Dagur - 08.11.1995, Side 11

Dagur - 08.11.1995, Side 11
Miðvikudagur 8. nóvember 1995 - DAGUR - 11 Hausttónleikar Smfóníuhljómsveitar Norðurlands HOTEL KEA Laugardagur 11. nóvember Lokað vegna einkasamkvæmis 4. nóvember efndi Sinfóníuhljóm- sveit Norðurlands til tónleika í íþróttahúsi Framhaldsskólans á Laugum í Reykjadal í Suður-Þing- eyjarsýslu. Auk hljómsveitarinnar komu fram Karlakórinn Hreimur í Aðaldal og Baldvin Kr. Baldvins- son, baritónsöngvari. Stjórnandi á tónleikunum var Guðmundur Oli Gunnarsson. Stjórnandi Karla- kórsins Hreims er Robert Faulkn- er en undirleikari hans Juliet Faulkner. Tónleikarnir hófust á hinu sí- vinsæla verki Jeans Sibeliusar, Finlandiu. Flutningur var fallega unninn og víða natnislega dregin fram stef í milliröddum. Þegar í þessu verki sýndi hljómsveitin hvílíkum framförum hún hefur tekið. Leikur hennar var vel sam- hæfður og hljómfagur og málm- blásarar hafa ekki oft hljómað bet- ur. í næstu tveim verkum tók Karlakórinn Hreimur þátt í flutn- ingi. Hið fyrra var Hermannakór- inn úr II Trovatore eftir G. Verdi við íslenskan texta eftir ókunnan höfund, en hið síðara Pílagríma- kórinn úr Taunnhauser eftir R. Wagner með íslenskum texta eftir Gest. Kórinn var ekki alveg hreinn í nokkrum hlutum flutnings síns á fyrra verkinu, en stóð sig annars vel. Hljómsveitin var hins vegar í háværasta lagi einkum í lokin. I Pflagnmakórnum söng kórinn án undirleiks í upphafs- hluta verksins. Hann féll örlítið, en rétti sig fljótlega af, þegar hljómsveitin kom inn í flutninginn og var hann í heild tekið fallegur. Næst lék hljómsveitin L’Ar- lesienne eftir G. Bizet. Flutningur var léttur og fjörlegur. Samhæfing var í góðu lagi og fiðlur og hom sérlega vel strokin og blásin. Baldvin Kr. Baldvinsson kom fram næst og söng aríuna Hlýðið, já hlýðið úr Ástadrykknum eftir G. Donizetti með íslenskum texta eftir Guðmund Sigurðsson. Rödd Baldvins söng fallega, en hann virtist ekki geta tekið á sem skyldi og var hljómsveitin í háværasta lagi á köflum. Karlakórinn Hreim- ur og Sinfóníuhljómsveit Norður- lands fluttu næst Suðrænar rósir eftir Jóhann Strauss yngri með texta eftir Hjört Þórarinsson og Drykkjuvísu úr óperunni Veiði- ferð Karls konungs eftir Frederik Pacius með texta eftir Hauk Ágústsson. Baldvin Kr. Baldvins- son söng einsöng í síðara verkinu. Leikur hljómsveitarinnar var ör- uggur og ákveðinn. Hins vegar var leikur hennar heldur hávær á köflum og kæfði jafnt kór sem einsöngvara. Baldvin Kr. Bald- vinsson beitti sér skemmtilega í síðara verkinu og náði talsvert góðri túlkun. Kórinn var fjörlegur og styrkur í flutningi sínum ekki síst í Drykkjuvísunni. Svíta nr. 1 úr Pétri Gaut eftir E. Grieg var næst á efnisskrá. Verkið skiptist í fjóra þætti, sem eru Morgunn, Dauði Ásu, Dans Anítru og 1 höll Dofra konungs. Smágallar komu fram í fiðlum og homum í fyrsta og þriðja þætti og spilltu þeir túlk- un nokkuð. Flutningur annars þáttar var sérlega fínlega unninn og hrífandi og örugg stígandi í fjórða þætti skapaði viðeigandi lyftingu í verkið. Landsýn eftir E. Grieg með ís- lenskum texta eftir S. J. Jóhanns- son tókst vel í flutningi hljóm- sveitarinnar, kórsins og Baldvins Kr. Baldvinssonar. I þessu verki var styrkur hljómsveitarinnar bet- ur við hæfi en í öðmm verkum tónleikanna, þar sem söngvarar og hljómsveit voru saman, þó að ekki hefði mikið meira mátt vera. TONLIST HAUKUR ÁCÚSTSSON SKRIFAR Hljómsveitin lék næst hina afar fjörlegu útsetningu Páls P. Páls- sonar á laginu Á Sprengisandi eft- ir Sigvalda Kaldalóns. Flutningur var skemmtilega ömggur og ákveðinn. Hóflegt ris og hraða- aukning g ' blæ, sem skilaði sér vel til áhe- ;nda. Lokalag Baldvins Kr. Bald- vinssonar á efnisskrá var Drauma- landið eftir Sigfús Einarsson við ljóð Guðmundar Magnússonar. Hér var Bal'L;*’ á hfimavelli og ge^i vp\. i nljómsveitinni var hins vegar nokkur órói, sem ekki hafði gætt fyrr í sama mæli á þessum tónleikum, og var leikur hennar ekki eins áheyrilegur og skyldi. Lokaatriði tónleikanna var flutningur Karlakórsins Hreims og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands á tveim lögum eftir Pál ísólfsson við ljóð Davíðs Stefánssonar: í dag skein sól og Brennið þið vitar. Hljómsveitin stóð vel fyrir sínu en hefði mátt gæta betur að styrk á stundum. Kórinn skilaði vel styrk- breytingum fyrra verksins og náði í heild góðri túlkun í því síðara. Þó voru neðri raddir heldur hljóm- litlar og skorti fyllingu í sólóhlut- um sínum í hinu síðara. Áheyrendur gerðu góðan róm að flutningi á tónleikunum í Iþróttahúsinu á Laugum. Þeir klöppuðu listamennina upp aftur og aftur og fluttu þeir nokkur aukalög. í heild voru tónleikamir gott afrek og það vel lukkað þrátt fyrir nokkra galla, sem vissulega hefði verið skemmtilegra að vera án. Af tónleikunum er hins vegar ljóst, að Sinfóníuhljómsveit Norð- urlands er komin áleiðis inn í nýtt tímabil í starfssögu sinni. Tónleik- ar hennar em orðnir tilhlökkunar- efni og samstarf hennar við kóra á Norðurlandi þáttur, sem vonandi verður efldur enn frekar í framtíð. Stærri búð að Furuvöllum 13: Sími 462 2200 Eigandi Jókó, Jóhannes Sigurðsson (til vinstri), og Sigursteinn Kristins- son, sölumaður, fyrir framan versl- unina. Mynd: BG. Erum farin að taka við pöntunum fyrir okkar vinsæla sem haldið verður raúfeskvöldið 18. nóvember. Veislustjóri: JFIosi ÓlafSs< Dinnertónlist: Karl Olgeirsson & Jóii Rafnsson Danstónlist: Hljómsveitin Herramenn 9 * Borðapantanir í síma 462 2200 HOTEL Verfærabúðin var opnuð 28. október á síðasta ári og heldur því um þessar mundir upp á eins árs afmælið. Jóhannes er ánægður með viðtökurnar og vill koma á framfæri þakklæti til viðskipta- vina fyrir þær. Hin nýja verslun, Jókó, býður upp á ýmiskonar verkfæri, stór og smá, slípivöru, málningarvörur og bílamálningu. Einnig selur Jókó heimilistæki af gerðinni Hotpoint, sem þeir Jókó-menn segja að hafa slegið í gegn, reynst endingargóð og á góðu verði. Nýtt og aukið pláss verslunar- innar fer nær eingöngu undir heimilistæki og má getá þess að Jókó og Hekla hf. hafa aukið sam- vinnu sín í milli. í því sambandi mun Jókó síðar í þessum mánuði bjóða upp á nýja heimilistækjalínu frá General Eletrik. Verkfærabúðin breytist í Jókó Verkfærabúðin Furuvöllum 13 á Akureyri hefur skipt um nafn og stækkað verslunina um helming. Nýja nafnið er Jókó. Að sögn Jó- hannesar Sigurðssonar, eiganda verslunarinnar, er nafnabreytingin til komin vegna stóraukins vöru- úrvals.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.