Dagur - 27.01.1996, Blaðsíða 6

Dagur - 27.01.1996, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Laugardagur 27. janúar 1996 5 - Guðmundur L. Friðílnnsson, bóndi og rithöfundur á Egilsá í Skagafírði, sóttur heim Guðmundur Liijendal í garðin- um heima á Egilsá. „Ég hef all- ar götur verið ákaflega fanginn af vorinu, gróðri þess og lífi; öllu sem lifnar og grær við yl sólar og dögg himins.“ Mynd: sbs. að mold með hendinni, loks vökv- að og fullgengið frá. Oft þurfti að flytja vatnið í brúsum alllanga leið. Þetta var mikið verk og erfitt, en undantekning ef planta drapst. Næst kom svo bjúgskóflan og þá varð allt auðveldara. Loks kom plöntustafurinn fyrir bakkaplönt- umar,“ segir Guðmundur. Gull í hönd framtíðar Það var fyrir tæpum tíu árum sem Egilsá varð viðurkennt land til nytjaskógræktar. Auk trjágarðs við bæjarhúsin í landi jarðinnar eru 29 ha girtir af og hafa þúsundir plantna þar verið gróðursettar, þó nokkrar eyður séu eftir á þessu svæði sem þurfi að bæta í. Guð- mundur segir að ef landgræðsla og skógrækt hér á landi eigi að verða almenn þurfi að virkja bændur í því efni. En það þurfi peninga. „Það kostar mikla vinnu og peninga að girða og halda girðing- um við. Mikil vinna er að halda skóginum við og bændur geta ekki lagt slíkt af mörkum án launa. Þama er verið að vinna fyrir fram- tíðina, en enginn étur hugsjónir þó þær kunni að vera fyrir hendi. Lítil von er til skógamytja fyrr en eftir áratugi og þá þurfa vinnslustöðvar að vera fyrir hendi. Sannast það hér sem skáldið góða frá Fagra- skógi kvað; að fáir njóta eldanna sem fyrsti kveikja þá. - En til þess að reyna að vera raunsær þá held ég að flestir bændur ættu að gæta þess að enginn veit hveming bú- skapur þróast í framtíðinni og á hvem hátt landið verður nytjað. En stærsta málið vona ég að alltaf verði að fegra og bæta landið og skilja við það, á allan hátt, betra en við var tekið. Landið okkar er önn- ur auðlind. Fólk verður að geta lif- að af landinu í sátt. Hver króna, sem lögð er til landbóta, er gull í hönd framtíðar," segir Guðmund- Guðmundur Liljendal Friðfinns- son, bóndi og rithöfundur á Egilisá í Skagafirði, hélt fyrir skemmstu upp á 90 ára afmæli sitt. Hvað hann snertir er aldur þó fremur afstætt hugtak, því svo er að sjá að hann búi enn yfir nokkurri snerpu og fjöri æsku- mannsins - bæði til sálar og lík- ama. Hann segir sjálfur að slitur ein séu eftir. „Ég hef aldrei verið mikið gef- inn fyrir það að tilkynna um mínar fyrirætlanir. En endist mér heilsa og kraftar langar mig að sjá betra mannlíf og gera eitthvað fyrir landið og jörðina mína, sem mér hefur verið trúað fyrir. Um þetta kemst ég svo að orði í litlu ljóði sem heitir Vikadrengur: ... feginn vildi ég vera áfram vikadrengur þinn og láta laufblað gróa. Ég vona að öll viljum við sjá betra mannlíf - og fegurri og gróðursælli jörð í margháttuðum skilningi. En öll lútum við skaparans vilja. Það er lögmál sem ekki verður breytt, enda er þetta gott lögmál," sagði Guðmundur í upphafi þegar blaða- maður Dags sótti hann heim fyrir skemmstu. Guðmundur er fæddur og upp- alinn á Egilsá og hefur alið þar all- an sinn aldur. Arið 1932 kvæntist hann Önnu Sigurbjörgu Gunnars- dóttur, bónda í Keflavík á Hegra- nesi. Þetta sama ár hófu þau hjón búskap á Egilsá og tóku þá við af foreldrum Guðmundar, þeim Frið- finni Jóhannssyni og Kristínu Guðmundsdóttur. Fanginn af vorsins gróðri „Ég hef allar götur verið ákaflega fanginn af vorinu, gróðri þess og Iífi; öllu sem lifnar og grær við yl sólar og dögg himins. Viðurkenni þó að allar árstíðir hafa sína töfra. Ein meðal minna fyrstu minninga tengist því að ég sat uppi á þaki torffjóssins heima, þar sem ég ræktaði baunimar mínar. Þetta vom auðvitað heilbaunir sem ég lét spíra í vatni og sáði svo í ofur- lítinn garð, sem ég girti með bandspottum. Þama gat ég setið timum saman og látið mig dreyma. Dagdraumar og loftkastalar hafa alla tíð verið drjúgur partur af minni vitleysu í lífinu," segir Guð- mundur - og hann bætir því við að hann hafi snemma á sínum bú- skaparferli byrjað á túnrækt og stór hluti af hans ræktunarlandi sé unnin með hestaverkfærum. Við íbúðarhúsið á Egilsá er stór trjágarður og hæstu trén í honum, sem em björk, reyniviður og barr- tré, auk limgerða, mælast yfir 15 metrar á hæð. „Ekki þótti öllum það búhnykkur þegar ég tók spildu af besta túninu og lagði til trjá- ræktar. En eftir því sé ég aldrei. Lengi var venja að grafa holu fyrir hverja plöntu, bera gamlan búfjár- áburð í og pæla svo saman. Þá var plöntunni komið fyrir af mikilli natni, rótum var hagrætt og sópað ur. Þetta skilti blasir við vegfarendum þegar ekið er heim að Egilsá og ber það vitni áhuga Guðmundar og ræktarsemi hans til umhverfismála. Mynd -sbs

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.