Dagur - 27.01.1996, Side 4

Dagur - 27.01.1996, Side 4
4 - DAGUR - Laugardagur 27. janúar 1996 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 462 4222 SÍMFAX: 462 7639 ■ SÍMFAX AUGLÝSINGADEILDAR: 462 2087 ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1500 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) AÐRIR BLAÐAMENN: AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR, GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON, SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON (íþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 464 1585, fax 464 2285). LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 462 5165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. Umhugsunarvert Mýmörg dæmi eru um það að börn og unglingar yngri en sextán ára geti keypt tóbak í verslunum. Þetta er hins veg- ar klárt lögbrot, eins og Halldóra Bjarnadóttir, formaður Tóbaksvarnanefndar, upplýsti í Degi sl. fimmtudag. í frétt blaðsins var haft eftir móður þrettán ára drengs á Akureyri að hann og vinir hans verði sér auðveldlega úti um svo- kallað fínkorna neftóbak. Þess séu mörg dæmi að verslun- arfólk krefjist ekki skilríkja, sé það í vafa um aldur við- skiptavina. Þetta er alvarlegt mál því það segir einfaldlega í gildandi lögum um tóbaksvarnir að tóbak megi ekki selja einstaklingum yngri en 16 ára. Og um það eru sérfróðir menn sammála að fínkorna tóbakið er fjarri því hættulaust, þó svo að unglingarnir telji svo vera. í fínkorna tóbakið eru , notaðar dökkar og sterkar tóbakstegundir sem í er bland- að salti, pottösku og bragðefnum. Rannsóknir sýna að í þessu eru krabbameinsvaldandi efni fyrir svo utan það að í ljós hefur komið að þeir sem nota reyklaust tóbak byrja frekar að reykja. Lögga hafsins Það þurfti engum að koma á óvart að upp úr viðræðum ís- lendinga, Rússa og Norðmanna í Moskvu um nýtingu á m.a. Norsk-íslenska síldarstofninum skyldi slitna. Fyrir- fram var búist við að viðræðurnar yrðu erfiðar og það gekk eftir. íslendingum hefur verið vel kunn stífni Norðmanna og sjálfskipaður yfirráðaréttur þeirra í Norðurhöfum, en nú hafa Rússar komist að sömu niðurstöðu. Þeir börðu í borð- ið í Moskvu og slitu viðræðunum vegna ofríkis og þver- móðsku Norðmanna. Þar með eru Norðmenn orðnir gjör- samlega einangraðir í afstöðu sinni til skiptingar norsk-ís- lensku síldarinnar. Rússar eru búnir að fá nóg, íslendingar líka og sömuleiðis Færeyingar. Evrópusambandið hefur líka verið í stríði við Norðmenn og nú berast þau tíðindi að Svíar séu líka búnir að fá yfir sig nóg af löggutilburðum Norðmanna. Málið er ekkert flóknara en það að ef Norðmenn ætla áfram að lýsa sig löggur norðurhafa og hunsa viðræður við aðrar þjóðir, þá mun það hafa ófyrirséðar afleiðingar í sam- skiptum þjóða á norðurhjara. Þessi dæmalausa þver- móðska Norðmanna hefur í för með sér áframhaldandi óheftar veiðar á þorski í Barentshafi og norsk-íslenskri síld og það getur ekki verið hagur Norðmanna. í UPPÁHALDI María Björk Ingvadóttir, fréttamaður og eigandi Kaffi Króks: Kaupi öll blöð nema Alþýðublaðið María Björk Ingvadóttir erfrá Akureyri en hefur húið á Sauðárkróki síð- an árið 1989. Maður hennar heitir Ómar Bragi Stefánsson og þait eiga tvo syni, Stefán Arnar, sem er 13 ára og Ingmr Hrannar, 9 ára. „Eg er umvaftn karlmönnum," segir hún hlœjandi. María Björk er félagsráðgjafi að mennt en hefur staifað sem fréttamað- iii■ hjá Ríkisútvarpinu frá því luin flutti til Sauðárkróks auk þess sem hún á og rekur Kajfi Krók. Vegna niðurskurðar hjá Ríkisútvarpinu á að leggja stöðu fréttamanns á Sauðárkróki niður en María Björkverður áfram fréttaritari á staðnum. A móti kemur að rekstur kajfihússins er orðinn umsvifameiri en áður og því nóg að gera hjá Maríu Björk. En hvað skylcli vera í uppá- haldi hjá þessari athafnakonu? Hvaða matur er í mestu uppáhaldi hjá þér? Allur sterkkryddaður matur, sérstaklega indverskur matur. Uppáhaldsdrykkur? Mér finnst rauðvín með sódavatni mjög gott. Hvaða heimilsstörffinnst þér skemmtilegustlleiðinlegust? Ætli sé ekki skást að strauja því þá get ég gert margt annað í einu eins og að horfa á sjónvarpið eða hjálpa strákunum við lær- dóminn. Hinsvegar fmnst mér alveg skelfilega leiðinlegt að hengja út á snúru. Stundarþá einltverja markvissa Itreyfingu eða líkamsrœkt? Ég er byrjuð í dansi hjá systur minni og hún hefur líka dregið mig út að ganga á hverjum degi að undafömu. María Björk Ingvadóttir. Ert þú í einhverjum klúbbi eða fé- lagasamtökum? Ég er í Bamaheil! og Heimili og skóla. Hvaða blöð og tímarit kaupir þú? Ég kaupi eiginlega öll þessi blöð nema Alþýðublaðið. Ég kaupi Dag, DV, Feyki, Morgunblaðið og Tímann. Ég kaupi tímarit annað slagið í lausasölu og er m.a. mjög hrifin af kvennablaðinu She. Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér? Á valdi örlaganna eftir Sigurð Demenz Franzson og Hægur vals í Cedarbend eft- ir Rober James Waller. / hvaða stjömumerki ert þú? Ég er týpískur bogmaður. Hvaða tónlistarmaður er í mestu uppáhaldi hjá þér? Þeir sem mér þykir vænst um koma úr ættinni minni. Afi minn var tónskáld og bæði pabbi og bræður mínir eru miklir tónlistarmenn, Afi hét Jóhann, pabbi Ingvi Rafn og bræður mínir heita Ingvi Rafn og Jóhann. Uppáhaldsleikari? Mér finnst Christopher Lambert meiri- háttar. Hvað liorfir þú mest á ísjónvarpi? Fréttir eru eiginlega það eina sem ég horfi á. Á hvaða stjórnmálamanni hefurðu mest álit? Sem manneskju hef ég mikið álit á Stef- áni Guðmundssyni, tengdaföður mínum. Ég þekki hann og veit fyrir hvað hann stendur en hann er á þingi fyrir Fram- sókn. Hver er að þínu mati fegursti staður á íslandi? Aðalvtk á Homströndum. Ég hef komið þangað einu sinni en mörgum sinnum í huganum. Hvar vildirðu helst búa ef þú þyrftir að flytja búferlum nú? Helst í heitu landi langt suður í höfum. Efþú ynnir stóra vinninginn í lóttó- inu hvernig myndir þú eyða pening- unum? Ég myndi reyna að fjárfesta í bakaðgerð svo ég næði fullum vinnukrafti á ný. Síð- an færi ég með fjölskylduna og annað gott fólk í góða og langa heimsreisu. Hvernig vilt þú lielst verja frístund- um þínum? Þegar ég þarf að hlaða batteríin vil ég vera nálægt strákunum mínum þremur og langt í burtu frá öllu stressi. Hvað œtlar þú að gera um helgina? Ég kemst varla hjá því að vinna en síðan ætla ég að gera eitthvað sérstaklega spennandi með þeim sem mér þykir vænst um. AI MEÐ MOR6UNKAFFINU ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON Bessastadabúggí Það hefur ekki verið orðað við mig að bjóða mig fram til forseta og því þurfa landsmenn ekki að bíða í spennitreyju eftir að ég gefi það upp hvort ég ætli fram. Fólk getur sofið rólegt eða þá farið að vinna að framboði Ragnars organ- ista, sem enn sem komið er er eini valkosturinn sem þjóðin festir hönd á til setu á Bessastöðum. Að vísu hefur Ragnar ekki fundið þá meðmælendur sem nauðsynlegir eru til að fleyta honum í framboð, en nægur tími er til stefnu. Utspil Ragnars var snilldarlegt innlegg í Langholtsendaleysuna og það sameinaði á einkar hagleg- an hátt Langholtið og fjölmiðla- pælingar um Bessastaði. Ragnar sá auðvitað að með því að detta si- sona óvart inn í væringar í Lang- holtssöfnuði gæti hann orðið sér úti um ómælda ókeypis auglýs- ingu. Nú opnar maður vart sjón- varpið öðruvísi en Ragnar forseta- frambjóðandi sitji við Langholts- orgelið. Gárungarnir segja sjálf- gefið að séra Flóki verði forseta- ritari nái Ragnar kjöri, en reyndar er Ragnar ekki alveg viss um að séra Flóki ætli að styðja sig. Þetta er sem sagt nokkuð flókið mál. Forsetaframboðsumræðan er miklu umfangsmeiri í fjölmiðlum nú en þekkst hefur fyrir fyrri for- setakjör. Það þarf engum að koma á óvart. Fjölmiðlunin er miklu víðtækari en var t.d. árið 1980 þegar Vigdís Finnbogadóttir var kjörin forseti. Nýjar útvarps- og sjónvarpsstöðvar hafa komið til sögunnar og dagblöðin eru á margan hátt „frakkari“ í skrifum. Bollaleggingarnar eru meiri, að ekki sé nú talað um skoðanakann- anir, sem nú eru gerðar löngu áður en fólk býður sig formlega fram. Og sigurvegurunum í þessum skoðananakönnunum er slegið upp, samanber séra Pálma í DV í síðustu viku, rétt eins og þeir séu komnir innfyrir þröskuldinn á Bessastöðum. Fjölmiðlar eru með öðrum orð- um meira ráðandi um gang for- setaumræðunnar en áður hefur þekkst og út af fyrir sig kemur það ekki svo mjög á óvart. Auðvitað er það svo að þeir sem virkilega eru að hugsa um að skella sér í slaginn, verða að „hafa fjölmiðl- ana með sér“, ef svo má segja. Þeir vita að í gegnum fjölmiðla ná þeir til þjóðarinnar, það er ódýr- asta leiðin. Þetta hefur Guðrún Pétursdóttir haft alveg á hreinu þegar hún gaf færi á viðtali við Dagsljós sl. mánudagskvöld. Sumir myndu orða það svo að Guðrún hafi tekið nokkra áhættu með því að veita viðtal áður en hún tæki um það ákvörðun að hella sér í slaginn. Það er nokkuð til í því, en að margra mati stóðst hún prófið og heyrt hef ég í mörg- um sem segja að Guðrún hafi skorað umtalsvert með þessu við- tali. í það minnsta viti þjóðin nú hvernig Guðrún þessi líli út. Það er svo annað mál hvort nefnd Guðrún Pétursdóttir býður sig fram, en ekki þyrfti það að koma á óvart. Hún virðist í það minnsta hafa mikinn áhuga á Bessastöð- um. Annar kvenkyns forsetafram- bjóðandi er greinilega volgur, nefnilega Guðrún Agnarsdóttir, læknir og fyrrverandi alþingis- kona Kvennalistans. Guðrún er komin með upp á vasann undir- skriftir fjölda fólks sem skorar á hana að fara fram. Undirskriftir eru gott veganesti fyrir forseta- frambjóðanda og því verður að meta það svo að meiri líkur séu en hitt að Guðrún helli sér í slaginn. Karlpeningurinn er óskrifað blað og erfitt að festa hönd á því hverjir séu líklegir að blanda sér í baráttuna. Mig minnir að Völva Vikunnar hafi spáð því að mynd- arlegur karlmaður yrði kjörinn á Bessastaði. Nú er auðvitað bróð- urpartur karlpenings í landinu myndarlegur og því er úr vöndu að ráða. Séra Pálmi er að sönnu nokkuð myndarlegur, svona hár og grannur, og Davíð er sjarmer- andi á sinn hátt, eða það skilst mér á konum. Báðir koma þeir því til greina, ef mark er á Völvunni tak- andi. Ólafur Jóhann Ólafsson, fyrrverandi Sony-fursti, kemur líka til greina. Hann er nokkuð álitlegur kostur, hár og grannur, kann ensku, hefur búið erlendis, þekkir tölvutæknina út og inn, dúxaði hér á árum áður í mennta- skóla, er vinsæll rithöfundur og sonur eins af síðari tíma þjóð- skáldum. En kannski er hann ekki orðinn 35 ára, sem er Iögum sam- kvæmt lágmarksaldur til þess að bjóða sig fram? Með sama áframhaldi verður búið að nefna þúsund mögulega forsetaframbjóðendur til sögunn- ar. A meðan heldur veisla fjöl- miðlanna áfram. Þeir geta hringt í alla þessa kandidata og borið und- ir Jrá spuminguna um hvort ætli fram eða ekki. En einhvem veginn þykir mér líklegt að umræðan fari að skýrast. Ekki kæmi á óvart þótt um miðjan næsta mánuð liggi fyr- ir í stórum dráttum um hverja val- ið stendur þann 29. júní nk.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.