Dagur - 18.10.1995, Blaðsíða 9
Kristbjörg Jónsdóttir með vettling af hinni nýstárlegu gerð.
Ljósmynd: Sigurður Bogi.
Handverkskonur í Þingeyjarsýslum
og víðar:
Prjóna vettlinga
íyrir veiðimenn
og ljósmyndara
Konur í Þingeyjarsýslum og víðar
á landinu hafa nýlega byrjað
prjónaskap á afar nýstárlegum
vettlingum, sem eru í senn bæði
grifflur og belgvettlingar. Slíkir
vettlingar eru seldir í handverks-
markaði þingeyskra kvenna við
Goðafoss og fást einnig víðar á
landinu.
Kristbjörg Jónsdóttir, húsfreyja
á Ystafelli í Köldukinn, var að fást
við prjónaskap af þessu tagi þegar
blaðamaður var á ferðinni í Kinn.
Veiðimanna- og ljósmyndaravettl-
ingar eru þessir gripir kallaðir. Og
satt má vera að báðum henta þeir
afar vel; þegar veiðimenn grípa
um gikk byssa sinna og ljósmynd-
arar taka um linsuna og smella af.
Fyrir þessa menn henta þessir
ágætu vettlingar býsna vel.
Vettlingar sem þessir eru seldir
í Goðafossmarkaðnum, í Ullarsel-
inu á Hvanneyri í Borgarfirði og í
Þingborg í Flóa á Suðurlandi.
Hvert par kostar rúmar 2.000 kr.
-sbs.
Miðvikudagur 18. október 1995 - DAGUR - 9
HRISALUNDUR
- fyrir þig!
Þar sem lágt verð,
KEA • • VOI
HRÍSALUNDUR
FER SAMAN
Þangað FERÐ ÞÚ
Tilbod
Skinkufars kr. 299 kg
igg 1. fl kr. 259 kg
Ungaegg kr. 198 kg
HRISALUIMDUR
V
Glæsilegasta fisk-, kjöt- og
OSTABORÐ Á NORÐURLANDI
J
Verð miðað við staðgreiðslu
er 1300* krónur
fyrsta birting
( og hver endurtekning
400 krónur
AUGLÝSINGAR ■ RITSTJÓRN ■ DREIFING
Á AKUREYRI462 4222
Á HÚSAVÍK 464 1585
‘VSK. innifalinn í verði