Dagur - 18.10.1995, Blaðsíða 14

Dagur - 18.10.1995, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Miðvikudagur 18. október 1995 MINNINO % Ami Valmundsson Fæddur 17. apríl 1923 - Dáinn 11. október 1995 Árni Valmundsson fæddist á Akur- eyri 17. apríl 1923. Hann varð bráð- kvaddur þ. 11. okt. sl. Foreldrar hans voru Valmundur Guðmundsson vélsmiður á Akur- eyri, f. 29. júní 1890, d. 24. júlí 1963 og Sigríður Árnadóttir f. 27. júlí 1901, d. 31. ágúst 1962. Systkini Árna eru: Anna Valmundardóttir f. 9. jan. 1925, maki Eysteinn Árna- son, Guðný Valmundardóttir f. 17. ágúst 1926, d. 24. jan. 1989, maki Stefán Guðjohnsen (látinn), Einar Valmundsson f. 28. mars 1928, maki Hallfríður Sigurgeirsdóttir, hálfbróðir Árna (sam-mæðra) er Eiður Baldvinsson. Árni kvæntist Önnu Daníelínu Pétursdóttur frá Brekkukoti í Svarfaðardal þ. 31. ágúst 1946. Þau eignuðust 2 syni og þeir eru: Árni, framkvæmdastjóri, kvæntur Margréti Þorvarðardóttur og eiga þau 2 börn, Hjalta og Önnu Björk; Valmundur Pétur, matreiðslumeist- ari, kvæntur Ingibjörgu Ringsted og eiga þau 4 syni, Baldvin, Árna Má, Pétur Örn og Stefán Erni. Árni Valmundsson nam vélsmíði við Iðnskólann á Akureyri og hjá föður sínum og ráku þeir feðgar saman vélaverkstæði á Akureyri. Eftir lát Valmundar rak Árni véla- verkstæðið allt til ársins 1971, en þá hóf hann störf hjá Siglingamála- stofnun ríkisins sem skipaskoðunar- maður. Síðar varð Árni umdæmis- stjóri stofnunarinnar á Norður- landi, með aðsetur á Akureyri. Gegndi hann því embætti allt til ársins 1993. Hann gegndi jafnframt ýmsum öðrum störfum. Til nokk- urra ára var hann prófdómari í sveinsprófum í sinni iðngrein, tók þátt í sjóprófum, sá um tjónamat fyrir tryggingafélög o.fl. Til margra ára var Árni með umboð og þjónustu fyrir Saab báta- vélar á Islandi. Útför Árna fer fram hjá Akur- eyrarkirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. I dag verður jarðsunginn frá Akureyr- arkirkju Árni Valmundsson, fv. um- dæmisstjóri Skipaskoðunar ríkisins á Akureyri. Ámi kvaddi þennan heim snögg- lega, en hann varð bráðkvaddur á heimili sínu þann 11. október sl. Vissulega kemur það við þá er til þekkja, þegar fólk í fullu fjöri, þótt komið sé á eftirlaunaaldur, er hrifið svo skjótt burt og án viðvörunar. Ámi Valmundsson lærði vélsmíði hjá föður sínum í Smiðjunni og lauk síðar prófi frá Iðnskólanum á Akur- eyri, en eflaust hefur hann byrjað að fikta og aðstoða föður sinn strax og aldur hefur gefið tilefni til. Smiðja Valmundar var til húsa, þar sem nú heitir Smiðjan-veitingahús, mitt í mið- depli höfuðstaðar Norðurlands - Ak- ureyrar. Tímamir breytast og menn- irnir með en Smiðjan þjónar samt þeim er þangað koma, enn þann dag í dag, þótt á öðrum vettvangi sé. Ámi reisti af framsýni verkstæðis- hús nálægt Slippnum en á þeim tíma var Slippurinn lítið fyrirtæki miðað við það sem hann er nú. Ámi flutti starfsemi sína þangað, enda voru miklar vonir og breytingar í atvinnulífi á Akureyri á þeim tíma og miðbærinn að taka á sig þá mynd sem hann hefur í dag. Árni rak verkstæðið um árabil þar til hann tók við starfi hjá Skipaeftirlitinu 1970/71, sem eftir- litsmaður og síðar sem umdæmisstjóri eftirlitsins á Norðurlandi, en því starfi gegndi hann til starfsloka 1993. Ámi kvæntist Önnu Péturdóttur, ættaðri úr Svarfaðardal og eignuðust þau tvo syni; Áma, framkvæmdastjóra íslenska lyfjafyrirtækisins í Vilnius og Valmund, matreiðslumeistara á Akur- eyri. Alllengi bjó fjölskyldan í Ránar- götunni en keypti síðan fallegt einbýl- ishús með góðum garði og möguleika á ræktun trjáa og blóma. Ámi var mjög vandaður maður til orðs og æðis, einn af þeim sem var samkvæmur sjálfum sér og sem mað- ur bar virðingu fyrir. Hann var fastur á skoðunum sínum um stjómmál og um menn og málefni. Það var því virkilega gaman að gant- ast við hann um sjtómmál, lands- byggðapólitíkina og lífið yfirleitt, því við vomm ekki ávallt á sömu skoðun. Þetta gaf umræðunum gildi þannig að báðir höfðu gaman af. Ég og fjölskylda mín höfum notið ríkulega af vináttu og gestrisni fjöl- skyldunnar í Ránargötu og Espilundi 5 í áratugi, það ber vissulega að þakka og aldrei verður það að fullu þakkað, en þar bar aldrei skugga á. Við Unnur og böm okkar þökkum vináttuna og samfylgdina og vottum Önnu, Áma, Valmundi og fjölskyldum þeirra, okk- ar innilegustu samúð Óskar H. Gunnarsson. Ég horfi út um gluggann minn, á haustlaufin falla eitt af öðru. Laufin sem virtust ætla að halda sínum hlýja, græna sumarlit fram á haustdaga, fölnuðu skyndilega og hníga nú til jarðar hægt og tignarlega. Fráfall míns kæra tengdaföður Áma Valmundsson- ar, bar jafnskjótt að og haustið, sem sveipaði trén í garðinum mínum. Hann sem gekk hress til sinna starfa á degi hverjum og hlúði svo vel að fjöl- skyldu sinni. Ámi var hlýr og góð- hjartaður maður sem átti stóran sess í lífi afabarnanna sinna. Hann var þeim bæði góð fyrirmynd og sannur vinur. Enginn var viðbúinn því að hann yrði hrifinn burt frá okkur svo fyrirvara- laust. Það er fátt um svör og erfitt að hugga lítinn dreng sem segir að nú geti afi ekki lagað vélina í bátinn. Lít- ill afastrákur sem var búinn að sjá þá fyrir sér, afa, pabba og bræðuma sigla út á sjó á litla bátnum, á góðviðrisdegi næsta sumar. Ámi afi var elskaður og dáður af drengjunum og okkur, sem áttum þá gæfu að eiga hann að. Sökn- uðurinn ristir djúpt. „Svo lída tregar sem tíðir. “ Til eru hamrar svo stríðir, að allra þeir kraftanna krefjast. I kraftinum sálirnar hefjast. (Hulda) Ég vil fyrir hönd okkar allra þakka Áma fyrir árin öll og bið Guð að blessa minningu hans og gefa Önnu styrk í sorginni. Ingibjörg Ringsted. Margar hugsanir og minningar hafa farið í gegnum hugann eftir að mér var tilkynnt andlát séra Þórhalls Höskulds- sonar. Fregnin er þó enn óraunveruleg enda stutt síðan við vorum saman ásamt fleiri prestum að ræða kirkjunn- ar mál. Þar leiddi Þórhallur umræður af áhuga enda hafði hann kynnt sér þau vel sem hann ætíð gerði. Gott var að sækja til hans ráð og leiðsögn, traustur og varfærinn sem hann var, en þó svo ákveðinn og fastur fyrir ef hon- um fannst slíkt nauðsynlegt. Þórhalli var um sína daga falið að leiða margvíslega baráttu á vegum kirkjunnar. Ég nota orðið baráttu því þau málefni er hann sinnti vom mörg hver afar erfið og tímafrek og reyndu mjög á baráttuþrek og þolgæði. Má þar nefna mörg stór mál er snerta kirkjuna í heild s.s. samskipti ríkis og kirkju og eignamál kirkjunnar. En þó að Þórhallur ynni ötullegá að þessum málum þá fannst mér ætíð standa næst hjarta hans málefni þeirra er erfitt eiga og þurfa að berjast fyrir tilveru sinni og rétti í íslensku þjóðfélagi nútímans. Því kom krossinn strax í huga mér er ég leit yfir starf þessa starfsfélaga, jafnt sálusorgun sem predikun. Þór- hallur tók sér stöðu við hlið þeirra sem báru þungar byrðar og fómaði miklum tíma og þreki til að létta ok þessara, og veita birtu Krists og lífgefandi von inn í líf þeirra í orði og verki. En fyrir Þórhalli var krossinn ekki aðeins tákn um böl og byrði. Miklu heldur flutti krossinn honum boðskap- inn um sigur Krists yfir órétti og synd. I einlægu og takmarkalausu trausti til Krists, og í eftirfylgd við frelsara sinn, hélt hann stöðugt áfram þjónustu sinni, þó að fáir þekktu betur en hann að slíkt starf reynir á þrek til líkama og sálar. „Vér finnum vanmátt vom“ skrifaði hann, „en hopum þó ekki, því Kristur „mun sjálfur, er þér hafið þjáðst um lítinn tíma, fullkomna yður, styrkja og öfluga gjöra. Hans er mátt- urinn.“ (I.Pét.5.10)“(Kristnar hugvekj- ur I, Reykjavík 1980, bls. 171) Trú Þórhalls nam „bjarta raust frá krossi Krists: Ég skal bera byrði þína, hvort sem hún heitir sorg eða vonleysi, syndavitund eða dauðans angist. Þetta er leyndardómur krossins" skrifaði hann um atburði föstudagsins langa. „Þess vegna ber bjarma vonar og gleði inn í myrkur þessa dags. Þess vegna er krossinn sigurtákn og vér syngjum: Eg veit minn Ijúfur lifir lausnarinn himnum á, hannrœður ölluyfir, einn heidrJesús sá, sigrarinn dauðans sanni sjálfur á krossi dó og mér svo aumum manni eilíft lífvíst til bjó. H.P.“ (Kristnar hugvekjur I, Reykjavík 1980, bls. 175) Islensk kirkja hefur mikið að þakka fyrir að Guð hafi gefið henni Þórhall Höskuldsson til þjónustu í kirkju Krists. Af alhug þakka ég að hafa fengið að eiga hann að sem vin og samstarfsmann um árabil. Við skyndi- legt og ótímabært fráfall hans býr djúp sorg og söknuður í hjarta allra þeirra er hann þekktu, en ljúfar minningar um þennan trausta þjón Drottins búa með okkur. Við höfum öll misst mik- ið. Þar er missir þeirra mestur er næst honum stóðu og bið ég Guð að gefa eiginkonu Þórhalls, bömum hans og öðrum ættingjum styrk og huggun á erfiðum tímum. Jón Helgi Þórarinsson. Elsku Þórhallur, enginn veit hvað átt hefur, fyrr en misst hefur. Stundum er hægt að vinna aftur missinn, en stundum er það ekki hægt. Þetta á ef til vill einna sterkast við um þá er falla okkur frá. Þegar ég frétti af fráfalli þínu trúði ég ekki viðmælanda nrinum. Mín eyru neituðu að trúa því sem og hjarta mitt og sála mín. Þannig fór þó að lokum að viðmælanda mínum tókst að sann- færa mig, þó ég hafi varla greint það sjálfur. Yfir mig reið flóð minninga og minningarbrota. Þú, inni á skrifstof- unni þinni á heimili þínu. Þú, yfir fréttunum. Þú, bakvið hús á góðum sumardegi að grilla. Þú, á knattleik, að styðja við bakið á okkur vinunum. Þú, að hjálpa við ritgerðir. Þú, að kenna okkur í Gagnfræðaskólanum. Þú að leiðbeina okkur. Þú.. ,þú.. ,þú... Ég kvaddi viðmælanda minn, fól andlit mitt í greipum mér og grét. Ég grét þínum tárum, þínum tárum og fjölskyldu þinnar, minna vina. Fráfall þitt er okkur öllum mikið áfall. Við er- um haimi slegin. Meðan við biðjum fyrir þér og þínum nánustu megum við þakka fyrir sérhvert það ár sem við höfum fengið að njóta samvista við þig. Góðvild og umhyggja, ráðvendni, skarpskyggni og lítillæti, óendanleg þolinmæði og rólyndi. Þessum mann- kostum varstu gæddur. Manni leið ætíð vel í nærveru þinni og fann til ör- yggis. Þú varst afar ósérhlífinn maður, vannst gríðarlega mikið svo ekki sé meira sagt. Þú hafðir samt tíma til að sinna öllum þeim er knúðu dyra. Þar var engum vísað frá. En umfram allt þá varst þú góður maður og þannig munum við minnast þín, prestur, faðir og vinur. Megi Guð vemda þig og varðveita um alla ókomna tíð. Eg bið þig góðan Guð að taka, í greipar þér hinn mœta mann. Sem til þín núna snýr til baka, sjá hversu fljótt þú sóttir hann. Kæra fjölskylda, góðu vinir, við biðjum ykkur blessunar Guðs og huggunar í sárum harmi. Ykkar vinir, Biggi, Ásgeir, Bragi, Mikki, Rún- ar, Ómar, Valli, Doddi. Á björtum vordögum fyrir um aldar- fjórðungi var mér falið að rita bókar- kafla. Um nokkum tíma hafði ég hug- leitt á hvem hátt nálgast mætti þetta efni; hvort verkið ætti að bera yfir- bragð hinnar þurru upptalningar eða hvort léttari frásagnarstíll kæmi sögu heimasveitar og félagsmála þar betur á framfæri. Að lokinni umhugsun ákvað ég að fara bil beggja: þjóna staðreynd- unum eftir því sem heimildir féllu til og rými í takmarkaðri grein leyfði en reyna einnig að fylgja formi hinnar einföldu frásagnar. Auk þess að velta fyrir mér efni og umfjöllun þessa litla bókarkafla hugleiddi ég hvert sækja mætti ráð í vanda sem óvanur sagna- ritari gæti staðið frammi fyrir. Áður en mér hafði komið neinn til hugar í því efni færði ég í tal við sr. Þórhall Höskuldsson, sem þá var ný- lega orðinn prestur á Möðruvöllum í Hörgárdal, við hvað ég væri að fást. Við höfðum ekki átt mörg orð um þetta viðfangsefni mitt þegar ég fann mikinn áhuga hans á því og komst að raun um að þar væri ef til vill að fá ýmsar þær ráðleggingar, aðhald og uppörvun sem nýliðann vanhagaði um. Eftir því sem við ræddum þetta lengur varð mér ljósara að þama hafði ég fundið þann ráðgjafa er ég leitaði eftir. Sr. Þórhallur fylgdist með framvindu verksins af áhuga og auk margra gagn- legra leiðbeininga tók hann að sér yfir- lestur þess við verklok þar sem enn var veitt af hollum ráðum. Heimsókn- imar að Möðmvöllum urðu því margar þetta vor; kvöldstundimar er teygðust fram á nætur og vissulega var margt fleira rætt en ritstörf mín á þessum björtu vorkvöldum. Kvöldstundimar í eldhúsinu á Möðruvöllum forðum komu í hugann þegar sú fregn var borin mér í eyra á ferð um Hvalfjarðarströnd á laugar- dagsmorgni að sr. Þórhallur væri allur. Stundir sem lýstu honum betur en margt annað; að eiga áhuga og tíma til að fylgjast með þessu frásagnarkomi er ég vann að og vilja til að fylgja því eftir allt til enda. Ég hygg að þama hafi komið fram þau einkenni er mörg starfa hans báru vitni og þeir fengu að reyna er samvista við hann nutu og þjónustu hans þáðu. í starfi hans sem sóknarprestur, fyrst á Möðruvöllum og síðar á Akureyri, nutu þessir eiginleik- ar sín þar sem margir þurftu til hans að leita. Ekki kæmi á óvart þótt sá sólar- hringur, sem skaparinn hefur lagt manninum í hendur til starfs og hvíld- ar, hafi oftar en ekki verið honum of skammur ef sinna átti öllu því sem að kallaði og hann vildi leggja lið. Dag- amir liðu því hratt og þótt starfsaldur- inn hafi orðið styttri en samferða- mennirnir höfðu búist við er æfistarf hans ærið. Um það geta þeir borið sem leitað hafa til hans; hvort sem var sem prests eða persónuleika sem var boð- inn og búinn að liðsinna í vanda þar sem hann knúði dyra. í preststarfinu lét hann hinn mannlega þátt mjög til sín taka og lét sér annt um málstað þeirra er orðið höfðu að þola það sem oft virðast óverðskuldaðir erfiðleikar. Þannig opnaði hann Safnaðarheimili Akureyrarkirkju því fólki sem við at- vinnuvanda og einangmn þurfti að stríða og var stöðugt að leita leiðá 'til að létta því lífsbaráttuna með einhverju móti. Sr. Þórhallur var í eðli sínu stjórn- málamaður þótt hann kysi að beita þeim eiginleikum í þágu kirkjunnar og hinna mörgu sem þangað leita af ýms- um orsökum. Á þann hátt auðgaði hann starfsvettvang sinn og opnaði fjarlægum leið að húsi hins almáttuga. Fyrir löngu mátti sjá að sá er yfir öllu vakir hafði ætlað honum verðugt verk- efni og ærinn starfa. En hitt var ekki fyrir séð að hans yrði þörf á öðrum stað með svo skjótum hætti sem orðið hefur. Einhverju sinni eftir að við höfðum rætt bókarkafla minn í eldhúsinu á Möðruvöllum forðum benti sr. Þór- hallur mér á grafskrift á legsteini í Möðruvallakirkjugarði. Grafskrift þessi er hinsta kveðja Jóns Jónssonar, prests, sem þjónaði Möðruvallaklaust- ursprestakalli fyrr á tímum, til sinna eftirlifenda. Þótt sr. Þórhallur hafi á margan hátt notið eðlis og eiginleika stjómmálamannsins í störfum sínum í þágu kirkjunnar og þeirra er þangað hafa leitað var hann einnig trúr hinum æðri boðskap. Því fer vel á að minnast hans með niðurlagi hinnar gömlu graf- skriftar sem hann hafði mætur á og hljóðar þannig: „Minnstu þess maður hvað mestu varðar tak ráð í tíma og treystu Guði. “ Þórður Ingimarsson. Eftirfarandi minningarljóð birtist í blaðinu í gær en eitt orð misritað- ist, sem beðist er velvirðingar á, og birtist ljóðið rétt hér á eftir. Kveðja frá Stefáni Valgeirs- syni og fjölskyldu Það grúir nú sorg yfir sveitinni minni, séra Þórhallur Höskuldsson látinn er. I návist hans höfðum afkœrleika kynni kom oft ti! þeirra erþjáningu ber. Þá verður fátœkum mest það í minni að misréttið átald’i hann allsstaðar hér.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.