Dagur - 04.11.1995, Page 9

Dagur - 04.11.1995, Page 9
Laugardagur 4. nóvember 1995 - DAGUR - 9 í skemmunni bak við skemmtistaðinn Við Pollinn á Akureyri er myndhöggvarinn Sól- veig Baldursdóttir með vinnuaðstöðu. Sólveig er nýlega komin heim frá Carrara á Ítalíu, þar sem hún var við nám en Carrara er eins konar Mekka mynd- höggvara. Þar eru stærstu marmarafjöll í heimi og um þessar mundir vinnur Sól- veig nær eingöngu úr marmara. Vetur konungur er genginn í garð og það er kalt í skemmunni lijá Sólveigu þegar blaðamann og ljósmyndara ber að garði. Sólveig segir húsnæðið hentugt sem vinnuaðstaða en kuldinn finnst henni verri. Þrátt fyrir hlýjan skíðagalla er erfitt að vinna lengur en hálfan daginn en þegar hún var á Italíu þar sent loftslag er hlýrra átti hún til að gleyma sér við vinnu allan daginn. Inni í Skemmunni eru nokkur verk sem Sólveig er að vinna að en hún stefnir á að halda einka- sýningu á verkum sínum í mars. Þegar spurt er unt heiti verkanna segir Sólveig að það hafi alltaf vafist fyrir henni að gefa verkun- um eitt ákveðið nafn. „Oft geng ég í kring um stein í tvær vikur og tala við hann. í sameiningu kom- umst við að því hvað sé inn í steininum. Það eru svo margar til- finningar bundnar hverju verki og því erfitt að setja eitt nafn á hvert þeirra.“ Hún segir mikilvægt að finna sálina í steininum. Þegar það hafi tekist og hún viti hvernig verkið eigi að vera sé eftirleikur- inn auðveldur. „Þá þarf ég bara að höggva utan af honum þar til ég stend frammi fyrir því sem ég sá fyrir mér í byrjun.“ En hvers vegna varð steinninn fyrir valinu frekar en önnur efni? „Steinninn er svo ekta. Það haggar honum enginn og hann bara er. Þess vegna finnst mér hann heill- andi.“ Hentaði ekki að kenna Við höfum yfirgefið kalda skemmuna og erunt sestar inn á Súlnaberg með kaffibolla til að ylja okkur. Fyrsta spumingin tengist uppruna Sólveigar. „Eg er fædd á Páfastöðum í Skagafirði en foreldrar mínir eru Edda Skagfield og Baldur Hólm. Þegar ég var komin á framhaldsskólaaldurinn tók ég tvö ár á listasviði í Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti en fór síðan í Myndlista- og handíða- skólann. Þaðan fór ég til Dan- merkur og bjó þar í sex ár. Ég var í skóla í fjögur ár en var að vinna á Iistasafni í tvö ár. Þegar ég kom frá Danmörku bjó ég á Akureyri og kenndi myndmennt í gmnn- skóla. Það var allt í lagi og ég lærði margt en það hentaði mér ekki til lengri tíma. Eftir tvo vetur var ég alveg búin að fá nóg og haustið 1990 fór fjölskyldan til Carraras.“ Sólveig á tvær dætur, Eddu Hrund sem er fjórtán ára og hina fjögurra ára Karlottu. „Eldri dóttir mín fæddist stuttu áður en ég fór til Danmerkur og ég var ein með hana þegar ég var að læra. Það var rosalega erfitt. Á Akureyri kynnt- ist ég Jónasi Viðari, sem er mað- urinn minn, og dóttir okkar Karl- otta fæddist á Ítalíu 1991,“ segir hún um fjölskylduaðstæðumar. Erfíðast að ná sálinni heim Sólveig er flutt aftur til Akureyrar eftir fjögurra ára fjarveru. Hvemig Sólveig Baldursdóttir inyndhöggvari. í baksýn er ein af styttunum sein hún kallar Konurnar frá Carrara. „Þetta e. a ekki beint minningar heldur óður til landsins og fólksins,“ segir hún um stytturnar. Myndir: bg Listinni Sólveig seldi fyrirtækinu Eimskip þessa styttu en í staöinn flutti skipa- félagið búslóðina hennar frá Ítalíu til Islands. Hluti af búslóðinni var tvö tonn af marmara úr fjöllunum í Carrara. á því var mikið álag að mega aldrei líta af bömunum. Stelpum- ar mínar em báðar ljóshærðar og bláeygðar sem em vinsælustu bömin til að selja og stela. Ef ég fór t.d. með Karlottu á ströndina sleppti ég aldrei af henni augun- um og ég þegar ég fór að versla í matvömverslun þurfti ég helst að láta hana halda í band, svona eins og leikskólar nota stundum. Þessi gengi em sérþjálfuð og það þarf ekki annað en að líta upp í hillu og þá em þeir búnir að kippa baminu burt. Ég held að mesti léttirinn við að koma heim sé að vera laus við þennan ótta. Ég átt- aði mig ekki á hvað þetta var þungt á mér fyrr en álagið fór af.“ Konurnar frá Carrara Listin er það sem stendur hjarta Sólveigar næst og hún er ánægð að hafa tækifæri til að stunda list sína. Aðalverkefni hennar þessa dagana er að undirbúa sýningu sem verður í Gerðarsafni í Kópa- vogi í mars á næsta ári en hún verður jafnframt fyrsta einkasýn- ing hennar hér á landi. „Ég veit ekki hvort ég kalla sýninguna „Konumar frá Carrara" en ég nota er að vera komin heim? „Mér finnst margir hlutir jákvæðir en ýmislegt er líka neikvætt. Það er auðveldara að vinna á Ítalíu. Þar er hægt að ganga inn í stúdíó þar sem em verkfæri og allt sem til þarf. Ef brotnar hjá mér meitill hér þarf ég að skrifa út og fá nýjan sendan. Ég get eiginlega engin verkfæri keypt hér og alls ekki marmarann nema á himinháu verði. Ég get alveg hugsað mér að vera á íslandi á vetuma en ég þarf að komast út á sumrin. Draumur- inn er að eiga lítið hús á Ítalíu sem þyrfti bara að vera íbúðarhæft á sumrin. Ég gæti unnið þar á sumr- in og verið hér á vetuma. Með þessu móti þyrfti ég ekki að flytja fjölskyldu og búslóð á milli sem er meira en að segja það.“ Sólveig segir að þó búið sé að flytja búslóð, bömin séu í skóla og hún byrjuð að vinna þá taki það sálina lengri tíma að átta sig á breytingunni. „Mín sál er ekki komin heim. Hún kemur kannski tveimur ámm á eftir og meðan hún er ekki komin er maður óskaplega tættur. Ég held að það sé erfiðast; að ná sálinni sinni aft- ur þangað sem líkaminn er.“ Hún segir ítala að mörgu leyti ekkert ólíka Islendingum. „Þeir eru ákaflega gestrisnir og hlýir. En þeir em l£ka mjög blóðheitir og fuðra t.d. upp þegar þeir reið- ast. Vissulega var margt sem ég var orðin þreytt á. Húsnæðið var lélegt og þó ég hafi ekki áttað mig Grjótið er hart efni og erfitt líkamlega að vinna meö grjót. En hjá Sólveigu er það hugarfarið sem skiptir máli. „Ef viljinn er fyrir hendi er hægt að flytja fjöll,“ segir hún. fylgir ábyrgð þær sem nokkurs konar þema. Þetta eru ekki beint minningar heldur hálfgerður óður til landins og fólksins. Ég hugsa að ég sé að vinna mig frá þessu tímabili sem ég dvaldi á Ítalíu til að eitthvað nýtt geti komið." Sólveig á von á að opnun sýn- ingarinnar verði stór stund og hún bíður hennar bæði með kvíða og tilhlökkun. „Ég veit í rauninni ekkert hvemig höggmyndum úr marmara verður tekið hér á Is- landi," segir hún. - Er marmarinn mjög ólíkur ís lenska grjótinu? „Mér finnst íslenska grjótii eins og t.d. blágrýti og grágrýti vera svolítið kaldir og harði’ steinar. Bæði liturinn og efnið e kalt. Rauði marmarinn er aftur móti hlýr. Það er svo auðvelt a vinna með hann og gengur fljó fyrir sig. Hvíti marmarinn er har( ari og kannski millibil íslensk steinsins og rauða marmarans. É, rauði steinninn höfðar mest til mí. því hann er bæði heitur og gej andi.“ Viljinn flytur fjöll Sólveig segir að í listinni eins o“:. öðm sé það viljinn sem að gildi. „Maður gerir ekkert án viljans. Fólk gerir sér ekki alltaf grein fyr- ir hvað hann er sterkur. Þegar ég stend t.d. fyrir framan ógnarsteip sem ég ætla að búa eitthvað til úr er þetta mér ávallt ofarlega í hugá. Ef viljinn er fyrir hendi er hægt að flytja fjöll,“ segir hún og leggiír mikla áherslu á þetta atriði. Henni finnst ábyrgðin í listinni líka skipta miklu máli. „Myndlist- armaður getur gert hluti, sýnt þá og á þann hátt miðlað ótrúlega miklu af upplýsingum. Þessu fylg- ir ábyrgð og mér finnst að lista- ntenn mættu taka meiri ábyrgð gagnvart sjálfum sér, öðrum og umhverfinu. Hvort sem okkur lík- ar betur eða verr þá hefur listin áhrif á annað fólk og þessi áhrif geta verið bæði jákvæð og nei- kvæð og listin er því ekkert einka- mál listamannanna. Þeir þurfa að vera meðvitaðir um hvað þeir senda frá sér. Listin er miðill sem ætti að nota á uppbyggilegan hátt.“ Sólveig þagnar andartak og hugsar sig um. „Mikilvægast er hafa virðingu og ábyrgð fyrir líf- inu.“ Kaffið er búið og Sólveig held- ur aftur í kuldalega skemmuna. Inni býður hennar rauður marm- ari, heitur og hlýr. AI

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.