Dagur - 18.10.1995, Side 15
IÞROTTIR
Miðvikudagur 18. október 1995 - DAGUR - 15
FROSTI EIÐSSON
Blak:
Tap hjá KA
KA tapaði fyrsta leik sínum á
íslandsmótinu í blaki. Liðið lék
um síðustu helgi gegn ÍS í
íþróttahúsi Kennaraháskólans.
Stúdentar sigruðu í tveimur
fyrstu hrinunum 15:6 og 15:9 en
KA sigraði 9:15 í þeirri þriðju
áður en IS innsiglaði sigur sinn
15:6.
Næsti leikur KA sem jafnframt
er fyrsti heimaleikur liðsins verð-
ur næsta þriðjudagskvöld, gegn ís-
lands- og bikarmeisturum HK.
Evrópukeppni
bikarhafa
Eftirtalin lið drógust saman í
Evrópukeppni bikarhafa:
KA (Islandi)-Kosice (Slóvakíu)
Red Star (Júgóslavíu)-
Banik Karvina (Tékklandi)
Luzem (Sviss)-
H. Ankara (Tyrklandi)
Vigo (Spáni)-
I.C.Kielce (Póllandi)
Pelister Bitola (Makedóníu)-
Haoel (Israel)
Teka Santander (Spáni)-
Sparkasse S.B. (Austurríki)
O.M. Vitrolies (Frakklandi)-
Minaur Baja Mare (Rúmeníu)
Lemgo (Þýskalandi)-
Volgograd (Rússlandi)
Kappróður á
Akureyri eftir
þrjátíu ára hlé
Siglingafélagið Nökkvi, Mennta-
skólinn og Verkmenntaskólinn
eru eigendur að fullkomnum
kappróðrarbáti, sem settur var
á flot á Akureyri um síðustu
helgi. Akureyringum stendur til
boða að æfa þessa erfiðu íþrótt
eftir rúmlega þrjátíu ára hlé.
Báturinn er af gerðinni 4+ og
er 60 sm á breidd en þrettán og
hálfur metri á lengd og vegur um
90 kfló. Það voru þýskir aðilar
sem gáfu bátinn til íslands og það
eina sem núverandi eigendur
þurftu að greiða fyrir hann var um
200 þúsund króna viðgerðarkostn-
aður. Jafnframt festu þessir aðilar
kaup á tveimur kappróðrarvélum,
sem notaðar verða til æfinga.
Að sögn Gunnars Hallssonar
hjá Siglingafélaginu Nökkva átti
Æskulýðsfélag Akureyrarkirkju
kappróðrarbát, sem hún eignaðist
1956, en sá bátur hvarf fyrir þrjá-
tíu árum og síðan hefur íþróttin
ekki verið stunduð norðanlands.
Bátar af þessari gerð voru notaðir
til keppni í róðri á Ólympíuleikum
en eru það ekki lengur.
Julian Duranona og Erlingur Kristjánsson fagna marki fyrir KA. Þeir mæta Kosice frá Slóvakíu í 2. umferð í
Evrópukeppni bikarhafa. Mynd: BG
Handbolti - KA mætir Kosice frá Slóvakíu í Evrópukeppni bikarhafa:
X
• Lárus Orri Sigurðsson fær erfitt
verkefni að glíma við í kvöld þegar
lið hans, Stoke mætir Newcastle í
bikarkeppninni. Lárus Orri hefur
leikið sem miðvörður í síðustu
leikjum og jafnan fengið að glíma
við fljótustu framherja andstæðing-
anna. Allt bendir til þess að hann
verði settur til höfuðs enska lands-
liðsmanninum, Les Ferdinand sem
hefur verið á skotskónum að und-
anfömu.
• Miss Fitness mótið verður haldið
í Veitingahúsinu Sjallanum á Akur-
eyri næsta laugardagskvöld. Átta
stúlkur taka þátt í keppninni og
munu þær koma fram á kjólum og í
bikini, halda ræðu og sýna dans eða
eróbikkæfingar þar sem dómarar
munu gefa þeim einkunnir fyrir
styrk, liðleika og sköpunargleði.
Mótið var haldið í fyrsta skipti í
fyrra og þá varð Anna Sigurðar-
dóttir hlutskörpust. Akureyringar
eiga þrjá keppendur að þessu sinni,
þær Guðrúnu Gísladóttur, Freydísi
Ámadóttur og Sigurbjörgu Bergs-
dóttur.
Reynt með samningum að
fá báða leikina í KA-heimilið
• Patrekur Jóhannesson er eini
leikmaður KA í landsliðshópnum í
handknattleik sem leikur gegn
Rússum þann 1. næsta mánaðar.
Landsliðsþjálfarinn, Þorbjöm Jens-
son tilkynnti 15 manna leikmanna-
hóp sinn á blaðamannafundi sem
haldinn var í fyrrakvöld.
KA mætir TH VSZ Kosice frá
Slóvakíu í 16-liða úrslitum í
Evrópukeppni félagsliða. Kosice
sló hollenska liðið Horn Sittard-
ia út í síðustu umferð, sigraði í
fyrri leiknum á útivelli 23:18 og
vann svo heimaleikinn 22:20.
KA var dregið út á undan og á
því heimaleikinn á undan en
stjórnamenn handknattleiks-
deildar KA hafa þegar sýnt
áhuga um að kaupa heimaleik-
inn af Kosice, svo hægt verði að
leika báða leikina í KA-heimil-
inu.
KA-menn funda í dag en
stjómarmaðurinn, Þorvaldur Þor-
valdsson, sagði að farið yrði í það
að ná samningum við Slóvakíufé-
lagið um að báðir leikimir færu
fram í KA-heimilinu. „Ég held að
við munum gera allt sem í okkar
valdi stendur til að fá báða leikina
hingað, þar sem við erum með
trausta áhorfendur sem við getum
treyst á. Líklega munum við
leggja áherslu á að leikið yrði
föstudaginn 10. og sunnudaginn
12. (nóvember), mér sýnist sem
það væri góður kostur fyrir liðið
sem á erfitt „prógramm“ framund-
an í deildinni. Þorvaldur sagði að
það yrði að minnsta kosti engin
hópferð til Slóvakíu eins og í síð-
ustu umferð, markmiðið er hins
vegar að komast áfram og þá væri
hægt að sjá til í næstu umferð.
Helmingsmöguleikar
„Það hefði getað verið verra,“
sagði Alfreð Gíslason, þjálfari KA,
aðspurður um það hvemig honum
litist á dráttinn. „Þetta er örugglega
mjög sterkt lið en það er mun betra
að fara til Slóvakíu heldur en til
Ankara, Volgograd eða Tel Aviv.
Það er líka ókostur að fá heima-
leikinn á undan, við þurfum að
vinna stóran sigur hér til að eiga
möguleika. Ég mundi þó segja að
við eigum helmingsmöguleika á
því að komast áfrarn."
Slóvakía er austurhluti þess
lands sem áður hét Tékkóslóvakía.
Landamærin liggja að Austurríki
og íbúar þar eru um fimm milljón-
ir. Ljóst er að fjárhagslega séð
hefði ferðakostnaður geta orðið
mun hærri fyrir Akureyrarfélagið,
enda lið frá ísrael og Tyrklandi
eftir í mótinu.
Alfreð sagðist vonast til að
stjómarmönnum handknattleiks-
deildarinnar tækist að kaupa
heimaleikinn af Kosice. „Það
mundi létta mikið af liðinu sér-
staklega þar sem við þurfum að
leika mjög ört í íslandsmótinu á
þessum tíma. Ef við fáum fullt hús
eins og síðast þá hlýtur það að
verða góður möguleiki.
Leikdagar í 16-liða úrslitum
Evrópumótanna hafa verið settir á.
Fyrri leikimir fara fram helgina
11.-12. nóvember og síðari leik-
imir viku síðar en félögin geta
samið um aðra leikdaga sín á
milli.
Valsmenn drógust gegn Braga
frá Portúgal í Evrópukeppni
meistaraliða og Afturelding mætir
pólska liðinu MXS Zaglebic Lu-
bin í Borgakeppninni. Öll íslensku
karlaliðin eiga heimaleikina á
undan. Þá mæta Framstúlkumar
norska liðinu Byasen frá Þránd-
heimi í Evrópukeppni bikarhafa.
• Ákveðið hefur verið að leikurinn
við Rússa fari fram í Kaplakrika í
Hafnarfirði, eins og síðasti lands-
leikur en hann sóttu aðeins 1100
manns. Þorbimi landsliðsþjálfara
varð tíðrætt um stuðningsmenn KA
á fundinum. „Vonandi fáum við
svipaða stemmningu eins og KA-
liðið fékk gegn norsku Víkingun-
um. Það er ljótt að segja það en
þeir hreinlega gerðu í buxumar
frammi fyrir akureyrsku áhorfend-
unum,“ sagði landsliðsþjálfarinn.
Handbolti - 1. deild karla:
Toppslagur
Keppni í 1. deild karla hefst
að nýju eftir hlé i kvöld en þá
verður sannkallaður topp-
slagur í KA-heimilinu þegar
heimamenn leika við Hauka.
Haukaliðið hefur leikið mjög
vel á mótinu undir stjóm hins
nýja þjálfara síns, Gunnars
Gunnarssonar, og er taplaust í
deildinni. Haukamir hafa aðeins
tapað einu stigi eftir þrjár um-
ferðir og var það gegn Val í
fyrsta leiknum sem lyktaði með
jafntefli.
KA og Stjaman em í topp-
sætum deildarinnar með þrjá
sigra að baki.
Fimm leikir fara fram í
kvöld og hefjast þeir allir
klukkan 20. Stjaman mætir
stigalausu liði Aftureldingar í
Garðabænum, KR og Selfoss
leika í Laugardalshöll og FH og
ÍR í Kaplakrika. Valsarar leika
gegn ÍBV í Eyjum en viðureign
Gróttu og Víkings, sem fram
átti að fara í kvöld, fer fram síð-
ar að ósk félaganna. Leikimir
hefjast klukkan 20.
Akureyrskir róðrarkappar á góðu skriði við PoIIinn á Akureyri á fullkomnum kappróðrarbáti, sem settur var á flot um síðustu helgi. Báturinn er þrettán og
hálfur metri að lengd en aðeins 60 sentimetrar á breidd og hannaður fyrir fjóra ræðara og einn stýrimann. Mynd: BG
Hamar
félagsheimili Þórs:
Líkamsrækt og tækjasalur
Ljósabekkir
Vatnsgufubað
Nuddpottur
Salir til leigu
Beinar útsendingar
Getraunaþjónusta
sími 461 2080