Dagur - 27.01.1996, Blaðsíða 10

Dagur - 27.01.1996, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Laugardagur 27. janúar 1996 Óskar Ingimundarson hefur náð góðum árangri með Leiftursliðið. í formi, því hægt er að sjá það svart á hvítu og það er ekkert laumuspil í kringum það,“ sagði Oskar. Hann sagði að hópurinn mætti á fótboltaæfingar tvisvar í viku, auk þess sem liðsmenn væru í Mætti aðra tvo daga. í janúar byrjaði hópurinn síðan að hlaupa úti. fe Skipar Leiftursliðið sér í hóp bestu liða landsins? - „Höfum alarei haft svona breiðan hóp leikmanna“ segir þjálfarinn Óskar Ingimundarson Sú var tíðin að Ólafsfirðingar þurftu að fara til Akureyrar til að horfa á 1. deildarleiki í vinsælustu íþrótt landsins, knattspymunni, en nú er því öfugt farið. Akureyring- ar og aðrir Norðlendingar sjá 1. deildarleiki ekki annars staðar á Norðurlandi, heldur en í Ólafs- firði. Leiftursliðið vann sig upp í 1. deild 1994 og reiknað var með að liðið mundi berjast í neðri hluta deildarinnar. Utkoman var fimmta sætið og segist Óskar lngimundar- son, þjálfari liðsins, hafa verið hundsvekktur með það, þó margir hafi talið það viðunandi árangur.“ Við sættum okkur ekki við fimmta sætið næsta sumar, það er alveg klárt." Heyra má af máli Leifturs- manna, að þeir eru reiðubúnir til að takast á við topplið deildarinn- ar og knattspyrnudeildin hefur kostað miklu til að fá sterka leik- menn til liðs við félagið fyrir sum- arið. Dagur leit við á æfingu hjá liðinu í reiðhöll í Kópavogi og tók Stál í stál. Davíð Garðarsson, sem nýlega gekk til liðs við Þórsara, hef- ur æft með Leiftursmönnum. Hér er hann í baráttu við Gunnar Má Másson. þjálfarann og liðsins tali. nokkra leikmenn Ekkert gefíð eftir Óskar Ingimundarson, þjálfari liðsins, lét vel af aðstöðunni í reiðhöllinni og baráttugleði leik- manna sinna. „Hér er ekkert gefið eftir, enda á það að vera þannig og verður þannig í sumar. Það verður slegist um hverja einustu stöðu og það er hlutur sem ekki hefur verið í okkar herbúðum á undanfömum árum.“ Tíu leikmenn voru mættir á æf- inguna í Kópavoginum, nokkrir voru fyrir norðan í jólafríinu og þá er Radislav Lazorik ekki væntan- legur fyrr en í apríl að sögn Ósk- ars. „Hann er að spila í Slóvakíu og honum hefur gengið mjög vel. Hann er búinn að skora fullt af mörkum fyrir lið sitt, og hann kemur til með að gera það fyrir okkur líka,“ sagði þjálfarinn. A æfingunni í reiðhöllinni, sem er upphitaður malarvöllur, var að loknum upphitunar- og teygjuæf- ingum skipt í tvö lið. ðskar þjálf- ari var að sjálfsögðu með og mið- að við áreynsluna hefði það getað hvarflað að einhverjum að hann ætli sér að komast í liðið. Eftir æfinguna var Óskar spurður að því hvort hann væri strangur þjálfari? „Nei, ég er alveg eins og lamb, enda hefur margt breyst í þessum málum. Hlutimir eru orðnir öðru- vísi en þegar ég var að spila fyrir tíu, fimmtán árum. Maður er orð- inn hálfgerður kerlingaþjálfari. Vísindin eru komin meira inní þjálfunina. Við notum til dæmis mjólkursýrumæla og það er eitt af því sem ekki þekktist fyrir nokkr- um ámm. Við mælum leikmenn okkar fjórum sinnum á ári og er- um búnir að gera sl. þrjú ár. Við getum síðan séð mælingar síðustu ára og líkamlegt form manna. Það er ekki nóg að halda að menn séu Knattspyrnulið á höfuðborgarsvæðinu hafa notað reiðhallir í auknum mæli undir æfingar. I þeim er skjól fyrir veðri og vindum og margar þeirra eru upphitaðar. Myndin er frá æfíngu Leiftursliðsins í reiðhöll í Kópavoginum. Atli Knútsson og Óskar þjálfari berjast um knöttinn og af myndinni að dæma virðist Atli hafa betur í þetta skipti. Gunnar Már Másson: Atli Knútsson: „Leifitur var spennandi kostur“ Izudin Daði Dervic: Nýtt fyrir mig að hlaupa í slyddu og slabbi „Þetta er í fyrsta skipti sem ég er með liðinu á undirbúningstímabil- inu,“ segir Gunnar Már Másson, hinn vöðvastælti sóknarmaður Leifturs. „Síðustu fjóra vetur hef ég verið í Alabama í 20 stiga hita og sól og það er nýtt fyrir mig að hlaupa í slyddu og slabbi.“ Gunnar Már lærði íþrótta- og hreyfifræði í skólanum í Alabama en er alkominn heim. Hann starfar sem einkaþjálfari í líkamsræktar- stöðinni World Class auk þess sem hann er að læra flug. - En hvemig líst honum á sum- arið sem framundan er? „Eg er mjög ánægður og sýnist sem norðanliðin, Leiftur, KA og Þór séu að vakna til lífsins og far- in að ná sér í leikmenn til Reykja- víkur. Eg held að það sé ntjög mikilvægt fyrir ungu kynslóðina á Norðurlandi að það sé uppgangur í knattspymunni og starfsemin sé að vaxa, því hún er búin að liggja svolítið niðri. Mér finnst sem já- kvæðir hlutir séu að gerast, stjórn- armenn og félög fyrir norðan eru vona að þeim takist að vinna sér sæti í 1. deildinni,“ sagði Gunnar. „Hvað sjálfan mig varðar getur leiðin aðeins legið uppávið. Eg sleit vöðva aftan á læri síðasta sumar og spilaði þannig allt sum- arið. Ég hef aldrei verið meiddur áður og átti satt að segja hálferfitt með að trúa því að eitthvað slíkt gæti komið fyrir mig og að það væri ekki nóg að taka inn lýsi og borða hollan mat.“ - En finnst þér ekkert skrýtið að æfa á Reykjavíkursvæðinu mikinn hluta ársins en leika svo knattspyrnu í öðrum landshluta? „Norðurland er náttúrulega vetrarparadís fyrir áhugamenn urn skíðaíþróttina, en fyrir fótboltann er engin aðstaða og við höfum ekkert að gera fyrir norðan. Við gætum jú farið og hlaupið í íþróttasölum, en þá værum við einfaldlega skrefi á eftir Reykja víkurfélögunum og það gengur ekki. Við ætlum okkur að vera á undan þeim.“ fe Gunnar Már Másson: „Það er ekki nóg að taka inn lýsi og borða hollan mat,“ segir Gunnar Már, sem meiddist í fyrsta skipti á ferlinum í fyrra. að leggja sig fram til að ná sem bestum árangri næsta sumar og ég óska KA og Þór alls hins besta og Lék í eina og hálfa sekúndu „Það var kominn tími á að yfir- gefa KR, ef ég hefði setið lengur á bekknum, þá hefði ég staðnað. Leiftur var mjög spennandi kost- ur, lið á uppleið sem búið er að fá góða menn og ég hafði ekkert heyrt annað en gott um þessa stráka sem eru í liðinu,“ segir Atli Knútsson, markvörður, sem ný- lega skipti yfir í Ólafsfjarðarliðið. Atli er markvörður ungmenna- landsliðsins, landsliðs sem skipað er leikmönnum 20 ára og yngri, en fékk lítið að spreyta sig hjá KR. „Ég lék með liðinu í eina og hálfa sekúndu á síðasta tímabili, ég kom inná í homspyrnu gegn ÍBV og leikurinn var flautaður af þegar boltinn var ennþá í loftinu. Arið á undan spilaði ég tvo leiki og það er öll sú reynsla sem ég hef af 1. deildinni." Atli Knútsson, markvörður. Atli hefur verið KR-ingur frá barnæsku, en sagðist ekki finna fyrir miklum breytingum við fé- lagaskiptin. „Það er alltaf erfitt að koma inn í hóp, en ég hef ekki kynnst öðru en að það sé góður andi í liðinu. Ég bý heima og sæki æfingar héma eins og alltaf, en svo veit maður bara hvað stendur fyrir dyrum næsta sumar." - Nú hefur Þorvaldur Jónsson staðið í markinu undanfarin ár. Ertu ekki hræddur um að þú þurfir að vera á bekknum eitthað lengur? „Þetta verður hörkusamkeppni. En ef menn eru hræddir við sam- keppni hafa menn ekkert að gera í fótbolta. Ég veit alveg hvar ég stend, þetta er bara spuming um það hvað hann hefur upp á að bjóða,“ sagði Atli. fe Meiri vinátta en hjá öðrum liðum Izudin Daði Dervic hefur víða komið við, frá því að hann kom hingað til lands frá Bosníu. Ólafs- fjarðarfélagið er fimmta liðið sem hann leikur með, enda kannski ekkert skrýtið þar sem hann segist hafa gaman af því að skipta um félög. Daði byrjaði með Selfossi en hefur síðan spilað með FH, Val og KR. „Ég kann vel mig hjá Leiftri. Þetta eru góðir strákar og góður hópur og mér finnst vera meiri vinátta hérna innan liðsins heldur en hjá öðrum liðum sem ég hef leikið með. Menn eru ekki alltaf að flýta sér heim eftir æfingar, eins og í svo mörgum liðurn," segir Daði, sem leikið hefur með KR síðustu þrjú tímabil. „Mér finnst eins og þegar mað- ur er búinn að vera jafn lengi hjá félagi eins og ég var hjá KR þá sé kominn tími á að skipta um lið. Þegar leikmaður skiptir um félag þarf hann að byrja á að sanna sig og að því leyti finnst mér nauð- synlegt að skipta um félög.“ Daði er 33 ára gamall. Hann segir að hann sé ekkert farinn að hægjast, en óneitanlega komi að því innan nokkurra ára. Þá segist hann hafa áhuga á að snúa sér að þjálfun. Hann þjálfaði yngri flokk hjá Selfossi, fékk ekki þjálfara- starf hjá KR, þar sem félagið vill ekki að leikmenn meistaraflokks séu þjálfarar í yngri flokkum. Izudin Daði Dervic hefur leikið með fjórum íslenskum liðum frá því hann kom hingað til lands fró Bosníu. - En á Leiftur möguleika á að blanda sér í toppbaráttuna næsta sumar? „Það er erfitt að svar því svona fyrirfram. IA er nteð besta liðið og það skiptir engu máli hvort þeir missa Sigurð Jónsson eða ekki. Það kemur þá bara einhver í hans stað. KR er með gott lið, ÍBV og Leiftur og þessi lið eru líklegust. Svo finnst mér Stjaman vera með reglulega gott lið og ég yrði ekki hissa á því þeir yrðu í toppbarátt- unni líka.“ fe

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.