Dagur - 02.11.1995, Síða 3
FRETTIR
Fimmtudagur 2. nóvember 1995 - DAGUR - 3
Stöplafiskur hf. í Reykjahverfi:
Vinnsla hafin á
japönskum loðnurétti
Fyrsta sending á Evrópumarkað
af þurrkaðri hrognafullri loðnu
fór frá Stöplafiski í Reykjahverfi
sl. þriðjudag. Um er að ræða
mat sem Japönum líkar afar vel
en hægt er einnig að flytja út til
japanskra veitingahúsa í Evrópu
og Ameríku.
Þurrkuð loðna var grilluð á
þriðjudaginn er Stöplafisksmenn
héldu smá kynningu á þessari nýju
framleiðsluvöru. Aðalsteinn Ama-
son, framkvæmdastjóri, sagði að
fyrirhugað væri að kynna Islend-
ingum þennan rétt, sem væri mjög
góður grillaður sem snakk meðan
kjötið væri að grillast á sumrin, og
eins mætti reikna með að þetta
væri kærkomin nýjung sem for-
réttur fyrir veitingahús.
Um þrjú tonn af óunninni
loðnu er til hjá Stöplafiski og nú
verður hafist handa um að vinna
Stöplafisksmenn buðu blaðamönn-
um upp á grillaða loðnu og að sögn
rann hún Ijúflega niður. Mynd: IM
hana fyrir Japansmarkað. Aðal-
steinn sagðist gera ráð fyrir tölu-
verðum markaði fyrir afurðina í
Evrópu. Mikil vinna er við fram-
leiðsluna, en loðnan er þrædd á
pinna og hengd upp til þurrkunar,
síðan er hún fryst og pakkað í
neytendaumbúðir fyrir Evrópu-
markað, en stærri pakkningar fyrir
Japansmarkað. Forsenda fyrir
vinnslunni er ódýr orka frá hita-
veitunni.
Áætlað hefur verið að hægt
væri að vinna um 200 tonn á ári
miðað við eina vakt í húsinu. Um
8-11 manns fengju vinnu við slíka
framleiðslu. Þetta fer eftir hvað
vel tekst til við að þróa upp
vinnslulínuna, að sögn Aðalsteins.
„Verkefnið er það mannaflafrekt
að miklu skiptir að þróa upp eins
mikla hagræðingu og hægt er við
vinnslulínuna. Lögð verður mikil
áhersla á að vinnuaðstaðan verði
sem þægilegust fyrir starfsfólkið,"
sagði Aðalsteinn.
Aðalsteinn sagði að stór hluti
þeirrar hrognafullu, frystu loðnu
sem flutt væri frá íslandi til Jap-
ans færi í slíka framleiðslu. Það er
útlit og bragð sem máli skiptir
þegar afurðin fer á markað því
það er gæðavara sem kaupendum-
ir eru að sækjast eftir.
„Við þekkjum ekki markaðinn
en þetta verkefni sem nú er unnið
að á að segja okkur hvað rými er
fyrir mikið af þessari vöru frá ís-
landi inn á markaðinn. Við höfum
mikla þekkingu á fiskvinnslu sem
hefur verið okkar lifíbrauð. Eg er
þess fullviss að við erum að fram-
leiða gæðavöru og með hana í
höndunum er ég bjartsýnn á að
við komumst inn á markaðina,"
sagði Aðalsteinn.
Fleiri nýjungar eru á döfinni
hjá Stöplafiski. „Beint í pottinn,"
nefnist saltfiskur senr farið er að
verka hjá fyrirtækinu. Hann er út-
vatnaður, roð- og beinhreinsaður
og skorinn niður í stykki sem
passa beint á diskinn eftir suðu.
Einnig er fyrirhugað að verka
ferskan fisk á sama hátt, fisk sem
hægt er að matreiða í flýti. IM
Laugafiskur í Reykjadal:
Stefnir í hagnað
áþessuári
Laugafiski í Reykjadal, sem
kaupir þorskhausa og þurrkar
til sölu á Nígeríumarkað, hefur
tekist sæmilega að afla sér hrá-
efnis að undanförnu og segir
Lúðvík Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri, að nú séu menn
að renna vonaraugum til þess að
vel aflist á línutvöfölduninni,
sem hófst í gær. Októbermánuð-
ur hafi oft verið slakur og var
ekki unnið alla daga hjá Lauga-
fiski í þeim mánuði og ekki full
vinnsla marga aðra daga í mán-
uðinum.
Markaðurinn hefur á þessu ári
verið mjög stöðugur en hausarnir
fara allir á Nígeríumarkað en
einnig er markaður fyrir sjávaraf-
urðir í nágrannalöndunum, eins og
t.d. Kamerún, en Nígería er eina
landið sem getur greitt umsamið
verð fyrir hausana vegna olíuauðs
landsins. Lúðvík segir að stöðugt
sé verið að horfa til möguleika á
fjölbreyttari framleiðslu til að
Ekiðá bifreið
og horfið af
vettvangi
- lýst eftir vitnum
Ekið var á hvíta Escort bifreið,
H-916, á gjaldskylda svæðinu
austan Skipagötu í gær á tíma-
bilinu frá klukkan átta til tólf og
skemmdust hurðir á vinstri hlið
verulega. Lögreglan telur útilok-
að annað en ökumaður hafí tek-
ið eftir því sem gerðist og óskar
eftir vitnum að atburðinum.
Ekið var utan í annan bíl í gær
og horfið af vettvangi en síðdegis
átti aðeins eftir að hafa tal af þeirn
bílstjóra. GG
draga úr þeirri áhættu sem fylgir
því að vera með jafn einhliða
framleiðslu og raun ber vitni og
treysta á að verðlagið haldist stöð-
ugt.
„Við í Laugafiski erum sér-
hæfðir í þessari framleiðslu og
hún hefur gengið vel en frá árinu
1986 hafa verið sveiflur í verðlag-
inu. Ef annars konar vinnsla kæmi
hér inn væri það einhvers konar
þurrkun. Við gætum t.d. þurrkað
skreið, saltfisk og loðnu til gælu-
dýrafóðurs, sem pakkað yrði í
öskjur eða poka. Verð á gæludýra-
fóðri úr loðnu var þokkalegt á síð-
asta ári en það var hins vegar hag-
stæðara að vera í hausunum. Af-
koma Laugafisks hefur verið góð
undanfarin ár, nokkurt tap varð þó
á sl. ári en hagnaður nokkur ár þar
á undan. Á þessu ári stefnir í
rekstrarhagnað, en staða Banda-
ríkjadollars kann þó að skekkja þá
mynd eitthvað. GG
^ LUXO
er leikur einn
LUXO bókahaldarar og
„Ijós" fyrir fullorðið fólk
T#LVUTÆICI
Furuvöllum 5 • Akureyri
Sími 462 6100
k______________Á
Oxarfjarðarhreppur:
Enginn skortur á atvinnu
- framkvæmdum við hitaveitu miðar vel
Mjög gott atvinnuástand hefur verið í Oxaríjarð-
arhreppi allt þetta ár, að sögn Ingunnar St. Svav-
arsdóttur, sveitarstjóra á Kópaskeri, og sagðist
hún ekki sjá annað en næg atvinna væri í sjón-
máli. Mikið hefur verið að gera hjá rækjuverk-
smiðjunni Geflu, þá standa yfir hitaveitufram-
kvæmdir og næg atvinna hefur einnig verið í
tengslum við Fjallalamb og Silfurstjörnuna.
Ingunn sagði framkvæmdum við hitaveitu miða
nokkuð vel og nálægt 40 hús væri þegar búið að
tengja. Alls eru notendur 64 og hún segir þetta taka
heldur lengri tíma en menn gerðu sér grein fyrir, en
framkvæmdahraðinn réðist einfaldlega af þeim
fjölda iðnaðarmanna sem tiltækur er. Þá setti raf-
magnsleysið strik í reikninginn þar sem vinna féll
að sjálfsögðu niður.
Eins og frá hefur verið greint seldi hreppurinn
öll hlutabréf sín í rækjuverksmiðjunni Geflu á dög-
unum til Jökuls hf. á Raufarhöfn. Hlutur sveitarfé-
lagsins í verksmiðjunni var um 23,7%, 4,5 milljönir
að nafnvirði og seldist á genginu 4,5 þannig að
hreppurinn fékk urn 20,3 milljónir í sinn hlut. Ing-
unn segir ekki hafa verið ákveðið í hvað peningam-
ir verða settir, en menn hafi þó rætt um að leggja
eitthvað til hliðar til þess að hafa möguleika á að
koma inn í atvinnulífið þegar verr gengur. „Þó
sveitarfélögum sé ekki skylt að taka þátt í atvinnu-
líflnu er þetta ósköp einfaldlega það sem menn hafa
neyðst til að gera þegar illa árar,-' sagði Ingunn.
Rafmagnsmálin liafa sem óðast verið að komast
í samt lag eftir norðanáhlaupið á dögunum. Hjá
Geflu þurfti að henda hráefni sem nemur eins dags
vinnslu sem vissulega er nokkurt tjón. „En gagnvart
okkur eru þetta smámunir rniðað við það sem geng-
ur á í öðrum landshlutum,-' sagði Ingunn St. Svav-
arsdóttir. HA
'OI)DI*Á»AKUKI:Ylil»ODDI»Á»AKUREYRI*ODDI»Á»AKlllíEYRI«ODD]*Á*AKUREYRl*ODDI*Á*AKUIÍ
#0kkur^Þútö"'upapp/r,/yÖS/y.
%
'Nwkmðjum
viðgútl óiiinar j
og pöntum inn fyrir veturinn.
Hjá umboösaðila okkar á Akureyri,
Límmiðum Norðurlands, bjóðum við
allar vörur fyrir skrifstofuna á frábæru
verði. Komið og skoðið úrvalið (eða
pantið vörulista).
Pp,r’ re/Rnivélarúllur, Umm'fe 09 a"3t
helstu skritstofuvörur.
Límmiðar Norðurlands
á Afeurey ri Strandgötu 31 • Sími 462 4166 • Fax 461 3035
* i a a o • i íi a a 0 mi v • v • i a a o • i a a a ö mi v • v • íci a o • i ö a a a n m v • v • i a a o