Dagur - 15.03.1996, Síða 3
FRETTIR
Föstudagur 15. mars 1996 - DAGUR - 3
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
Ataksverkefni
Á fundi bæjarráðs í gær var
lagt fram yfirlit frá atvinnu-
málaskrifstofunni um styrkum-
sókriir til Atvinnulcysistrygg-
ingasjóðs vegna átaksverkefna.
Óskað er eftir að ráðið verði í
73 stöðugildi, samtals t' 244
mannmánuði. Bæjarráð sam-
þykkti að umsóknimar verði
sendar Atvinnuleysistrygg-
ingasjóði.
Prófdómarar í
Myndlistaskólanum
Að tilmælum skólastjóra
Myndlistaskólans á Akureyri
samþykkti bæjarráð að tilnefna
eftirtalda ntenn prófdómara
við lokapróf í skólanum á
komandi vori: Við málunar-
deild: Kristinn G. Jóhannsson,
listmálara á Akureyri. Við
deild grafískrar hönnunar: Þor-
vald Öttar Guðlaugsson, graf-
t'skan hönnuð og formann
F.Í.T. Reykjavík.
Kaup á lóðinni
Sólheimum II
Bæjarráð staðfesti í gær sam-
komulag um kaup Akureyrar-
bæjar á lóðinni Sólheimum II
við Höfðahlíð af Jakobi V.
Kárasyni Litluhlíð 6f. Kaup-
verð er kr. 116.560.
Starfshópur um
yfírfærsluna
Bæjairáð samþykkti að skipa
starfshóp, sem undirbúi yfir-
færslu grunnskólanna í bænum
að fullu frá ríkissjóði til Akur-
eyrarbæjar. Starfshópurinn
verði skipaður formanni skóla-
nefndar, félagsmálastjóra,
skólafulltrúa og óskað er eftir
að skólastjórar grunnskólanna
tilnefni fjórða mann í starfs-
hópinn.
Vinnsludekk
Dalborgar
EA-317 gert
klárt til
rækjuvinnslu
Togarinn Dalborg EA-317 liggur
við bryggjukantinn hjá Slipp-
stöðinni-Odda hf. á Akureyri,
þar sem verið er að skipta um
vélar á vinnsludekki til að vinna
rækju um borð í skipinu. Skipið
verður tekið upp í sleða í dag og
þar verður það botnmálað og
sett í það ballest.
Ef allar áætlanir ganga eftir
mun skipið verða tilbúið um miðja
næstu viku. Skipið kemur hingað
frá Hornafirði, þar sem það lá við
bryggju og frysti loðnu. Vegna
skorts á frystigeymslu kom skipið
með uin 500 tonn af frystri loðnu
til Akureyrar og eru enn um 400
tonn um borð í skipinu. Það hefur
nokkuð tafið framkvæmdir við
skipið. GG
Innfjarðarrækjukvótinn á Skagafirði
og Skjálfanda:
Ráðuneytismenn
hugsa málið
Hafrannsóknastofnun hefur lagt
til við sjávarútvegsráðuneytið að
innfjarðarrækjukvótinn á
Skagafirði verði aukinn úr 1.000
tonnum í 1.500 tonn og á Skjálf-
anda úr 700 tonnum í 1.000
tonn. Á síðustu vertíð var leyft
að veiða 800 tonn á Skjálfanda
og 700 tonn á Skagafirði.
„Það er gasalega mikil rækja á
Skagafirði en þetta eru sömu
árgangar og voru þar í fyrra. Á
Skagafirði hefur orðið mikil aukn-
ing í eins og tveggja ára ungrækju,
mun meira en á Skjálfanda. Ýsu-
seiði hafa ekki fundist á Skaga-
firði í vetur en þau voru í tölu-
verðu magni á síðasta vetri og
enginn þorskur. Það var þorskur á
Skjálfanda fyrr í vetur og þá voru
sett skilyrði um notkun seiðaskilju
og hún var notuð fram í janúar-
mánuð en þá var því skilyrði aflétt
þar sem forsendur voru brosnar,
þ.e. þorskurinn var horfinn," sagði
Unnur Skúladóttir fiskifræðingur
hjá Hafrannsóknastofnun.
„Þetta er orðið óheyrilegt magn
á fáa báta og það kemur til greina
að veita fleiri bátum kvóta á inn-
fjarðarrækjuna en hann hafa í dag,
en ráðuneytinu er sniðinn nokkuð
þröngur stakkur í því máli laga-
lega. Það er þó verið að skoða
málið með hliðsjón af því að
magnið er orðið mun meira en bú-
ist var við að leyft yrði að veiða
þegar veiðar hófust. Þessar veiðar
byrjuðu með óverulegum tilrauna-
veiðum með liðlega 100 tonn en
nú hefur magnið tífaldast og alltaf
sömu bátamir sem fá að veiða
rækjuna. Einnig var það mjög til-
viljanakennt á'sínum tíma hverjir
lentu inn í þessu, en í dag er verið
að tala um mjög inikil verðmæti.
Hvort fleiri bátar fá leyfi nú vil ég
þó ekkert fullyrða um,“ sagði Jón
B. Jónasson, skrifstofustjóri í
sjávarútvegsráðuneytinu.
Tryggvi Finnsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskiðjusamlags
Húsavíkur og formaður Félags
rækju- og hörpudiskframleiðenda,
segir að það sé illframkvæmanlegt
að fjölga bátum á rækjuveiðum,
því eigendur rækjubátanna hafi
keypt réttinn fyrir fimm árum síð-
an gegn afsali þorskkvóta, og
raunar hafi sumir verið í miklum
vafa hvort þeir ættu að fóma
þorskkvótanum.
„Þetta eru orðið mjög gott mál
í dag fyrir þessa báta, en þeir tóku
áhættu á sínum tíma en fengu
vinning og vissulega er þetta enn-
þá happdrætti fyrir þá því það veit
enginn hvort þetta verður til fram-
búðar. Rækjan var ekki héma og
gæti því eins horfið aftur,“ sagði
Tryggvi Finnsson. GG
Akureyri:
Ráðstefna um atvinnumál kvenna
Félagsmálaráðuneytið mun efna unnar verða opinberar aðgerðir í
til ráðstefnu um atvinnumál þágu atvinnumála kvenna og at-
kvenna á Hótel KEA á Akureyri vinnusköpun í dreifbýli og þétt-
22. marsnk. býli. " óþh
Meðal viðfangsefna ráðstefn-
Gránufélagsgötu 4
Akureyri ■ Sími 462 3599
Opið laugardaga kl. 10-12
I syngjandi sveiflu
Hinir frábæru dönsku listamenn Benny Andersen, Povl Dissing og Jens Jef-
sen fengu afskaplega hlýjar móttökur í Deiglunni á Akureyri sl. miöviku-
dagskvöld, þar sem þessi mynd var tekin. Þeir félagarnir fóru enda á kost-
um og heilluðu alla viðstadda upp úr skónum. Og þegar kom aö þekktum
vísum af þeirra ágætu plötu, Svantcs viser, mátti heyra margan tónleika-
gestinn taka vel undir. óþh/Mynd: BG
HRISALUNDUR
- fyrir þig!
Ódýrara en þig grunar
Norðlenskir dagar
í Hrísalundi
Tilboð!
Rauðvínslegin lambalæri kr. 598 kg
KEA Kjallarabollur kr. 24 stk.
Þriggjakornabrauð kr. 98 stk.
Svikinn héri kr. 524 kg
Áleggsþrenna kr. 229 pk.
HG lambakökur kr. 262 pk.
Kynningar föstudag kl. 15-19
Kynningar laugardagkl. 13-17
Kynning laugardag kl. 11-14
Margaret Astor snyrtivörur
15% kynningarafsláttur