Dagur - 15.03.1996, Blaðsíða 15
IÞROTTIR
Föstudagur 15. mars 1996 - DAGUR - 15
FROSTI EIÐSSON
Lokatömin í viöureignum KA og Selfoss á
Akureyri í kvöld:
„Heimavöllurinn og
hvatning áhorfenda
getur skipt sköpum"
- segir Erlingur Kristjánsson, fyrirliði KA
„Þetta var jafn leikur á Selfossi
en þeir voru heppnari að þessu
sinni. Við höfum heimavöllinn
til góða þegar kemur að úrslita-
leiknum í kvöld og ég vona að
það geri útslagið,“ sagði Erling-
ur Kristjánsson, fyrirliði KA,
um leik liðsins gegn Selfossi á
Akureyri í kvöld. Sigurvegari í
leiknum fer í undanúrslita-
Erlingur Kristjánsson.
Skíöi:
Bikarmót í
Hjíðarfjalli
- íslandsganga í
Ólafsfirði
Vegna snjóleysis þarf að
sameina bikarmót sem átti
að vera á Dalvík og á Siglu-
firði um helgina. Mótið fer
fram í Hlíðarfjalli. Þá verður
keppt íslandsgöngunni í Ól-
afsfirði á morgun.
Bikarmótið í Hlíðaríjalli
stendur á morgun og sunnu-
dag. Keppt verður í svigi og
stórsvigi í aldursflokkum 15-
16 ára og í flokki fullorðinna.
Hefðbundin ganga verður í
íslandsgöngunni í Ólafsfirði.
Gengnir verða 20 kílómetrar í
flokkum 16-34 ára, 35-49 ára
og 50 ára og eldri. Gengnir
verða 5 og 10 kílómetrar í
karla og kvennaflokki.
Fylgismenn
Selfoss norður
Stuðningsmenn Selfossliðsins
í handknattleik hyggjast fjöl-
menna norður yftr heiðar í
kvöld og hvetja sína menn
þegar þeir etja kappi við KA
í úrslitleik liðanna. Klapplið
KA fær því samkeppni á
heimavelli því ltkur bentu til
í gær að nokkrir tugir stuðn-
ingsmanna kæmu að sunnan
Selfyssingar leigja Fokker
50 flugvél frá Flugleiðum til
að flytja liðsmenn og stuðn-
ingsmenn norður. Síðdegis í
gær var reiknað með að Sel-
fyssingar leigðu aðra flugvél
og smærri sem einnig færi með
handboltaunnendur norður
þannig að mikið er lagt í söl-
umar til að styðja liðið í bar-
áttunni. JÓH
keppni íslandsmótsins í hand-
knattleik og fyrstu leikir þeirra
fara fram á þriðjudag. Erlingur
segir KA-menn ekkert hugsa um
undanúrslitaleiki enn sem kom-
ið er enda sé leikurinn í kvöld
aðalatriðið.
„Þetta eru jafnir og spennandi
leikir við Selfyssingana og vafalít-
ið skemmtilegir fyrir áhorfendur.
Heimavöllurinn og hvatning
áhorfenda skiptir okkur miklu og
gerir andstæðingunum erfitt fyrir.
Við höfum séð það margoft í vet-
ur að áhorfendur skipta máli fyrir
okkur því þegar okkur gengur vel
og leikgleðin er til staðar þá eru
áhorfendur 100% að baki okkur.
Það slær oft hin liðin út af lag-
inu.“
Erlingur segir að KA-liðið hafi
ekki átt góðan leik á mánudags-
kvöldið þrátt fyrir sigur þá en
bæði lið hafi spilað betri hand-
knattleik á miðvikudag og sigur-
inn lent Selfossmegin í það skipt-
ið. „Samt var fullt af mistökum í
leiknum sem er eðlilegt því spenn-
an er gífurleg. Það sem við þurf-
um fyrir leikinn í kvöld er að ná
upp stemmningu og alltaf má laga
eitt og eitt smáatriði. Eg á von á
að þessi leikur þróist líkt og hinir,
hann verði jafn en í lokin verði
það bæði lukkan og viljinn til að
vinna sem ráði úrslitum. Þetta er
spuming um einbeitingu og
stemmningu eins og oftast er í
viðureignum af þessu tagi. Hjá
okkur kemur ekkert annað til
greina en sigur því það lið sem
tapar fer bara í sumarfrí og það
ætlum við okkur ekki,“ sagði Er-
lingur.
Leikur KA og Selfoss hefst í
KA-heimilinu á Akureyri í kvöld
kl. 20. A sama tíma keppa Stjam-
an og Afturelding í Garðabæ og
Haukar og FH í Strandgötunni í
Hafnarfirði. JÓH
Knattspyrna:
Varamark-
vörður ÍBV
til Dalvíkur
Gísli Sveinsson, varamarkvörð-
ur 1. deildarliðs ÍBV, hefur
gengið til liðs við Dalvíkinga í 3.
deildinni í knattspyrnu. Gísli er
22 ára og lék einn leik með Eyja-
mönnum í 1. deildinni í fyrra.
Björn Friðþjófsson, formaður
UMFS á Dalvík, segir stefnt að
því að fá 2-3 nýja leikmenn fyrir
komandi tímabil enda þrír af
fastamönnum frá síðasta sumri
farnir til Akureyrar. Það eru þeir
Bjarni Sveinbjömsson og Atli
Rúnarsson sem fóru til Þórs og
Jón Örvar Eiríksson sem fór til
KA.
„Það er því ljóst að við verðum
að styrkja hópinn. Við ætlum að
byggja upp lið á heimamönnum
og markmiðið er að halda sætinu í
3. deildinni en það yrði góður
bónus ef við færum upp í 2. deild
og þá værum tilbúnir að styrkja
liðið enn frekar. En fyrst er að
takast á við slaginn í 3. deildinni
enda er hart barist þar,“ sagði
Bjöm. JOH
Norðlensku keppendurnir þrír á opna Coca-Cola mótinu í Geilo í Noregi. Frá vinstri: Björgvin Björgvinsson, Dagný
Linda Kristjánsdóttir og Rúnar Friðriksson.
Skíðafólk frá Dalvík og Akureyri:
Kepptu á Coca-
Cola móti í Noregi
Björgvin Björgvinsson frá Dal-
vík og Rúnar Friðriksson og
Dagný Linda Kristjánsdóttir frá
Akureyri og Jóhann Haukur
Hafstein úr Reykjavík kepptu á
opna Coca-Cola mótinu, sem
fram fór í Geilo í Noregi um síð-
ustu helgi. Eitt hundrað kepp-
endur voru í piltaflokknum og
60 í stúlknaflokknum og komu
keppendurnir víðs vegar að úr
Evrópu.
Arangur þremenninganna var
með ágætum. Jóhann Haukur Haf-
steinsson náði 2. sæti í stórsvigi
pilta og Björgvin Björgvinssin 22.
sæti. Rúnar Friðriksson féll úr
keppni. í sviginu náði Björgvin 8.
sæti en Jóhann Haukur og Rúnar
féllu báðir úr keppni. Dagný náði
að ljúka keppni bæði í stórsvigi og
svigi. Hún varð 15. í stórsviginu
og 13. í svigi. JÓH
Deildarbikarkeppnin i knattspyrnu að hefjast:
Mikilvægt mót fyrir lið-
in af landsbyggðinni
- segir Nói Björnsson, þjálfari Þórs
Deildarbikarkeppni KSÍ hófst í
gær í Reykjavík og verður fram
haldið um helgina. í keppninni
taka þátt lið úr 1., 2. og 3. deild
auk sex liða úr 4. deild. Keppnin
tryggir mikilvæga æfingaleiki
fyrir lið af landsbyggðinni, sem
búa við lakari æfingaaðstæður
og segir Nói Björnsson, þjálfari
Þórs á Akureyri, að þetta skipti
landsbyggðarfélögin miklu máli.
Raunar hafa aðstæður úti á
landi verið einstaklega hagstæð-
ar knattspyrnumönnum að und-
anförnu og t.d. er ólíku saman
að jafna hjá knattspyrnumönn-
um á Akureyri, sem á sama tíma
í fyrra höfðu skársta æfinga-
svæðið í göngugötunni í mið-
bænum.
Norðanliðin Þór, Dalvík,
Tindastóll og Völsungur keppa í
deildarbikarkeppninni um helgina.
Dalvíkingar mæta Valsmönnum á
Ásvelli í Mosfellsbæ í kvöld,
Þórsarar spila á sama velli við
Keflavík í fyrramálið og að þeim
leik loknum mæta Dalvíkingar
FH. Tindastóll mætir einnig
Haukum á Ásvellinum á morgun
og á sama tíma leika Völsungar
og Valsmenn á sandgrasinu í
Kópavogi. Á sunnudag spila svo
Tindastóll og Haukar á sandgras-
inu, Völsungar mæta FH á Ásvöll-
um en Þórsarar mæta Breiðabliki
á sandgrasinu í Kópavogi síðdeg-
is.
Nói Björnsson.
„Þetta tíðarfar er búið að nýtast
okkur vel. Það er ekki spuming,"
sagði Nói Bjömsson, þjálfari Þórs.
„Bæði hefur veðrið spilað stórt
hlutverk og ekki síður hefur verið
okkur mikilvægt að geta æft í nýju
lýsingunni á Sanavellinum. Það
hefur verið meiriháttar bylting,“
sagði Nói.
Æfingaleikjum fer að fjölga hjá
knattspymuliðunum þegar kemur
fram á þennan árstíma og sérstak-
lega getur deildarbikarkeppni KSÍ
skipt miklu. Spilað er í 6 riðlum
og eru sex lið í fimm þeirra en
fjögur í einum.
„Liðin fyrir sunnan hafa auð-
vitað ekki þurft að sækja í æfinga-
keppni eins og þessa því þar hafa
verið næg ætlngaverkefni en þá
höfum við sem erum úti á landi átt
erfitt með að komast í æfingaleiki.
Deildarkeppnin er því mjög gott
mál og þó gervigrasvellimir séu
ekki það besta þá eru þeir betri en
mölin og drullan sem við höfum
stundum þurft að búa við á völl-
unum á vorin,“ sagði Nói.
Leikið verður í deildarbikar-
keppninni næstu viku og riðla-
keppninni lýkur í lok apríl. Þá tek-
ur við úrslitakeppni en mótinu
verður lokið áður en Islandsmótið
hefst upp úr 20. maí.
i □ □ □ □ □ □ [TTTTÍ
Hamar
félagsheimili Þórs:
MARSTILBOÐ
Nýjar perur í ljósabekkjunum
Frábært verð:
Stakur tími fyrir kl. 14.00 kr. 250,-
Eftirkl. 14.00 kr. 350,-
Þórsarar, mætið í ntorgunkaffi
á föstudögum kl. 09.00
Hamar
sími 461 2080