Dagur - 23.04.1996, Side 1

Dagur - 23.04.1996, Side 1
79. árg. 77. tölublað Akureyri, þriðjudagur 23. apríl 1996 jor Gallabuxur Kr. 4.695 Síðasti aðalfundur Gunnars Gunnar Ragnars flutti í gær síðustu skýrslu sína til aðalfundar, en hann lét eftir aðalfundinn af starfi fram- kvæmdastjóra eftir sjö ára starf hjá UA. Til hægri á myndinni situr Magnús Gauti Gautason, fundar- stjóri, og lengst til vinstri stjórnar- mennirnir Jóhannes Geir Sigurgeirs- son, Pétur Bjarnason og Halldór Jónsson. Næst Gunnari er Jón Þórð- arson, stjórnarformaður UA. Aðal- stjórn félagsins var öll endurkjörin á aðalfundinum í gær. Gunnar sagði að afkoma félags- ins af reglulegri starfsemi á síðasta ári hafi verið alls óviðunandi. Fram kom að tekjur iandvinnsl- unnar hafi lækkað um sem næst 120 milljónir króna miðað við árið áður. Nokkrar ástæður nefndi Gunnar. í fyrsta lagi hafi gengis- þróun verið óhagstæð. í öðru lagi hafi afkoma ýsuframleiðslunnar versnað mjög miðað við fyrra ár. í þriðja lagi hafi hrun grálúðunnar haft neikvæð áhrif og í fjórða lagi hafi sjómannaverkfallið á síðasta ári haft afar neikvæð áhrif, „enda kom það á afleitum tíma m.a. þeg- ar úthafskarfaveiðar voru f fullum gangi.“ Vegna þessara þátta sagði Gunnar að tekjutap ÚA hafi numið um 150 milljónum króna án þess að kostnaður komi á móti, „en það er einmitt sú tala sem á vantar til þess að ná þeirri afkomu sem eðli- leg hefði verið.“ Á sl. ári voru að sögn Gunnars keyptar varanlegar aflaheimildir fyrir 137 milljónir króna. Áður en skerðingar á aflaheim- ildum hófust var ÚA úthlutað 20.656 tonnum þar af 8.875 tonn- um í þorski. Þessi 20.656 tonn eru komin niður í 9.944 tonn á yfir- standandi fiskveiðiári og hafa því rýmað um sem næst 11 þúsund tonn. Þar af hefur þorskurinn rým- að úr 8.875 tonnum í 2.235 tonn eða rúmlega 6.600 tonn. „Síðan hefur verið aflað varanlegra veiði- heimilda sem hafa rýmað um 1800 tonn þannig að félagið hefur mátt horfa á eftir um 12.800 tonnum á s.l. sjö ámm. I samhengi er hér um að ræða 56% af heilsársafla allra skipa félagsins, þar með talið leiguskipa, á s.l. ári. Þess vegna er eðlilegt, að því sé kröftuglega mót- mælt, ef við eigum ekki að fá þessa skerðingu til baka, en nýlegir samningar sjávarútvegsráðuneytis- ins við smábátasjómenn gera það einmitt að verkum," sagði Gunnar Ragnars á aðalfundinum í gær. Endanleg rekstrarniðurstaða sl. árs var 141,4 milljóna króna hagn- aður. Tap af reglulegri starfsemi nam 20 milljónum, en söluhagnað- ur af sölu Hrímbaks EA nam 140 milljónum. Þá var söluhagnaður hlutabréfa ÚA í Tryggingamið- stöðinni hf. og SÍF 33 milljónir króna. Gunnar Ragnars upplýsti að samkvæmt bráðabirgðauppgjöri fyrir fyrstu þrjá mánuði þessa árs sé jákvæð afkoma ÚA um 80 milljónir króna. Hagnaður af Nú er mál að linni - sagði Jón Þórðarson um neikvæða umræðu í fjolmiðlum um Útgerðarféiagið Umræða um Útgerðarfélag Akureyringa hf. í fjölmiðlum á liðnu ári hefur verið með afar sérstæðum hætti og ekki verið til hagsbóta fyrir félagið. Ýmsir sem hafa tjáð sig um rekstur félagsins á opinberum vettvangi hafa ekki leitað til stjórnar eða starfsmanna eftir upplýsingum. Enda virðist tilgangur umræðunnar jafnvel hafa verið að koma því inn hjá almenningi að félagið sé komið að fótum fram og þessi bíði ekk- ert nema vesaldómur í framtíð- inni nema til komi sérstakt undur eða kraftaverk.“ Þetta sagði Jón Þórðarson, stjómarformaður Útgerðarfélags Akureyringa hf. á aðalfundi þess í gær. Og hann bætti við í framhaldi af þessu: „Nú er mál að linni. Þeir sem fjalla um málefni Útgerðarfé- lags Akureyringa hf. verða að venja sig á að tala af ábyrgð og byggja málflutning sinn á stað- reyndum en þær grundvallarreglur eru í heiðri hafðar hjá félaginu sjálfu." Jón Þórðarson sagði afkomu síðasta árs áhyggjuefni, en rekstur- inn horfi til betri vegar á þessu ári. Jón minnti á að skerðingin sem ÚA hafi orðið fyrir í aflaheimildum á þorski miðað við núverandi verð- lag sé um það bil 4 milljarðar króna, þ.e. verðmæti þeirra afla- heimilda í þorski sem félagið átti við upphaf kvótakerfisins eða hefur keypt og nýtast ekki nú. „Nú þegar hugsanlega verður aukning aftur í veiðiheimildum í þorski, ræða stjórnmálamenn um að þessir fjár- munir séu betur komnir hjá öðrum. Þetta eru kaldar kveðjur til Útgerð- arfélags Akureyringa, þeirra 600- 700 starfsmanna sem eiga sína af- komu undir starfsemi félagsins og þeirra sem fjárfest hafa í félaginu á undanfömum árum. Ef þessi stefna verður ofan á fer trúlega um ís- lenskan sjávarútveg eins og hlið- stæða atvinnugrein í Norður-Nor- egi þar sem starfsemin nú minnir meira á byggðasafn en lífvænlega atvinnugrein." Jón sagði afkomu landvinnsl- unnar óviðunandi og hún sé ekki samkeppnisfær við sjófrystingu um nýtingu hráefnis. I þessari stöðu sagði Jón að erlendir ráðgjafar hafi verið fengnir til að gera úttekt á landfrystingunni og vinna tillögur í samráði við starfsmenn félagsins um endurbætur á þessum rekstri. „Megin spuming stjómar var: Er hægt að auka arðsemi landfrysting- arinnar þannig að hún verði sam- bærileg við sjófrystinguna? Ef svarið við þessari spumingu hefði verið neikvætt, lá fyrir að fyrr en síðar hefði komið til lokunar á frystihúsi félagsins og ísfisktogur- um hefði annað hvort verið skipt út eða þeim breytt í frystitogara.“ Jón sagði að niðurstaðan hafi verið sú að hægt væri að gera land- frystinguna samkeppnisfæra. Lykil- atriðin séu að bæta nýtingu fjárfest- inga og vinnuafls og leggja meiri áherslu á þróun ferla og fram- leiðslu. „En aðalatriðið er samt þetta," sagði Jón. „Við stöndum frammi fyrir því að hætta að reka frystihús og hefja rekstur matvæla- verksmiðju með þeirri hugarfars- breytingu sem það ber með sér fyrir alla aðila.“ Áætlað er að sögn Jóns, að hefja landvinnslu samkvæmt nýju skipu- lagi í ágúst nk. Stjómarformaðurinn gat um bréf það sem stjórn ÚA sendi bæjaryfir- völdum á Akureyri í febrúar sl. þar sem óskað var viðræðna um að ÚA keypti sjálft hluta af hlutafjáreign Akureyrarbæjar í félaginu. „Stjóm- in hyggst ef af verður ráðstafa þessu í samræmi við stefnu sína um aukinn vöxt og viðgang félagsins. Með þessum hætti er hægt að mæta þörf Akureyrarbæjar til að losa fjármuni sem eru bundnir í hluta- bréfum bæjarins í félaginu. Um- ræða um þetta erindi hefur enn ekki farið fram á milli félagsins og Ak- ureyrarbæjar." 1 lok ræðu sinnar þakkaði Jón Þórðarson Gunnari Ragnars fyrir sjö farsæl ár í stóli framkvæmda- stjóra og færði honum gjöf frá Út- gerðarfélagi Akureyringa. óþh Tap á Mecklenburger á síðasta ári Ríflega 100 milljóna króna tap varð á rekstri Mecklenburger Hochseefischerei, dótturfélags Útgerðarfélags Akureyringa hf„ á síðasta ári. Þetta er eilítið minna tap en áætlanir gerðu ráð fyrir. Um mitt síðasta ár nam hagnað- ur af rekstri MHF um 2 milljónum marka, ríflega -80 milljónum ísl. króna, en aflinn á síðari hluta ársins var mjög lélegur. Þá nefndi Gunnar Ragnars, framkvæmdastjóri ÚA, á aðalfundi félagsins í gær að vegna ýmissa hagræðingaraðgerða í rekstri MHF hafi verið sagt upp nokkrum fjölda starfsmanna, og vegna réttinda starfsmanna hafi uppsagnimar haft mikinn kostnað í för með sér sem allur kom til gjalda á sl. ári. Tap af reglulegri starfsemi nam 3,9 milljónum marka, en þegar tekið er tillit til söluhagnaður af einu skipi félagsins upp á 1,4 millj- ónir marka varð endanleg rekstrar- niðurstaða 2,5 milljónir marka í mínus. óþh Gunnar Ragnars, fráfarandi framkvæmdastjóri ÚA, um skerðingar afiaheimilda: ÚA hefur séð eftir 12.800 tonnum á sjö árum Gunnar Ragnars lét af störf- um framkvæmdastjóra í gær, að eigin ósk eins og komið hefur fram, eftir sjö ára starf hjá ÚA. Hann sagði að á þessum sjö árum hafi Útgerðarfélagið styrkst nokkuð og þrátt fyrir skerðingar á aflaheimildum hafi tekist að auka veltuna ár frá ári. Félagið hafi verið rekið með hagnaði öll þessi ár og eigið fé styrkst. reglulegri starfsemi nemi 41 millj- hagnaður eigna og aðrir liðir. afkomu en áætlanir hafi gert ráð ón og um 39 milljónir séu sölu- Gunnar sagði þetta nokkru betri fyrir. óþh

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.