Dagur


Dagur - 08.11.1995, Qupperneq 9

Dagur - 08.11.1995, Qupperneq 9
Miðvikudagur 8. nóvember 1995 - DAGUR - 9 Öllum er óheimilt, nema starfsfólki, að koma inn í einangrunarstöðina, sem stendur norðarlega í Hrísey. Myndir: Sigurður Bogi. Einangrunarstöðin í Hrísey: Tveir nýir nautgripa- stofnar í eldi í Hrísey Fyrir utan Einangrunarstöðina. Björn Henry Kristjánsson og Aðalbjörg Jónsdóttir. Tvö ný afbrigði nautgripastofna, sem ekki hafa áður sést hér á landi, eru nú í einangrun í Nauta- stöð Landssambands kúabænda í Hrísey og koma innan fárra miss- era á íslensk nautabú. I fyrrasumar komu í stöðina fósturvísar gripa af stofnunum Limousin og Aberden Angus og báru kýr í stöðinni kálf- um þessara tegunda fyrr í sumar. Þeir eru nú í eldi í Hrísey og dafna vel, enda eru þeir af fljótvaxta stofnum. Einangrunarstöðin í Hrísey er í dag aðskilin í rekstri í fjórar sjálf- stæðar einingar. Fyrst er til að taka áðumefnda nautastöð, sem Landssamband kúabænda rekur, einn hlutann rekur og kostar emb- ætti yfirdýralæknis, gæludýrastöð- in er rekin á vegum einkaaðila og einangrunar- og eldisstöð fyrir svín er á vegum Svínaræktarfélags íslands. Aðalbjörg Jónsdóttir, dýralæknir við stöðina, sem jafn- framt veitir henni daglega for- stöðu segir að mikið sé að gera í stöðinni. Mikill sé áhuginn á að flytja nýja stofna gæludýra til landsins - og nefnir því til marks að hálfs árs bið sé eftir að komast með dýr í stöðina. Tveir áðurnefndir nautgripa- stofnar eru upphaflega komnir frá Frakklandi og Skotlandi og hefur ræktun þeirra gefíst þar vel. Sér- staklega eru þeir þekktir fyrir mik- inn vaxtarhraða, án þess að það komi niður á'gæðum kjötsins, en Limousin og Aberden Angus eru stofnar sem eingöngu eru aldir til kjötframleiðslu. Kjöt af gripum þessara tegunda er meyrt og vöðvamikið og til marks um vin- sældir þess má nefna að erlendis má finna veitingastaði sem ein- beita sér að matreiðslu kjöts af þessum tegundum. Og vegna þess hve fljótvaxnir þessir gripir eru á það að skila sér í lægri fram- leiðslukostnaði og þar með lægra verði til neytenda. Aðalbjörg Jónsdóttir er sem fyrr segir dýralæknir í Hríseyjar- stöðinni og Björn Henry Krist- jánsson er bústjóri þar. Þau búast við að fyrstu sendingar sæðis úr nýju stofnunum fari frá þeim eftir rösklega eitt ár eða svo. Þá nefna þau einnig að nýjungar séu að ger- ast í svínaræktinni og nefna að nú sé kominn í íslensk svínabú nýr stofn norskra landsvína. Áfram sé unnið að kynbótum á honum. -sbs. Akureyri: Námskeið fyrir að- standendur alkóhólista Haldið verður námskeið fyrir að- standendur alkóhólista í Glerár- kirkju á Akureyri helgina 11. og 12. nóvember nk. frá kl. 9 til 17 báða dagana. Leiðbeinandi verður Ragnheiður Oladóttir, ráðgjafi, sem hefur unnið við ráðgjöf fyrir aðstandendur síðastliðin sex ár. Fyrirlestrar verða um meðvirkni, æðruleysisbænina, tilfinningar og fleira. Leitast er við að skapa öruggt umhverfi þar sem fólki er gert kleift að vinna í sínum málum. Námskeiðið nýtist vel bæði byrj- Leiðbeinandi á námskeiðinu verður Ragnheið- ur Óladóttir. endum og lengra komnum. Einkaviðtal er innifalið í námskeiðsgjaldi sem er kr. 8000. Atvinnulausir fá umtalsverðan afslátt. Nánari upplýsingar gefur Sigríður Gunnarsdóttir í símum 4612412 og 4625159, einnig er hægt að ná í Ragnheiði í síma 5615035. Deiglan: Fyrirlestur um handverk Annað kvöld kl. 20.30 heldur Ing- ólfur Ingólfsson, lektor við Kenn- araháskóla íslands, fyrirlestur í Deiglunni á Akureyri. Hann nefn- ist „Án þekkingar á handverkinu deyr menningin" og er sá fyrsti í röð fyrirlestra frá Heimilisiðnað- arskóla Islands. Gilfélagið hefur hug á að fá fleiri fyrirlestra frá skólanum í vetur og er það gott tækifæri fyrir þá sem vilja auka þekkingu sína á svið handverks og lista. Aðgangur að fyrirlestrinum er ókeypis og öllum heimill. JÓH A þessum myndum má sjá þá tvo nýju nauastofna, sem nú eru í ræktun í Hrísey, Aberden Angus (t.v.) og Limousin. HRISALUNDUR é Úrvals skinkufars kr. 299,- i Afgreiðslutími: C“okó: ■■■■■■■■■ 10.00-19.30 18.00 / \ - fyrir þig!

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.