Dagur - 23.04.1996, Qupperneq 3
FRETTIR
Þriðjudagur 23. apríl 1996 - DAGUR - 3
- kostnaður við breytingar nemur 80 millljónum króna
Ný Björg Jónsdóttir ÞH-321
kom til heimahafnar, Húsavík-
ur, sl. laugardag. Skipið er keypt
á Akranesi af Krossvík hf. á
Akranesi, 500 brl. að stærð og
hét áður HöfðaVík AK-300. Út-
gerðarfyrirtækið Langanes hf.
átti fyrir tvö báta; Björgu Jóns-
dóttur ÞH-321, sem var seld til
G. Ben hf. á Árskógssandi, og
Björgu Jónsdóttur II ÞH-320,
sem seld var til Siglfirðings hf. á
Siglufirði.
Skipinu var breytt hjá skipa-
smíðastöð Þorgeirs & Ellerts hf. á
Akranesi og kostuðu breytingam-
ar um 80 milljónir króna. Á Akra-
nesi var sett í skipið allur nót-
veiðibúnaður, m.a. kraftblakkir,
nótaniðurleggjari, fiskidælur og
loðnuskiljur auk nýs asdictækis.
Mikið af fiskileitar- og siglinga-
tækjum í brú voru endurnýjuð og
brúin innréttuð að nýju. Lestin
hefur verið hólfuð og er með ein-
angruðum síðum, sem tryggir
verulega ferskleika hráefnisins.
Skipið getur borið um 850 tonn af
sfld eða loðnu. Skipstjórar verða
Aðalgeir og Sigurður Bjamasynir,
synir Bjama Aðalgeirssonar,
framkvæmdastjóra Langaness hf.,
sem áður voru með Björgu Jóns-
dóttur og Björgu Jónsdóttur II.
Aflaheimildir þeirra báta verða
sameinaðar á nýja skipið. GG
Bergþór Bjarnason netamaður, Sigurður Bjarnason 1. stýrimaður, Aðalgeir
Bjarnason skipstjóri og Bjarni Aðalgeirsson útgerðarmaður við komu
Bjargar Jónsdóttur ÞH til HÚsavíkUr Sl. laugardag. Myndir: Hafþór Hreiðarsson
Björg Jónsdóttir ÞH fánum prýdd við komuna til Húsavíkur sl. laugardag.
Viðræöur um hugsanlega sameiningu UA og þriggja
dótturfélaga Samherja:
Hagur ÚA verður
hafður að leiðarljósi
- segir Jakob Björnsson, bæjarstjóri
Jakob Björnsson, bæjarstjóri á
Akureyri, sagði á aðalfundi
Útgerðarfélags Akureyringa
hf. í gær, að Akureyrarbær
muni ganga til viðræðna við
stjórnendur Samherja með hag
Útgerðarfélags Akureyringa
hf., hluthafa þess og starfsfólks
að leiðarljósi. Þessar viðræður
hefjast væntanlega í þessari
viku.
Jakob lét þessi orð falla
vegna þess erindis sem Þor-
steinn Már Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri Samherja, hefur
sent bæjaryfirvöldum, þar sem
hann óskar eftir því m.a. að Ak-
ureyrarbær beiti sér fyrir því að
teknar verði upp könnunarvið-
ræöur^ um hugsanlega samein-
ingu ÚA og þriggja dótturfélaga
Samherja; Oddeyrar, Söltunarfé-
lags Dalvíkur og Strýtu. Jakob
upplýsti jafnframt að bæjaryfir-
völd muni ræða og svara form-
lega erindi stjómar ÚA um kaup
á hluta af hlutabréfum Akureyr-
arbæjar í ÚA.
Jón Hjaltason, sagnfræðingur,
gagnrýndi harðlega, sem hann
kallaði ráðaleysi bæjarfulltrúa
varðandi ÚA. Hann nefndi sér-
staklega að framsóknármenn í
meirihluta bæjarstjómar Akur-
eyrar hafi tíðkað að tala illa um
Útgerðarfélagið og vitnaði þar
sérstaklega til ummæla Guð-
mundar Stefánssonar, bæjarfull-
trúa, í Degi í síðustu viku. Jón
lýsti þeirri skoðun sinni að ef
Samherjamönnum væri alvara
með viðræðum um sameiningu,
þá yrði móðurfélagið Samherji
að vera með í þeirri sameiningu.
Annars væri lítið gefandi fyrir
þessar hugmyndir.
Sigríður Stefánsdóttir, bæjar-
fulltrúi Alþýðubandalagsins,
gagnrýndi málsmeðferð meiri-
hluta bæjarstjómar í ÚA-málinu.
Hún sagðist hafa lýst þeirri
skoðun sinni að erindi stjórnar
ÚA bæri að taka fyrst til með-
ferðar, en fyrir því hafl ekki
reynst hljómgrunnur. Hún sagð-
ist hins vegar hafa stutt þá
ákvörðun bæjarráðs að ræða við
forráðamenn Samherja, ekki
komi annað til greina en ræða
þetta mál í kjölinn. Þorsteinn
Már Baldvinsson sagði að for-
ráðamenn Samherja gerðu sér
fulla grein fyrir því að hlutabréf
í ÚA yrðu ekki færð Samherja á
silfurfati, eins og hann orðaði
það. Þorsteinn nefndi, vegna
orða Jóns Hjaltasonar, að áður-
nef'nd dótturfélög væru ekki lítil
í sniðum. Strýta og Söltunarfé-
lagið hafi á síðasta ári tekið á
móti 10 þúsund tonnum írí rækju
að verðmæti 1500-1600 milljón-
ir króna. Þorsteinn Már sagðist
vænta þess að viðræður um
hugsanlega sameiningu taki ekki
lengri tíma en einn mánuð.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson
gagnrýndi málflulning Jóns
Hjaltasonar og Sigríðar Stefáns-
dóttur og taldi að hann rnarkað-
ist af pólitík. Slíkt væri ekki til
heilla fyrir ÚA. Jóhannes lagði á
það áherslu að full samstaða
væri í stjóm ÚA um öll stærri
mál og jafnframt benti hann á að
vegna samsetningar stjórnarinn-
ar væri engin ástæða til að ætla
annað en hagsmuna allra hlut-
hafa félagsins sé gætt við
ákvarðanatökur.
Samþykkt var á aðalfundin-
um í gær tillaga um 250 þúsund
króna þóknun til stjómarmanna
og 500 þúsund króna þóknun til
stjómarformanns ÚA. Þá var
samþykkt tillaga sem Jón Þórð-
arson, stjómarformaður ÚA, bar
upp um heimild til stjómar ÚA
um kaup Útgerðarfélagsins á allt
að 10 af hundraði af hlutafé fé-
lagsins. Þessi tillaga tengist bréfi
því sem stjórn UA hefur sent
bæjaryfirvöldum á Akureyri.
óþh
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Norrænir
starf smenntu narstyrki r
Menntamálaráðuneyti Danmerkur, Finnlands og Nor-
egs veita á námsárinu 1996-97 nokkra styrki handa ís-
lendingum til náms við fræðslustofnanir í þessum lönd-
um. Styrkirnir eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms
eftir iðnskólapróf eða hliðstæða menntun, til undirbún-
ings kennslu í iðnskólum eða framhaldsnáms iðnskóla-
kennara, svo og ýmis konar starfsmenntunar sem ekki
er unnt að afla á íslandi. Einnig er gert ráð fyrir að
sams konar styrkir verði í boði til náms í Svíþjóð á
næsta námsári. Fjárhæð styrks í Danmörku er 20.000
d.kr., í Finnlandi 27.000 mörk, í Noregi 22.400 n.kr. og
í Svíþjóð 14.000 s.kr.
Umsóknum um styrkina, ásamt staðfestum afritum
prófskírteina og meðmælum, skulu sendar mennta-
málaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir
24. maí nk. Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðu-
neytinu.
Menntamálaráðuneytið,
19. apríl 1996.
%
Karlakór Dalvíkur
Fögnum sumri
með Karlakór Dalvíkur.
Tónleikar
í Dalvíkurkirkju, sumardaginn fyrsta,
25. apríl kl. 21.
Stjórnandi: jóhann Ólafsson.
Undirleikari: Helga Bryndís Magnúsdóttir.
Einsöngvarar: Jónas Þór jónasson
og Valdimar Kjartansson.
VÉLAKVNNING!
■ ’
. .. '.
■
Frumsýnum nýja kynslóð DEUTZ
traktora á Lónsbakka Akureyri:
Föstudag 26. apríl kl. 13 -18
Laugardag 27. apríl kl. 10 -17
ÞQR HF
Reykjavík - Akureyri DEUTZ FAHR
.......... ...................................................
REYKJAVí” Ármúla 11 - Sími 568-1500 AKUREYRI: Lónssbakka - Sfmi 461-1070
\
RAUTT Lf ÓS W** RAUTT LÍÓS
mM mÉumferðar mÆ
\________________________________________/