verðkr. 1N.900
LVUTÆKI
Furuvöllum 5 • Akureyri
Sími 462 6100
k_____________________A
Kennarar
Kennara eða leiðbeinanda vantar að Þelamerkur-
skóla til námsaðstoðar við nemanda
um það bil 10 kennslustundir á viku.
Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 462 1772 eða
462 6555.
Veiðimenn
- veiðikonur
„Dellukalla r"
Vetrarvertíðin er hafín!
Námskeið fyrir byrjendur í fluguhnýtingum
verður haldið á Akureyri laugardaginn
28. október nk., ef næg þátttaka fæst.
Efni, kennslubók og afnot af áhöldum er innifalið
í námskeiðsgjaldinu, sem er kr. 6.000,-
Skráning í síma 453 5828.
Björn Mikaelsson, Sauðárkróki.
Auglýsing
frá menntamálaráðuneytinu
Styrkir til námsefnisgerð-
ar á framhaldsskólastigi
Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um
styrki til námsefnisgerðar í bóklegum og verklegum
greinum á framhaldsskólastigi. Minnt skal á að heimilt
er skv. reglum um úthlutun að verja allt að fimmtungi
heildarúthlutunar til að efla tiltekin svið.
Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu, náms-
efnisnefnd, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 20.
nóvember nk. á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt
er að fá í ráðuneytinu.
jlk, Umsókn um framlög úr
aB Framkvæmdasjóði fatlaðra
1996
Stjóm Framkvæmdasjóðs fatlaðra auglýsir eftir umsókn-
um um framlög úr sjóðnum árið 1996. Um hlutverk sjóðs-
ins vísast til 40. gr. laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðra
og reglugerðar nr. 204/1994 um Stjómamefnd um málefni
fatlaðra og Framkvæmdasjóð fatlaðra.
Umsóknum skal skila til hlutaðeigandi Svæðisskrifstofu
málefna fatlaðra sem veita nánari upplýsingar.
Svæðisskrifstofa Reykjavíkur, Nóatúni 17, Reykjavík.
Svæðisskrifstofa Reykjaness, Digranesi 5, Kópavogi.
Svæðisskrifstofa Vesturlands, Bjarnarbraut 8, Borgarnesi.
Svæðisskrifstofa Vestfjarða, Mjallargötu 1, ísafirði.
Svæðisskrifstofa Norðurlands vestra, Ártorgi 1, Sauðárkróki.
Svæðisskrifstofa Norðurlands eystra, Glerárgötu 26,
Akureyri.
Svæðisskrifstofa Austurlands, Tjarnarbraut 39e,
Egilsstöðum.
Svæðisskrifstofa Suðurlands, Gagnheiði 40, Selfossi.
Umsóknum skal skila til svæðisskrifstofa fyrir 15.
nóvember 1995.
Félagsmálaráðuneytið,
16. október 1995.
ORÐ DAGSINS
462 1840