Dagur - 02.11.1995, Qupperneq 16
Akureyri, fimmtudagur 2. nóvember 1995
Fjölskvlduvemd
...eíns og þú
vílt hafa hana
Fjölskylduvernd er ný þjónusta Tryggíngar hf.
Hún feiur í sér míkinn sveígjanleika fyrír hvem og einn tíl
að sníða tryggingarpakkann að sínum þörfum.
TKYGGING HF
Hofsbót 4 • Símí 462 1844
Rífandi gangur hjá Sæplasti á Dalvík:
Áætlanir um aukna afkastagetu
Skagafjörður:
í það minnsta
350 ær drápust
Mér sýnist að í Skagafirði
hafi að lágmarki drep-
ist um 350 kindur. Svo virð-
ist sem tjónið sé mest á svæð-
inu í kringum Varmahlíð; í
Seyluhreppi, Vatnsskarði og
aðeins í Lýtingsstaðahreppi.
Þetta er sem sagt um miðbik
héraðsins, þar scm menn
verða sjaldan fyrir slíkum
áfölluni, enda sjaldgæft að
norðanáttin nái þarna fram
af svo mikilli hörku,“ sagði
Jóhannes Ríkarðsson, ráðu-
nautur hjá Búnaðarsam-
bandi Skagfirðinga.
Mest tjón varð á Húsabakka
í Seyiuhreppi, þar drapst um
140 fjár. Jóhannes sagði að
hópur fjár hafi þar hrakist und-
an veðrinu út í botnlausa mýr-
arpytti og sokkið á bólakaf.
Hins vegar fennti fé í Vatns-
skarðinu og Jóhannes sagðist
einnig vita dæmi um slíkt í
Blönduhlíðinni, en fé hafi
bjargast þar. „Ég hygg að það
hafi sloppið til með nautgripi,
fjögur hross drápust í snjóflóði
á Sleitustöðum og mér er
kunnugt um nokkur önnur
hross sem drápust."
Jóhannes sagðí að þessa
dagana væri verið að taka sam-
an umfang tjónsins til þess að
sækja um bætur úr Bjargráða-
sjóði. Samkvæmt lögum sjóðs-
ins er sjálfsábyrgð bænda 5%
sem þýðir að engar bætur fást
fyrir fyrstu fimm ærnar af
hverjum 100 en síðan eru
greiddar 5 þúsund krónur fyrir
ána. „Hross fást hins vegar
ekki bætt. Félag hrossabænda
ákvað að hætta að greiða til
Bjargráðasjóðs og þess vegna
eru hrossabændur réttlausir,"
sagði Jóhannes. óþh
Mjög mikil eftirspurn hefur
verið eftir framleiðsluvör-
um Sæplasts hf. á Dalvík síð-
ustu vikur og mánuði. Verk-
smiðjan er keyrð á fullum af-
köstum við framleiðslu fiski-
kera, unnið á aukavöktum allar
helgar og fyrirsjáanlegt að svo
verði á næstunni. Verkefnastað-
an er góð um þessar mundir og
er verið að gera áætlanir um að
auka afkastagetu í kerafram-
leiðslu.
Sala á fiskikerum hefur skipst
nokkuð jafnt milli sölu innanlands
og erlendis. Um 10% af sölu þessa
árs hefur verið til Suðaustur-Asíu
og er þar mikill áhugi á fram-
leiðsluvörum fyrirtækisins.
Á síðustu árum hefur Sæplast
lagt aukna áherslu á framleiðslu á
plastvörum fyrir byggingariðnað-
inn og fer sá þáttur starfseminnar
vaxandi. Hér er um að ræða rot-
þrær, tengibrunna og nú síðast
plaströr. Framleiðsla á plaströrum
hófst á síðasta ári, hefur gengið
nokkuð vel, jókst t.d. um 60%
milli ára og Sæplast þannig náð að
tryggja stöðu sína á röramarkaðin-
um.
Áætlanir gera ráð fyrir allt að
15% aukningu rekstrartekna á ár-
inu, en fyrirtækið velti 361 millj-
ón í fyrra. Velta fyrstu 6 mánuði
þessa árs var 191 milljón og hagn-
aður ríflega 20 milljónir. Starfs-
menn eru 29 talsins. HA
Flateyríngum sýndur samhugur í verki
Hátt í 2000 manns tók þátt í blysför á Akureyri sl. samhug. Á myndinni sést hluti þátttakenda koma
þriðjudagskvöld til minningar um þá sem fórust í niður tröppur Akureyrarkirkju. Sjá nánari um-
snjóflóðinu á Flateyri og til að sýna Flateyringum fjöllun á bls. 6. GG
KAUPLAND
Kaupangi • Sími 462 3565
Skyrtur
Vesti
Peysur
Buxur
Jakkar
Jakkaföt
Úlpur
Frakkar
Kápur
Treflar
Hanskar
Miöstöö hagstæöra viöskipta
Opið mánud.-föstud. 10-18
Laugard. 10-13