Dagur - 09.03.1996, Page 2

Dagur - 09.03.1996, Page 2
2 - DAGUR - Laugardagur 9. mars 1996 FRÉTTIR Alþjóðlegur baráttudagur kvenna: Sameigínleg reynsla kvenna til umræðu Jafnréttisnefnd Akureyrar stóð fyrir morgunverðarfundi á Hótel KEA í gær þar sem var m.a. Qallað um hvort til væri eitthvað sem hægt væri að kalla sameig- inlega reynslu kvenna. Þórunn Sveinbjamardóttir var sérstakur gestur fundarins en hún er nýkomin frá Tanzaníu, þar sem hún starfaði sem upplýsingafull- trúi í flóttamannabúðum á vegum Rauða krossins. Þórunn miðlaði af reynslu sinni og flutti frjóðlegt er- Norölenskir dagar í mat- vöruverslunum KEA: Norðlenskar vörur í brennidepli Nú eru hafnir í þriðja sinn svokallaðir Norðlenskir dag- ar í matvöruverlsunum KEA. Verða þeir í öllum matvöru- verslunum á félagssvæðinu, þ.e. á Akureyri, Dalvík, Ól- afsfirði, Siglufirði, Grímsey, Hrísey og Grenivík. Mark- mið Norðlenskra daga er að koma á framfæri norðlensk- um iðn- og matvælafram- leiðslufyrirtækjum og þeim vörum sem þau framleiða, segir Hannes Karlsson, deild- arstjóri matvörudeildar KEA. Norðlenskir dagar standa til 23. mars og á þessum tíma verður boðið upp á fjölda kynninga og er í mörgum til- vikum veittur verulegur af- sláttur af ýmsum vörum. Gefið verður út blað sem dreift er í öll hús á svæðinu. Þær vörur sem eru kynntar eru ekki bara frá KEA heldur frá norðlenskum fyrirtækjum almennt. Hannes segir norð- lensk fyrirtæki allt frá upphafi hafa sýnt Norðlenskum dögum mikinn áhuga og hann hafi síst minnkað. „Ég held að það sé samdóma álit allra sem þátt hafa tekið að þetta hafi skilað þeim töluverðu og hjálpað til við að koma Jreirra vörum á landakortið. Á þessum tíma held ég að vitneskja fólks um allt það sem framleitt er á Norðurlandi hafi aukist og það geri sér betri grein íyrir hvaða vörur það eru sent framleiddar eru á þessu svæði. Auðvitað er þetta hluti af þvf að velja ís- lenskt en ég held að fólki hafi komið á óvart hversu fjölbreytt framleiðsla norðlenskra fyrir- tækja er í raun og veru,“ sagði Hannes. HA Hamar félagsheimili Þórs: MARSTILBOÐ Nýjar perur í ljósabekkjunum Frábært verð: Stakur tími fyrir kl. 14.00 kr. 250,- Eftir kl. 14.00 kr. 350,- Þórsarar, mætið í morgunkaffi á föstudögum kl. 09.00 Hamar sími 461 2080 indi um aðstæður flóttakvenn- anna. Hún benti á að þrátt fyrir gjörólík lífsskilyrði eigi konumar í Afríku ýmislegt sameiginlegt með kynsystrum sínum á Islandi og nefndi heimilisofbeldi sem dæmi. Aðrir ræðumenn á fundinum voru Ama Ýr Sigurðardóttir, guð- fræðinemi, og Pálína Guðmunds- dóttir frá Menntasmiðju kvenna. Arna fékk styrk frá jafnréttisnefnd til að fara til Bandaríkjanna í tengslum við lokaverkefni sem hún er að vinna. Verkefnið fjallar um móðurhlutverkið og á fundin- um ræddi Ama um hvaða áhrif ófrjósemi geti haft á líf kvenna. Flestar konur líta á það sem sjálf- gefið að þær verði einhvern tím- ann mæður og það getur því verið mikið áfall ef kemur í ljós að þær séu ófrjóar. Oft hafa konur á til- finningunni að þær séu ófull- komnar og sjálfsmynd þeirra er mjög skert. Pálína kynnti Menntasmiðju kvenna og rakti tildrög þess að hún komst á fót. Ragnheiður Ól- afsdóttir sá síðan um tónlistina og Konur fylltu salinn á Hótel KEA í gærmorgun og þurfti að bæta við stólum til að allar kæmust fyrir. Efst til hægri á stjómaði í lokin fjöldasöng. AI myndinni má sjá Þórunni Sveinbjarnardóttur í ræðupúltinu en hún var sérstakur gestur fundarins. Mynd: BG Tilboð Bifreiðaskoðunar til Ólafsfirðinga á skoðunargjöldum: „Tilboðið löglegt en kannski siðlaust í Ijósi forsögu Bifreiðaskoðunar“ - segir Vilhjálmur Ingi Árnason, formaður Neytendafélagsins Vilhjálmur Ingi Árnason, for- maður Neytendafélags Akureyr- ar og nágrennis, segir að Bif- reiðaskoðun fslands hf. hafí í krafti yfirburða í byrjunarstöðu getað boðið bifreiðaeigendum í Olafsfírði verulegan afslátt af Fulltrúar Búnaðarsambands Austur-Húnavatnssýslu á Bún- aðarþingi, sem nú stendur yfir, hafa lagt þar fram erindi þar sem skorað er á þingið að taka upp umræðu um meint fjármál- amisferli stjórnenda Lífeyris- sjóðs bænda. Þar er átt við 96 millj. kr. lán Lífeyrissjóðs bænda til flugfélagsins Emerald Air, Bændur frá Efra-Lóni og Sauða- nesi á Langanesi fóru um helg- ina út á nesið og smöluðu þar saman hestum til járningar. í ferðinni var riðið fram á 5 kind- ur í Kumlavíkurdölum, sem gengið hafa úti í vetur, og var ástand þeirra mjög gott, horna- hlaup á þeim öllum nema að sjálfsögðu á þeirri einu sem er kollótt. Bændur frá áðurnefndum tveimur bæjum hafa heimt 24 skoðunargjöldum en það hafi verið óþekkt fyrirbæri meðan fyrirtæki hafi haft einokun á markaðnum og verið rekið af ríkinu. „Þetta sýnir okkur að einokun- sem hæpið þykir að fáist endur- greitt. „Maður heyrir víða óánægju- raddir bænda vegna þessa máls. Eðlilegt er af þeim sökum að mál þetta verði tekið til umfjöllunar hér á Búnaðarþingi,“ sagði Jón Gíslason, formaður Búnaðarsam- bands Austur-Húnavatnssýslu, að- spurður um þetta mál. Því hefur kindur frá áramótum, en af þeim voru nokkrar sem vitað var um austan við Gunnólfsvíkurfjall, en þær gáfust upp í göngum á sl. hausti. Ágúst Guðröðarson, bóndi á Sauðanesi, segir að eitt lamb- anna sé eitt það stærsta sem hann hafi séð á þessum árstíma en allar kindurnar hafi verið í hausthold- um. Ágúst segir að sér sé ekki kunnugt um að íjallskilanefnd hafi fundið eina einustu kind það sem af er vetri. Nýlega fundust svo 5 tryppi á heiðarfláanum. GG in hefur verið skaðleg og það er siðferðisleg spuming sem við stöndum frammi fyrir gagnvart til- boðinu til Ólafsfirðinga í ljósi þess hvernig fyrirtækið var í upp- hafi fjármagnað, þ.e. með pening- um Dalvíkinga sem og annara verið vísað til allsherjamefndar þingsins til frekari meðferðar. Þá hafa fulltrúar Búnaðarsambands Vestfjarða lagt fram erindi varð- andi fjárhagsstöðu sjóðsins, sem þeir vilja að verði athuguð. I erindi Húnvetninga er talað um meint fjármálamisferli stjórn- enda sjóðsins. Að lánað hafi verið til flugfélagsins án þess að veð hafi verið fyrir hendi. Segir enn- fremur að leita verði leiða til að sameina Lífeyrissjóð bænda öðr- um sjóðum, eftir því sem hag- kvæmt geti talist. Verðbréfamark- aður Islandsbanka hefur nú nýlega tekið rekstur sjóðsins að sér. Flugfélagið Emerald Air, sem að hluta til var í eigu íslendinga, hóf starfsemi sína á síðasta ári og hafði höfuðstöðvar sínar í Belfast á Norður-írlandi. Var ætlunin að stunda leiguflug milli Bretlands- eyja og íslands, en þær fyrirætlan- ir runnu fljótlega út í sandinn. Líf- eyrissjóður bænda lánaði alls 96 millj. kr. til flugfélagsins, en hæp- ið þykir að þær fáist til baka, að því er fram kom á fundi stjóm- enda sjóðsins með Kristni Sig- tryggssyni, framkvæmdastjóra Emerald, sem haldinn var nýlega. -sbs. landsmanna, sem greitt hafa skoðunargjöld til forvera fyrirtæk- isins í áratugi. Þetta tilboð sýnir ágæti samkeppninnar þar sem fyr- ir er þjónusta annarrar skoðunar- stöðvar og líklega hefði tilboðið ekki borist ef hún hefði ekki verið til staðar. Ljóst er að í skjóli ein- okunar hefur fyrirtækið byggt veldi á allt of hárri gjaldskrá, það sýna nýjar gjaldskrár og tilboð. Tilboð Bifreiðaskoðunar íslands er því löglegt en að sumu leyti siðlaust,“ sagði Vilhjálmur Ingi Ámason. GG Boney M. til Akureyrar Bandaríska stórsveitin Boney M. heldur tónleika á Akur- eyri í lok aprfl. í tengslum við heimsóknina verður gerð- ur sjónvarpsþáttur um sveit- ina, sem sýndur verður í er- lendum sjónvarpsstöðvum síðar á árinu. Líkast til verða tónleikar Boney M. í KA-heimilinu þann 27. apríl. Sveitin kom á dögunum í heimsókn til ís- lands og var þá vel tekið á tón- leikum í Reykjavík. Ákveðið var að endurtaka tónleika þar í heimsókninni í aprfl og leyfa Akureyringum og Norðlend- ingum líka að sjá stórstirnin. Sól Boney M. skein skært fyrr á árum en engu að sfður vekur sveitin mikla athygli hvar sem hún kemur. Ætlunin er að gera sjónvarpsþátt, þar sem tekin verða m.a. viðtöl við félaga í sveitinni og verður Akureyri og umhverfi bæjarins notað í þættinum. Hér verður því um öfluga landkynningu að ræða í erlendum sjónvaros- stöðvum. IOH Húnvetningar á Búnaðarþingi með erindi um Lífeyrissjóð bænda: Vilja kanna lánveitingar til Emerald Air Langanes: Fimm kindur fundust í haustholdum

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.