Dagur - 08.03.1996, Qupperneq 1
79. árg.
Akureyri, föstudagur 8. mars 1996
48. tölublað
Harðnandi samkeppni í bifreiðaskoðun í Ólafsfirði:
Bifreidaskodun Islands hf.
býður öllum bifreiðaeigendum afslátt
Bifreiðaskoðun íslands hf. hef-
ur boðið íbúum Ólafsfjarðar
10,5% afslátt af aðalskoðun öku-
tækja og er verðið til þeirra 2.750
krónur, auk þess sem boðið er
upp á fría endurskoðun innan
viku frá aðalskoðun. Tiiboðið
stendur allt þetta ár. Ólafsfirð-
ingar, einir landsmanna utan
Reykvíkinga, njóta afsláttar af
aðalskoðun ökutækja en Bif-
reiðaskoðun íslands hefúr boðið
einstaka fyrirtækjum í öðrum
byggðarlögum afslætti.
Aðalskoðun hf. í Hafnarfirði
hefur boðið Ólafsfirðingum upp á
bifreiðaskoðun einu sinni í mán-
uði, tvo daga í röð, í samstarfi við
bifreiðaverkstæðið Múlatind sf. í
Ólafsfirði. í upphafi leituðu feðg-
arnir Sigurjón og Magnús hjá
Múlatindi sf. eftir samstarfi við
Bifreiðaskoðun Islands en ekkert
varð af því og var þá gengið til
samstarfs við Aðalskoðun hf.
Næst mun Aðalskoðun bjóða upp
á bifreiðaskoðun í Ólafsfirði 18.
og 19. mars nk. Sigurjón segir að
nokkrir Akureyringar hafi látið
skoða í Ólafsfirði síðan Að-
alskoðun hf. tók þar til starfa og
nokkrir eigi þar pantaða skoðun.
„Síðast þegar skoðað var hér
var gjaldið 400 krónum lægra en
hjá Bifreiðaskoðun Islands á Ak-
ureyri, eða 2.400 krónur. Mér
finnst það alveg spuming hvort
þetta tilboð Bifreiðaskoðunar ís-
lands stenst samkeppnislög. Akur-
eyringum og Dalvíkingum hlýtur
einnig að finnast það skrýtið að
Ólafsfirðingar skuli fá bif-
reiðaskoðunina á mun lægra verði
en þeim stendur til boða,“ sagði
Sigurjón Magnússon.
Sigurjón Heiðarsson hjá Sam-
keppnisstofnun segir auglýsingu
Bifreiðaskoðunar íslands ekki
stangast á við samkeppnislög,
nema um sé að ræða markaðsráð-
- eini staðurinn utan Reykjavíkur þar sem allir njóta afsláttar
andi fyrirtæki sem með þessu til-
boði sé að gera tilraun til að
flæma samkeppnisaðilann út af
markaðnum. Sigurjón segir hins
vegar að tilboðstíminn sé ein-
kennilega langur.
Guðmundur Guðmundsson,
markaðsstjóri Bifreiðaskoðunar
Islands hf., segir að samið hafi
verið við fyrirtæki á Dalvík, Ak-
ureyri og reyndar víðar og þar hafi
verið boðinn hærri afsláttur en Ól-
afsfirðingum standi til boða. Sá
afsláttur sé hins vegar bundinn við
viðkomandi fyrirtæki og starfs-
menn þess og eftir sem áður þurfi
bifreiðaeigendur á viðkomandi
stöðum að fara til Akureyrar,
Húsavíkur eða nærliggjandi
skoðunarstöðvar.
„Með þessu tilboði vildum við
sýna Ólafsfirðingum að við vær-
um samkeppnisfærir við Að-
alskoðun í verðum. Við erum að
„Auðvitað hefur verið nokkuð kalt, en við höfum bara klætt okkur vel,“ sögðu fyrstu tjaldgestir ársins á Akur-
eyri. Mynd: BG.
Vorboðarnir komnir
Fargjöldin eru svo ódýr á þessum tíma árs að
við ákváðum að koma nú, fremur en þegar
liðið er fram á sumar,“ sögðu fyrstu gestir ársins
á tjaldsvæðinu á Akureyri. Þeir höfðu þar næt-
urdvöl í fyrrinótt - en héldu suður í gærdag, eft-
ir að hafa skoðað sig um á Norðurlandi. Fyrstu
ferðamenn hvers árs eru ævinlega merki um að
vorið sé að nálgast.
Háskólanemarnir Doug Shepard og Pete Nic-
hols frá Virginíufylki í Bandaríkjunum hafa ferðast
um landið síðustu daga og taka tíu daga í þessa ís-
landsför. „I gær skoðuðum við Mývatn, en ætlum f
dag suður með rútunni. Við eigum eftir að skoða
Gullfoss og Geysi, en munurn fljúga aftur heini á
mánudaginn," sögðu þeir félagar.
Þeir bættu því við að gaman væri að ferðast um
landið á þessum tíma árs, og það gæfi aðra mynd
en þá sem alla jafna má sjá í litprentuðum glæsi-
bæklingum. „Jú, auðvitað hefur verið nokkuð kalt,
en við höfum bara klætt okkur vel og erum nokkuð
vel útbúnir,“ sögðu Shepard og Nichols. -sbs.
Mótmælafundur
Opnberir starfsmenn funduðu í gær í Alþýðuhúsinu á Akureyri en þar var
haidinn sameiginiegur fundur BSRB, BHMR og Kennarasambandsins að
tiihlutan aðgerðarnefndar féiaganna. Framsögumenn voru Björn Arnórs-
son, hagfræðingur BSRB, og Martha Hjáimarsdóttir, varaformaður
BHMR. Mikill urgur er í opinberum starfsmönnum vegna þriggja frum-
varpa fjármáiaráðherra, sem m.a. hefur verið talin svívirðileg aðför að kjör-
um og réttindum opinberra starfsmanna. í hópi kennara hefur verið talað
um að grípa tii andsvara með eins konar skæruhernaði. GG/Mynd: BG
Þrotabú Fiskverkunar Jóhannesar
& Helga hf. á Dalvík:
Ekkert fæst greitt
upp í lýstar kröfur
Héraðsdómur Norðurlands
eystra úrskurðaði Fiskverk-
un Jóhannesar & Helga hf. á
Dalvík gjaldþrota í lok nóvem-
bermánaðar sl. og í desember-
mánuði voru síðan hús og tæki
seld Árnesi hf. í Þorlákshöfn.
Fiskvinnsla, aðallega á flatfiski,
hófst svo að nýju í húsinu í janú-
armánuði.
Skiptafundur í þrotabúinu var
haldinn 6. mars sl. á Húsavík af
skiptastjóra, Örlygi Hnefli Jóns-
syni hdl., þar sem birt var skrá yfir
lýstar kröfur og ráðstöfun á eign-
um og réttindum búsins. Lýstar
kröfur námu alls 95 milljónum
króna og forgangskröfur þess utan
um 14 milljónum, en af forgangs-
kröfum námu launa-, orlofs- og
lífeyrissjóðskröfur unt 8 milljón-
um króna. Engar eignir eru til upp
í lýstar kröfur, en söluandvirði
fasteigna og véla gekk upp í
greiðslu á öllum veðkröfum. Ver-
ið er að kanna skuldastöðu félags-
ins, þ.e. útistandandi kröfur sem
skiptastjóri segir vera mjög
ótryggar, eða einskis virði í versta
falli. GG
fikra okkur áfram í þessu og átta
okkur á samkeppninni. Ólafsfirð-
ingar eru til þessa þeir einu sem
við höfum boðið afslátt til allra
íbúa að Reykjavíkingum undan-
skildum, en það er aðeins fyrsta
skrefið. Við teljum okkur hafa
tekist að þjóna landsbyggðinni
mjög vel og mjög víða og þar sem
öryggið í umferðinni skiptir miklu
máli þá teljum við að það sé ekk-
ert sem eigi að gera of ódýrt, þar
sem kostnaður er töluverður, og
missa svo öryggið úr böndunum.
Við óttumst að á fámennum stöð-
um muni skoðunarfyrirtækin ekki
ganga í grimmri samkeppni og ör-
yggisþátturinn líða fyrir það,“
sagði Guðmundur Guðmundsson.
Full skoðun án afsláttar kostar
hjá Bifreiðaskoðun íslands 3.010
krónur og innifalið í því er meng-
unargjald, 330 krónur, og umferð-
aröryggisgjald, sem rennur til
Umferðarráðs. Einnig er end-
urskoðun frí sé hún nýtt samdæg-
urs, en þó hefur hún á sumum
skoðunarstöðvum Bifreiðaskoðun-
ar íslands verið gefin frí. GG
Borgaraleg handtaka
á Akureyri:
Geröu sig
heimakomna
í nafni
réttra íbúa
s
Ibúar í fjölbýlishúsi við Víði-
lund á Akureyri handtóku tvo
drengi með borgaralegum hætti,
þegar þeir gerðu sem heima-
komna þar sl. miðvikudag. Lög-
reglan tók piltana síðan í sína
vörslu.
„Dyrabjöllunni hjá mér var
hringt og sá sem fyrir svörum
varð kvaðst heita Jón Magnússon,
líkt og nágranni minn í næstu
íbúð. Hinn meinti Jón sagðist hafa
týnt húslyklum sínum og bað mig
um að hleypa sér inn, sem var
sjálfsagt mál. En þegar ég fór
fram í stigaganginn til að hafa tal
af nágranna mínum, var hann ekki
þar, heldur þrír fjórtán ára drengir,
sem ég hafði aldrei séð áður,“
sagði Valur Hilmarsson, íbúi í
Víðilundi.
Valur og hinn raunverulegi Jón
gómuðu drengina og settu sig í
samband við lögreglu, sem kom
skömmu síðar. Hún hafði þá haft
afskipti af þeim fyrr sama dag,
vegna annarra mála, að sögn Vals.
Drengirnir sem um ræðir náðu
engu að stela, áður en til handtök-
unnar kom. Áður hefur þó verið
farið inn í þetta fjölbýlishús og
stolið skótaui og reiðhjóli. „Það er
aldrei of varlega farið og þetta er
enn eitt atriðið sem maður verður
að hafa í huga vegna þjófa, sem
geta verið á ferðinni," sagði Valur
Hilmarsson. -sbs.