Dagur - 01.03.1996, Síða 4

Dagur - 01.03.1996, Síða 4
4 - DAGUR - Föstudagur 1. mars 1996 UTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 462 4222 ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1500 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓUFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) AÐRIR BLAÐAMENN: AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR, GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON, SIGURÐUR BOGISÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON (íþróttir), BLAÐAMAÐUR HÚSAVÍK- SÍMIÁ SKRIFSTOFU 464 1585, FAX 464 2285. HEIMAStMI BLAÐAMANNS 464 3521 LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 462 5165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 462 7639 SÍMFAX AUGLÝSINGADEILDAR: 462 2087 LEIÐARI Húsnæðislánakerfíð Það er aldeilis makalaust hversu illa virðist ætla að ganga að koma á vitrænu húsnæðiskerfi á íslandi. Lengi hefur það verið boðorð númer eitt að allir eigi að eiga sitt eigið húsnæði og á tímum óðaverð- bólgu og í þá daga er fjármagnið var óverðtryggt, var ekki jafn erfitt og það er í dag að eignast sitt eigið húsnæði. Þetta boðorð virðist ekki vera leng- ur jafn heilagt og það var og til þess að létta fólki með lágar tekjur róðurinn var smíðað félagslegt íbúðarkerfi. Þetta kerfi hefur reynst meingallað, eins og at- hugun Stefáns Ingólfssonar, verkfræðings, hefur leitt í ljós og birst hefur í Neytendablaðinu. Það kemur sem sagt á daginn að greiðslubyrðin í félags- lega íbúðarkerfinu er umfram það sem láglaunafólk- ið ræður við. Og er þá nema von að spurt sé; fyrir hvern var þetta kerfi smíðað, eða hefur það ef til vill farið gjörsamlega úr böndunum? Það er athyglis- verð niðurstaða Stefáns Ingólfssonar að í Búseta- kerfinu sé greiðslubyrðin minnst og hún þarf út af fyrir sig ekki að koma á óvart. Um félagslega íbúðarkerfið eiga menn ekki að ríf- ast á pólitískum nótum. Þess í stað eiga menn að hafa manndóm í sér og viðurkenna þá staðreynd að núverandi kerfi er óviðunandi og á því verður að finna viðunandi lausn áður en það springur í ioft upp. Sveitarfélögin í landinu eru mörg hver að slig- ast undan þessu kerfi, það er ómótmælanleg stað- reynd. Það er hárrétt sem félagsmálaráðherra hefur látið hafa eftir sér að félagslegar fbúðir hafa reynst allt of dýrar í byggingu og á byggingu þeirra hefur verið litið sem atvinnumál út um allt land. Til þess að standa undir svo fjárfrekri fjárfestingu hafa fjár- skuldbindingar láglaunafólksins verið of miklar. Þessu til viðbótar hefur kaupskylda íbúðanna reynst mörgum sveitarfélögum fjárhagslega ofviða. Á þessum vettvangi hefur sú skoðun verið viðr- uð að færa beri húsnæðiskerfið á íslandi inn í bank- ana. Það er nauðsynlegt að kannað verði í fullri al- vöru að stíga þetta skref. I það minnsta sakar ekki að láta gera á því nákvæma úttekt og vonandi verð- ur það einn liður í starfi nefndar sem ætlað er að skoða félagslega íbúðarlánakerfið. Þeirri spurningu verður að fást svarað hvort þeim fjármunum sem fara í að reka dýrt apparat eins og Húsnæðisstofn- un ríkisins, sé betur varið á öðrum sviðum. í upphafí skal endinn skoða Dagur birti 21. febrúar sl. grein eftir Sigurð J. Sigurðsson bæjarfulltrúa, sem bar yfirskriftina „Úrbætur við sundlaug 395 milljónir!" Þessi grein er að því leyti merkileg að hér skrifar leiðtogi og aðalforsvars- maður fyrrverandi meirihluta í bæjar- stjóm Akureyrar. Þetta er sá maður sem mestu gat ráðið um það hvemig staðið var að undirbúningi við hönnun og framkvæmdir sem hefjast skyldu á sundlaugarsvæðinu 1994. Allir voru sammála um að úrbætur á þessu svæði voru löngu tímabærar og hjá þeim yrði ekki komist lengur. Engir kostnaðar- útreikningar voru gerðir Ég gagnrýndi hins vegar oftsinnis hvemig staðið var að þeim undirbún- ingi, mér fannst þau vinnubrögð sem voru viðhöfð oft á tíðum dæmi um hvemig ekki á að vinna, engir faglegir kostnaðarútreikningar vom lagðir fram, einungis ágiskanir. Óskatölur um kostnað 160-200 milljónir í þeim forsendum sem í upphafi voru gefnar við útboð hönnunar að breyting- um, endumýjun og nýbyggingum við Sundlaug Akureyrar í mars 1993, var gert ráð fyrir að núverandi sundlaug yrði breytt, auk 300 fermetra nýbygg- ingar ásamt kjallara kæmu útiklefar og sturtur, nuddpottur, vaðlaug, vatns- rennibraut, eimbað og gagngerar end- urbætur yrðu gerðar á núverandi mann- virkjum. Þetta svæði var hugsað sem paradís fjölskyldunnar og heildarkostn- aður sagður verða 160-200 milljónir og að verkinu mætti ljúka á 4 ámm. Síðan var reiknað með svæði þar sem kæmi ný laug og pottur eftir nokkur ár. Verkið gert umfangsmeira Efnt var til hugmyndasamkeppni meðal hönnuða á Akureyri og eftir að hugmyndir þeirra höfðu verið skoðað- ar var ljóst að gera yrði ráð fyrir stærri nýbyggingu en menn höfðu áætlað í upphafi. Þann 29. desember 1993 á fundi með samstarfshópi um sundlaugarmál, sem skipaður hafði verið af bæjar- stjóm Akureyrar, kynntu þeir hönnuðir sem valdir höfðu verið til verksins, teikningar að nýju húsi og breytingum á eldra húsi og lóð. Stærð nýja hússins var þá orðin um 500 fermetrar á fyrstu hæð og um 200 fermetrar í kjallara. Tillögumar voru samþykktar í íþrótta- og tómstundaráði 11. janúar 1994 og í bæjarstjóm sama dag. Hvað er búið að vinna? Hér skulum við staldra við og skoða hvað þegar hefur verið framkvæmt af verkinu sem Sigurður ætlaði að láta framkvæma fyrir 160-200 milljónir. Búið er að byggja eimbað, vatns- rennibraut ásamt vaðlaug og buslupoll fyrir böm og að ganga mjög glæsilega frá öllu svæðinu norðan gömlu sund- laugarinnar. Þennan áfanga segir Sig- urður hafa kostað 65 milljónir og gerir ekki ágreining úr því! Hvað á eftir að framkvæma? Þá skulum við skoða hvað er eftir að framkvæma. Það á að gera gagngerar breytingar á gamla sundlaugarhúsinu, byggja nýtt hús sem samkvæmt nýjustu teikn- ingum skal vera 530 fermetra hæð ásamt 402 fermetra kjallara með til- heyrandi tækjum, tólum, vélum og hreinsibúnaði fyrir nýja keppnislaug sem skal vera 25x16,2 m að stærð, auk þessa skal samkvæmt áætlunun- um sem Sigurður stóð sjálfur fyrir, byggja bæði nýjan pott og nuddpott og að sjálfsögðu að ganga frá lóðinni allri með svipuðum glæsibrag og gert hefur verið með norðursvæðið. Allt þetta virðist Sigurður hafa ætl- að að framkvæma fyrir 95-135 millj- ónir! Ennþá stækkaði verkið I dag 1996 liggja fyrir teikningar af nýbyggingu 530 fermetra á fyrstu hæð og 402 fermetrar í kjallara, þetta eru nettó stærðir byggingarinnar. Hvað hefur gerst í millitíðinni? Þetta er stækkun frá teikningunum sem höfðu verið samþykktar 1993. Búið er að bæta inn á teikningamar nauðsynlegri aðstöðu sem ekki var fyrir, svo sem skiptiklefa fyrir fatlaða 9 fermetrar, herbergi fyrir sundkenn- ara og þjálfara 12 fermetrar o.fl. Breyting á framkvæmdaröð Tekið hefur verið tillit til samþykktar frá íþrótta- og tómstundaráði um breytingar á framkvæmdaröð á þá leið að í næsta áfanga skuli byggja nýju laugina upp á 25x16,2 m. Hún hafði ekki verið á upphaflegri 4 ára áætlun, en gert hafði verið ráð fyrir lauginni síðar eins og áður kom fram. Þetta hafði í för með sér að stækka varð kjallara nýbyggingarinnar til að koma fyrir nauðsynlegum tækjum og hreinsibúnaði fyrir þessa nýju laug. Breytingin á framkvæmdaröðinni var samþykkt í bæjarstjóm í janúar sl. og þótti vænlegt að fá þessa nýju laug í gagnið sem fyrst. Oútfyllt ávísun á bæinn Eins og fyrr segir var upphaflega áætlað að heildarkostnaðurinn við verkið allt yrði á bilinu 160-200 millj- ónir. Þetta vora tölur sem að menn gáfu sér, nokkurs konar óskatölur, án þess að fram hefðu farið nákvæmir, faglegir útreikningar af neinu tagi. „Það er mér aftur á móti alveg óskilj- anlegt hver ástæðan er fyrir því að Sigurður J. Sig- urðsson ryðst nú fram á ritvöllinn til þess að agnúast út í núverandi meiri- hluta vegna fram- kvæmda og hönn- unar við Sundlaug Akureyrar.“ Gísli Bragi Hjartarson Úrbætur við sundlaug 395 milljónir! A «tUvx t* <*>.»» í 1 í>*<* aIE^KHu " ' * t fi M« «?ao4 i sV.iy.*VK< I ?«<.»* »<AKt«*í::voy. vx *o»y «■ 'MiX/xf A»»vií» »»\3 > )ÍK» <)N» í m»»» Kxf >f< :■><« «*<<>:<■ i »S J>»x« xSk««w»k< h*k<«V- S <»*;<■>: < 'XVv !*<• r< »'■■>,<■'■. SÍVVVM >»k xf> <<•»*. ><x« SýVM, »<<■*■<: >■><<<< y; i {x<X>> (<*. v» gO’W ** te< v» l'HHdwfÚS «!)«.{■ »V>< >MC 1 <:•«■« K*j«x<v l<*v> :v<S»»« g»x>fi< l»»x<«x<« Axí.V jx«»A f>*A)»t»4 wí. ■'•.:« >>ft vwkiM'w «vi IX?% <*<« Va< t-vfrmt tí i frM »*«< K*H •/MulX J)»l*t><K *><>« 14* >■< *«)>«<«» £*)<* <>«»{:<: t«« >VJ» V> í'«t*> "«<» »>)< ») t«S«< Íxmv* »■*> xfy '<mi vw >):<«»>»:<•>. ÁfrMttiukt ftjmtitimíLt ■’< ■*>■»»> -«>1 « v* *»>>» <!<)■» * »x4>V»» i>m W »»:>»>»»: i jgkKXXv >x <t >< »:<*.'« <*k **»•><■ HíiOttUU IIAfXtU vrrkþ.ítla c.r nú <tA ficfj.iAt <>g því tt.cgur ttm* til u<\ {vKRtJUft yfíf I«í«ta vwik að nýju. tftt nhír að þctrri böfittun lykur vrrÁur ckki tU baL* snuiA. {»rck<tð;u áltnmlingur tnmir í þfj**;* ^tt cru liun.v- dðar fuilyrt j»ð fylivtti ftaj>Lt;rmni ** %Xlt. '*>wx :<x« ■>( (itl f <»;«*»., v* 'fm XMfiXttð «■» xXf >:XM f: t.S><»» xS •>*■>: x»x* Xt UUw 1 Wi «>>S V» J>x.n:<««•£«* f ■< «> i> fx*cVx <« i) J~< .*.'• f, )* r«»x UnAwi 4>:*»>k»>*t)'f :f* »S*xtt> •» <:X'< > f iA J<< <<x<-k>.<>:*fx- | v* y<x*: }*» «<*»>». /» ít «t ^ íxx)! W » x<>:<.vf. ;:> /vt.'WMí.l. BfsxKxt x*x« >xf<ja.xx « a» y («>><« >» )'t <t<j» tXIM vf «l i*rÚM >fx ;vt« <t>k d y.ifX n Þetta þýddi í raun það sama og að bærinn legði fram óútfyllta ávísun sem enginn vissi hvað yrði há þegar hún yrði innleyst, þ.e. í verklok þegar raunverulegur heildarkostnaður lægi fyrir. Framkvæmdanefnd kom að málinu Eitt af fyrstu verkum framkvæmda- nefndar, nýrrar nefndar sem stofnuð var í janúar 1995 fyrir forgöngu nú- verandi meirihluta bæjarstjómar til að hafa yfirstjóm á öllum framkvæmdum bæjarins, var að láta vinna áætlun um heildarkostnað framkvæmda á sund- laugarsvæðinu. Þar með lágu fyrir í fyrsta skipti tölur um raunverulegan heildarkostnað við verkið og þær hljóðuðu upp á 359 milljónir! (miðað við fyrirsögn Sigurð- ar 395 milljónir, hvað ætlar hann að gera við mismuninn = 36 milljónir?). Framkvæmdum var dreift fram til 2004 Þessi niðurstaða sem nú lá fyrir setti menn í svolítið einkennilega stöðu. Nú fyrst urðu menn að horfast í augu við staðreyndir málsins og að gera sér grein fyrir hvað þeir höfðu farið af stað með. Þetta var arfur sem núverandi meirihluti stóð uppi með, samþykkt lá fyrir á öllum stöðum að í þessar fram- kvæmdir skyldi fara og auðvitað var það ekki meining okkar að hlaupast frá því verki, en það var líka skylda okkar að gera öllum ljóst af hvaða stærðargráðu þessar framkvæmdir raunverulega yrðu. Það er líka ljóst að fjárhagsstaða bæjarins leyfir það ekki að það verði hægt að Ijúka þessu verki á þeim árafjölda sem hafði verið áætlaður í upphafi, enda um allt aðrar tölur að ræða. Akveðið var að finna hvar við gæt- um stoppað við með nýtanlegan áfanga hverju sinni og hvflt okkur á þessum framkvæmdum í nokkur ár í senn og haldið svo verkinu áfram eftir því sem fjárhagsstaða bæjarins leyfír. Niðurstaðan varð sú að gerð var áætl- un fram yfir aldamótin til 2003-4. Gagnstætt því sem bæjarfultrúi Sigurður J. Sigurðsson heldur fram í sinni grein þá hefur verið farið í allar tölur og allar forsendur hafa verið skoðaðar upp á nýtt. Niðurstaða okkar er sú að við ætlum að verja á næstu árum 154 milljónum í verkið og telj- um þá að við séum komin með áfanga sem muni gjörbreyta aðstöðunni þama þrátt fyrir að þar með verði verkinu ekki endanlega lokið. Hver er tilgangur Sigurðar? Það er mér aftur á móti alveg óskiljan- legt hver ástæðan er fyrir því að Sig- urður J. Sigurðsson ryðst nú fram á ritvöllinn til þess að agnúast út í nú- verandi meirihluta vegna fram- kvæmda og hönnunar við Sundlaug Akureyrar. Undir hans stjóm var skip- aður vinnuhópur til að gera áætlanir um þörfina til úrbóta og hvemig að þeim breytingum og framkvæmdum skyldi staðið. Hópurinn valdi hönnuði og teikn- ingar, þetta var niðurstaða þeirra sem þarna voru í vinnuhópi, héldu eitthvað um 50 fundi, gerðu rýmisáætlun og fóru margsinnis yfir það hvemig þeir vildu hafa þetta sundlaugarsvæði okk- ar, kynntu sér laugar hérlendis og er- lendis, tveir vom meðal annars sendir í skoðunarferð til Kölnar. Ekkert var til sparað þá Ekki var verið að líta til dagsins í dag, hvað hentaði okkur núna, heldur að gerð yrði áætlun um það hvemig við vildum hafa svæðið að lokum. Þá var tekin pólitísk afstaða um að þama skyldi framtíðarsundlaugar- svæði Akureyrar vera, öllum til sóma. Hvað er Sigurður að fara? í lok greinar sinnar kemur Sigurður J. Sigurðsson að því hvemig Dalvíking- ar hafa staðið að sinni sundlaugar- byggingu, en ég skil ekki hver er til- gangur hans að hnýta þessari athuga- semd aftan við. Ég lít helst þannig á að hann telji að Akureyringum, 15 þúsundum manna, eigi að nægja að- staða sambærileg þeirri sem Dalvík- ingar hafa nú byggt fyrir 1600 manna bæjarfélag. Ég samgleðst Dalvíkingum með að þeir eru nú komnir með svo glæsilegt mannvirki sem raun ber vitni, en það mundi hvergi nærri anna þörfinni á Akureyri. Því er ég hvergi nærri sammála Sigurði. Við emm að huga að framtíð Akureyrar og að fullnægja þörfinni hér og við ætlum að hafa þetta svæði þannig úr garði gert að hingað komi ferðamenn til að nýta sér þessa að- stöðu með okkur. Nýju sundlaugar- mannvirkin á Dalvík kostuðu 1600 íbúa 170 miljónir að sögn Sigurðar eða 106.250 krónur á hvem Dalvíking - og nú hefur Sigurði enn láðst að reikna dæmið til enda. Ættu þá ekki 15.000 Akureyringar að þola fram- kvæmdir fyrir 359 milljónir króna sem dreifast á nokkur ár, eða sem svarar 23.934 krónum á hvem íbúa!? Hinar svokölluðu „ítrekuðu ábend- ingar“ Sigurðar gat hann komið með hvenær sem var á fyrri stigum þessa máls sem forystumaður fyrrverandi meirihluta, en nú skal hann horfast í augu við staðreyndimar, útkomuna úr dæminu sem hann sjálfur setti upp en hirti ekki um að reikna til enda. Gísli Bragi Hjartarson. Höfundur er bæjarfulltrúi og formaður fram- kvæmdanefndar.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.