Dagur - 04.11.1995, Qupperneq 12
12 - DAGUR - Laugardagur 4. nóvember 1995
I VINNUNNI HJÁ INÚU ÞÖLL ÞÓRÚNÝSDÓTTUR, LÖÚFRÆÐINÚI
Fyrstí sjálfstætt starfandi
kvenlögfræðingurínn norðanlands
Inga Þöll Þórgnýsdóttir er eini
lögfræðingurinn á Norðurlandi
sem hefur sérhæft sig í vinnurétti.
Hún er jafnframt eina konan á Ak-
ureyri sem er með héraðsdóms-
lögmannsréttindi og sú fyrsta sem
fer út í sjálfstæðan rekstur.
Inga Þöll útskrifaðist sem lög-
fræðingur árið 1991. Haustið
1992 var hún ráðin lögfræðingur
hjá stéttarfélögum á Akureyri en
fyrir ári síðan opnaði hún eigin
lögmannsstofu. Hún sinnir áfram
þjónustu við stéttarfélögin og Líf-
eyrissjóð Norðurlands en rekstrar-
formið er breytt og í stað þess að
borga henni laun kaupa félögin og
sjóðurinn nú þjónustu lögmanns-
stofunnar.
Félögin sem réðu Ingu Þöll til
starfa á sínum tíma voru Verka-
lýðsfélagið Eining, Iðja, Félag
málmiðnaðarmanna, Sjómannafé-
lag Eyjafjarðar, Vélstjórafélag Is-
lands, Skipstjóra- og stýrimanna-
félag Norðlendinga og Félag
byggingamanna í Eyjafirði. Þá
stóðu Lífeyrissjóðurinn Samein-
ing og Lífeyrirssjóður trésmiða
einnig að því að ráða hana. Aður
en Inga Þöll var ráðin voru félögin
ekki öll með sama lögfræðing en
ráðning hennar var bæði hagræð-
ing fyrir félögin og eins er auð-
veldara að leita til einhvers sem
býr á svæðinu og er eingöngu að
vinna að þeirra málum. Lögfræð-
ingar með vinnurétt sem sérgrein
er ekki margir á lslandi en Inga
Þöll nefnir Arnmund Backman,
Astráð Haraldsson, Atla Gíslason
og Láru Júlíusdóttur auk hennar
sjálfrar, sem dæmi.
Mörg mál tengjast
túlkunum á samningum
Inga Þöll fæst við alls kyns vinnu-
réttarmál. „Eg vinn greinagerðir
um ýmis álitamál. Síðan tek ég að
ntér margskonar vinnuréttarmál
sem félögin beina til mín félags-
mönnum að kostnaðarlausu. Al-
gengustu mál sem ég fæ eru í
tengslum við túlkanir á kjara-
samningum. Oft getur t.d. verið
ágreiningur út af veikindum, upp-
sögnum eða orlofi. Eins er ég með
mál fyrir fólk sem á inni
vangreidd vinnulaun og ef fyrir-
tæki verða gjaldþrota lýsi ég
launakröfum starfmanna í þrota-
búið og fylgi þeim málum eftir.
Sum málin fara dómstólaleiðina
og þá kemur í minn hlut að reka
þau fyrir rétti. Ég tek líka að mér
skaðabótamál vegna vinnuslysa
en í þeim tilfellum greiða stéttar-
félög útlagðan kostnað fyrir sína
félagsmenn. Jafnfram tek ég að
mér alrnenn mál þó þau snúist
ekki um vinnurétt. Þau mál koma
til mín beint en ekki í gegn um
stéttarfélögin.“
Inga Þöll segir starfið bæði
fjölbreytilegt og skemmtilegt.
Hún á erfitt með að nefna ein-
livern einn þátt sem sé mest gef-
andi en þykir gott þegar mál leys-
ast farsællega og báðir aðilar em
ánægðir. Erfiðustu málin segir
hún vera brottrekstrarmál því oft
sé ágreiningur unt ástæðu brott-
rekstrarins.
Draumur flestra að vera
með eigin rekstur
Inga Þöll er í vinnunni frá átta til
Ijögur eða fimm á daginn og
einnig vinnur hún oft um helgar.
Vinnudagarnir eru mjög misjafnir
en þó eru nokkrir fastir liðir.
„Ég tek símann allan daginn og
fólk lítur líka við. Að öðru leyti er
ég að vinna að þeim málum sem
eru á dagskrá hverju sinni. Núna
er ég t.d. að undirbúa mig undir
málflutning; blaða í dómum,
semja ræðu og undirbúa málið í
samvinnu við viðkomandi aðila.
Síðan sinni ég þessum venjulegu
störfum sem byggjast á innheimtu
eins og að mæta á nauðungarsölur
og í fjárnám til sýslumanns, fara í
bankann og framvegis," segir hún.
Þó lögfræðingar vinni sjálfstætt
leita þeir stundum aðstoðar eða
aðstoða aðra lögfræðinga og segir
lnga Þöll að samvinna milli þeirra
sé yfirleitt mjög góð. Eins hafi
lögfræðingar myndað félagsskap
fyrir utan starfið.
„Við erum t.d. 5-6 konur á Ak-
ureyri sem erunt starfandi lög-
fræðingar og hittumst reglulega.
Einnig er nýbúið að stofna félag
lögfræðinga á Norður- og Austur-
landi sem stendur t.d. fyrir fyrir-
lestrum og þess háttar og ég er
líka félagsmaður í Lögfræðingafé-
lagi Islands og Lögmannafélag-
inu.“
Inga Þöll segir að sér gangi
prýðilega í sjálfstæðum rekstri.
„Auðvitað er áhættan meiri og oft
meiri vinna að starfa sjálfstætt en
það gefur yfirleitt ineira af sér og
ég held að það sé draumur flestra
lögmanna að vera með eigin rekst-
ur.“ AI
MATARKRÓKU R
Einfalt og ítalskt
Erla Ingólfsdóttir frá Akureyri legg-
ur til uppskriftir í Matarkrókim í
dag. Erla vinnur á skrifstofunni í
Sjallanum. Hún er einstœð móðir og
börnin hennar lieita Pálmi, Helga og
Herdís.
Uppskriftirnar hennar Erlu eru
frá Toscana íltalíu en þar hefur hún
tvívegis verið að sumarlagi og dvaldi
hjá ítölskufólki. „Italski maturinn á
Islandi er oft svo flókinn en einkenni
á matfrá Toscana er að uppskrift-
irnar eru einfaldar. Minni áhersla er
á meðlœti en kjötið látið njóta sín. “
Auk ítölsku réttanna er Erla líka
með uppskrift af kaffirjómatertu sem
er uppáhaldskakan hennar. „Hún er
rosalega góð, “ fullyrðir hún.
Erla skorar á móður sína, Dag-
nýju Kjartansdóttur, sem einnig býr
á Akureyri, að sjá lesendum fyrir
uppskriftum í nœsta matarkrók.
Bruschetta al pomodora
- smáréttur eða forréttur
'á kg tómatar (helst bufftómatar,
þ.e. kjötmiklir)
6 msk. „extra virgin" olífuolía
nokkur laufafbasil (smátt söxuð)
nokkrir dropar kryddað edik
(t.d. rauðvínsedik)
salt ogferskur malaður pipar
(eftir smekk)
12 sneiðar affínu brauði
I Imtlauksrif
Tómatamir eru afhýddir, skomir í
sundur og fræin fjarlægð þannig að að-
eins kjötið sé eftir. Síðan eru þeir
skomir smátt. Basil, nokkrum dropum
af kryddediki, salti og pipar er blandað
sainan við tómatana ásamt 3 msk. af
olíunni.
Fjarlægið skorpuna af brauðsneið-
unum og penslið sneiðamar með af-
ganginum af olíunni. Skerið hvítlauks-
rifið í sundur og nuddið því yfir brauð-
ið. Ristið undir grilli þar til það er gul-
brúnt. Tómatblöndunni skipt á sneið-
amar og borið fram heitt.
Einnig mjög gott að nota 6 msk. af
hvítlauskolíu, 3 msk. í tómatana og af-
ganginn til að pensla brauðið með.
Svínasteik
- Arista alla Fiorentina
Ifkg svínakjöt
(beinlaust mjaðmastykki mlfitulagi)
4 hvítlauksrif(afhýdd)
6 blöð afsalvíu (sage)
3 msk. ólífuolía
salt og nýmalaður ferskurpipar
Forhitið ofninn í 200°C. Setjið olíuna,
hvítlaukinn og kryddið í matvinnsluvél
og blandið vel. Gerið skurði í kjötið og
nuddið kryddblöndunni vel í kjötið.
Vefjið þétt saman með sláturgami.
Steikið í l'A tíma á grind þangað til
safinn sem rennur úr kjötinu er glær.
Skerið í sneiðar og berið fram strax.
Lamb með svörtum olífum
1 kg lambakambur (í gúllasbitum)
3 msk. olífuolía
2 greinar ferskt rósmarín
2 hvítlauksrif (söxuð)
2 glös hvítvín (þurrt)
6 stórir tómatar (afhýddir og saxaðir)
1 msk.ferskt sítrónuhýði
1 þurrkaður rauður chili pipar
125 g svartar olífur (kjarnhreinsaðar)
salt og nýmalaður svartur pipar
Hitið olíuna á stórri pönnu. Setjið hvít-
laukinn og rósmarín út í og steikið þar
til litur kemur á hvítlaukinn. Bætið
lambakjötinu út í, veltið bitunum og
látið þá brúnast. Hellið hvítvíninu út í
og þegar það hefur soðið niður að
hálfu bætið þá tómötunum, sítrónu-
hýðinu og chili pipamum saman við.
Setjið lok á pönnuna og sjóðið við
vægan hita í um 20 mínútur.
Bætið olífum í og látið sjóða undir
loki í 1 klst., hrærið í við og við til að
kjötið festist ekki við pönnuna. Má
setja smá vatn saman við ef nauðsyn-
legt er. Kjötið á að verða safaríkt og
mjúkt í smá sósu.
Berið fram með brauði og e.t.v.
salati.
Kctrtöflur í ofni
750 g litlar nýjar kartöflur
2 hvítlauksrif
6 msk. ólífuolla
salt og nýmalaður svarturpipar
2 greinar rósmarín
Stillið ofn á 200°C. Þvoið kartöflurnar
og sjóðið þar til þær em mjúkar. Látið
vatnið renna af þeim. Setjið olíu,
rósmarín og hvítlauk í eldfast flát og
hitið í ofninum í 5 mínútur. Setjið kart-
öflumar í mótið og bætið saltinu og
pipamum við. Bakið í 20-30 mínútur.
Veltið kartöflunum við annað slagið
(þar til þær verða gulbrúnar).
Kaffirjómaterta
2 svampbotnar
lítil dós kokteilávextir
jarðarberjasulta
makkarónukökur
Á lítri rjómi
100 g suðusúkkulaði
sherry eða portvín
Smyrjið sultunni á annan botninn,
myljið makkarónukökumar ofan á og
vætið með sherry eða portvíni. Síðan
em kokteilávextimir settir yfir. Saxið
niður súkkulaðið og setjið yfir og
helminginn af þeytta rjómanum. Setjið
hinn botninn yfír og vætið með sherry
eða portvíni og hjúpið síðan kökuna
með afgangnum af rjómanum. Raspið
súkkulaði yfir rjómann. AI