Dagur - 15.03.1996, Side 11

Dagur - 15.03.1996, Side 11
Föstudagur 15. mars 1996 - DAGUR - 11 Jazzþing tíu ára í febrúar síðastliðnum varð Jazz- þing, félag áhugamanna um jazz í Þingeyjarsýslu, tíu ára. Félagið var stofnað þann 24. febrúar árið 1986. í tilefni af afmælinu bauð félagið til tónleika í Hlöðufelli á Húsavík föstudaginn 1. mars. Það var Jazzkvartett Reykjavíkur sem sótti þingeyska jazzunnendur heim, fjölntenni var í Hlöðufelli og allir skemmtu sér hið besta. Jazzkvartett Reykjavíkur var stofnaður árið 1992 af Sigurði Flosasyni saxófónleikara og Tóm- asi R. Einarssyni kontrabassaleik- ara auk þeirra komu fram á tón- leikunum í Hlöðufelli þeir Einar Valur Scheving trommuleikari og Kjartan Valdimarsson píanóleikari. Tónlist hljómsveitarinnar er nú- tímalegur órafmagnaður jazz og samanstóð efnisskráin af lögum eftir Sigurð Flosason, Tórnas R. og Einar Val auk klassískra jazzlaga. Að efla framgang jazztónlistar Grétar Sigurðarson, saxafónleikari og mjólkurfræðingur á Húsavík, er núverandi formaður Jazzþings en hann hefur verið formaður fé- lagsins í nærfellt hálfan aldur þess. Blaðamaður Dags hitt Grétar að máli og innti hann eftir þeirri starfsemi sem félagið hefur staðið fyrir á liðnum árum. Grétar sagði að tilgangur fé- lagsins væri að efla framgang jazztónlistar og auka kynni félags- manna af henni. I því augnamiði hefði félagið staðið fyrir nám- skeiðum annars vegar fyrir hljóð- færaleikara og hins vegar fyrir al- menna jazzunnendur. Þessi nám- skeið hefði félagið haldið ýmist eitt og sér eða í samvinnu við aðra aðila og þá oftast Tónlistarskóla Húsavíkur. Að læra að hlusta á jazz Námskeiðin, sem haldin hafa ver- ið fyrir hljóðfæraleikarana, hafa verið spunanámskeið og meðal annarra hafa Paul Weeden, Sig- urður Flosason og Hjörleifur Sig- urðsson sótt þingeyska tónlistar- menn heim af því tilefni. Nokkur námskeið í hlustun þar sem leitast er við að kenna áheyr- endum að njóta jazz og sérstaða jazzins er kynnt með sögulegu ívafi hafa verði haldin og meðal þeirra sem kenndu á þeim nám- skeiðum voru Ingimar Eydal og Tómas R. Einarsson. Félagið hefur haldið fjölda jazztónleika, sjaldan færri en þrjá A tiu ara afmælishatíð Jazzþings var þeim sem sinnt höfðu stjórnunarstörfum á vegum félagsins og staddir voru í Hlöðufelli veitt viðurkenning fyrir vel unnin störf. Hér eru f.h. Anna Lilja Karlsdóttir, Kári Sigurðsson, Auður Gunnarsdóttir, Jón Aðalsteinsson, Birgir Steingrímsson og Grétar Sigurðarson. Zontaklúbburinn Þórunn hyrna á Akureyri: Alvarlegt ef krabbameins- leit leggst niður Fundur í Zontaklúbbnum Þórunni ir yfir þungum áhyggjum ef hyrnu, haldinn 12. mars 1996, lýs- krabbameinsleit leggst niður á BRIPPS_________________ Bridgefélag Akureyrar: Sveit Antons leiðir á Halldórsmóti Síðastliðinnn þriðjudag hófst Hall- dórsmótið hjá Bridgefélagi Akur- eyrar en mótið er sveitakeppni Bridgefélag Sauðárkróks: Hjóna- og parakeppni Síðastliðinn mánudag var fyrri umferð hjóna- og parakeppnni hjá Bridgefélagi Sauðárkróks spiluð. Staða efstu para er þannig: 1. Berta Finnbogadóttir - Birkir Jónsson 132 stig. 2. Margrét Guðvinsdóttir - Gunnar Þórðarson 124 stig. 3. Agústa Jónsdóttir - Kristján Blöndal 116 stig. 4. Þórdís Þormóðsdóttir - Einar Svansson 111 stig. Seinni umferð hjóna- og para- keppni félagsins verður spiluð mánudaginn 18. mars í Bóknáms- húsi Fjölbrautaskólans á Sauðár- króki og hefst spilamennskan kl. 20. með Bardomats-fyrirkomulagi. Sveit Antons Haraldssonar leiðir eftir fyrstu þrjár umferðimar. Spiluð eru 10 spil milli sveita og getur mesti sigur verið 32:0. Tíu sveitir mættu til leiks á mót- inu og spilaðar voru þrjár umferð- ir, samtals 30 spil. Sveit Antons Haraldssonar hef- ur 79 stig í fyrsta sæti en næst kemur sveit Soffíu Guðmunds- dóttur með 57 stig og í þriðja sæti sveit Ævars Ánnannssonar með 52 stig. Næstu 3 umferðir verða spilað- ar þriðjudaginn 19. mars. Úrslit í sunnudagsbridge síðast- liðinn sunnudag urðu þau að Pétur Guðjónsson og Una Sveinsdóttir sigruðu með 192 stig, Anton Har- aldsson og Sverrir Haraldsson urðu í öðru sæti með 176 sgit og Gissur Jónasson og Ragnhildur Gunnarsdóttir urðu í þriðja sæti með 173 stig. Akureyri. Fundurinn telur mjög alvarlegt ef svo nauðsynlegum forvömum er hætt vegna niður- skurðar og mikilvægt að heima- menn sjái um starfsemina áfram. Krabbameinsleit hefur verið á Ak- ureyri frá 1969 og hefur henni verið sinnt af sömu starfsmönnum af mikilli trúmennsku frá upphafi. Leitarstöðin hefur veitt góða og persónulega þjónustu. Fundurinn skorar á heilbrigðis- yfirvöld að semja við heimamenn svo framhald geti orðið á þessu mikilvæga forvarnarstarfi á Ákur- eyri. Leiðrétting í frásögn um Heimiskvöld í Mið- garði í blaðinu á miðvikudag voru tvær vísur sem ekki voru kórrétt- ar. Önnur vísan, sem um ræðir, var ranglega sögð eftir Kolbein Konráðsson, en er réttilega eftir Þorleif bróður hans. Rétt er vísan svohljóðandi: Ingibjörg er engum lík. um það ríkirfriður. Efþað kœmi önnur slík, yrði ’ún skorin niður. Og Kolbeinn Konráðsson kvað svo réttilega um forsetaframbjóðendur: Tungulipurð, orka og elja, eru síst til skaða. Því er Ijóst - ég víst mun velja Valda-Sleitustaða. Grétar Sigurðarson saxafónleikari er formaður Jazzþings. til fjóra á ári og þar hafa komið fram flestir þekktustu jazztónlist- armenn þjóðarinnar auk erlendra gesta og síðast en ekki síst jazz- leikara úr heimabyggð. Síðasta vetrardag hefur félagið jafnan staðið fyrir jazzveislu á Húsavík og hefur sá viðburður ávallt verið vel sóttur. Léttsveit Húsavíkur Þann 1. febrúar 1988 var Léttsveit Húsavíkur stofnuð en sveitin bar síðar nafnið Stórsveit Húsavíkur. Sveitin var lengst af deild í Tón- listarskóla Húsavíkur en að sögn Grétars hefur ætíð verið gott sam- starf milli Jazzþings og tónlistar- skólans. Sveitin lék á tónleikum víða á Norðurlandi. Hún kom fram á jazzhátíðinni á Egilsstöðum árið 1991 og fór í tónleikaferð til Eng- lands árið 1990. Stjómendur sveitarinnar voru þrír á þeim tíma sem hún starfaði, Cristofer Murpy, Sandy Miles og Norman Dennis. „í þessari sveit var allan tím- ann sem hún starfaði mikið áf ungu tónlistarfólki og margir öðl- uðust sína fyrstu reynslu af sveiflu jazzins einmitt með sveitinni. Nú starfar þessi sveit ekki lengur hún lék síðast á tónleikum Jazzþings á síðasta degi vetrar árið 1993,“ sagði Grétar. NA12 Þegar Léttsveit Húsavíkur fór í tónleikaferðina til Englands árið 1990 var með henni í för Söng- sveitin NA 12, eða Norðaustan 12 eins og sveitin kallaði sig. Þessi söngsveit átti eftir að starfa mikið með Léttsveit Húsavíkur og fór með henni í nokkrar tónleikaferð- ir. NA 12 kom síðast fram á tón- leikum á vordögum 1995. Framtíðin spurningarmerki Félagsmenn í Jazzþingi eru nú 41 talsins en frá upphafi hafa milli áttatíu og níutíu manns starfað innan vébanda félagsins. Grétar sagði að á þessum tímamótum í sögu félagsins teldi hann rétt að staldra við og velta því upp hvort félagið ætti framtíð fyrir sér í óbreyttri mynd. KLJ 462 5950 Pizza! 16" pizza m/3 áleggstegundum brauðstangir og 2 lítrar af Frissa fríska kr. 1.400,- Nýjung! Kjúklingabitar, brauðstangir, lauk- hringir og ítölsk kryddpylsa ★ Munið austurlenska matinn okkar! Tilboð á eftirlætinu þínu

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.