Dagur - 04.11.1995, Blaðsíða 15
UTAN LAND5TEINANNA
Laugardagur 4. nóvember 1995 - DAGUR - 15
ELSA JÓHANNSDÓTTIR
„Matt og Summer“
...miklar sögur gengu um samband
þeirra og þau virtust láta afskaplega vel
að hvort öðru. Svo hætti Summer líka í
þáttunum og Matt sá hana aldrei
Leikarinn Brad Pitt var staddur í New York á dögunum þegar nýjasta
mynd hans, „Seven", var frumsýnd. Með honum á myndinni er annar
ungur og upprennandi leikari, Leonaro DiCaprio, sem kom einnig á
frumsýninguna. Við tökur á myndinni „Seven" var Pitt í miðri nektarsenu
þegar einhver argaði og lét stöðva myndatökuna. í Ijós kom að kvenna-
gullið fræga var með einhverja bólu á rassinum og þurfti að púðra vel yf-
ir hana svo hægt yrði að halda áfram. Brad Pitt mun sjálfsagt framvegis
grandskoða sinn annars fagra líkama áður en farið verður út í fleiri nekt-
arsenur...
raumr
í Strand-
vörðum
„Eddy og Shaun“
...byrjuðu saman við gerð fyrstu þátt-
anna, svo fór Shaun að leika í bíómynd
og féll fyrir mótleikara sínum, William
MacNamara. Eddy hætti líka í þáttunum
og þau sáust ekki meir...
Með bólu á rassinum
◄ FABA
Aðalstjarnan í Ráðgátum („The X-files“), David Duchovny (Mulder), hafði einmitt
rétta útlitið og persónuleikann til að hreppa aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttunum
frægu. Síðar kom í Ijós að kappinn kunni varla að halda á byssu og var sendur á
námskeið í meðferð skotvopna. Þar skeði það eitt sinn að hann missti byssuna úr
höndunum, skot hljóp úr henni og allt gekk á afturfótunum eins og gerist hreinlega í
bestu gamanmyndum.
David byrjaði feril sinn á því að leika í bjór- og símafyrirtækjaauglýsingum áður
hann fór að fá smáhlutverk í bíómyndum eins og Beethoven, Working Girl, Kalifornia
og sjónvarpsþáttunum Twin Peaks. Leik-
ari þessi er sonur rússnesks rithöfundar,
Amran Duchovny, sem tók upp á því að
taka h-ið úr nafni sínu því hann var oft
kallaður Anchovy (sem þýðir ansjósur). (
æsku komust skólafélagar Davids á
snoðir um þetta og byrjuðu líka að kalla
hann ansjósu í tíma og ótíma. Leikarinn
segist í dag ekki einu sinni geta horft á
ansjósur! Það gengu þessar venjulegu
sögur um að hann væri í ástarsambandi
við mótleikara sinn í þáttunum, Gillian
Anderson (Scully) en annað kom í Ijós
þegar hann fór að sjást oft í samfylgd
annarrar leikkonu, Perry Reeves, sem lék
blóðsugu einhverju sinni í þáttunum. Hún
hefur sjálfsagt virkað girnilegri, enda
„Mulder" afskaplega skrýtinn maður...
KUMI EKKEIU'
MEl) BYSSIJ Al)
meir...
„Matt og C.J.“
...höfðu verið saman í nokkra mánuði
áður en þau hófu að leika í þáttunum
um Strandverði. En Matt varð afbrýði-
samur þegar C.J. fór að fækka fötum í
djarfri bíómynd. C.J. hitti Tommy Lee
og Matt hallaði sér að Aliciu Silverstone
ístaðinn...
„Stephanie og Logan“
...munu víst vera ástríðufullt par bak
viö sviðið. Á 25. afmælisdegi Logans
sleppti hún sér alveg og ætlaði að éta
hann í veislunni. En einn aðalfréttarit-
arinn í Hollywood segir þetta bara vera
kjaftasögur...
Hillary Clinton, forsetafrú Bandaríkjanna, hefur átt í mörgu að snúast að undanförnu og verið viðstödd fjölmargar opinberar uppákomur. Á
safni nokkru í Washington kom upp dálítið neyðarlegt atvik, þar sem frúin strunsaði um allt með ca. hálfan metra af klósettpappír fastan
undir hælnum. Eins og sést á myndinni vakti þetta athygli og kátínu ferðamanna á safninu. Vesalings Hillary tók ekki eftir neinu og gekk
virðuleg um sali safnsins þar til löggæslumaður benti henni vingjarnlega á þetta svo að lítið bar á. Frúnni var auðvitað snarbrugðið og var
að sögn vitna fljótari en skugginn að fjarlægja þennan óæskilega fylgifisk...