Dagur - 09.03.1996, Side 9
Laugardagur 9. mars 1996 - DAGUR - 9
„Ég ætla fyrsta kastiö
aö vinna að samræm-
ingu á íþrótta- og tóm-
stundastarfi bæjarins,
svo það renni sem mest
í einum farvegi. Stilla
þar saman íþróttastarfi
og til dæmis því starfi
sem unnið er í félags-
miðstöðvum bæjarins
og annarsstaðar," segir
Eiríkur Bj. Björgvinsson.
Mynd: BG
„Ég hef alltaf verið svo lánsamur,
að fá að starfa að mínum áhuga-
málum. íþróttir og tómstundamál
hafa verið mitt hjartans mál frá því
ég man eftir mér - og nú á síðari
árum starfa ég við að skapa öðrum
tækifæri á þessu sviði. Það sem
mér þykir skemmtilegast í starfinu
er vitaskuld að sjá eitthvað liggja
eftir og finna að maður hefur gert
eitthvað við hæfi fólksins. Ég vil
að mótuð sé stefna sem víðtæk sátt
er um. Með þeim hætti komum við
Akureyri enn betur inn á kortið
sem byggðarlagi, þar sem aðstæður
til íþrótta- og tómstundastarfs eru
góðar.“
Þetta segir Eiríkur Bj. Björg-
vinsson, nýráðinn íþrótta- og tóm-
stundafulltrúi Akureyrarbæjar, í
viðtali við Dag. Bæjarstjóm gekk
frá ráðningu hans nú á dögunum
og áformað er að Eiríkur mæti til
starfa í byrjun apríl, eða eftir því
sem aðstæður leyfa í núverandi
starfi. Eiríkur hefur síðasta eina og
hálfa árið gegnt starfi íþrótta- og
' æskulýðsfulltrúa Egilsstaðabæjar,
sem er sambærilegt starfi því sem
hann tekur nú að sér. „Starfið mitt
á Egilsstöðum var alveg nýtt starf
þegar ég tók við því og ég mótaði
þar stefnu og starf. Laut það starf
að verulegu leyti að því að sam-
hæfa krafta þeirra sem að þessum
málum vinna þar,“ sagði Eiríkur.
Hann hefur þessa viku dvalist á
Akureyri og kynnt sér aðstæður á
væntanlegum starfsvettvangi sín-
um.
Fæddur í Reykjavík
Eiríkur Bj. Björgvinsson er fæddur
í Reykjavík í september 1966 og er
uppalinn í borginni. Að loknu prófí
frá íþróttakennaraskóla íslands að
Laugarvatni fór hann til framhalds-
náms í íþróttafræðum við íþrótta-
háskólann í Köln í Þýskalandi.
Prófi þaðan lauk Eiríkur vorið
1994. Þá um sumarið starfaði hann
sem fyrirlesari um evrópska knatt-
spyrnu í háskólanum í Suður-
Karólínu. Þeir fyrirlestrar voru
íluttir í tengslum við HM í knatt-
spymu. Haustið 1994 hóf Eiríkur
störf sem íþrótta- og æskulýðsfull-
trúi á Egilsstöðum - og mun gegna
því að minnsta kosti fram til næstu
mánaðamóta. Eiginkona Eiríks er
Alma Jóhanna Ámadóttir, sem
starfað hefur sem fulltrúi skóg-
ræktarstjóra á Egilsstöðum.
Eiríkur Bj. mun taka við starfi
íþrótta- og tómstundafulltrúa á Ak-
ureyri af Hermanni Sigtryggssyni,
sem gegnt hefur því starfi síðast-
liðin 33 ár. Hennann verður eftir-
manni sínum í starfi til halds og
traust fyrst urn sinn - og út þennan
mánuð mun Hermann sitja á skrif-
stofu sinni að Strandgötu 19b, -
Að skapa
heilbrigt
mannlíf
- rætt við Eirík Bj. Björgvinsson,
nýráöinn íþrótta- og tómstundafulltrúa á Akureyri
enda þótt meginhluti skrifstofa fé-
lagmálasvið bæjarins hafi nú fyrir
skemmstu flutt að Glerárgötu 26.
„Ég stefndi hærra“
„Mér er styrkur að vita af Her-
manni og hann verður okkur innan
handar. Ég er síðustu daga búinn
að líta á aðstæður hér í bænum og
kynna mér það helsta. Mér líst vel
á og ég tek við góðu búi. Mér lík-
aði afskaplega vel í starfi mínu á
Egilsstöðum. Hinu er ekki að leyna
að ég stefndi hærra og vildi komast
í starf á sviði íþrótta- og æskulýðs-
mála, þar sem meira væri umleikis
en var eystra. I það starf er ég nú
kominn,“ sagði Eiríkur Bj.
„Ég er ekki í vafa um að þau
umsvif sem hafa verið í íþróttamál-
um í bænum hafa vakið athygli -
og þau komið Akureyri á kortið
sem íþróttabæ. Og hinu megum
við ekki gleyma að íþróttaiðkun al-
mennings hér í bænum er almenn,
hvort sem það eru skíði, sund, lík-
amsrækt í íþróttastöðvum bæjarins
eða eitthvað annað. Þess vegna
hlakka ég mikið til að vinna hér, í
samfélagi sem er íþróttavænt. Hér
er meðbyr gangvart þessum mál-
um,“ sagði Eiríkur.
Heilbrigt aðhald
í umræðu bæjarmálanna á Akur-
eyri að undanfömu hefur verið rætt
um að máski séu íþróttafélögin
orðin of sterkir þrýsihópar. Eiríkur
var spurður um þetta atriði og
þessi félög almennt...
„Ég er talsmaður þess að
íþróttafélögin hér í bænum starfi
sem mest sjálfstætt. Að bæjaryfir-
völd horfi ekki sífellt yfir öxlina á
þeim, enda þótt þeirra hlutverk sé
vissulega að veita félögunum eðli-
legt og heilbrigt aðhald. Bærinn
styrkir íþróttafélög bæjarins tals-
vert og mér finnst eðlilegt að við
fylgjumst með þeim peningum
sem þar fara í gegn. Áð öðru leyti
eiga afskiptin að vera sem minnst.
Um íþróttafélög sem þrýstihópa;
ég veit ekki hvort rétt er að nota
það orð. En vissulega setja þau
fram ýmsar kröfur og sjónarmið
sem verður að skoða.
Á fáum stöðum á landinu þekk-
ist það fyrirkomulag að tvö öflug
íþróttafélög séu starfandi í sama
bæjarfélaginu - og fólk skiptist al-
veg í tvær fylkingar. í Eyjum
skiptast rnenn í fylkingar milli Týs
og Þórs og þar er unglingastarf
innan beggja félaganna. En meist-
araflokkur er alfarið á vegum ÍBV.
Vissulega sameinast menn og fé-
lög hér í bæ um viss atriði í
íþróttamálum, hvort sem menn
styðja Þór eða KA. En ég segi líka;
hvar væri stemmningin í bæjarlíf-
inu ef þessar tvær fylkingar væru
ekki til staðar. Því atriði megum
við ekki gleyma,“ sagði Eiríkur.
Hægri höndin viti
af þeirri vinstri
„Allir stjómendur einstakra mála-
flokka bæjarfélaga vilja sjá sem
mestar framkvæmdir á sínu sviði
og að sem mestum fjármunum sé
til þeirra varið. En öllu þessu þarf
að dreifa eðlilega, í samræmi við
fjölbreyttar kröfur samfélagsins.
011 dreymir okkur um byggingar
og góða aðstöðu, á hvaða sviði
sem er. En að fleiru þarf að
hyggja. Ég ætla fyrsta kastið að
vinna að samræmningu á íþrótta-
og tómstundastarfi bæjarins, svo
það renni sem mest í einurn far-
vegi. Stilla þarf saman íþróttastarfi
og til dæmis því starfi sem unnið
er í félagsmiðstöðvum bæjarins og
annarsstaðar. Hægri höndin verður
að vita hvað sú vinstri gjörir, því
allt miðar þetta að því - að skapa
heilbrigt mannlíf,“ sagði Eiríkur
Bj. Björgvinsson að lokum.
sbs.
Ekki kaupa fasteign á AkureyriH
Nema aö hafa skoöað raöhúsin okkar
Við höfum réttu fasteignina fyrir þig,
raðhús af mörgum stærðum sem
hægt er að aðlaga að þínum óskum.
T résmí ðaverkstæði
Sveins Heiðars ehf.
Skipagötu 16 ■ Sími 461 2366 • Fax 461 2368 - Opið kl. 13-