Dagur - 01.03.1996, Side 13
Föstudagur 1. mars 1996 - DAGUR - 13
Samkomur
HvímsunnuKifíKJAti
Föstud. 1. mars kl. 17. Krakkaklúbbur-
inn.
Kl. 20.30. Alþjóðlegur bænadagur kvenna.
Laugard. 2. mars kl. 20.30. Samkoma í
umsjá unga fólksins.
Sunnud. 3. mars kl. 15.30. Vakningasam-
koma.
Samskot tekin til kirkjunnar.
Mikill og fjölbreyttur söngur.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Vonarlínan, sími 462 1210,
Alþjóðlegur bænadagur kvenna, haldinn
1. föstudag í mars ár hvert. Þessi alþjóð-
legi bænadagur eða bænaákall hefur upp-
runa sinn frá konum á Haiti og hefur yfir-
skriftina að þessu sinni „Guð kallar okk-
ur til ábyrgðar“.
Bænadagurinn verður haldinn sameigin-
lega af konum úr flestum kirkjum og trúar-
samfélögum á Akureyri, í Hvítasunnu-
kirkjúnni v/Skarðshlíð föstudaginn 1. mars
kl. 20.30.
@
Allar konur hjartanlega velkomnar._____
KFUM & KFUK,
j’- Sunnuhlíð.
' Föstud. 1. mars kl. 20.30.
Hittumst heima hjá Gústa og
Bryndísi í Melasíðu 3. Eigum góða kvöld-
stund saman, léttar veitingar í lokin.
Allt ungt fólk velkomið.
Sunnud. 3. mars kl. 20.30. Almenn sam-
koma. Ræðumaður er Jóhannes Valgeirs-
son. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Hjálpræðisherinn,
Hvannavöllum 10.
Föstud. kl. 10-17. Flóamark-
t aður.
Kl. 17.30. 11+
Kl. 19.30. Unglingaklúbbur.
Sunnud. kl. 17. Dagur bamanna. Fjöl-
skyldusamkoma. Krakkamir mæta kl. 15.
Allir velkomnir.
SJÓNARHÆÐ
HAFNARSTRÆTI 63
Föstudagur: Unglingafundur á Sjónarhæð
kl. 20.30. Allir velkomnir!
Sunnudagur: Sunnudagaskóli í Lundar-
skóla kl. 13.30. Foreldrar, hvetjið böm
ykkar til að koma.
Almenn samkoma á Sjónarhæð kl. 17. All-
ir innilega velkomnir.
Mánudagur: Bamafundur kl. 18. Öll böm
velkomin! Þau böm sem hafa verið við
Ástjöm em sérstaklega hvött til að koma.
Athugið
Frá Reikifélagi Norð-
)3 urlands.
Fundur verður sunnu-
lkV' daginn 3. mars kl. 20.30
í Bamaskóla Akureyrar.
Allir sem lokið hafa námskeiði í Reiki
velkomnir.
Stjórnin.
Frá Sálarrannsóknafélag-
inu á Akureyri.
Þórhallur Guðmundsson
miðill og Inga Magnúsdóttir
spámiðill verða með
skyggnilýsingafund í Lóni v/Hrísalund,
þriðjudaginn 5. mars kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir. Stjórnin.
Ath. Eftirtaldir miðlar starfa hjá félaginu
á næstunni:
Þórhallur Guðmundsson, Valgarð Einars-
son, Geir Ólafsson, Sigríður Guðbergs-
dóttir, Lára Halla, Bjami Kristjánsson,
Guðrún Hjörleifsdóttir og Inga Magnús-
dóttir spámiðill.
Tímapantanir hjá þessum miðlum fara
fram í síma 461 2147 og 462 7677 milli
kl. 14 og 17.
Heilun verður nk. laugardag frá kl.
13.30-16. Stjórnin.
Takið eftir
Hornbrekka Ólafsfirði.
Minningarkort Minningarsjóðs til styrkt-
ar elliheimilinu að Hombrekku fæst í
Bókvali og Valbergi, Ólafsfirði._
Minningarspjöld Hríseyjarkirkju fást í
Bókabúð Jónasar.
Minningarspjöld Zontaklúbbs Akur-
eyrar fást í Bókabúð Jónasar, Hafnar-
stræti og Blómabúðinni Akri, Kaupangi.
Minningarspjöld Sambands íslenskra
kristniboðsfélaga fást hjá Hönnu Stef-
ánsdóttur Víðilundi 24, Guðrúnu Hörg-
dal, Skarðshlíð 17 og Pedromyndum
Skipagötu 16.________________________
Minningarkort Styrktarsjóðs hjarta-
sjúklinga fást í öllum bókaverslunum á
Ákureyri og einnig í Blómabúðinni Akri,
Kaupangi.
Minningarspjöld Kvenfé-
jj;i lagsins Framtíðar fást í:
Bókabúð Jónasar, Blómabúð-
inni Akri, Dvalarheimilinu
Hlíð, Dvalarheimilinu Skjaldarvík og hjá
Margréti Kröyer, Helgamagrastræti 9.
Minningarspjöld Hjálpræðishersins
fást hjá Hermínu Jónsdóttur, Strandgötu
25b, 2. hæð.
Leiðrétting
Ranglega var sagt í blaðinu sl.
miðvikudag í umfjöllun um upp-
færslu leikdeildar Ungmennafé-
lags Skriðuhrepps á Saumastof-
unni eftir Kjartan Ragnarsson að
Leikfélag Dalvíkur hefði sýnt
þetta verk í Viborg í Noregi árið
1979. Hið rétta er að Viborg er á
Jótlandi í Danmörku. Á þessari
missögn er beðist velvirðingar.
Tipparar!
Getraunakvöld í Hamri
á föstudagskvöldum
frá kl. 20.00.
Málin rædd og spáð í spilin.
Alltaf heitt á könnunni.
Munið að getraunanúmer
Þórs er 603.
Hamar, félagsheimili Þórs
við Skarðshlíð.
Sími 461 2080.
Viðtalstími
samgönguráðherra
Samgönguráðherra Halldór
Blöndal verður með viðtalstíma
í Kaupangi v/Mýrarveg mánu-
daginn 4. mars £rá kl. 13-17.
Vinsamlegast pantið tíma í
síma 462 1500, 462 1504 eða
462 3557.
ORÐ DAGSINS
462 1840
^_____________r
Hestamenn!
Látum ekki aka á okkur
í skammdeginu -
notum
ENDURSKINSMERKI
HESTAMANNAFÉLAGIÐ LÉTTIR
Þökkum innilega samúð og hlý-
hug við andlát og útför,
JÓNS GUÐMUNDSSONAR,
Þórunnarstræti 120,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til heimilisþjónustunnar, heimahlynningar
og hjúkrunarfólks á handlækningadeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.
Svava Ásta Jónsdóttir,
Guðjón Steinþórsson,
Elín Dögg Guðjónsdóttir,
Jón Orri Guðjónsson,
Sigurveig Guðmundsdóttir.
DAGSKRÁ FJÖLMIÐLA
SJÓNVARPIÐ
17.00 Fréttir.
17.05 Leiðarljós. (Guiding Light)
17.50 Táknmálsfréttir.
18.00 Brimaborgarsöngvaramir.
(Los 4 musicos de Bremen) Spænskur
teiknimyndaflokkur um hana, kött,
hund og asna sem ákveða að taka
þátt í tónlistarkeppni í Brimaborg og
lenda í ótal ævintýrum. Þýðandi:
Sonja Diego. Leikraddir: Ingvar E. Sig-
urðsson, Margrét Vilhjálmsdóttir og
Valur Freyr Einarsson.
18.30 Fjör á fjölbraut. (Heartbreak
High) Ástralskur myndaflokkur sem
gerist meðal unglinga í framhalds-
skóla. Þýðandi: Kristmann Eiðsson.
19.30 Dagsljós.
20.00 Fréttir og veður.
20.40 Dagsljós.
21.10 Happ í hendi. Spurninga- og
skafmiðaleikur með þátttöku gesta í
sjónvarpssal. Þrir keppendur eigast
við í spurningaleik í hverjum þætti og
geta unnið til glæsilegra verðlauna.
Þættirnir eru gerðir í samvinnu við
Happaþrennu Háskóla fslands. Um-
sjónarmaður er Hemmi Gunn og hon-
um til aöstoðar Unnur Steinsson.
Stjórn upptöku: Egill Eðvarðsson.
22.05 Danielle frænka. (Tatie Dani-
elle) Frönsk bíómynd frá 1993. Mynd-
in er í léttum dúr og segir frá eldri
konu sem er öllum til ama. Leikstjóri:
Etienne Chatfliez. Aðalhlutverk:
TsiUa Chelton, Catherine Jacob og
IsabeUa Nanty. Þýðandi: Valfríður
Gísladóttir.
23.50 Björk á tónleikum. (Björk
Unplugged) Upptaka frá tónleUtum
Bjarkar Guðmundsdóttur hjá MTV-
sjónvarpsstöðinni. Þar flutti hún
nokkur laga sinna í nýstárlegum bún-
ingi. Áður á dagskrá 27. desember
1994.
00.30 Útvarpsfréttir i dagskrárlok.
STÖÐ2
12.00 Hádegisfréttir.
12.10 Sjónvarpsmarkaðurinn.
13.00 Glady-fjölskyldan.
13.10 Ómar.
13.35 Ási einkaspæjari.
14.00 Með Mikey. (Give Me a Break:
Live With Mrkey) Gamanmynd um
Michael Chapman, öðru nafni Mikey,
sem var eitt sinn barnastjarna en Ufir
nú á fyrri frægð og rekur umboðsstofu
fyrir verðandi barnastjörnur. Maltin
gefur þrjár stjömur.
15.30 Ellen.
16.00 Fréttir.
16.05 Taka 2.
16.30 Glæstar vonir.
17.00 Könguióarmaðurinn.
17.30 Eruð þið myrkfælin?.
18.00 Fréttir.
18.05 Nágrannar.
18.30 Sjónvarpsmarkaðurinn.
19.00 19 > 20.
19.05 ísland í dag.
19.30 Fréttir.
20.00 Suður á bóginn.
(Due South).
20.45 Ævintýri Stikilsberja-Finns.
(Adventures of Huckfinn) Ný kvik-
mynd gerð eftir þessu sígilda ævintýri
Marks Twain. Aðalpersónan er hvitur
strákur sem strýkur frá föður sínum
og heldur í viðburðarika ferð niður
Mississippi-fljótið ásamt þrælnum
Jim. Pilturinn ber með sér að hafa al-
ist upp við fordóma hvíta fólksins í
garð svertingja.
22.35 Ólikir heimar. (A Stranger Am-
ong Us) Spennumynd um Emily, harð-
skeytta og byssuglaða lögreglukonu í
New York. Margt hefur á daga henn-
ar drifið en ekkert líkt því sem gerist
þegar hún rannsakar morð á heittrúð-
um gyðingi. Stranglega bönnuð
bömum.
00.20 Brellur 2. Lögreglan fær brellu-
kónginn Rollie Tyler til liðs við sig og
hann leggur gildm fyrir geðsjúkan
glæpamann. Bönnuð bömum.
02.05 Dagskrárlok.
RÁS1
6.45 Veðurfregnir. 6.50 Bæn: Séra Sig-
urður Jónsson flytur. 7.00 Fréttir.
Morgunþáttur Rásar 1 - Edward Fre-
deriksen. 7.30 Fréttayfirlit. 8.00 Frétt-
ir. „Á níunda timanum", Rás 1, Rás 2
og Fréttastofa Útvarps. 8.10 Hér og
nú. 8.30 Fréttayfirlit. 8.31 Pistill. 8.35
Morgunþáttur Rásar 1 heldur áfram.
8.50 Ljóð dagsins. (Endurflutt kl.
18.45 í dag). 9.00 Fréttir. 9.03 „Ég
man þá tíð". Þáttur Hermanns Ragn-
ars Stefánssonar. 9.50 Morgunleik-
fimi. með Halldóm Björnsdóttur.
10.00 Fréttir. 10.03 Veðurfregnir.
10.15 Sagnaslóð. Frásagnir af atburð-
um, smáum sem stórum. Gluggað í
ritaðar heimildir og rætt við fólk. (Frá
Akureyri). 11.00 Fréttir. 11.03 Samfé-
lagið í nærmynd. 12.00 Fréttayfirlit á
hádegi. 12.01 Að utan. (Endurflutt úr
Hér og nú frá morgni). 12.20 Hádegis-
fréttir. 12.45 Veðurfregnir. 12.50 Auð-
lindin. 12.57 Dánarfregnir og auglýs-
ingar. 13.05 Hádegisleikrit Útvarps-
leikhússins, 1 skjóli myrkurs, eftir Fre-
derick Knott. Fimmti þáttur af tíu.
Leikendur: Anna Kristín Amgríms-
dóttir, Sigurður Skúlason, Hákon
Waage, Lilja Þórisdóttir og Helgi
Skúlason. (Áður flutt 1976). 13.20
Spurt og spjallað. KeppnisUð eldri
borgara úr nágrannabyggðalögum
höfuðborgarinnar keppa. 14.00 Frétt-
ir. 14.03 Útvarpssagan, Hundurinn
eftir Kerstin Ekman. Jónína Guð-
mundssdóttir les 2. lestur þýðingar
sinnar. 14.30 Menning og manrúif í
New York. 2. þáttur af fjómm. 15.00
Fréttir. 15.03 Léttskvetta. 15.53 Dag-
bók. 16.00 Fréttir. 16.05 Fimm fjórðu.
Djassþáttur. (Einnig útvarpað að
loknum fréttum á miðnætti). 17.00
Fréttir. 17.03 Þjóðarþel - Landnám ís-
lendinga í Vesturheimi. 17.30 Allra-
handa. Alfreð Clausen syngur lög frá
liðnum ámm. 17.52 Umferðarráð.
18.00 Fréttir. 18.03 Frá Alþingi. 18.20
Kviksjá. 18.45 Ljóð dagsins. (Áður á
dagskrá í morgun). 18.48 Dánarfregn-
ir og auglýsingar. 19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Auglýsingar og veðurfregnir.
19.40 Bakvið GuUfoss. Menningar-
þáttur barnanna. (Endurflutt á Rás 2
á laugardagsmorgnum). 20.10 Hljóð-
ritasafnið. Lagaflokkur fyrir baryton
eftir Ragnar Björnsson við ljóð eftir
Svein Jónsson. 20.40 Smásaga, Pípa
mannætuhófðingjans, eftir Ilju Ehren-
búrg í þýðingu Baldurs Óskarssonar.
21.30 PáUna með prikið. (Áður á dag-
skrá sl. þriðjudag). 22.00 Fréttir. 22.10
Veðurfregnir. 22.15 Lestur Passiu-
sálma. GísU Jónsson les 23. sáhn.
22.30 Þjóðarþel - Landnám Islendinga
í Vesturheimi. (Áður á dagskrá fyrr í
dag). 23.00 Kvöldgestir. Þáttur Jónas-
ar Jónassonar. 24.00 Fréttir. 00.10
Fimm fjórðu. Djassþáttur (Endurtek-
inn þáttur frá síðdegi). 01.00 Nætur-
útvarp á samtengdum rásum til
morguns. Veðurspá.
Ólíkir heimar
Stöð 2 sýnir í kvöld kl.
22.35 spennumyndina Ólík-
ir heimar með Melain Griff-
ith í aðalhlutverki. Emily er
harðskeytt, byssuglöð lög-
reglukona sem starfar í
New York. Hún rannsakar
ránmorð á heittrúuðum
gyðingi. Verðmætir dem-
antar eru horfnir af vett-
vangi en engin ummerki
eftir glæpinn finnast.
Happ í hendi
Hemmi Gunn verður á sín-
um stað í dagskrá sjón-
varpsins í kvöld kl. 21 með
getraunaleikinn Happ í
hendi. Gestir koma i sjón-
varpssal og spreyta sig á
spurningum og þrautum
og áhorfendur taka virkan
þátt í leiknum.
RÁS2
6.00 Fréttir. 6.05 Morgunútvarpið.
6.45 Veðurfregnir. 7.00 Fréttir.
Morgunútvarpið - Leifur Hauksson og
Björn Þór Sigbjömsson. 7.30 Fréttayf-
irht. 8.00 Fréttir. „Á níunda tíman-
um“ með Rás 1 og Fréttastofu Út-
varps: 8.10 Hér og nú. 8.30 Fréttayfir-
ht. 8.31 Pistill. 8.35 Morgunútvarpið
heldur áfram. 9.03 LísuhóU. Umsjón:
Lísa Pálsdóttir. 12.00 FréttayfirUt og
veður. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45
Hvítir máfar. Umsjón: Gestur Einar
Jónasson. 14.03 Brot úr degi. Umsjón:
Eva Ásrún Albertsdóttir. 16.00 Frétt-
ir. 16.05 Dagskrá: Dægurmálaútvarp
og fréttir. Starfsmenn dægurmálaút-
varpsins og fréttaritarar heima og er-
lendis rekja stór og smá mál dagsins.
17.00 Fréttir. - Ekki fréttir: Haukur
Hauksson flytur. - Dagskrá heldur
áfram. 18.00 Fréttir. 18.03 ÞjóðarsáUn
- Þjóðfundur í beinni útsendingu. Sim-
inn er 568 60 90.19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Ekki fréttir endurfluttar. 19.32
MUh steins og sleggju. 20.00 Sjón-
varpsfréttir. 20.30 Nýjasta nýtt. Um-
sjón: Andrea Jónsdóttir. 22.00 Fréttir.
22.10 Næturvakt Rásar 2. Umsjón:
Ævar Öm Jósepsson. 24.00 Fréttir.
00.10 Næturvakt Rásar 2 tU kl. 02.00.
Umsjón: Ævar Öm Jósepsson. 01.00
Veðurspá. Næturtónar á samtengdum
iásum til morguns: 02.00 Fréttir. Næt-
urtónar. 04.30 Veðurfregnir. 05.00
Fréttir og fréttir af veðri, færð og flug-
samgöngum. 06.00 Fréttir og fréttir af
veðri, færð og flugsamgöngum. 06.05
Morgunútvarp.
LANDSHLUTAÚTVARP ÁRÁS2.
Útvarp Norðurlands kl. 8.10-8.30 og
18.35-19.00.
Útvarp Austurlands kl. 8.10-8.30 og
kl. 18.35-19.00.
Svæðisútvarp Vestfjarða kl. 18.35-
19.00.