Dagur - 08.11.1995, Síða 4

Dagur - 08.11.1995, Síða 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 8. nóvember 1995 LEIÐARI Milljarða verkefni ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 462 4222 ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1500 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) AÐRIR BLAÐAMENN: AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR, GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON, SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON (íþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 464 1585, fax 464 2285). LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDI'S FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI462 5165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 462 7639 SÍMFAX AUGLÝSINGADEILDAR: 462 2087 Samþykkt eiganda álversins í Straumsvík í fyrradag um stækkun verksmiðjunnar úr 100 þúsund tonnurn í 162 þúsund tonna fram- leiðslugetu boðar umtalsverða vítamínsprautu inn í íslenskt efnahagslíf. Framkvæmdir við stækkun fyrirtækisins eru gríðarlega umfangs- miklar og munu skapa hundruðum manna vinnu og að þeim loknum bætast 70 ný störf við í framleiðslunni í Straumsvík. Þetta er ekki svo lítilsvert þegar jafn hart er í ári á atvinnu- markaðnum sem raun hefur borið vitni undan- farin ár. Áhrifin af stækkun álversins eru líka mikil út um þjóðfélagið, t.d. í raforkukerfinu þar sem mæta þarf aukinni eftirspum eftir raf- orku. Gert er ráð fyrir að hagvöxtur aukist samfara þessum framkvæmdum og það er já- kvætt. Þó útlitið sé allt annað en bjart á mörgum sviðum í atvinnulífinu hefur samt sem áður örl- að á viðleitni fyrirtækja að undanförnu til fjár- festinga og framkvæmda sem skilað getur nýj- um störfum sem ættu að verða vel þegin. Samningur um stækkun álversins er stórt skref í þessa átt og mun vafalítið hafa mikil áhrif enda um 16,5 milljarða fjárfestingu að ræða. Mest er um vert að íslendingar spili sem hagkvæmast úr þeim möguleíkum sem við eig- um í raforkunni og nýtingu hennar til iðnaðar- framleiðslu. Greinilegt er að margir horfa til landsins vegna raforkunnar og okkur er nauð- syn að spila þannig úr að ágóðinn verði viðun- andi fyrir þjóðarbúið. Mikilsvert er að framkvæmdirnar í Straums- vík nýtist þjóðarbúinu vel og stytti biðina eftir birtu í atvinnumálunum. íslendingar hafa í gegnum árin alltof oft litið á tækifæri eins og þessi sem tilefni til að fara á fjárfestingafyllerí í stað þess að líta á stórframkvæmdir af þessu tagi sem tækifæri til að búa í haginn fyrir magr- ari árin. Við eigum að hafa vítin nú til að varast þau og hafa þá skynsemi til að bera að nota þá innspýtingu í atvinnulífið sem nú er framund- an til að byggja upp og mjaka okkur markvisst upp úr öldudalnum. Kennarafélögin um yfírfærslu reksturs grunnskólans til sveitarfélaga: Aunnin réttindi verða að haldast Kennarasamtökin í landinu telja brýnt að hefja nú þegar gerð nýs kjarasamnings milli stéttarfélaga sinna og sveitarfélaga, en sem kunnugt er taka sveitarfélögin við rekstri grunnskólans 1. ágúst á næsta ári. í tilkynningu frá Kenn- arasambandi Islands og Hinu ís- lenska kennarafélagi segir að á næstu vikum verði línur varðandi yftrfærslu áunninna réttinda kenn- ara að skýrast, en kennarar leggja ríka áherslu á að sömu réttindi haldist þótt sveitarfélög verði í framtíðinni launagreiðandi þeirra en ekki ríki. Hið íslenska kennarafélag og Kennarasamband íslands sendu fyrr í vikunni frá sér tilkynningu þar sem tæpt er á nokkrum helstu áhersluatriðum þeirra. Segir þar að óskert réttindi grunnskólakenn- ara séu ekki aðeins mikilvæg fyrir kennara sjálfa, heldur og ekki síð- ur fyrir öflugu skólastarfi í fram- tíðinni. Það sem kennarar nefna meðal annars sem sín hagsmunamál er að þeim verði áfram tryggð aðild að Lífeyrissjóði starfsmanna ríks- ins. Það sé grundvallaratriði fyrir þá sem í þann sjóð greiða nú - og aðrir starfsmenn skólanna verði að eiga aðild að jafn verðmætu fyrir- komulagi. Þá segir að áfram verði réttindi vegna ráðninga að vera óskert; til dæmis hvað varðar aug- lýsingar á lausum stöðum, bams- burðarleyfi, veikindaorlof og svo framvegis. Samningsbundin ákvæði vegna námsorlofs og slíks verða að haldast þótt nýr launagreiðandi komi til. Ennfremur vilja kennara- félögin að menntamálaráðuneytið hafi eftirlit með framkvæmd sveit- arstjóma á kennararáðningum og segja jafnframt að kennurum sé mikilvægt að hafa í starfi sínu grundvöll til að tryggja eðlilega framkvæmd grunnskólalaga. Kjarasamningur kennara við ríkis- valdið rennur út 1. ágúst á næsta ári, en eftir þann tíma verða sveit- arfélög launagreiðendur stéttar- innar. Því leggja kennarar áherslu á að viðræður um gerð nýs samn- ings hefjist sem fyrst og þar er meginkrafan að réttindi haldist óskert. Þá segir í plaggi kennarafélag- anna að vegna yfirtöku sveitarfé- laga á sérfræðiþjónustu skólanna þá verði hún að batna frá því sem nú er. Vegna ónógra fjárfestinga frá ríkinu hafa fræðsluskrifstofur, sem í framtíðinni munu heita skólaskrifstofur, ekki getað veitt nema lágmarksþjónustu og ekki allt það sem þeim ber skv. lögum. Segjast kennarafélögin jafnframt vilja eiga fulltrúa í stjóm skóla- skrifstofanna þegar þær taka til starfa. -sbs. Safnað handa Flateyringum Þessi vaski hópur tók sig til á dögunum og hélt tombólu til styrktar þeim sem eiga um sárt að binda eftir snjóflóðið á Flateyri. Þau söfnuðu alls 6.918 krónum og heita frá vinstri: Berglind Smáradóttir, Hulda Hall- grímsdóttir, Jón Ingi Hallgrímsson, Karen Mist Kristjánsdóttir, Dúi Ól- afsson og Kristján Eldjám Kristjánsson. Mynd: bg Skákfélag Akureyrar: Þórleiftir Íeíðír í haustmótínu Ljóð og lausavísur Sigfúsar Þorsteinssonar Út er komin Ijóðabókin „í ai- vöru og án, Ijóð og lausavísur“ eftir Sigfús Þorsteinsson. Sigfús fæddist að Litlu Há- mundarstöðum á Árskógsströnd árið 1921 og bjó lengst af á Rauðavík í sömu sveit. Undan- farin ár hefur hann verið fram- kvæmdastjóri Bíla- og vélaverk- stæðis Hjalta Sigfússonar og er búsettur á Hauganesi. Frá unga aldri hefur Sigfús fengist við ljóðagerð og kveðskap. Á síðustu ámm hafa birst eftir hann ljóð, sögur, frásagnir og tækifærisvísur í blöðum og tíma- ritum. Þá voru birt ljóð eftir hann í bókinni íslensk alþýðuskáld. Bókin „í alvöru og án“ skiptist, eins og nafnið gefur til kynna, í tvo hluta. í þeim fyrri, „í alvöru", er fjöldi ljóða, flest frá síðustu ár- um. Ljóð Sigfúsar einkennast af yfirlætislausri hlýju og virðingu bóndans fyrir náttúmöflunum og landinu, sem og hafinu sem er honum hugleikið yrkisefni. í ljóð- um sínum fæst hann einnig við líf og kjör fólks fyrr og nú, hvort heldur er í Þorvaldsdal eða Þýska- landi. Ljóð hans miðla lesendum af þúsund ára sýn þeirrar kynslóð- ar sem ólst upp í torfbæjum við búskaparhætti lítt breytta frá land- námstíð og hefur lifað hina algeru umbyltingu síðustu þriggja aldar- fjórðunga. Hið ytra hefur allt breyst, en mannskepnan og nátt- úmöflin em söm við sig. í síðari hluta bókarinnar, „Án alvöru“, en svo ýmis konar tæki- færiskveðskapur og gamanmál frá síðustu árum. Em þar ýmsum sendar sneiðar og föst skot og hin- ar skoplegri hliðar hversdagslífs- ins bundnar í stuðla og rím. Að engu gerir þó höfundur meira grín en sjálfum sér. Bókina, sem er rösklega eitt hundrað blaðsíður að lengd, gefur höfundur út sjálfur. Offsetstofan á Akureyri prentaði. „I alvöm og án“ er fáanleg í Bókabúð Jónasar á Akureyri og í bókaversluninni Sogni á Dalvík. Þá er hægt að hafa samband við Sigfús í síma 466 1951 og hann mun senda bókina hvert á land sem er. Þegar fimm umferðum er ólokið í Haustmóti Skákfélags Akur- eyrar er Þórleifur Karlsson efst- ur með 5,5 vinninga af sex og á hann frestaða skák. Þór Valtýs- son er í öðru sæti, einnig með 5,5 vinninga af 8 mögulegum. Yfirseta er í hverri umferð mótsins. Smári Valtýsson kemur í þriðja sæti með 5 vinninga af 8 og Guðmundur Daðason í fjórða sæti með 4,5 vinninga af 8. Þann 6. nóvember var 10 mín- útna mót fyrir 45 ára og eldri og bar Ólafur Kristjánsson þar sigur Ljósmyndamiðstöðin Myndás, Laugarásvegi 1, Reykjavík, mun í samvinnu við Heimilistæki, umboðsaðila Agfa á íslandi, halda ljósmyndasamkeppni í svart/hvítri Ijósmyndun og stækkun. 1. verðlaun 35 þúsund - vöruút- tekt hjá Agfa, 2. verðlaun 25 þús- und - vöruúttekt frá Agfa og 3. verðlaun 10 þúsund - vöruúttekt frá Agfa. úr býtum. Hann fékk 8,5 vinninga af 10. Röð næstu manna var þann- ig: 2. Sveinbjöm Sigurðsson, 7,5 vinningar af 10, 3. Jón Björgvins- son 7 vinningar af 10, 4. Haraldur Ólafsson, 6,5 vinningar af 10 og í fimmta sæti varð Karl Steingríms- son með 6 vinninga af 10. Næsta mót verður hjá Skákfé- lagi Akureyrar í kvöld kl. 20. Þá verður 10 mínútnamót með for- gjafarsniði þannig að þeir skák- menn sem eru stigalágir eða stiga- lausir fá meiri tíma en hinir. JÓH 12-15 bestu myndimar verða svo á sýningu í desember. Dómarar í keppninni em Leifur Þorsteinsson, formaður Ljós- myndarafélags íslands, Ragnar Axelsson, blaðaljósmyndari hjá Morgunblaðinu, og Egill Sigurðs- son, Ljósmyndaþjónustu Egils. Allar nánari upplýsingar má fá í Ljósmyndamiðstöðinni Myndás, Laugarásvegi 1, eða í síma 5811221. Ljósmyiidasamkeppni í svart/hvítri liós- myndun og stækkun

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.