Dagur - 09.03.1996, Blaðsíða 20

Dagur - 09.03.1996, Blaðsíða 20
Verið viðbúin vinningi! Fimmtán athugasemdir við aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar: Reiðvega- málin erfiðust - segir Pétur Þór Jónasson, sveitarstjóri Fimmtán athugasemdir bárust við tillögu að aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar, en frestur til að skila athugasemdum rann út á dögunum. Bæði er um að ræða einstaklinga og landeigendur en einnig félagasamtök, þ.e. hesta- mannafélög. Viðamestu athugasemdimar snerta skipulag reiðvega, að sögn Péturs Þórs Jónassonar, sveitar- stjóra, en þau mál hafa einmitt verið talsvert til umfjöllunar að undanfömu. „Reiðvegimir eru auðvitað langsamlega erfiðasta málið. Þar er mikil stífni í sjónar- miðum sem leiða til þess að þau stangast mjög alvarlega á,“ sagði Pétur. Hreppsnefnd hefur nú 8 vikur til að afgreiða athugasemdirnar og verður að taka hverja og eina til skoðunar og afgreiðslu. „Margt af þessu sýnist mér að verði fljótgert að afgreiða en annað gæti orðið talsvert strembið," sagði Pétur. Að þessu loknu er afgreiðsla hrepps- nefndar send Skipulagi ríkisins. „Það sem gæti gerst, út af reiðveg- unum þá einna helst, er að það þurfi að auglýsa skipulagið aftur. Ef mál em svona viðkvæm og svo andstæð sjónarmið uppi, gæti þurft að gera þær breytingar að aftur yrði auglýst,“ sagði Pétur. HA © HELGARVEÐRIÐ Samkvæmt spá Veðurstofu ísland verður sunnanstrekk- ingur, skýjað en úrkomulítið og milt í veðri á Norðurlandi í dag. Á morgun verður svipað veður fram eftir degi en snýst í hvassa suðaust- anátt með rigningu um kvöldið. Hiti um helgina verður á bilinu 5-8 stig en á mánudag kólnar en ætti að vera þurrt. Sjógangur í rokinu Hlýindin og sunnanrokið í gær og fyrrakvöld minntu frekar á annan árstíma en hávetur. Pollurinn á Akureyri var úfinn í rokinu í gærmorgun og gus- umar gengu upp á Strandgötuna og bryggjuna á Oddeyrartanga, eins og sjá má. Snjórinn er á undanhaldi þegar svona viðrar og það mátti mæla á mörgum ám á Norðurlandi í gær. Mynd: bg Eyþing dregur að hefja undirbuning að starfsemi skólaþjónustu: Háir starfsemi fræðsluskrifstofu - segir Trausti Þorsteinsson, fræðslustjóri Einn hluti af fyrirhuguðum flutningi grunnskólans frá ríki til sveitarfélaga er að sveit- arfélögin taka við þeirri sér- fræðiþjónustu, sem lögum sam- kvæmt á að inna af hendi. Fyrir- komulag þessarar þjónustu í framtíðinni hefur mjög verið til umfjöllunar og á Norðurlandi eystra hafa sveitarfélögin náð saman um eina skólaskrifstofu, Skólaþjónustu Eyþings, sem staðsett verður á Akureyri með útibú á Húsavík. Stofnunin mun í raun taka við hlutverki og verkefnum fræðslu- skrifstofu. Enn er flutningur grunnskólans í nokkurri óvissu og hefur það slæm áhrif á starfsemi fræðsluskrifstofunnar, að sögn Trausta Þorsteinssonar, fræðslu- stjóra. Hann segir fullri starfsemi verða haldið úti allt þar til að fræðsluskrifstofan verður lögð niður 1. ágúst nk. Aftur á móti þurfí að breyta áherslum eitthvað á næstunni. „Við þurfum að fara að huga meira að því að ganga frá hlutum og koma þeim í’ hendur nýrra aðila. Það sem okkur hins vegar vantar er viðskiptaaðili okk- ar. Eyþing hefur ekki enn gengið frá skipun skólaráðs sem fara á með stjóm skólajrjónustunnar og ekki auglýst eftir forstöðumanni nýrrar stofnunar. Við erum því í nokkrum vandræðum að vinna þetta verk,“ sagði Trausti. Stjórn Eyþings hefur lýst því yfir að skólaráð taki ekki til starfa fyrr en ljóst er hvort af flutningi grunnskólans verður. Trausti seg- ist hins vegar ekki fyllilega skilja þessa afstöðu. „Maður spyr sig hvenær menn telja það ljóst að af flutningnum verði. Telja þeir það ljóst eftir fulltrúaráðsfund Sam- bands íslenskra sveitarfélaga um helgina. Einnig er óvissa vegna aðgerða opinberra staifsmanna út af frumvörpum fjármálaráðuneyt- isins og félagsmálaráðuneytisins. Er það nóg til þess að menn haldi enn að sér höndum með að stíga þetta skref? Við erum því í mikilli óvissu gagnvart Eyþingi, sem er mjög slæmt. Það gerir það að verkum að maður er hræddari um að ný þjónusta verði ekki í stakk búin til að sinna hlutverki sínu, þegar skólar hefjast næsta haust,“ sagði Trausti og tekur undir að það hái starfsemi fræðsluskrifstof- unnar að Eyþing dregur að hefja undirbúning þess að taka við þjón- ustunni. „Við vitum ekkert hvað tekur við meðan Eyþing gengur ekki tryggilega frá þessum hlut- um. Önnur sveitaifélög hafa þegar sett sínar stofnanir á laggirnar en hér halda menn enn að sér hönd- um. Manni finnst það einkennilegt þegar orðið er samkomulag milli sveitarfélaganna á svæðinu urn fyrirkomulagið. Þá finnst manni hlálegt að sýna ekki þá djörfung að hefja þessa starfsemi,“ sagði Trausti. Hann tók undir að nauðsynlegt sé að nýta þá þekkingu sem er til staðar á fræðsluskrifstofunni og yfirtaka Skólaþjónustu Eyþings verði með þeim hætti að það komi ekki niður á þeirri þjónustu sem um ræðir. Einmitt þess vegna sé ekki eftir neinu að bíða hjá Ey- þingi að kjósa skólaráðið og það hefji starfsemi. „Eftir því sem tím- inn líður minnka möguleikarnir á að mynda samfellu í þessu starfi, sem við erum að sinna,“ sagði Trausti. HA bkolaostur kg/stk. io% LÆKKUIM VERÐ NU: VERÐ ÁÐUR: ÞÚ SPARAR: 647 kr. kílóið. ■ kílóið. 72 kr. á hvert kíló. OSTA- OG SMIÖRSALAN SE

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.