Dagur - 15.03.1996, Page 7

Dagur - 15.03.1996, Page 7
[ Föstudagur 15. mars 1996 - DAGUR - 7 Twist & Bast á Hótel KEA Hljómsveitin Twist & Bast skemmtir gestum Hótels KEA annað kvöld, laugardagskvöld. Uppselt er í mat en húsið verður opnað fyrir aðra en matargesti kl. 23.30. Félagar á Oddvitanum Hljómsveitin Félagar skemmtir gestum Oddvitans á Akureyri í kvöld og annað kvöld. Aldurstak- mark er 20 ár og eru gestir minntir á snyrtilegan klæðnað. Fegurðarkvold i Sjallaiiuiii Hitað verður upp fyrir Fegurðar- samkeppni Norðuríands 1996 í Sjallanum í kvöld með því að stúlkumar kynna fatnað frá versl- unum á Akureyri. Hljómsveitin Bylting og DJ Elliot leikur fyrir dansi. Annað kvöld verður lokað í Sjallanum vegna árshátíðar Há- skólans á Akureyri. Bókarkynning á Húsavík A morgun, laugardag, kl. 17, mun áhugafólk um mannrækt á Húsavík bjóða öllum sem hafa áhuga á kynningu á bókinni „Heimkoma - uppgötvaðu og stattu með baminu í sjálfum þér“ á sal verkalýðsfélag- anna að Garðarsbraut 26. Þýðandi bókarinnar, Sigurður Bárðarson, mun kynna bókina og fara í efni hennar. Sigurður mun leiða þátt- takendur í gegnum hugleiðslur og æfingar bókarinnar. Flóamarkaður Hjálpræðishersins Flóamarkaður Hjálpræðishersins á Akureyri verður opinn í dag, föstu- dag, kl. 10-17 að Hvannavöllum 10. Að venju er á boðstólum gott úrval af nýtilegum fatnaði. Hjálp- ræðisherinn tekur á móti notuðum fatnaði alla daga á sama stað. Flóamarkaður Náttúrulækningafélagsins Flóamarkaður Náttúrulækningafé- lags Akureyrar verður í Kjama- lundi á morgun, laugardag, kl. 14- 19. Sem endranær verður í boði ýmiskonar fatnaður á börn og full- orðna á lágu verði. Einnig bækur, smáhlutir og prjónafatnaður. Soroptimistakonur með bílskúrssölu Systur í Soroptimistaklúbbi Akur- eyrar ætla að endurtaka bílskúrs- sölu sína vegna fjölda áskorana. Salan verður í Ásvegi 23 og stend- ur frá kl. 10 til 14 á morgun, laug- Kaffitónleikar á Hvammstanga Fimmtu tónleikar Tónlistarfé- okkar fremstu gítarleikara. lags Vestur-Húnvetninga starfs- Hann hefur komið fram á fjölda árið 1995-1996 verða haldnir í tónleika bæði hér heima og er- Félagsheimilinu á Hvamms- lendis. Síðastliðin þrjú ár hefur tanga á morgun, laugardag, kl. Símon kennt við Tónskóla Sig- 14. Flytjendur eru Símon H. ursveins D. Kristinssonar. Hann ívarsson og Michael Hillen- kennir auk þess kennslufræði stedt, gítarleikarar. Þeir félagar og kammertónlist við sama kalla sig Iston 42 og munu þeir skóla. Undanfarin ár hefur Sím- byrja á því að heimsækja on starfað með fiðluleikaranum Grunnskóla Hvammstanga f Hlíf Sigurjónsdóttur, en þau dag og kynna nemendum klass- hafa einmitt verið gestir Tón- t'ska gítarinn. Á tónleikunum á listarfélagsins og léku þá í Fé- rnorgun verður fjölbreytt efnis- lagsheimilinu Ásbyrgi. skrá frá mismunandi tfmabilum og mismunandi löndum. Mest Michael Hillenstedt fæddist áberandi eru verk frá Suður- 1958 í Hamborg. Hann sjálf- Ameríku en auk þeirra eru m.a. menntaði sig í gítarleik áður en verk eftir tónskáldin C. De- hann hóf formlegt gítamám bussy, F. Sor og Gunnar Reyni 1985 við Tónlistarskólann í Sveinsson. Verkefnin eru valin Hamborg hjá próf. Eicke með það að leiðarljósi að þau Funck. Arið 1991 flutti hann til séu fjölbreytt, njóti sín vel á íslands og hefur starfað síðan hljóðfærin og höfði til sem sem kennari við Tónlistarskóla flestra. Einnig munu nokkrir Ámesinga, m.a. í tónfræði, ungir heimamenn taka að hluta hljómfræði og gítar. Michael þátt í tónleikunum. í hléi verður hefur áður verið gestur Tónlist- kaffisala á vegum Tónlistar- arfélagsins ásamt Hilmari Emi skóla V-Hún. Agnarssyni orgelleikara, Mette Símon H. ívarsson er fyrir Rasmussen flautuleikara og löngu orðinn þekktur sem einn Peter Tompkins óbóleikara. áhrifog írskur blær á Pollinum Um helgina verður mikið um að vera á veitingastaðnum Við Poll- inn á Akureyri. í kvöld og annað kvöld skemmtir hljómsveitin „Tvöföld áhrif* frá Ólafsfirði gestum Pollsins en á sunnudags- kvöldið verður í tilefni þjóðhátíð- ardags íra lifandi tónlist þar sem írskt tónlist eins og hún gerist best fær að njóta sín. ardag. í boði er fjöldi góðra muna og fatnaður. Verð kr. 50-200. Allir eru hjartanlega velkomnir. Framtíðarkonur með basar Kvenfélagið Framtíðin heldur bas- ar í þjónustumiðstöðinni Víðilundi 24 á morgun, laugardaginn 16. mars, kl. 13. Þeirri ósk er beint til félagskvenna að þær komi með brauð kl. 12. Ágóðinn af basamum rennur til uppbyggingar dvalar- heimila fyrir aldraða í Hlíð og Skjaldarvík, en Framtíðarkonur hafa til fjölda ára lagt drjúgan skerf til bættrar aðstöðu aldraðra á Akur- eyri og í Skjaldarvík. Nikkarar með árshátíð Árshátíð Félags harmonikuunn- enda við Eyjafjörð verður haldin í Lóni við Hrísalund laugardaginn 16. mars og hefst með borðhaldi kl. 20. Húsið verður opnað kl. 19.30 fyrir matargesti og aftur kl. 23. Forsala aðgöngumiða er á sama stað þriðjudaginn 12. mars kl. 17- 19. Áðgangseyrir kr. 2000. Upp- lýsingar veita Jóhannes í síma 4626432 og Sigurður 4623469. Allir velunnarar félagsins eru boðnir velkomnir. Waiting to Exhale í Borgarbíó Hin vinsæla mynd Waiting to Ex- hale með m.a. Whitney Houston og Angelu Bassett í aðalhlutverk- um verður sýnd í Borgarbíói á Ak- ureyri um helgina kl. 21. Þá frum- sýnir Borgarbíó myndina To Wong Foo með Wesley Snipes og Patrick Swayze í aðalhlutverkum og verð- ur hún sýnd kl. 23.15 um helgina. í hinum salnum kl. 21 verður sýnd spennumyndin Heat með Val Kilmer, A1 Pacino og Robert De Niro í aðalhlutverkum og á bama- sýningum á sunnudag kl. 15 birtast á hvíta tjaldinu íslenska myndin Benjamín dúfa og Jumanji. Síðar- nefnda myndin er bönnuð yngri en 10 ára. Fríða sýnir í AllraHanda Um helgina lýkur sýningu Fríðu S. Kristinsdóttur í Galleríi Allra- Handa. Á sýningunni eru sýnd myndverk og þrívíð verk ofin með tvöföldum vefnaði; úr hör, vír og einnig myndvefnaður úr ull. Kaþólskur prestur með fyrir- lestur á Akureyri og Dalvík Kaþólski presturinn faðir Martin frá Indlandi er staddur á íslandi þessa dagana, en hann veitir for- stöðu samtökunum Social Action Movement í Tamil Nadu á Ind- landi sem Hjálparstofnun kirkjunn- ar hefur átt samstarf við um árabil. Tilgangur heimsóknarinnar er að segja frá starfi samtakanna, sem er annars vegar stuðningur við skóla- böm og hins vegar baráttu lægst settu stéttanna fyrir mannréttindum og rétti sínum til jarðeigna. Faðir Martin heldur fyrirlestur um þetta efni nk. mánudag, 18. mars, í safn- aðarheimili Dalvíkurkirkju og kl. 20.30 sama dag í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju. LfTT» VINNINGSTÖLUR MIÐVIKUDAGINN lo.UJ. íaab Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæö ^ m 6 af 6 1 53.849.000 0 5 af 6 C.. + bónus 0 272.666 3. 5a,e 2 107.110 4. 4 af 6 208 1.630 r- 3 af 6 O. + bónus 696 200 Samtals: 907 Heildarvinnlngsupphæð: Á íslandi: 54.814,126 965.126 Upplýslngar um vinningstölur tást elnnig I simsvara 568-1511 eða Grænu númerí 800-6511 og I textavarpi á síöu 453. „Maður og náttúra“ í Deigl- • / unmamorgun Á morgun, laugardag, kl. 14, mun dr. Skúli Skúlason llytja fyrirlestur í Deiglunni á Akur- eyri. Fyrirlesturinn er annar tveggja með yfirskriftinni „Maður og náttúra“ en dr. Páll Skúlason hélt þann fyrri þann 10. febrúar sl. og nefnist sá „Umhverfing". Fyrirlestur Skúla nefnist „Tengsl manns og náttúru - samskipti og um- gengni okkar við ferskvatns- auðlindir íslands“. Höfundur greinir svo frá efni fyrirlestursins: „Fyrirlesturinn tekur á spurningum sem varða stöðu mannsins í náttúrunni með sérstakri áherslu á hvemig við sjáum og skilgreinum verð- mæti hennar. Gildismatið er skoðað í tengslum við auðlinda- nýtingu og almenna umgengni okkar við náttúmna. Eðli gildis- matsins helur grundvallaráhrif á það hvemig samskiptum við náttúruna vindur fram. Þannig er almenn þekkingaröflun, jafnt sem árangur vísindarannsókna, í beinu samhengi við virðingu okkar fyrir viðfangsefninu. Náttúran er fiókin, síbreytileg og lífverur í stanslausri þróun. Gildismat okkar verður að taka mið af þessum ferlum og breytileika. Aðstæður hérlendis gefa sérstaklega gott tækifæri til að hugsa um þessa hluti. Nátt- úran er um margt sérstæð, vist- kerfin eru fjöbreytt en vegna landfræðilegrar einangrunar era hér fáar tegundir. Þetta skapar aðstæður fyrir bæði hraða og sérstæða þróunarferla lífvera. Bleikjan hefur talsvert verið rannsökuð í þessu samhengi. í fyrirlestrinum verður byggt á Dr. Skúli Skúlason. umræðu um vötn og vatnakerfi á íslandi, með áherslu á líffræði bleikjunnar. Samskipti okkar við þessar auðlindir verða skoð- uð í Ijósi ofangreindrar áherslu á ferla og breytileika náttúrunn- ar." Dr. Skúli Skúlason fæddist og ólst upp á Akureyri. Hann lauk stúdentsprófi frá MA vorið 1978. Hann hefur lokið eftirfar- andi háskólagráðum: BS f líf- fræði frá Háskóla íslands árið 1981, meistaragráðu í dýrafræði frá háskólanum í Guelph í Kan- ada árið 1986 og doktorsprófi frá sama skóla árið 1990. Skúli hefur starfað sem deildarstjóri fiskeldisbrautar Hólaskóla frá árinu 1990. Allt áhugafólk er velkomið á fyrirlesturinn í Deiglunni á morgun. PÓSTUR OG SÍMI Útboð Póstur og sími óskar eftir tilboðum í landpóst- þjónustu frá Póst og símstöðinni Akureyri um Glæsibæjarhrepp, Skriðuhrepp, Öxnadalshrepp og Arnarneshrepp. Dreifing mun fara fram fimm sinnum í viku frá Póst og símstöðinni Akureyri. Afhending útboðsgagna fer fram á skrifstofu stöðvar- stjóra, Póst og símstöðinni Akureyri frá og með mánu- degi 18. mars 1996 gegn 2.000 kr. skilatryggingu. Tilboðum skal skilað á sama stað eigi síðar en kl. 10, 9. apríl 1996. Tilboð verða opnuð sama dag kl. 14 í fundarherbergi Pósts og síma, 4. hæð í Hafnarstræti 102, Akureyri, í viðurvist þeirra tilboðsgjafa er viðstaddir verða. Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. PÓSTUR OG SÍMI Póstmálasvið -150 Reykjavík

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.