Dagur - 01.03.1996, Qupperneq 16
Akureyri, föstudagur 1. mars 1996
BAUTINN 25 ÁRA 6. APRÍL
AFMÆLIS
TILBOÐ
A HAMBORGURUM
'H>4i\linn - ''þé iídí
Háskólinn á Akureyri:
Tveir sækja um
prófessorsstöðu
Tveir sóttu um stöðu próf-
essors við sjávarútvegs-
fræðideild Háskólans á Akur-
eyri, sem Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna kostar til
þriggja ára.
Um stöðuna sækir annars
vegar doktor Hjörleifur Einars-
son. Hann er verkefnisstjóri við
Rannsóknastofnun fiskiðnaðar-
ins í Reykjavík, en gegnir auk
þess hálfri stöðu lektors við Há-
skólann á Akureyri. Hjörleifur
er doktor í matvæla- og örveiru-
fræði frá Chalmers háskólanum
í Gautaborg.
Hinn umsækjandinn er dokt-
or Sigþór Pétursson, lektor í
efnafræði við Háskólann á Ak-
ureyri. Sigþór lauk doktorsprófi
í efnafræði frá háskólanum í
Birmingham á Englandi.
Skipuð verður dómnefnd
þriggja sérfræðinga til að meta
hæfi umsækjenda. Einn þeirra
skipar Háskólinn á Akureyri,
Háskóli íslands skipar annan og
þann þriðja skipar menntamála-
ráðuneytið.
Verði báðir umsækjendur
metnir hæfir til að gegna stöð-
unni mun háskólanefnd taka
endanlega ákvörðun um hvor
þeirra verði ráðinn. óþh
Akureyri:
Börnum fjölgar í
elstu hverfunum
Nokkrar breytingar eru að
verða á aldurssamsetningu
íbúa í hverfum bæjarins. Að
sögn Ingólfs Ármannssonar,
skólafulltrúa Akureyrarbæjar,
kemur þetta m.a. fram í því að
ungu fólki og þar með börnum
er að fjölga í elsta hluta bæjar-
ins, það er Innbænum og hluta
Brekkunnar.
Starfsvæði Bamaskólans á Ak-
ureyri nær yfir Innbæinn og þann
hluta Brekkunnar sem nær að
© VEÐRIÐ
Suðvestan og vestan kaldi
verður á Norðurlandi vestra
í dag og sums staðar all-
hvasst og súld með köflum.
Hiti verður 3-8 stig. Suð-
vestan kaldi verður fram eft-
ir morgni en vestan og suð-
vestan kaldi í dag á Norður-
landi eystra en léttskýjað.
Veður fer hlýnandi og verð-
ur hiti 5-9 stig í dag en hlý-
indin haldast fram yfir helgi.
Mýrarvegi, það er Suður- og
Norður-Brekka. Talsvert hefur
verið byggt í Innbænum á síðustu
misserum og ungt fólk þar komið
inn. Eldra fólk hefur og verið að
flytja úr húsum í nefndum hverf-
um í þjónustuíbúðir aldraðra og
ungt bamafólk hefur komið inn í
staðinn. „Nemendur á Bamaskóla-
svæðinu eru heldur fleiri en spár
okkar gerðu ráð fyrir. Fjöldi nem-
enda á svæði Oddeyrarskóla, Odd-
eyrinni, eru hins vegar nokkuð
svo í samræmi við spár okkar,“
sagði Ingólfur Ármannsson.
„Nemendum í Lundaskóla hef-
ur fækkað mjög mikið síðustu ár-
in. Sama hefur verið að gerast í
Glerárskóla, en því hefur verið
mætt með því að beina nemendum
úr Giljahverfi þangað, þar til
Giljaskóli hefur verið byggður. í
Glerárskóla era í dag um 450
nemendur. Giljahverfi er í raun á
starfssvæði Síðuskóla. Álag hefur
með þessu móti verið tekið af
Síðuskóla, sem er fjölmennasti
skóli bæjarins, með um 660 nem-
endur,“ sagði Ingólfur. -sbs.
Kaupfélag Eyfirðinga:
Lætur af starfi eftir 54 ár
Rögnvaldur Gíslason vann sinn síðasta dag í
gær hjá Kaupfélagi Eyfírðinga eftir hvorki
meira né minna en 54 ár í starfí hjá félaginu. Eng-
inn núverandi starfsmaður KEA hefur lengri
starfsaldur og raunar hafa aðeins sjö starfsmenn
áður náð hálfrar aldar starfsafmæli.
Rögnvaldur var skráður á launaskrá hjá KEA þann
1. maf 1942. Frá 4. febrúar 1943 hefur hann starfað
við söludeild félagsins. Þann 1. janúar 1964 tók hann
við stöðu sölustjóra söludeildar KEA en síðustu ár
hefur hann gegnt stöðu innheimtustjóra söludeildar.
Rögnvaldur Gíslason verður sjötugur 10. mars nk.
og því hefur hann verið starfsmaður KEA frá sextán
ára aldri. óþh
ynino
laugardag og sunnuðag fra kl. 14-17
Nissan
Double Cap
er meö rúmgóðu
húsi fyrir fjóra
farþega auk
ökumanns
Nissan
Patrol GR
Oflugur jeppi á
góöu veröi
velsleðar
Skiöavorur fra
Skíðaþjónustunni
Nissan
Terrano II
5 dyra, býöur upp á
þægindi og rými
sem höfða til fjöl-
skyldna meö virkan
lífsstíl.
Hlaöirm aukahlutum
OLW
flögur
:,rrr
Nissan
Terrano I
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar
Valdimarssonar
Óseyri 5 - Sími 461 2960
IARUMIN FRA
United
SÍeep
Gnalander
ntr , , „/ fHr.rr ^,urr /ZGd "
komin aftur í öllum stierðum
Frábært verð
Queen rúm frá kr. 47.310 stgr.
Kmg rúm frá kr. 73.910 stgi
/#| ■«*■ ■■*■*■*■ Tryggvabraut B4 Opið á
’ Mj M ^LMM^MKMá^M EOB Akuregri laugardögum
húsgagnaverslun sími 4BB 1410 kl. 10.00-13.00
'ISA