Dagur - 02.11.1995, Síða 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 2. nóvember 1995
Valdim
ENRING
AGAR
HúsiÖ opnaö kl. 21.00
Hljómsveitin Félagar
flytur lifandi tónlist
Aldurstakmark 20 ára
Snyrtilegur klæönaöur.
STRANDGOTU 53
Samhugur í verki á Akureyri:
Blysför og samemingar
stund á Ráðhústorgi
Hátt á annað þúsund manns tók
þátt í blysför frá íþróttahöllinni á
Akureyri í fyrrakvöld, sem fram-
haldsskólamir á Akureyri stóðu að
og var farið niður Hrafnagils-
stræti, Eyrarlandsveg, niður tröpp-
ur Akureyrarkirkju, göngugötuna
og staðnæmst á Ráðhústorgi.
Þar átti mannfjöldinn saman
stutta stund í samhug með þeim
sem um sárt eiga á binda á Flat-
eyri við Önundarfjörð vegna snjó-
flóðsins sem þar féll úr Skolla-
hvilft ofan kauptúnsins aðfaranótt
sl. fimmtudags sem kostaði 20
manns lífið _ auk hins gífurlega
eignatjóns. A Ráðhústorgi flutti
Asta Hrönn Björgvinsdóttir, nem-
andi Háskólans á Akureyri, ávarp
og þakkaði þann samhug sem Ak-
ureyringar hefðu sýnt með svo
áþreifanlegurm hætti, en Asta
Hrönn er ættuð frá Flateyri. Síðan
flutti Martha Ömólfsdóttir nem-
andi Verkmenntaskólans ljóð;
Hanney Þórey Guðmundsdóttir
nemandi Menntaskólans stutta
hugvekju og þeir Jón Jósep Snæ-
bjömsson og Lýður Bjömsson
fluttu lagið „Til eru fræ“. Jens
Garðar Helgason stjómaði stund-
inni. Sameiginlega báðu viðstadd-
ir saman Faðir vorið og sameinuð-
ust í einnar mínútu þögn.
Um 500 friðarljós voru skilin
eftir logandi á Ráðhústorgi fram á
nótt.
Myndir/texti: GG
Hvíldarlaus ferð
inní draumínn
Hörpuútgáfan á Akranesi hefur
sent frá sér nýtt smásagnasafn eft-
ir Matthías Johannessen ritstjóra,
en hann er löngu kunnur sem einn
fremsti og mikilvirkasti rithöfund-
ur þjóðarinnar. I kynningartexta
segir m.a.:
„Smásagnasafnið Hvfldarlaus
ferð inní drauminn hefur að
geyma 22 smásögur og stutta
þætti þar sem bestu kostir Matthí-
asar sem skálds fá notið sín. Þar er
m.a. að finna fíngerðan og ljóð-
rænan skáldskap, hnyttnar frá-
sagnir og ógleymanlegar mannlýs-
ingar, svo að eitthvað sé nefnt.
Styrkur höfundarins liggur ekki
síst í blæbrigðaríkum og fjörleg-
um stfl, myndauðugu og oft marg-
ræðu líkingamáli. Tvær sögur
bókarinnar eru umfangsmestar,
Hvar er nú fóturinn minn? og
Seglin og vindurinn, margslungn-
ar sögur sem verða lesendum eft-
irminnilegar eins og annað fjöl-
breytilegt efni bókarinnar."
Bókin er 189 bls.
Verð kr. 2.980.
Kveðja til fólksins
á Flateyri
s
Eg kveiki tuttugu kertaljós
í kvöld þegar rökkvafer.
Þau sindra björt fyrir sérhvern þann
er sorg í hjarta ber.
s
Eg kveiki fyrir þau kertaljós
sem kvödd voru héðan á braut.
Hvert íslenskt höfuð við helfregn þeirra
í harmi og ótta laut.
s
Eg kveiki tuttugu lítil Ijós
- hve log þeirra fagurt skín.
Lifenda minning um látna vini
er Ijós sem aldrei dvín.
K.F.S.
Skemmtun sem vera átti í Laugaborg föstudaginn
3. nóvember er aflýst, en opið verður í Skeifunni
sama kvöld frá kl. 21.30.
Léttar veitingar.
Nefndin.