Dagur - 04.11.1995, Síða 6

Dagur - 04.11.1995, Síða 6
6 - DAGUR - Laugardagur 4. nóvember 1995 Allt var óformlegra í gamla daga Um miöjan nóvember lýkur starfstíma Jóns Björnssonar, félagsmála- stjóra, hjá Akureyrarbæ. Jón hefur gegnt starfi félagsmálastjóra í 19 ár, eða frá árinu 1976, en hefur nú verið ráðinn í stöðu fram- kvæmdastjóra félags-, uppeldis- og menningarsviðs hjá Reykjavíkur- borg. I viðtali við Dag rifjarjón upp árin hjá Akureyrarbæ, fer yfir þróun félagslegrar þjónustu í bænum þennan tíma, bendir á ýmis- legt sem er á réttri leið og annað sem mætti gera betur. Hann segir Akureyarbæ traust og áreiðanlegt fyrirtæki en nokkuð íhaldssamt og svifaseint. Eins þykir honum áhyggjuefni hve sterkir þrýstihópar íþróttafélögin á Akureyri eru og telur hættu á að heildarsýn tapist ef snjórnmálaflokkar ánetjast slíkum þrýstihópum um of. Viðtalið fór fram uppi í risi í notalegu húsi Jóns og konu hans Stefaníu Amórsdóttur. Þar hafa þau hreiðrað um sig undanfarin ár en börnin þeirra tvö, Uggi og Halla, em nú búsett í Reykjavík. Jón segir að þau hjónin kunni vel við sig á Akureyri og honum hefði ekki þótt verra að finna nýtt starf sem freistaði hans hér á Akureyri. „Hvomgt okkar er alveg ánægt með að flytja en hún er minna ánægð en ég,“ segir hann. Engu að síður hafa þau ákveðið að gefa Reykjavík tækifæri. Nýja starfið leggst vel í Jón og hann segir margt spennandi að gerast hjá Reykjavíkurborg. Það er hins vegar ekki nýja starfið heldur hið gamla, sem Jón er nú að kveðja, sem er umtalsefnið að þessu sinni. Starfið umfangsmeira en áður Starf félagsmálastjóra hefur breyst töluvert á þessum 19 árum og er bæði orðið mun umfangsmeira og verkefnin öðruvísi. Þegar Jón byrjaði féllu mál eins og ráðgjöf, fjár- hagsaðstoð, barnavernd, dagvistir, heima- þjónusta fyrir aldraða og félagsleg ráðgjöf undir verksvið Félagsmálastofnunar og starfsmenn í tveimur og hálfri stöðu sinntu þessari þjónustu. Síðar var starfseminni skipt upp í þrjár deildir sem voru leikskóla- deild, ráðgjafadeild og öldrunardeild. Jón segir félagslega þjónustu hafa verið í örum vexti á þessum tíma. „Upp úr 1970 voru mörg sveitarfélög á tímamótum. Þau voru búin að koma ýmsum verklegum þáttum eins og gatnagerð, skipulagi og öðrum tækniþáttum í lag og síðan hefur þjónusta, sérstaklega félagsleg þjónusta, verið sá þátt- ur í starfsemi sveitarfélaga sem hefur vaxið hvað hraðast. Þessir þættir stækkuðu mjög ört og eru orðnir mun umfangsmeiri en áð- ur. “ Arið 1988 var stjórnsýslu Akureyrarbæj- ar skipt upp í þrjú svið: tæknisvið, stjórn- sýslusvið og félags- og fræðslusvið og fé- lagsmálastjóri var skipaður framkvæmda- stjóri síðastnefnda sviðsins. Auk leikskóla- deildar, ráðgjafadeildar og öldrunardeildar, sem áður féllu undir Félagsmálastofnun, til- heyra skóla- og menningarmál og íþrótta- og tómstundamál einnig félags- og fræðslu- sviði og hefur hver þessara fimm deilda sér- Akureyrarbær er vissulega traust og áreiðanlegt fyrirtæki sem rekið er af ábyrgaðartilfinningu, a.m.k. borið saman við mörg önnur sveit- arfélög sem segja má að séu í djúp- um skít fyrir glannaskap. Hin hliðin er að Akureyrarbær hefur verið nokkuð íhaldssamt fyrirtæki og býsna svifaseint og það á tímum sem krefjast sífellt meiri viðbrags- hraða og yfirvegaðrar dirfsku. stakan deildarstjóra. „Deildarstjórar sjá um daglegan rekstur í sínum málaflokki en ég hef séð um að tengja deildirnar við bæjar- stjómirnar, samræma starfkl milli deilda og verið meira í þróunarstarfi. Ég hef hins veg- ar fjarlægst daglega reksturinn og veit ekki endilega öll smáatriði í rekstrinum lengur. Þetta var öðruvísi þegar ég var að byrja, þá var ég í öllu mögulegu," segir Jón. Félagsmálastofnun hefur ekki tekið minni breytingum en starf félagsmálastjóra og má greina vott af söknuði þegar Jón rifj- ar upp liðna tíð. „í gamla daga var mikið um að fólk kæmi með fjölbreytt erindi og allt var óformlegra. Stofnunin var stundum eins og ættingi þeirra sem áttu engan að. Einu sinni vorum við t.d. beðin um að jarða kanarífugl. Bændur hringdu stundum utan úr sveit og báðu okkur um að útvega sér konur og höfðu þá verðandi eiginkonur í huga. Þegar einhver einstæðingur dó kom fyrir að leitað var til okkar um að vera lík- menn. Nú er þetta orðið miklu meiri stofn- un. Hún vinnur öruggar og betur en er kannski ekki eins skemmtileg." Gömlu leiguíbúðirnar heisluspillandi Þegar Jón tók við starfi félagsmálastjóra biðu hans mörg verkefni og mikil uppbygg- ing. Hann nefnir leiguíbúðir á vegum bæjar- ins sem dæmi um mál sem hann þurfti að taka á á fyrstu árunum. „Þegar ég hóf störf átti bærinn 55 leiguíbúðir. Flestar voru í húsum sem átti að rífa en voru leigð út á meðan þau voru ekki rifin. Þessi hús voru í mjög slæmu ásigkomulagi og voru heilsu- spillandi og mannskemmandi að búa í. Það var því mjög brýnt að bæta úr þessu og nú eru þessi hús hér um bil öll horfin. Bærinn á um 120 leiguíbúðir og þær eru nánast allar nýjar.“ Dagvistarmálin voru annað mikilvægt ntál en þar segir Jón að ekki hafi tekist nógu vel til. „Fyrir 19 árum voru þrír leikskólar, Pálmholt, Árholt og Iðavellir. Nú eru þeir ellefu en biðlistinn er samt ekki mikið styttri. Þjónusta á leikskólunum hér er af- bragð en Akureyrarbær hefur staðið sig illa í uppbyggingu leikskóla. Ég man t.d. að ár- ið 1992 var Akureyri í 73. sæti af 81, þegar skoðað var hversu stórum hluta barna sveit- arfélög býður leikskólarými." Fleiri fá fjárhagsaðstoð nú en áður Félagsmálastofnun er í hugum margra tengd aðstoð við þá sem minna mega sín og það kemur til kasta ráðgjafardeildar að afgreiða beiðnir um fjárhagsaðstoð og veita ráðgjöf. Jón segir beiðnir um fjárhagsaðstoð vera mun fleiri nú en áður og telur að fólk sé óhræddara við að leita sér aðstoðar. Hins vegar treystir hann sér ekki til að segja um hvort fólk hafi það verra en áður. „Það er mjög erfitt að bera saman tvo tíma að þessu leyti. Ég ímynda inér að fjöldi fjölskyldna sem fær fjárhagsaðstoð hafi fimmfaldast á síðustu tuttugu árum en hvort það merki að tímarnir séu verri veit ég ekki.“ Hann bend- ir þó á atvinnuleysið sem er seinni ára Akureyringar geta verið stoltir af mörgu í þjónustu sinni á félags- og fræðslusviði, þó því fari fjarri að ég þakki mér það. Ég held til dæmis að öldrunarþjónusta hér á Akureyri þyki með því besta sem gerist á landinu. Einnig eru barnarverndar- málin til fyrirmyndar og aðstæður til íþróttaiðkunar hér eru mörgum sveitarfélögum öfundarefni. Ef stjórnmálamenn gæta ekki heildar- innar og ánetjast þrýstihópum um of af áhuga sínum eða i vinsældaleit, þá stefnir í óefni. En þetta gera margir stjórnmálamenn á Akureyri og meira að segja auglýsa það og þetta hefur leitttil vandræða... .. .1 rauninni er eitthvað það vitlaus- asta sem hægt er að gera frá sjónar- miði Akureyrarbæjar að byggja íþróttahúsið fyrir Þór sem margir keppast við að lofa núna. vandamál. „Á áttunda áratugnum gátu allir fengið eins mikla vinnu og þeir vildu og jafnvel þó þeir hefðu ekki mikla vinnugetu var hún samt seljanleg. Nú er búið að ýta út af vinnumarkaðinum mörgu fólki, sem gat auðveldlega fengið vinnu þá,“ segir Jón. Mál sem heyra undir Félagsmálastofnun eru mál sem snerta líf fólks með beinum hætti og segir Jón að það liggi nánast í hlut- arins eðli að margir séu ósáttir við Félags- málastofnun og það sem er gert þar. Sér- staklega geti barnarvemdarstörfin verið erf- ið og ákvarðanir um að fjarlægja börn frá foreldrum sínum séu að sjálfsögðu óvinsæl- ar. „Slíkt gerist ekki oft enda þrautaráð en það hefur samt gerst nokkrum sinnum.“ Margt gott hjá bænum Þrátt fyrir að erfiðar ákvarðanir séu hluti af starfi félagsmálastjóra segir Jón starfið mjög skemmtilegt og fjölbreytt. „Ég hef unnið með mjög góðu og skemmtilegu fólki og einnig hef ég haft afskipti af margvís- legu fólki, bæði skemmtilegu og líka leiðin- legu eða erfiðu fólki.“ Jón segir að oft hafi honum fundist ganga hægt að þoka málum áfram en þegar hann lítur til baka viðurkennir hann að samt hafi margt breyst. „Ég er þeirrar skoðunar að Akureyringar geti verið stoltir af mörgu í þjónustu sinni á félags- og fræðslusviði, þó því fari fjarri að ég þakki mér það. Ég held til dæmis að öldrunarþjónusta hér á Akur- eyri þyki með því besta sem gerist á land- inu. Einnig eru barnarverndarmálin til fyrir- myndar og aðstæður til íþróttaiðkunar eru mörgum sveitarfélögum öfundarefni. Að undanförnu hefur orðið markverð efling í menningarmálum sem Akureyrarbær á drjúgan og farsælan þátt í. Fulltrúar frá öðr- um sveitarfélögum og ýmsum samtökum

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.