Dagur - 13.12.1995, Blaðsíða 1
Akureyri, miðvikudagur 13. desember 1995
240. tölublað
Skandia
Æl Lifandi samkepp
W
ni
- kegri iðgjöld
Geislagötu 12 • Sími 461 2222
dagar W
tiljóla .*j
Vilja listiðnaðarskóla í kvennaskólahúsið
Bæjarstjórn Blönduóss samþykkti í lok
nóvembermánaðar að fela bæjarstjóra að
fá Helgu Thoroddsen á Þingeyrum til fundar
við bæjarráð og fulltrúa frá atvinnumála-
nefnd til viðræðna um listiðnaðarskóla.
Pétur Amar Pétursson, forseti bæjarstjórnar
Blönduóss, segir tilganginn með samþykktinni
vera þann að listiðnaðarskóli verði staðsettur á
Blönduósi í húsnæði því sem lengst af hýsti
Kvennaskólann á Blönduósi en húsið stendur
nú autt.
„Forsætisráðuneytið samþykkti að skipa
nefnd til undirbúnings stofnunar listiðnðarskóla
og með samþykktinni er bæjarstjóm Blönduóss
að vekja athygli á því húsnæði sem hér er til
staðar og er í eigu ríkisins auk þeirra muna sem
eru í eigu skólans og myndu væntanlega nýtast
til starfseminnar. Menningarsaga skólans er
einnig mjög merkileg. Þessi vinna er þó öll á
frumstigi en bæjarstjóm vildi ganga til við-
ræðna við Helgu Thoroddsen, þar sem hún á
sæti í téðri nefnd forsætisráðuneytisins og hefur
textílmenntun með íslensku ullina sem sér-
grein," sagði Pétur Amar Pétursson. GG
Þrotabú Jóhannesar
& Helga hf. selt
tveimur aöilum:
Árnes hf.
kaupir
fasteignir
og tæki
*
Utgerðar- og flskvinnslufyrir-
tækið Árnes hf. í Þorláks-
höfn hefur keypt fasteignir og
tæki þrotabús Fiskverkunar Jó-
hannesar & Helga hf. að Ránar-
braut 4a og 4b á Dalvík en
Sparisjóður Svarfdæla á Dalvík
kaupir húsnæði og tæki þrota-
búsins að Ytra-Holti. Skipta-
stjóri, Örlygur Hneflll Aðal-
steinsson hdl., segir að hann hafí
gengið að tilboðum í þrotabúið í
byrjun vikunnar og þá skrifað
undir samninga.
„Það er að verða æ algengara
að fyrirtæki í sjávarútvegi staðsett
annars staðar á landinu komi inn í
rekstur þar sem rekstur hefur farið
í þrot. Þar iná nefna að aðilar á
Raufarhöfn og Kópaskeri samein-
uðust um rekstur Geflu hf. og Út-
gerðarfélag Akureyringa hf.
keypti Kaldbak hf. á Grenivík og
hóf þar fiskvinnslu. Þessi sala
skiptir gífurlega miklu máli fyrir
það fólk sem hefur haft vinnu hjá
Fiskverkun Jóhannesar & Helga
hf„ en þama vom um og yfir 30
störf þegar best lét. Einnig er þetta
stórt hagsmunamál fyrir Dalvík-
inga,“ sagði Örlygur Hnefill Aðal-
steinsson hdl.
„Þama verður svipuð vinnsla
og hefur verið til þessa, aðallega
koli og einhverjar aðrar tegundir
aukfisks og þessi vinnsla passar
ágætlega inn í þá kolavinnslu sem
við höfurn að mestu verið með í
Þorlákshöfn. Vonandi verður hægt
að hefja vinnslu á Dalvík strax á
nýju ári,“ sagði Pétur Reimarsson,
framkvæmdastjóri Árness hf.
Að einhverju leyti verður um
samnýtingu að ræða milli fisk-
verkunarhúsanna í Þorlákshöfn og
á Dalvík, fiski ekið á milli, eftir
því sem best hentar hverju sinni.
Stefnt er að því að halda uppi
jafnri og góðri vinnslu allt árið
með ekki færri starfsmönnum en
verið hafa fram til þessa. Ekki
hefur verið gengið frá því hver
veitir fiskvinnslunni á Dalvík for-
stöðu.
„Við sjáum ýmsan hag í því að
fjárfesta á Dalvík. Við höfum
áhuga á flatfiskinum fyrir norðan
og þeirri þekkingu og reynslu sem
þarna hefur orðið til en við seljum
okkar framleiðslu að langmestu
leyti sjálfir,“ sagði Pétur Reimars-
son. GG
Barist við eldinn
Ljóst er að tjónið af vóldum eldsvoðans í Grjótgarði skiptir milljónum
króna. Slökkvilið Akureyrar fékk tilkynningu um eldsvoðann kl. 08.22 í
gærmorgun. Slökkviðliðsmenn áttu í nokkrum erfiðleikum vegna
vatnskorts. Á myndinni hér að ofan eru slökkviliðsmenn ásamt bóndanum í
Grjótgarði, Karli Sigurvinssyni (lengst til vinstri) að berjast við eldinn. Á
innfelldu myndinni er verið að vinna að því að jafna braggann við jörðu.
Myndir: BG
Fjárhús og hlaða brunnu að bænum Grjótgarði í Glæsibæjarhreppi:
Nær hundrað fjár og nokkrir
kálfarurðu eldinum að bráð
fjárhúsi og með því um 100 fjár
og nokkrir kálfar, en sambyggðu
Qósi með liðlega tug nautgripa
tókst að bjarga og hleypa kún-
um út. Slökkvilið Akureyrar var
kallað út klukkan 08.22 og var
byggingin alelda þegar komið
var á staðinn. Erfíðlega gekk að
komast í vatn auk þess sem bæj-
arlækurinn var vatnslítill og það
tafði slökkvistarfið nokkuð.
Um eldsupptök sagði slökkvi-
liðsstjórinn á Akureyri, Tómas
Búi Böðvarsson, ekki vitað með
vissu og yrði kannski aldrei með
neinni vissu, en hann hefði illan
bifur á rafmagnsljósahundi sem
hefði verið í hlöðunni.
„Eg varð var við eldinn í morg-
un er ég var nýfarinn út eftir að
hafa verið í fjósi. I fjárhúsinu voru
um 100 kindur og þær brunnu all-
ar inni auk nokkurra kálfa en hin-
ar skepnurnar, nautgripirnir, náð-
ust út á síðustu stundu. Fjósið,
fjárhúsið og hlaðan var allt sam-
byggt,“ sagði Karl Sigurvinsson.
bóndi að Grjótgarði.
Karl sagðist ekkert vera farinn
að hugsa um það hvort hann
reyndi að útvega sér nýjan fjár-
stofn, taldi það ólíklegt að sinni
þar sem ekkert fjárhús væri til
staðar.
Útihúsin eru braggabyggingar
frá breska herliðinu sem var hér á
stríðsárunum og voru orðnar frem-
ur lélegar. Leifar braggans voru
jafnaðar við jörðu í gær með stór-
vikum vinnuvélum, en kindahræj-
unum var ekið upp á sorphaugana
á Glerárdal til urðunar. Eftir há-
degið í gær barst bóndanum hjálp
frá nágrönnum við að loka fjósinu
og koma kúnum aftur í fjós, þar
sem gat hafði rofnað í það við
hlöðuna. Þrátt fyrir að nokkurt
magn af heyi hafi farið forgörðum
er líklegt að nóg hey verði fram á
vor til að fóðra nautgripina því
nokkurt hey var í rúlluböggum
fjarri útihúsunum.
GG
Eldur kom upp í heyi í hlöðu
að bænum Grjótgarði í
Glæsibæjarhreppi á níunda tím-
anum í gærmorgun og brann
hlaðan að mestu ásamt áföstu