Dagur - 18.10.1995, Page 16
Trausti hf. á Hauganesi flytur fullunninn saltfisk í neytendaumbúðum til Spánar
Vaxtarbroddurinn
liggur í útflutningi
- segir Elvar R. Jóhannesson hjá Trausta hf. fiskverkun
Trausti hf. fiskverkun á
Hauganesi hefur gert sam-
komulag við 30 verslanir og veit-
ingahús á Spáni um sölu á út-
vötnuðum, beinhreinsuðum salt-
fiski í neytendaumbúðum. Er
varan að öllu leyti unnin hér-
lendis og mun Trausti vera eina
fyrirtækið sem flytur út saltfisk
með þessum hætti. Fyrirtækið
hefur framleitt þessa vöru fyrir
innanlandsmarkað með góðum
árangri undanfarin ár, en hygg-
ur nú á landvinninga á erlendri
grund.
ur sendum við út prufusendingu.
Einnig fórum við eigendur
Trausta til Madrid, heimsóttum
verslanir og veitingahús og kynnt-
um þessa vöru. Samkvæmt síðustu
upplýsingum erum við núna
komnir í 30 minni verslanir,“
sagði Elvar R. Jóhannesson hjá
Trausta.
Hann segir því fara fjarri að
menn ætli að byggja einhverjar
skýjaborgir í kringum þennan út-
flutning. „Fyrirtækið er lítið og
við höfum enga peninga til að
hætta í einhverja meiriháttar
markaðsstarfsemi, eða auglýsinga-
herferðir. Við spilum þetta því
bara eftir hendinni og leggjum
ekki út í neina tvísýnu. Við feng-
um styrki frá Byggðastofnun og
Útflutningsráði í þetta útflutnings-
verkefni, sem hafa komið sér
mjög vel. Við erum ósköp varkár-
ir í öllum væntingum í þessu sam-
bandi. Ef þetta gengur þá er það
gott, en ef ekki þá töpum við ekki
stórum fjárhæðum," og hann segir
að tíminn einn verði að leiða í ljós
um hvaða magn verður að ræða.
„Við búum okkur alveg eins
undir að þetta gangi ekki upp en
munum gera allt til þess að þetta
geti gengið. En ef allt gengur upp
þá getum við verið í mjög góðum
málum því verðið sem við fáum er
hærra en á innanlandsmarkaði.
Það er engin spurning að vaxtar-
broddurinn í þessari grein liggur í
útflutningi. A innanlandsmarkaði
er ekki pláss fyrir meira af þessari
vöru. Við verðum að gera meira
úr þessu fína hráefni okkar, ekki
bara senda það utan í gámum hálf-
unnið,“ sagði Elvar. HA
Kristín Hall-
grímsdóttir
103 ára í gær
í gær varð Kristín Hallgrímsdótt-
ir, frá Neðri-Rauðalæk á Þela-
mörk, 103 ára. Kristín er elst Noð-
lendinga og mun vera þriðji elsti
Islendingurinn.
Kristín dvelur nú á dvalar-
heimili aldraðra í Skjaldarvík en
hélt upp á daginn á heimili sonar-
dóttur sinnar á Akureyri í gær.
Hún er vel hress en það helsta sem
háir henni er að sjónin og heyrnin
er ekki nógu góð, en engu að síður
fylgist hún vel með öllu sem fram
fer í þjóðfélaginu og hugsunin er í
fullkomnu lagi.
Kristín er fædd og uppalinn í
Blönduhlíð í Skagafirði, en bjó
lengst af á Neðri- Rauðalæk,
ásamt manni sínum, Pétri
Valdimarssyni, en hann lést árið
1973. Kristín bjó þá áfram með
syni sínum og tengdadóttur á
Neðri-Rauðalæk og þar hélt hún
upp á 100 ára afmæli sitt, en býr
nú á Skjaldarvík sem fyrr segir.
HA
„Eins og allir vita hefur kvót-
inn farið minnkandi og menn hafa
því verið að reyna að gera meira
og meira úr þeim kvóta sem eftir
er. Þess vegna fórum við út í þetta
í upphafi, ákváðum að byrja héma
innanlands og þreifa okkur síðan
áfram. Viðtökumar hafa verið
mjög góðar innanlands og sl. vet-
Hrísey og Árskógsströnd:
Sr. Torf i
leysir af
til áramóta
Sr. Torfi Hjaltalín Stefánsson,
sóknarprestur á Möðruvöll-
um, hefur verið settur til að
leysa sr. Huldu Hrönn Helga-
dóttur, sóknarprest Hríseyinga
og Árskógsstrendinga, af til
næstu áramóta.
Sr. Hulda Hrönn er í námsleyfi
erlendis til eins árs og kemur ekki
aftur til starfa fyrr en á næsta
sumri. Sr. Baldur Kristjánsson,
biskupsritari, segir það ekki óeðli-
legt að afleysingaprestur sé ekki
skipaður nema til næstu áramóta,
það hafi t.d. einnig verið gert er
sr. Gunnar Björnsson, sóknar-
prestur í Holti í Önundarfirði, fór í
leyfi en sr. Kristinn Jens Sigur-
þórsson á Þingeyri leysir hann af
til áramóta.
Sem kunnugt er var kröfu
nokkurra sóknarbama sr. Torfa
um að hann yrði látinn víkja úr
embætti slegið á frest til næstu
áramóta samkvæmt beiðni vígslu-
biskups, sr. Bolla Gústavssonar,
meðan hann leitar sátta í málinu.
GG
© VEÐRIÐ
í dag spáir Veðurstofan suð-
austan stinningskalda á landinu
öllu og rigningu eða slydduélj-
um víða um land. Þó ætti að
verða þurrt norðaustantil síð-
degis. Á morgun er spáð norð-
an- og norðvestanátt, víða all-
hvassri. Norðantil á landinu má
búast við snjókomu eða slyddu
og hita um frostmark. Síðan
skiptast á norðan- og sunnan-
áttir næstu daga.
Meleyri hf. á Hvammstanga:
Skelfiskveiðar hefjast um helgina
- blikur eru á lofti í markaðsmálum
Hráefnisöflun rækjuverk-
smiðju Meleyrar hf. á
Hvammstanga hefur fyrst og
fremst byggst á afla rækjubáts-
ins Sigurborgar VE-121, en
báturinn var keyptur frá Vest-
mannaeyjum á sl. vetri til að
styrkja hráefnisöflun fyrirtæk-
isins.
Auk afla Sigurborgar VE
kaupir verksmiðjan rækju af
nokkrum bátum öðrum sem eru
samningsbundnir verkmiðjunni. I
sumar keypti Meleyri hf. grálúðu
sem unnin var í húsakynnum
skelvinnslunnar, en henni er ný-
lokið. Um næstu helgi hefst skel-
vinnslan á Hvammstanga og eru
horfur með veiði þokkalega góð-
ar en það sama verður ekki sagt
um verðlagið á mörkuðunum.
Guðmundur Tr. Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Meleyrar hf„
segir teikn á lofti um lækkandi
verð á skelinni, þó ekki verulega
lækkun. Því valdi aukið framboð
frá samkeppnisaðilum í öðrum
heimsálfum, m.a. Kínverjum,
sem hafi aukið sínar skelfisk-
veiðar alveg gífurlega.
„Við erum þó ekki að tala um
sama hráefnið, aðeins nafnið er
sameiginlegt með þessu hráefni
sem annars vegar veiðist við ís-
land og hins vegar við Kína. Við
viturn að hér á norðurslóðum
fæst besta mögulega hráefnið í
heiminum,“ segir Guðmundur
Tr. Sigurðsson. GG
Innimálning
á ótrúlegu verði